Stjarnan - 01.07.1956, Page 3

Stjarnan - 01.07.1956, Page 3
STJARNAN 51 Það er fæða fyrir sálina að lesa Biblí- una. Guðs orð er lífsins brauð. Eins og líkaminn getur ekki haldist við án dag- legrar fæðu, eins verður hið andlega líf að hafa daglega næringu. Andleg fæða er miklu nauðsnylegri heldur en hin líkam- lega. Jesús var hungraður eftir að hann hafði fastað 40 daga. Satan freistaði hans, er hann bað hann gjöra steina að brauðum, en Jesús svaraði: „Maðurinn lifir ekki af einu saman brauði, heldur af sérhverju orði, sem fram gengur af Guðs munni.“ Matt. 4:4. Jesús fylgdi Guðs orði og hann hafði daglegt samband við föðurinn í bæn til þess að hafa hinn sigrandi kraft í lífi sínu á hverjum degi: Það er ekki nóg aðeins að þekkja Guðs vilja, vér verðum einnig að hafa kraft til að framkvæma hann. Þennan kraft öðlumst vér fyrir bæn. Um Jesúm lesum vér að „Hann fór einn saman upp á fjall nokkurt til að biðjast fyrir, og er kvöld var komið var hann þar einn.“ Matt. 14:23. Að morgni fyrir dögun fór hann á fætur og gekk út úr borginni einn og gjörði þar bæn sína.“ Mark. 1:35. „En svo bar við, að hann um þessar mundir fór upp á eitt fjall til að biðjast fyrir, og var þar ■ alla nóttina á bæn til Guðs.“ Lúk. 6:12. Rétt áður en Jesús mætti þyngstu reynslunni, sem kostaði líf hans, gekk hann út í grasgarðinn Getsemane til að biðja um kraft til að standast. Þar öðlaðist hann kraft að ganga götuna til krossins. Ef Jesús varð að lifa stöðugu bænalífi, til þess að komast sigrandi gegn um lífið, hve miklu fremur þurfum vér þess, vér, sem nú erum uppi. Hann þekti vel þörf lærisveina sinna svo hann bauð þeim: „Vakið og biðjið svo þér fallið ekki í freistni, andinn er að sönnu reiðubúinn en holdið er veikt.“ Matt. 26:41. Já vissulega. „Andinn er reiðubúinn en holdið er veikt,“ en engum þarf að fallast hugur fyrir þetta. Vér hrösum að vísu oft á leið vorri að keppast eftir fullkomnun, en vér iðrumst yfirsjóna vorra og lærum a.ð forðast þær, svo tökum vér meiri og meiri framförum. Ef vér lesum Guðs orð með fúsu hjarta til að hlýða því, og biðjum stöðugt um kraft til að þóknast Guði, þá munum vér dagalega öðlast meiri kraft til að feta í fótspor Krists og að lokum mun hann segja til vor: „Vel gjört góði og trú- lyndi þjónn .... Gakk inn í fögnuð herra þíns.“ —FREDERICK LEE -----------☆------------ Kærleiki Guðs „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist, heldur hafi eilíft líf.“ Guð elskar okkur jarðnesku börnin sín eins og hann elskar sinn eingetinn son. „Þá dýrð sem þú gafst mér hef ég gefið þeim, svo þeir séu eitt eins og við erum eitt. Ég í þeim og þú í mér svo þeir séu fullkomlega sameinaðir og heimurinn viti að þú sendir mig og elskar þá, eins og þú elskar mig.“ Jóh. 17:23. Hve vonlaust var ástand vort þegar Jesús dó fyrir oss? „En Guð sýnir elsku sína til vor í því, að þegar vér ennþá vorum syndarar, er Kristur fyrir oss dáinn.“ Note: Það er náttúrlegt að elska þá sem elska oss. En það er guðdómlegt að elska þá, sem fyrirlíta oss. Jesús elskaði okkur þegar vér vorum í uppreisn gegn honum. Hvað leiddi kærleikur Guðs hann til að gjöra fyrir oss? „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn son.“ Af því Guð elskaði mannkynið fann hann veg til að frelsa það. Hvernig útmálar Jesajas kærleika Krists, og hvað hann þess vegna leið fyrir okkur? „Hann var fyrirlitinn af mönnum, yfir- gefinn, undirorpinn harmkvælum, auð- kendur af sárum, líkur manni þeim er menn byrgja fyrir andlit sín . . . þó bar hann vor sár, lagði á sig vor harmkvæli, en vér álitum hann refsaðan, sleginn og lítillækkaðan af Guði. Og þó var hann vegna vorra misgjörða særður, og fyrir vorra synda sakir lemstraður, hegningin lá á honum svo vér hefðum frið, og fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir . . . .

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.