Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 6

Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Raðauglýsingar 569 1100 Tilboð/útboð Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fífuhvammur 41 50% ehl.gþ., Kópavogur, fnr. 206-0532 , þingl. eig. Sigfús Þór Nikulásson, gerðarbeiðendur Lánasjóður íslenskra námsmanna og Tollstjóri, fimmtudaginn 18. október nk. kl. 10:30. Austurkór 91, Kópavogur, fnr. 232-9200 , þingl. eig. Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla Hrund Karlsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 18. október nk. kl. 11:00. Tungusel 5, 2% ehl.gþ. Reykjavík, fnr. 205-4703 , þingl. eig. Jón Þórir Jónsson, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, fimmtudaginn 18. október nk. kl. 11:30. Miðvangur 107, Hafnarfjörður, fnr. 207-8108 , þingl. eig. Eignar- haldsfélagið Barðinn ehf, gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarkaupstaður, fimmtudaginn 18. október nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 12. október 2018 Nauðungarsala Stapaskóli - Útboð nr. 20827 Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í nýja skólabyggingu í sveitarfélaginu. Verkið felur í sér að reisa nýjan grunnskóla að Dalbraut 11-13, Reykjanesbæ. Heildarstærð skólabyggingar/grunnskólans er brúttó um 7.700 m². Skólalóð verður boðin út í sérútboði. Skólinn er á 2 hæðum auk tæknikjallara og tæknirýmis sem telst til 3. hæðar. Skólinn er byggður upp sem fjórar kennslutvenndir á tveimur hæðum auk stoðrýma, almenn svæði, matsalur, fjölnotasalur, bókasafn og gangar deila upp þessum tvenndum langsum eftir byggingunni og mynda „lífæð“ skólans. Búið er að koma þjöppuðum púða undir bygginguna í rétta hæð og því er hægt að hefja framkvæmdir um leið og tilboðsferli lýkur með samningum. Verklok er 15. júní 2020. Útboðsgögn má nálgast á útboðsvef Ríkiskaupa laugardaginn 20. október næstkomandi. ÚTBOÐ 20844 – Útleiga námu- og efnistöku- réttinda. Ríkiskaup fyrir hönd Ríkiseigna óskar eftir tilboð- um í Námu- og efnistökuréttindi í landi ríkisins, Stapafell, lnr. 129981, fnr. 209-4387 og Stapafell, lnr. 129216, fnr. 209-2862, á Reykjanesi, nefnt Stapafellsnáma. Stærð hins leigða lands er talið vera um 110 ha. Skila skal tilboðum í samræmi við meðfylgjandi leigusamning. Eftirfarandi gögn skulu fylgja tilboðinu: 1. Vottorð um skuldleysi við ríkissjóð. 2. Vottorð um skuldleysi við lífeyrissjóði. 3. Útfyllt og undirritað tilboðsblað. 4. Endurskoðaðar ársreikningur síðasta árs Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Fyrirspurnir varðandi verkefni nr. 20844 skulu sendar á netfangið www.utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is Áhugasamir skulu skila inn tilboðum sínum í lokuðu umslagi í afgreiðslu Ríkiskaupa fyrir klukkan 11:00 þann 26. október 2018, merkt: 20844 Stapafellsnáma. ÓSKAST TIL LEIGU Reykja vík ur borg Innkaupadeild Borg artún 12-14, 105 Reykja vík Sími 411 1042 / 411 1043 Bréfsími 411 1048 Netfang: utbod@reykjavik.is Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Klór fyrir ÍTR, útboð nr. 14341. • Baðsápa fyrir ÍTR, útboð nr. 14342. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod ÚTBOÐ Fulltrúar Félags kvenna í at- vinnulífinu hefur skrifað undir samstarfssamning við Pipar/ TBWA um aðstoð við gerð á heildarútliti á markaðsefni hreyfiaflsverkefnisins Jafn- vægisvogarinnar. FKA hóf vinnu við Jafnvægisvogina í upphafi árs ásamt samstarfs- aðilum úr velferðarráðuneyt- inu. Aðrir samstarfsaðilar eru Deloitte, Sjóvá og Morg- unblaðið. Markmið Jafnvæg- isvogarinnar er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/ 60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. „Það er mikill fengur fyrir okkur að fá jafn sterka sam- starfsaðila og Pipar til þess að aðstoða okkur við að hreyfa við fólki um jafnréttismálin. Pipar er eitt þeirra fyrirtækja sem eru til