Morgunblaðið - 14.09.2018, Side 2

Morgunblaðið - 14.09.2018, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018 Meistaradeild kvenna 32ja liða úrslit, fyrri leikir: Lilleström – Zvezda Perm...................... 3:0  Sigríður Lára Garðarsdóttir sat á vara- mannabekk Lilleström. Gintra – Slavia Prag................................. 0:3 Atlético Madrid – Manch. City................ 1:1   Erfiður vetur hjá bá STJARNAN Ívar Benediktsson iben@mbl.is Hvers vænta má af liði Stjörnunnar á leiktíðinni er erfitt að segja um. Ár- angurinn á síðasta keppnistímabili olli vonbrigðum. Stjarnan hafnaði í fimmta sæti og komst ekki í úr- slitakeppnina. Árið áður hafði Stjarn- an orðið deildarmeistari, unnið bik- arkeppnina og leikið til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn, reyndar fimmta árið í röð. Í fyrra átti liðið að fara alla leið. Sú áætlun breyttist í andhverfu sína. Af þessu leiddi að skipt var um þjálfara í vor. Sebastían Alexnd- ersson og Rakel Dögg Bragadóttir voru ráðin til að taka við af Halldóri Harra Kristjánssyni. Sebastían náði góðum árangri á Selfossi og Rakel Dögg er þrautreynd handknattleiks- kona. Hún var annar þjálfari liðsins veturinn 2014/2015. Einnig hefur orðið talsverð breyt- ing á leikmannahópnum. Meðal þeirra sem eru komnar eru Elísabet Gunn- arsdóttir línumaður frá Fram, Laufey Ásta Guðmundsdóttir úr Gróttu, Elín Anna Baldursdóttir úr Haukum, Auð- ur Brynja Sölvadóttir úr KA/Þór, Auður Ómarsdóttir úr Gróttu og Guð- rún Ósk Maríasdóttir, markvörður Fram. Guðrún er hvalreki fyrir liðið þar sem markvarslan var einn helsti höfuðverkur liðsins á síðasta vetri. Þótt vel valinn hópur sé kominn til Stjörnunnar þá hefur liðið einnig séð á bak leikmönnum. Þar má nefnda Ramune Pekarskyte sem fór í Hauka, Elena Elísabet Birgisdóttir gekk til liðs við Förde í Noregi, Aníta Theo- dórsdóttir gekk til liðs við FH. Þess utan er ekki reiknað með að Nataly Sæunn Valencia, Esther Viktoría Ragnarsdóttir, Sólveig Lára Kjærne- sted, Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Ástríður Þóra Viðarsdóttir verði með Stjörnunni á keppnistímabilinu. Til viðbótar hefur Þorgerður Anna Atla- dóttir lýst því yfir að hún sé hætt í handbolta eftir þyrnum stráðan feril um árabil vegna meiðsla. Frá í vor hefur verið uppi orðrómur um að Stjarnan væri með erlendan leikmann í sigtinu til að styrkja liðið. Í ljósi mikilla breytinga er erfitt að sjá að Stjarnan verði með lið í fremstu röð á komandi leiktíð. Veturinn fari í uppbyggingu. Nokkuð sem Sebastían þjálfari er snjall við. Það sýndi hann í starfi sínu á Selfossi. Hvort sama þol- inmæðin er fyrir hendi í Garðabæ er síðan annað mál. Morgunblaðið/Eggert Fimm Guðrún Ósk Maríasdóttir er komin í markið hjá Stjörnunni og það er gríðarlegur liðsstyrkur. Uppstokkun innan vallar sem utan  Þjálfaraskipti eftir vonbrigði í fyrra SELFOSS Ívar Benediktsson iben@mbl.is Selfoss hefur fest sig í sessi í efstu deild kvenna í handknattleik á síðustu árum. Fyrir fáeinum árum stefndi í að liðið yrði í allra fremstu röð en af því varð ekki. Reyndar komst Selfoss- liðið í undanúrslit í bikarkeppninni snemma árs 2017. Lengra fór liðið ekki. Efniviðurinn hefur verið fyrir hendi enda hefur um árabil verið vel haldið utan um þjálfun barna og ung- linga hjá félaginu. Örn Þrastarson er þjálfari Selfoss nú eins og í fyrra. Selfoss kom á óvart í fyrstu umferð Olís-deildarinnar í fyrra með sigri á Stjörnunni á heimavelli. Stjörnunni hafði nokkrum dögum áður verið spáð