Stjarnan - 01.07.1956, Síða 8

Stjarnan - 01.07.1956, Síða 8
56 STJARNAN CT IA R N A M Authorized aa second class O JrtKIMrtlM maU post offlce Depart. ment, Ottawa. Published monthly. Price |1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjðrn og afgreiCslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. á Guð frelsar þá. Hér er loforð Guðs til þeirra, sem treysta honum: Þitt „hæli er hinn eilífi Guð og hið neðra eru eilífir armar“. Þeir sem treysta og hlýða Guði fá syndir sínar fyrirgefnar og frelsast frá eilífum dauða. Guð hefir sagt: „Hver sá maður, sem syndgar hann skal deyja“, svo afdrif hins óguðlega er eilífur dauði. En ef hinn óguð- legi snýr sér til Guðs og hafnar syndinni þá öðlast hann fyrirgefning og frelsun, því „Guð vill ekki dauða syndarans heldur að hann snúi sér og lifi.“ Guð gefur honum þá eilíft líf.“ Því Jesús sagði: „Sá, sem trúir á soninn hefir eilíft líf.“ En hann segir líka í sama versi, að „Sá, sem ekki hlýðnast syninum skal ekki sjá lífið.“ Jóh. 3:36. Margur maðurinn, sem er hryggur yfir sinni umliðnu breytni, gefur gaum að til- boði Guðs og kemur til hans og notaar þá krafta, sem eftir eru til að snúa heimleiðis eins og tapaði sonurinn, faðmur hins kær- leiksríka föður tekur á móti honum. Hlýddu Guði, treystu náð hans, þetta tvent verður að fylgjast að, þá ert þú öruggur og óhultur: „Varpa áhyggjum þínum upp á Drottinn, hann mun veita þér atvinnu.“ Sálm. 55:22. Þetta er hvíld fyrir sálu mannsins, allri byrði er af henni létt. Hvílíkt dásamlegt frelsi að vera laus við allan ótta og áhyggjur. Hvílíkan frið og gleði það veitir. Guð annast börnin sín alt í gegn um lífið. „Ég er yður einn og hinn sami alt til elliára. Ég vil bera yður . ... ég hef búið mér byrðina, ég skal bera hana, bera hana skal ég og frelsa hana.“ Jes. 46:4. —J. W. H. -----------☆--------:---- Nálægt 200 þúsund Ameríkumenn meiðast til skaða á ári hverju, bæði af umferðaslysum og öðrum óhöppum. Þér eruð ekki undir lögmáli „Því þér eruð ekki undir lögmáli heldur undir náð“. Róm. 6:14. Þetta er dýrmæt fullvissa. Vér höfum allir syndgað og skortir Guðs dýrð. Vér vitum að „þeim sem vér hlýðum, þess þjónar erum vér. Allir höfum vér eitt eða annað skifti fallið fyrir freistingu og leiðst til syndar og þess vegna komist í bága við lögmálið. „Laun syndarinnar er dauði.“ Lögmálið heimtar dauða syndarans. En Jesús tók að sér vora skuld. Hann dó fyrir vorar syndir, mínar og þínar syndir. Lögmálinu var fullnægt. Svo nú erum vér ekki lengur undir lögmáli heldur undir náð. Sumir þýða þetta þannig að vér þurfum ekki lengur að hlýða lögmálinu. Hvílíkur misskilningur. Yfirtroðsla lögmálsins er synd, og ef vér brjótum lögmálið, þá erum vér þjónar syndarinnar, og erum þá aftur komnir undir lögmálið. Páll postuli gjöi-ir þetta skýrt fyrir oss: „Hvað þá. Eigum vér að syndga, fyrst vér erum ekki undir lögmáli heldur undir náð? Fjarri sé það“. Guð varðveiti oss frá að komast aftur undir lögmálið, sem náð Jesú Krists hefir frelsað oss frá. Enginn getur neytt oss til að syndga. Vér mætum margs konar freistingum, en oss er ávalt undankomu auðið. Guð gefur oss það mótstöðuafl sem vér þurfum, ef vér aðeins leitum hjálpar hjá honum. Vér höfum frjálsræði til að velja og hafna. Syndin er afleiðing þess að vér kjósum að fylgja uppástungu óvinarins 1 stað þess að fylgja Kristi. Guð varðveiti oss frá að syndga vísvitandi eða af ásettu ráði og sýna með því fyrirlitning fyrir fórn Krists oss til friðþægingar. Vér vitum að lögmálið er heilagt, rétt- látt og gott, það var gefið oss til leiðbein- ingar, en það fordæmir synd. Ef vér höfum verið endurfæddir, þá erum vér andlegir menn, hjarta vort og hugarfar er þá i samræmi við lögmálið. Jesús lifir þá sínu heilaga lífi í oss. Hans réttlæti er tileinkað oss, sem elskum hann og fylgjum honum. Biðjum Guð án afláts að varðveita oss í samfélaginu við sig, svo vér megum finnast að lokum meðal þeirra „Sem varðveita boðorð Guðs og Jesú trú.“ —J. H. WRIGHT

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.