fyrirmyndar í jafn- réttismálum með jafnt kynja- hlutfall í stjórnendastöðum. Það skiptir máli að móta skýr og eftirtektarverð skilaboð sem hreyfa við forsvars- mönnum fyrirtækja,“ segir í tilkynningu, haft eftir Guð- rúnu Ragnarsdóttur talskonu Jafnvægisvogar FKA Hannað hefur verið merki Jafnvægisvogar og starfs- menn Pipars munu vinna hug- myndavinnu og heildarútlit á markaðsefni auk þess að móta skilaboð verkefnisins. Virkja viðskiptalífið Markmið Jafnvægisvog- arinnar er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum fyr- irtækja á Íslandi. Einnig er fyrirhugað að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða fyr- irmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir. Dregin verða fram í sviðsljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvæg- isvogarinnar. Þá verður í vetur staðið fyrir viðburðum og fræðslu til að vekja samfélagið til hugsunar um virði fjöl- breytileika og jafnvægis. Fyrsti viðburðurinn er ráð- stefna sem haldin verður þann 31. október nk. sbs@mbl.is Samið Vigdís Jóhannsdóttir frá Pipar/TBWA, til vinstri, og Rakel Sveinsdóttir FKA. Móta skilaboðin  Pipar\TBWA sér um útlits- hönnun Jafnvægisvogar FKA Félag háskólakvenna hefur val- ið Önnu Þorvaldsdóttur, tón- skáld, sem Háskólakonu ársins 2018. Við valið er horft til þess að til viðbótar við að viðurkenn- ingarhafi hafi háskólagráðu sé framlag viðkomandi til sam- félagsins framúrskarandi, sé brautryðjandi á sínu fagsviði og góð fyrirmynd annara háskóla- kvenna. Fjöldi kvenna var á for- valslista og var það samdóma álit stjórnar Félags háskóla- kvenna að Anna uppfyllti vel öll þau skilyrði sem sett eru fyrir valinu og að hún sýndi hverju það skilaði að hafa góða mennt- un samhliða því að leggja rækt við hæfileika sína. Tilgangur þess að velja Há- skólakonu ársins er að vekja at- hygli á fjölbreyttum starfsvett- vangi háskólakvenna, beina kastljósinu að störfum þeirra og rannsóknum og undirstrika framlag þeirra til samfélagsins. Auk þess sem félagið vill hampa framgangi þeirra, áræðni og sérstökum árangri. Virt tónskáld Anna Þorvaldsdóttir lauk BA gráðu í tónsmíðum frá Listahá- skóla Íslands og meistara- og doktorsgráðu í tónsmíðum frá University of California í San Diego. Hún gegnir í dag stöðu staðartónskálds við Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Anna er eitt virtasta tónskáld samtímans á Norðurlöndunum og raunar víðar. Verk hennar hafa hlotið viðurkenningar og verðlaun, eru flutt víða um heiminn og hafa hljómað á tónleikastöðum og hátíðum í Bandaríkjunum, í Evrópu og Asíu. Eftir Önnu liggja þrjár hljómplötur og er sú fjórða væntanleg í nóvember næst- komandi. Hljómplöturnar hafa hlotið góðar viðtökur og dóma. Verk Önnu hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun og var hún til að mynda handhafi Tónlistarverðlauna Norður- landaráðs 2012. Þá eru verkin flutt reglulega víðsvegar um heiminn og hafa hljómað á tón- leikastöðum og hátíðum í Bandaríkjunum, í Evrópu og Asíu. 90 ára félag Félag háskólakvenna var stofnað 1928 og því er 90 ára af- mælis þess fagnað í ár. Á síð- asta ári var í fyrsta skipti í sögu félagsins efnt til vals á Háskóla- konu ársins þegar dr. Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófess- or við læknadeild Háskóla Ís- lands, varð fyrir valinu, en hún vinnur nú að stórri stærstu rannsókn á samspili erfða og því hvaða heilsufarslegar afleið- ingar alvarleg sálræn áföll hafa á fólk. sbs@mbl.is Áræðin fyrirmynd Heiður Anna Þorvaldsdóttir, tónskáld, tók við viðurkenningu Félags háskólakvenna. Á myndinni er Anna ásamt stjórn Fé- lags háskólakvenna, talið f.v.: Halldóra Traustadóttir, Helga Guðrún Johnson, Anna Þorvaldsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir, sem er formaður félagsins.  Háskólakona ársins valin  Brautryðjanda er hampað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.