meistaratitli. Selfoss-liðið var heldur ekki í toppbaráttu. Meiðsli settu strik í reikninginn. Markadrottning þriggja áranna á undan, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, var nánast frá allt keppnistímabilið eftir að hafa slitið krossband í mars 2017. Þuríður Guð- jónsdóttir var einnig frá vegna kross- bandaslita og verður ekki með liðinu framan af komandi leiktíð. Fleiri leik- menn voru meiddir um lengri eða skemmri tíma. Keppnistímabilið var liðinu erfitt. Nú standa vonir til þess að Hrafnhildur Hanna verði með af krafti frá fyrsta leik. Ekki þarf að tí- unda hversu mikill liðsauki það er. Markvörðurinn Katrín Ósk Magn- úsdóttir flutti heim frá Danmörku og tekur stöðu Viviann Petersen sem flutti á ný til Færeyja. Daninn Sarah Boye hefur gengið til liðs við Selfoss-liðið svo og Carmen Palamariu sem hafði lagt skóna á hill- una vegna meiðsla vorið 2017. Pala- mariu er eini örvhenti leikmaður liðs- ins. Auk Viviann þá er Arna Kristín Einarsdóttir í barnsburðarleyfi frá handbolta og Elva Rún Óskarsdóttir er hætt að æfa handbolta. Eins og staðan er við upphaf leik- tíðar hefur Selfoss aðeins einn mark- vörð innan sinna raða. Verið er að vinna í að fá annan enda útlokað að treysta á einn markvörð þótt vafa- laust eigi Katrín Ósk eftir að standa fyrir sínu. Selfoss-liðið mun vafalítið getað strítt liðunum í efri hluta deild- arinnar, ekki síst á heimavelli sínum. Byrjunarliðið er ágætt en hinsvegar er breiddin í leikmannahópnum e.t.v. ekki nægjanleg til þess að liðið verði í hópi fjögurra efstu þegar upp verður staðið næsta vor. Morgunblaðið/Golli Sex Stórskyttan Hrafnhildur Hanna Þrast- ardóttir er aftur komin á fulla ferð. Geta strítt sterkari liðum á heimavelli  Selfoss skortir breidd til að ná lengra Meistarakeppni kvenna Fram – Haukar..................................... 19:22 Grill 66 deild kvenna Víkingur – ÍR........................................ 23:40 Þýskaland Magdeburg – Kiel................................ 30:25  Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki í leikmannahópi Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar liðið. Füchse Berlín – H-Burgdorf .............. 29:28  Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk fyrir Füchse. Minden – Erlangen.............................. 29:22  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen. Flensburg – Ludwigshafen ................. 35:23 Wetzlar – Melsungen ........................... 26:34  Efstu lið: Flensburg 10 stig, Magdeburg 10, Löwen 8, Göppingen 6, Melsungen 6, Hannover-Burgdorf 6. Svíþjóð Sävehof – Hammarby ..........................31:27  Ágúst Elí Björgvinsson ver mark Säve- hof. Heid – Boden ........................................ 25:25  Hafdís Renötudóttir ver mark Boden. Danmörk Ribe-Esbjerg – Aalborg ...................... 24:29  Rúnar Kárason skoraði 9 mörk fyrir Ribe-Esbjerg en Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki.  Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk fyrir Aalborg og Janus Daði Smárason 3. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.   Forkeppni EM karla 2021 A-riðill: Hvíta-Rússland – Danmörk ................ 94:98 B-riðill: Kósóvó – Makedónía ............................ 73:76 C-riðill: Belgía – Portúgal.................................. 66:65  Ísland er þriðja liðið í riðlinum og mætir Portúgal á útivelli á sunnudaginn. D-riðill: Austurríki – Kýpur............................... 72:69 Undankeppni HM karla 2019 K-milliriðill: Búlgaría – Frakkland........................... 