Morgunblaðið - 29.09.2018, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2018
Persónuvernd hefur eftirlit með allri vinnslu persónupplýsinga hérlendis. Öll fyrirtæki,
stofnanir og aðrir sem vinna með persónuupplýsingar, hvort heldur um eigið starfsfólk,
viðskiptavini, notendur eða aðra, verða að fylgja persónuverndarlögum. Verkefni Persónu-
verndar eru því umfangsmikil og spanna flesta geira samfélagsins auk þess sem verkefni
tengd tæknibyltingunni koma á borð stofnunarinnar. Vegna þessa eru nú auglýstar til
umsóknar fimm lausar stöður hjá Persónuvernd. Leitað er að framúrskarandi einstaklingum
sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni með samhentu teymi hjá Persónuvernd.
Lausar eru fjórar
stöður lögfræðinga:
HELSTU VERKEFNI:
• Hefðbundin lögfræðistörf, m.a. vinna að
úrskurðum í ágreiningsmálum og álitum
• Afgreiðsla fyrirspurna
• Önnur verkefni sem forstjóri kann að fela
starfsmanni, m.a. vegna nýrra verkefna
hjá Persónuvernd
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Mikil áhersla er lögð á gott vald á
íslensku, auk færni til að tjá sig í ræðu
og riti
• Góð kunnátta í ensku og þekking á
Norðurlandamáli
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnu-
brögðum
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mann-
legum samskiptum er skilyrði
Laus er staða
skjalastjóra.
HELSTU VERKEFNI:
• Móttaka gagna, bókun og frágangur
skjala, pökkun gagna, þjónusta við starfs-
menn og skráning á bókasafni.
• Verkefni á sviði rafrænnar skjalavörslu
auk móttökuafgreiðslu og annarra tilfall-
andi verkefna.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Próf í bókasafns- og upplýsingafræði eða
önnur menntun sem nýtist í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
teymisvinnu
• Nákvæmni, frumkvæði og ögun í vinnu-
brögðum
• Lögð er áhersla á gott vald á íslensku,
auk góðrar kunnáttu í ensku og þekkingu
á Norðurlandamáli
• Góð samskiptahæfni og lipurð í mann-
legum samskiptum er skilyrði
PERSÓNUVERND
FIMM LAUSAR STÖÐUR!
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2018. Umsóknir um starfið skulu berast á netfangið postur@personuvernd.is, merktar „Umsóknir um
starf hjá Persónuvernd“, og skulu þeim fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil, ásamt prófskírteinum. Launakjör eru samkvæmt gild-
andi kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um störf lögfræðinga veita Þórður Sveinsson og Vigdís Eva Líndal,
skrifstofustjórar hjá Persónuvernd, í síma 510-9600. Nánari upplýsingar um störf skjalastjóra veitir Svava Björg Kristjánsdóttir, í síma 510-9600.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um þessi störf. Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá móttöku þeirra.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Persónuvernd, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík | www.personuvernd.is
Persónuvernd er sjálfstætt stjórnvald
sem annast eftirlit með framkvæmd
laga nr. 90/2018 um persónuvernd
og vinnslu persónuupplýsinga og
reglna settra samkvæmt þeim. Eitt af
helstu verkefnum Persónuverndar
er að ráðleggja og leiðbeina þeim
sem vinna með persónuupplýsingar.
Persónuvernd er fjölskylduvænn og
samhentur vinnustaður. Síðastliðin
tvö ár hefur Persónuvernd verið
„Stofnun ársins“ í könnun SFR.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mælingar og mat á starfsemi HH í samræmi við
árangursmælikvarða og gæðaviðmið
Þróun og innleiðing árangursmælinga
Úrvinnsla staðtalna og upplýsinga um starfsemi
stofnunarinnar
Skýrslugerð og framsetning talnaefnis
Nánari upplýsingar
Starfshlutfall er 100%
Upplýsingar veitir
Svava Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs
og nýliðunar - 513-5000
svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is
Hæfnikröfur
Færni í meðferð, greiningu og úrvinnslu gagna
Þekking og reynsla af framsetningu talnaefnis
með rafrænum hætti
Færni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt
viðmót
Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt á
skipulagðan og agaðan hátt
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Verkefnastjóri við greiningar og mælingar
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra
við greiningar og mælingar á starfsemi stofnunarinnar. Markmið Heilsugæslunnar
er meðal annars að veita hágæða heilbrigðisþjónustu sem byggir á skilgreindum
mælikvörðum er varðar þjónustu og árangur.
Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2018
Sjá nánar á www.heilsugaeslan.is. Sækja skal um á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus
störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða
heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins samanstendur af 15 heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi,
!
"#$
& ' "
* !*
+
+ "
+ Geðheilsuteymum, ásamt skrifstofu. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins starfa um 700 manns.
