Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Auglýst er laust til umsóknar embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018 Frekari upplýsingar um störfin Um er að ræða tvö 100% störf, annars vegar yfirlæknis við heilsugæsluna í Vestmannaeyjum og hins vegar sérfræðings í heimilislækningum við sömu heilsugæslu. Viðkomendur þurfa að geta hafið störf frá 1. febrúar 2019 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef HSU www.hsu.is undir flipanum “lausar stöður”. Umsóknum þarf að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf. Umsóknarfrestur í störfin er til og með 15.11.2018. Nánari upplýsingar veitir: Sigurjón Kristinsson, settur framkvæmdastjóri lækninga HSU, sigurjon.kristinsson@hsu.is Sími: 432-2000. Yfirlæknir og sérfræðingur í heimilislækningum óskast á heilsugæsluna í Vestmannaeyjum            • Skipulag og stjórnun lækninga við heilsugæslu • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd • Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda • Vaktþjónusta • Leiðandi hlutverk í mótun og framkvæmd teymisvinnu starfsfólks á heilsugæslu • Þátttaka í gæðaverkefnum innan stofnunarinnar s.s. þátttaka í kennslu og starfsþjálfun kandídata og sérnámslækna í heimilislækninum auk fræðslu til samstarfsmanna Hæfniskröfur í bæði störf • Sérfræðiréttindi í heimilislækningum • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf Helstu verkefni og ábyrgð sérfræðings í heimilis- lækningum • Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd • Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda • Vaktþjónusta • Þátttaka í teymisvinnu og gæða- og nýsköpunarverkefnum innan stofnunarinnar Bókari á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu Velferðarráðuneytið leitar að öflugum og metnaðar- fullum einstaklingi í fullt starf bókara á skrifstofu rekstrar og innri þjónustu. Helstu verkefni:                     og leiðréttinga.         !   "    "        ##$           %         &    Menntunar- og hæfniskröfur:  %         menntun/reynsla.  '            !   $"     ()*   '   +         !  #      ! ,       0 #   "     1 "  $ 2   "      3&    0        4  -          1       ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir       "                   0      Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2018. 5   "  "      "  "$     3  ##,       "  6$" 7&       "   8"    %   ! &   "     "     8"   9   4         "            1  )    "1    -        :      ;<;=>??<  ,    $    1  - um. Velferðarráðuneytinu, 29. september 2018. 1. vélstjóri óskast á Ottó N. Þorláksson VE. Vélastærð 1619 kW. Skipið stundar bolfiskveiðar og er gert út frá Vestmannaeyjum. Upplýsingar gefur Eyþór Harðarson í síma 861 2287. Umsókn skal senda á eh@isfelag.is Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) lýsir í ályktun stjórnar yfir sár- um vonbrigðum með áform ríkisstjórnar Katrínar Jak- obsdóttur að grunnupphæðir lífeyris almannatrygginga eigi aðeins að hækka um 3,4% á næsta ári, samanber fjárlaga- frumvarp 2019. Stjórnin telur að þetta feli í sér bæði van- efndir á viljayfirlýsingum og loforðum ráðamanna á und- anförnum misserum um að bæta kjör eldri borgara, og brot á 69. grein laga um al- mannatryggingar. FEB segir að í fyrrnefndri lagagrein sé kveðið á um að upphæðir lífeyris og bóta al- mannatrygginga skuli breyt- ast til samræmis við launaþró- un. Hins vegar hafi grunnupphæð ellilífeyris dreg- ist jafnt og þétt aftur