Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 3 Þjónustufulltrúi Óskum eftir að ráða þjónustufulltrúa fyrir Eignaumsjón hf. Helstu verkefni eru:  Upplýsingagjöf og samskipti við viðskiptavini  Umsjón og vinnsla innheimtu húsgjalda og annarrar innheimtu fyrir hönd viðskiptavina  Undirbúningur vegna húsfunda  Skráningar á gögnum  Undirbúningur og uppsetning á innheimtuáætlunum  Samskipti við þjónustuaðila f.h. viðskiptavina  Auk annarra fjölbreytilegra daglegra starfa í þjónustuveri Eignaumsjónar hf. Æskilegt er að umsækjandi sé að lágmarki með stúdentspróf eða sambærilega menntun. Marktæk starfsreynsla af sambærilegu starfi er kostur. Tölugleggni og góð þekking á helstu tölvuforritum s.s. excel og word ásamt almennri tölvukunnáttu. Áhersla er lögð á áhugasemi, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð, frumkvæði og eftirfylgni, auk lipurðar í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi. Hópstjóri Óskum eftir að ráða hópstjóra í þjónustuver fyrir Eignaumsjón hf. Þjónustuver Eignaumsjónar annast samskipti við viðskiptavini, ráðgjöf, undirbúning funda o.m.fl. Helstu verkefni hópstjóra eru:  Verkstjórn daglegra verkefna þjónustuvers  Upplýsingagjöf, ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini  Samskipti við þjónustuaðila og verktaka  Auk annarra fjölbreytilegra starfa í þjónustuveri Eignaumsjónar hf. Æskilegt er að umsækjandi sé að lágmarki með stúdentspróf eða sambærilega menntun. Marktæk starfsreynsla af sambærilegu starfi er mikill kostur. Tölugleggni og góð þekking á helstu tölvuforritum s.s. outlook, excel og word ásamt almennri tölvukunnáttu. Áhersla er lögð á samskiptahæfni, ríka þjónustulund, skipulagshæfileika, lipurð í mannlegum samskiptum, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 9. september nk., gengið verður frá ráðningu sem fyrst. Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf., veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 588 3031, en símatími er alla virka daga frá kl. 13-15. Vinsamlega sendið umsóknir og meðfylgjandi gögn til stra@stra.is. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031 - stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is. Eignaumsjón er 17 ára gamalt fyrirtæki og er leiðandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög og býður heildarlausnir í rekstri fjöleignarhúsa bæði íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Félagið hefur umsjón með daglegum rekstri fjölmargra hús- og rekstrarfélaga og kemur faglega að lausn mála sem koma upp í fjölbýlum og fjöleignarhúsum. Markmið félagsins er að gera rekstur húsfélaga markvissari og ódýrari, auðvelda störf stjórna og spara tíma þeirra sem að húsfélaginu standa. Gegnsæi og hlutleysi í öllum rekstri og aðgengilegar upplýsingar um rekstur og ákvarðanir auka skilvirkni og bætir samskipti. Rafkaup leitar að starfsfólki Einungis reyklausir einstaklingar, eldri en 25 ára, koma til greina og þarf viðkomandi að hafa hreint sakarvottorð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstörf er að ræða. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda til atvinna@rafkaup.is fyrir 5. september 2018. Sölumaður í verslun Í starfinu felast öll almenn verslunarstörf s.s. sölumennska, vöru- framsetning, innkaup, áfylling og fleira. Um hlutastarf er að ræða og er vinnutími virka daga frá kl. 12:00 –18:00 og einn til tveir laugardagar í mánuði frá kl. 11:00 –16:00. Hæfniskröfur: • Reynsla af verslunarstörfum • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð þjónustulund Starfsmaður á lager Í starfinu felast öll almenn lagerstörf s.s. afgreiðsla pantana, vörumóttaka, áfyllingar ofl. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00 –17:00. Hæfniskröfur: • Reynsla sem nýtist í starfi • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð þjónustulund Rafkaup er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á lömpum, lampabúnaði og ljósaperum. Markmið félagsins er að vera ávallt í fremstu línu varðandi þjónustu til viðskiptavina sinna og markaðssetningu á þeirri vöru sem fyrirtækið selur. • Stundvísi • Gott skipulag • Góð íslenskukunnátta • Stundvísi • Gott skipulag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.