Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 3
Skipulags- og framkvæmdasvið Norðurþings auglýsir laust til umsóknar nýtt starf
verkefnastjóra framkvæmda hjá sveitarfélaginu.
Starfshlutfallið er 100% og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
Verkefnastjórnun framkvæmda og annara verkefna á vegum Orkuveitu Húsavíkur og skipulags- og framkvæmdasviðs
Norðurþings
Verkeftirlit, eftirfylgni og verkstýring með framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins
Skipulagning samskipta og samræming samstarfsaðila í stórum verkefnum
Samskipti við hagsmunaaðila, þjónustuaðila, verktaka og íbúa Norðurþings tengd framkvæmdum og þjónustu á sviðinu
Umsjón með gerð útboðsgagna, opnun tilboða og gerð verksamninga.
Eftirlit með kostnaði ásamt kostnaðartengdri greiningarvinnu og skýrslugerð vegna verklegra framkvæmda á
vegum sveitarfélagsins
Aðstoð við stefnumótun og gerð fjárhags-, starfs- og verkáætlana á skipulags- og framkvæmdasviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
Iðn- eða tæknimenntun er nauðsynleg
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af utanumhaldi með verklegum framkvæmdum
Reynsla af meðhöndlun teikninga og verklegra gagna
Reynsla og góð þekking á meðhöndlun talnagagna og notkun á þeim
Góðir samskiptahæfileikar eru nauðsynlegir
Reynsla af notkun mælitækja og landupplýsingakerfa er kostur
Þekking á rekstrarumhverfi og framkvæmdum sveitarfélaga er kostur
Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
Skipulögð og fagleg vinnubrögð
Frumkvæði og drifkraftur
Viðkomandi mun vinna náið með framkvæmda- og þjónustufulltrúa, sem er hans næsti yfirmaður.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Laun og önnur starfskjör fara eftir samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við
viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Hrafn Gunnarsson, framkvæmda- og þjónustufulltrúi Norðurþings og framkvæmdastjóri
Orkuveitu Húsavíkur, í síma 464-6100 eða með fyrirspurn á netfangið gunnar@nordurthing.is
Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila á netfangið jona@nordurthing.is eða í lokuð umslagi merkt „Umsókn
– verkefnastjóri framkvæmda“ á skrifstofu Norðurþings áður en umsóknarfresturinn er úti
Verkefnastjóri framkvæmda
Umsóknarfrestur er til og með
28. október 2018
Hagfræðingur Ferðamálastofu
Ferðamálastofa stuðlar að þróun ferðaþjónustu
sem mikilvægrar og sjálfbærrar grunnstoðar
í íslensku samfélagi. Auk þess vinnur
Ferðamálastofa að samræmingu, greiningum
og rannsóknum í ferðaþjónustu með hliðsjón af
stefnu stjórnvalda.
Eitt af hlutverkum Ferðamálastofu er að vinna
að gagnaöflun og rannsóknum í ferðaþjónustu
á Íslandi. Verkefni í þessum flokki varða bæði
talnagögn og landfræðilegar upplýsingar,
sem auka þekkingu um ferðamenn og
atvinnugreinina, bæta gæði, auka arðsemi,
huga að þolmörkum og styrkja innviði
greinarinnar. Þannig stuðlar Ferðamálastofa að
því að niðurstöður séu nýttar við ákvarðanatöku
í greininni, með skýrri framsetningu niðurstaðna
og markvissri upplýsingagjöf.
Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á
www.ferdamalastofa.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 29. október 2018. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
!
"
#
$
%
Starfs- og ábyrgðarsvið:
&
'
&
(
)
% '
&
* % "
+
%
#
&
%&
, -
"
& #
,
)
.//0
#
& 1
% $
%&
%
$ , 1
%
%
"
$
,
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík
2
&
, -
&
&
&
3
,
Sjá nánar á kopavogur.is
www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf
Laus störf
hjá Kópavogsbæ