Stjarnan - 01.07.1956, Síða 4
52
STJARNAN
Drottinn lagði á hann syndir vor allra.“
Jes. 53:3.—6.
Var hægt að auðsýna meiri kærleika?
„Meiri elsku hefir enginn en þá, að hann
láti líf sitt fyrir vini sína.“ Jóh. 15:13.
Hve stöðugur er kærleiki Guðs til
mannanna? „Með eilífri elsku elska ég
þig.“ Jer. 31:3.
Hve víðtækur er kærleikur vors him-
neska föður?
Ekki seinkar Drottinn sínu fyrirheiti . . .
heldur hefir hann biðlund við oss, þar eð
hann ekki vill að nokkur fyrirfarist, heldur
að allir komist til sinnisbetrunar.“
2. Pét. 3:9. '
Þegar Jóhannes postuli fann engin orð
til að lýsa kærleika Guðs, hvað sagði
hann þá?
„Sjáið hvílíkan kærleika Faðirinn hefir
oss auðsýnt, að Vér skulum Guðs börn
kallast.“ 1. Jóh. 3:1.
Hve persónulega sýndi Jesús kærleika
sinn til glataðra syndara?
„Hann elskaði mig og gaf sig sjálfan út
fyrir mig.“ Gal. 2:20.
Tunga getur ekki lýst því, penni getur
ekki útskýrt það. Þú getur hugsað um það
daglega svo lengi sem þú lifir, og rann-
sakað ritningarnar til að skilja það. Þú
getur notað alla lífs og sálar krafta, sem
Guð hefir gefið þér, til að komast í skilning
um kærleika Guðs til vor. En hann er
dýpri og innilegri en svo að vér getum
gripið hann. (E. G. W.).
Hefir kærleiki Guðs og frelsarans gagn-
tekið hjarta mitt? Get ég sagt með postul-
anum Páli: „Því ég er þess fullviss, að
hvorki dauði né líf, hvorki englar, né
höfðingjadæmi né völd, hvorki hið yfir-
standandi né hið ókomna. Hvorki hæð né
dýpt, né nokkur önnur skepna muni geta
skilið oss við kærleika Guðs, sem er í Jesú
Kristi Drotni vorum.“ Róm. 8:38.—39.
—S. T.
-----------A------------
Yfirmaður fiskiveiðanna á Nýja Sjálandi
hefir sagt fiskimönnum á Suðurhafseyjum
að nýr fiskur soðinn með coco-hnetum
gæti geymst óskemmdur í 6 mánuðþ
☆ ☆ ☆
Bandaríkjaherinn býst við að þurfa 85
miljónir dollara fyrir fatnað handa her-
mönnum sínum árið Í956.
Það vakti forvitni þeirra
Vér vorum rétt að byrja starf í Kokoda
héraðinu á Nýju Guineu. Ég tók með mér
nokkra af innlendum starfsmönnum vor-
um t'il að kynnast fólkinu og veita því
lítilsháttar þekkingu á Guðs orði.
Annað trúboðsfélag hafði starfað þarna
í mörg ár, án þess að mæta nokkurri mót-
spyrnu. En þó fólkið væri vingjarnlegt
við oss, mátti sjá að vér vöktum forvitni
þess fremur en traust. Einn af hinum inn-
lendu starfsmönnum vorum komst að því
að fólkið í einu þorpinu hafði verið varað
við okkur og því sagt, að ef þeir skiftu
sér nokkuð af Aðventistunum, þá mundi
biskupinn reiðast, koma þangað og snerta
fjallið svo það færi að gjósa eldi og brenni-
steini. í öðru þorpi var fólkinu sagt að
eiga engin mök við Aðventista, þeir væru
svo einkennilegir, því þeir ætu heldur
ekki sykurreyr eða sætar kartöflur, hvorki
tygðu betelhnetu, reyktu né ætu svína-
kjöt. Það eina, sem þú getur etið, ef þú
verður Aðventisti, er þroskaðir bananas.
í enn öðru þorpi hafði leiðtogi fólksins
stungið staur niður í moldina og sagt
fólkinu, að ef það leyfði Aðventistum að
prédika þar, þá mundi fljót koma upp úr
holunni eftir staurinn, eyðileggja garðana
og húsin, og flóð mundi koma og sópa
öllu fólkinu í burtu.
Enginn mentaður maður gæti trúað
öðru eins og þessu. En þetta fólk hefir
ekkert lært ,og engum þar kemur til hugar
að efast um orð biskupsins eða manna
hans. En allar þessar aðvaranir vöktu for-
vitni fólksins, svo menn sögðu hver við
annan: „Hvað eigum vér að gjöra?“ Þegar
vér svo byrjuðum að sýna myndir í þorp-
unum, þá hafði fólkið mikinn áhuga fyrir
því að vita, hverju þessir Aðventistar
trýðu og hvað þeir kendu.
Formaður stjórnarinnar í Kokoda hér-
aðinu lét í ljósi ánægju sína yfir að vér
komum þangað. Hann kvaðst hafa séð ár-
angurinn af starfi voru á öðrum stöðum
og var hrifinn af því. Hann sagði mér að
annað trúboðsfélag væri að koma þangað
úr vesturátt, og af því hann áleit að vér
gjörðum miklu meira til að lyfta fólkinu