74:68 Finnland – Bosnía ................................ 85:81 Tékkland – Rússland ........................... 80:78  Frakkland 13, Tékkland 13, Finnland 11, Rússland 10, Búlgaría 10, Bosnía 9, (Ísland missti naumlega af sæti í riðlinum). L-milliriðill: Eistland – Þýskaland ........................... 43:86 Ísrael – Georgía .................................... 80:85 Grikkland – Serbía ............................... 70:63  Þýskaland 14, Grikkland 14, Serbía 11, Georgía 10, Ísrael 10, Eistland 9.   KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Floridana-völlur: Fylkir – Fjölnir ...... 17.15 Ásvellir: Haukar – Keflavík...................... 18 Varmárv.: Aftureld/Fram – Sindri .......... 18 Hertz-völlur: ÍR – Þróttur R.................... 18 Boginn: Hamrarnir – ÍA........................... 18 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66 deildin: Kaplakriki: FH – HK U ....................... 19.30 Fylkishöll: Fylkir – Fjölnir ................. 20.15 Framhús: Fram U – Grótta................. 20.30 Í KVÖLD! Keppni í Olísdeild kvenna í handknattleik 2018- 2019 hefst á morgun, laugardaginn 15. sept- ember, með tveimur leikjum í fyrstu umferð. umspil en neðsta liðið fell sem á komandi tímabili h deildin. Átta lið skipa deildina eins og undanfarin ár, fjögur efstu liðin leika til úrslita um Íslands- meistaratitilinn næsta vor, næstneðsta liðið fer í Finnur Freyr Stefánsson, sem gerði KR að Íslands- meistara karla í körfubolta fimm ár í röð en ákvað að hætta í vor, er kominn í tvö ný störf sem körfubolta- þjálfari. Körfuknattleikssamband Íslands tilkynnti í gær að það hefði ráðið Finn sem yfirþjálfara yngri landsliða Íslands. Mun Finnur næstu þrjú ár í sam- starfi við afreksstjóra KKÍ skipuleggja allt afreks- starf, frá úrvalsbúðum og afreksbúðum upp í U15, U16, U18 og U20-landsliðin. Finnur tekur við af Ein- ari Árna Jóhannssyni sem hefur sinnt starfinu undanfarin ár. Áður hafði Finnur verið ráðinn þjálf- ari drengjaflokks Vals. sindris@mbl.is Finnur yfirþjálfari landsliða Finnur Freyr Stefánsson Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur sektað knatt- spyrnudeild Vals um 75 þúsund krónur vegna um- mæla Ólafs Jóhannessonar, þjálfara karlaliðs félags- ins, í garð Einars Inga Jóhannssonar dómara eftir leik Vals gegn KA á Akureyri á dögunum. „Dóm- arinn er náttúrlega Stjörnumaður, hann er fæddur og uppalinn í Stjörnunni, nánast í Stjörnuheimilinu, og auðvitað fór hann ekki að dæma víti fyrir okkur, það gaf augaleið. Það er engin spurning í mínum huga að það var náttúrlega klárt víti,“ sagði Ólafur í viðtali við Vísi eftir leik og vísaði þar til umdeilds at- viks í umræddum leik. Sektaðir vegna Ólafs Ólafur Jóhannesson Finnur Freyr Stefánsson, aðstoðarþjálfari karlalandsliðsi leik, var á leik Belgíu og Portúgals í forkeppni EM 2021 kvöldi. Þessi lið eru með Íslandi í riðli í forkeppninni og Fi ur til að taka út lið Portúgals sem Ísland mætir á sunnudag 66:65 og tók þar með forystuna í riðlinum. Leikið var í milliriðlum í undankeppni HM í gær. Riðill inni, sem lauk í júní, var greinilega sterkur því liðin þr áfram úr þeim riðli unnu öll sterkar þjóðir í gær. Búlgara lendinga tvisvar í spennuleik komu gríðarlega á óvart og s 74:68. Finnar unnu Bosníu 85:81 og Tékkar unnu Rússa vann bæði Finnland og Tékkland á heimavelli en það dugð gegn Búlgaríu reyndust dýr en Búlgaría heldur áfram að k Finnur njósnaði í Belg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.