úr laun- um á undanförnum árum. Samanburður á þróun launa- vísitölu og ellilífeyris sýni að frá 2010 hafi launin hækkað 11,4% meira en ellilífeyririnn. Hann eigi samkvæmt öllu eðli- legu að vera nú kr. 266.800 á mánuði í stað 239.500, það er fyrir skatt. Hækkun á lífeyri næsta árs verði 3,4% segir að miðist spá Hagstofu Íslands um þróun vísitölu neysluverðs um 2,9% að viðbættri 0,5% kaupmátt- araukningu. Í ljósi umræðu nú í aðdraganda kjarasamninga sé næsta víst að launþega- hreyfingin mun ekki una því að lægstu laun hækki ekki meira en sem þessu nemur. Verði áform fjárlagafrumvarpsins að veruleika muni því kaupmáttur lífeyris frá TR halda áfram að dragast aftur úr kaupmætti launa á næsta ári. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Grund Bryddað er upp á ýmsu í starfi á heimilum aldraðra. Áformin vonbrigði  Ellilífeyririnn hækki meira Félagsráðgjafafélag Íslands vekur í tilkynningu athygli á skeytingarleysi stjórnvalda í garð einstaklinga og hópa sem búa við fátækt og eru jaðarsettir. Afskiptaleysi gagnvart þessu fólki birtist með of litlum fjárveitingum til mikilvægrar velferð- arþjónustu svo fólk sem hef- ur lítið handa á milli er í læsti stöðu. „Félagsráðgjafar þekkja vel til hvar skórinn kreppir í íslensku samfélagi og hvaða einstaklingar og hópar eru í hættu á að festast í fátækt og vanvirkni. Markmið fé- lagsráðgjafar er að vinna að lausn félagslegra og per- sónulegra vandamála, sporna við félagslegu rang- læti, vinna gegn mannrétt- indabrotum hvar svo sem þau eiga sér stað og efla umræðu um siðferði í ís- lensku samfélagi. Við skor- um á íslensk stjórnvöld að taka þetta til sín og standa við gefin loforð í þágu jað- arsettra hópa á Íslandi,“ segir í tilkynningu. Næstkomandi miðviku- dagur, 17. október, er al- þjóðlegur baráttudagur gegn fátækt og í tilefni hans stendur Félagsráðgjafafélag Íslands fyrir tvíþættum við- burði gegn skeytingarleysi, en gegn því verður hlaupið og lesið. Haupið hefst við Útvarps- húsið í Efstaleiti kl. 16 og endar í Fógetagarðinum kl. 17 þar sem upplestur hefst og stendur til kl. 18. Hlaup- ið verður framhjá Klambrat- úni, Hlemmi og niður Laugaveg þar sem hægt verður að koma inn í hlaupahópinn við Þjónustu- miðstöð Vesturbæjar, Mið- borgar og Hlíða, sem er að Laugavegi 77, og er fólk hvatt til að að hlaupa eða ganga með félagsráðgjöfum síðasta spottann. Festast í fátækt Morgunblaðið/Valli Sumardagur Allir fái tæki- færi að njóta sín í lífinu.  Ganga og lesa  Félagsráð- gjafar þekkja hvar kreppir Skorað er á ríkisstjórn Íslands, velferðarráðuneyti og Alþingi að bæta og jafna stöðu erlends vinnuafls á Íslandi, í ályktun aðalfundar Félags íslenskra heimilislækna en aðalfundur þess var haldinn um síðustu helgi. „Í daglegu starfi heimilislækna er áberandi hvernig brotið er endurtekið á réttindum erlends vinnuafls varðandi hús- næði, laun, hvíldarrétt, öryggi á vinnustað, slysabætur, veik- indarétt og aðgang að heilbrigðisþjónustu,“ segir í ályktun. Þar er tiltekið að þessi hópur sé í viðkvæmri stöðu gagnvart vinnuveitanda og algengt sé að fólkið sem hann myndar þekki ekki réttindi sín. „Það er mikilvægt að upplýsingagjöf til innflytjenda verði bætt, lög um starfsmannaleigur hert og viðurlögum verði beitt við brotum með þeim hætti að varnaðaráhrif þeirra verði virk,“ segir heimilislæknar í ályktun þessa fundar síns. sbs@mbl.is Innflytjendur fái betri upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.