Stjarnan - 01.07.1956, Page 2

Stjarnan - 01.07.1956, Page 2
50 STJARNAN Margir, sem hafa nafn sitt í kirkjubók- inni, fara í kirkju aðeins stöku sinnum á ári. Aðrir, þó þeir fari það oftar, gjöra það aðeins af vana sem skylduverk, en hjörtu þeirra eru alls ekki snortin. Þeir álíta að trúarbrögðin hafi lítið að gjöra með hversdagslífið. Þeir opna sjaldan Biblíu sína heima hjá sér. Bænir þeirra eru sjaldgæfar og fylgir þeim lítil alvara. Þeir athuga það ekki samkvæmt Guðs orði, að „Gata réttlátra er sem skínandi ljós sálarinnar, þess birta eykst alt til há- degis.“ Orðskv. 4:18. Jesús sagði við lærisveina sína: „Þér eruð ljós heimsins. Sú borg, sem á fjalli er byggð fær ekki dulist. Menn kveikja ekki ljós til að setja það undir mæliker, heldur setja menn það í ljósastiku svo að það lýsi þeim sem inni eru. Svo lýsi og yðvart ljós öðrum mönnum, að þeir sjái yðar góðverk og vegsami yðar himneska föður.“ Matt. 5:14.-16. Jesús sagði oss hverju vér eigum að keppa eftir, er hann sagði: „Verið þar fyrir fullkomnir, eins og faðir yðar á himnum er fullkominn.“ Vers 48. Þessu takmarki getur maður ekki náð á einum degi. Það verður að vera stöðug, áframhaldandi framför, eins og sólin rís hærra og hærra alt til hádegis. Enginn ætti að vera ánægður með þann þroska, sem hann hefir náð í kristilegu líferni, heldur sífelt keppa hærra og hærra horfandi til trúarinnar uppbyrjara og fullkomnara Jesú. Enginn kristinn maður ætti nokkurn tíma að hugsa eða segja: „Það sem var nógu gott fyrir foreldra mína er nógu gott fyrir mig.“ Vér megum ekki taka nokkurn jarðneskan mann til fyrirmyndar hversu góður sem hann er. Jesús einn á að vera vor fyrirmynd. Spurningin, sem ávalt ætti að vera í huga vorum er: „Hvað vill Jesús ég gjöri?“ Einhver kynni að segja að takmarkið sem Kristur setti sé of hátt. Hver getur náð því? En ef vér viljum taka Guð á orðinu, þá er það hann sem framkvæmir. Þegar Jesús sagði ríka unga manninum að selja alt sem hann átti og koma svo og fylgja sér, ef hann óskaði að öðlast eilíft líf, þá varð ungi maðurinn hryggur og gekk í burt, því hann átti miklar eignir. Þá litaðist Jesús um og mælti: „Hversu torvelt er hinum ríku að komast inn í Guðs ríki.“ Lærisveinum hans brá mjög er þeir heyrðu þetta svo þeir spurðu: „Hver getur þá orðið hólpinn?11 Jesús leit til þeirra og mælti: „Fyrir manna sjónum er það ó- mögulegt, en ekki fyrir Guði, því Guði er ekkert um megn.“ Enginn getur frelsað sjálfan sig, en fyrir Krist geta allir, sem á hann trúa og honum fylgja, náð aldurshæð Krists fyllingar. (Efes. 4:13). Guð hefir veitt oss alt sem þarf til að ná þessu takmarki. Hið helzta er bæn og lestur heilagrar Ritningar. Jesús hefir án efa lesið Ritningarnar til leiðbeiningar sínu daglega starfi. í bæn sinni til föðursins fyrir lærisveinum sínum bað hann: „Helg- aðu þá í þínum sannleika, þitt orð er sann- leikur.“ Jóh. 17:17. Jesús sagði við Sadúsea: „Þér villist með því þér skiljið ekki Ritningarnar né mátt Guðs.“ Matt. 22:29. Jesús var oft einn sér á bæn. Hann hvatti lærisveina sína til að biðja í ein- rúmi: „Nær þú vilt biðjast fyrir, þá far þú í svefnhús þitt og loka dyrunum, bið svo föður þinn í einrúmi, og hann, sem sér hvað í einrúmi skeður, mun veita þér það opinberlega.“ Matt. 6:6. „Biðjið, þá mun yður gefast, leitið þá munuð þér finna, knýið á þá mun fyrir yður upp lokið verða . . . . Ef nú þér sem vondir eruð, tímið ekki að gefa börnum yðar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá ekki yðar himneskur faðir gefa þeim góða hluti, sem hann biðja.“ Matt. 7:7.—11. Jesús sagði lærisveinum sínum að stundum væri hægt að öðlast sigur ein- ungis með bæn og föstu. Þegar lærisvein- arnir sáu að þeir gátu ekki læknað dreng, sem haldinn var af illum anda, þá spurðu þeir Jesúm: „Hvers vegna gátum vér ekki rekið hann út?“ Jesús sagði við þá: „Sakir trúarleysis yðar, því sannlega segi ég yður, ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, þá munduð þér geta sagt við fjall þetta: flyttu þig héðan og þangað, og það mundi flytja sig, og ekkert mundi yður þá um megn vera. En þetta djöflakyn verður ekki út rekið nema með bæn og föstu.“ Matt. 17:20.-21,

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.