Heimilum sem eru í van-
skilum hefur fækkað mikið
en ríflega þriðjungur heimila
átti erfitt með að ná endum
saman árið 2016 sem er mikil
fækkun frá 2011 þegar um
helmingur heimila átti erfitt
með að ná endum saman.
Þetta er meðal þess sem
kemur í lífskjararannsókn
Hagstofu Íslands fyrir árið
2016.
Barnlaus standa best
Þar kemur fram að sjö af
hverjum hundrað heimilum
höfðu ekki getað greitt hús-
næðislán eða húsaleigu á
réttum tíma einhvern tímann
á síðastliðnum tólf mánuðum
(2016) vegna fjárhagserfið-
leika. Höfðu 8% heimila með
börn verið í vanskilum með
húsnæðiskostnað, um 7%
með aðra.
Um 13% heimila voru í
einhvers konar vanskilum
árið 2016 sem er töluverð
fækkun frá árinu 2010 þegar
þetta hlutfall var um 19%.
Þegar íbúar heimila eru
skoðaðir kemur í ljós að í
heild hefur hlutfall lands-
manna í einhvers konar van-
skilum minnkað úr 20% árið
2010 í 13% árið 2016. Þar
sem heimili með börn eru
hlutfallslega líklegri til að
vera í einhvers konar van-
skilum er hlutfallið hærra á
meðal heimila barna en
þeirra sem eru 18 ára og
eldri.
Vanskil mikil eftir hrun
Árið 2016 reyndust 19%
barna búa á heimilum í ein-
hvers konar vanskilum á
móti 12% fullorðinna. Það er
töluverð breyting frá ár-
unum eftir efnahagshrun þar
sem hlutfall barna sem
bjuggu á heimilum í einhvers
konar vanskilum fór hæst í
28% árið 2011 á móti 18%
fullorðinna.
Morgunblaðið/Eggert
Bryggjuhverfið Fjárhagur heimilanna er óðum að skána.
13% í vanskilum
Fjárhagur heimilanna batnar
Nú í vikunni var skrifað
undir 6. framlengingu þjón-
ustusamnings Sjúkratrygg-
inga Íslands við Krabba-
meinsfélag Íslands um
skipulagða leit að krabba-
meinum í leghálsi og brjóst-
um. Með undirrituninni varð
Krabbameinsfélagið við ósk
velferðarráðuneytis um
framlengingu samnings til
loka næsta árs.
Erfitt rekstrarumhverfi
Krabbameinsfélag Íslands
hefur sinnt skimun fyrir
krabbameinum í brjóstum
og leghálsi í áratugi og kost-
að miklu til. Rekstr-
arumhverfið hefur hins veg-
ar lengi verið erfitt einkum
vegna skammtímasamninga.
Hafa fjárveitingar ríkisins
ekki dugað til. Á aukaað-
alfundi Krabbameinsfélags
Íslands hinn 16. september
lá fyrir yfirlýsing velferð-
arráðuneytisins um að
styrkja félagið um 50 millj-
ónir á þessu ári vegna upp-
safnaðs halla á leitarstarfinu
og aðgerða til að auka þátt-
töku kvenna. Styrkurinn
kom með þeim skilyrðum að
félagið samþykkti að sinna
leitarstarfinu með óbreytt-
um hætti út árið 2019.
Á fundinum var ákveðið að
félagið samþykkti umrædda
framlengingu. Til að tryggja
áframhaldandi gæði skimun-
arinnar og aðgengi almenn-
ings að þessari mikilvægu
þjónustu samþykkti félagið
einnig að veita til hennar allt
að 75 milljónum á þessu ári
og því næsta, til viðbótar við
styrk ráðuneytisins. For-
sendur þess að halda þessari
starfsemi áfram eru hins
vegar að samið verði um
verkefnið til lengri tíma í
einu og að yfirvöld fjármagni
verkefnið að fullu.
Skimunarmiðstöð verði
stofnuð
Krabbameinsfélagið mun,
að því er segir í tilkynningu,
á næstunni óska eftir við-
ræðum við stjórnvöld um
hugmyndir sínar að fyrir-
komulagi skimana fyrir
krabbameinum til framtíðar.
Hugmyndirnar byggjast á
því að við skipulag skimunar
verði hagsmunir almennings
í forgrunni og að frá boðun
til uppgjörs sé eitt ferli.
Tillaga Krabbameinsfélag
Íslands á því sem að framan
greindi er að stofnuð verði
Skimunarmiðstöð Íslands;
þekkingarsetur um alla
skimun fyrir krabbameinum
á Íslandi og fari með um-
sjón, skipulag, stjórnun,
framkvæmd og uppgjör
skimunar fyrir krabbamein-
um í landinu.
Samið um skimun
Ljósm/Aðsend
Samið Guðfinna Halla Þor-
valdsdóttir frá Krabbameins-
félaginu, til vinstri, og Guð-
laug Björnsdóttir og Ingi-
björg Þorsteinsdóttir frá
Sjúkratryggingum.