Morgunblaðið - 05.10.2018, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
ÍÞRÓTTIR
Fótbolti Erik Hamrén kynnir í dag annan landsliðshóp sinn síðan hann tók við karlalandsliðinu í fótbolta.
Kallað hefur verið eftir því að ungir leikmenn komi inn í hópinn en er pláss og hverjir koma til greina? 2
Íþróttir
mbl.is
EVRÓPUDEILDIN
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Guðlaugur Victor Pálsson, fyrirliði
svissneska knattspyrnuliðsins Zü-
rich og landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, reið baggamuninn fyrir lið
sitt í gærkvöldi þegar hann skoraði
eina markið í leik þess við Ludogo-
rets frá Búlgaríu í annarri umferð
A-riðils Evrópudeildar UEFA í
knattspyrnu. Þegar allt stefndi í
markalaust jafntefli steig Guð-
laugur Victor fram í sviðsljósið svo
um munaði og skoraði gott mark
þegar sex mínútur voru til leiks-
loka.
Þar með hefur Zürich-liðið unnið
tvær fyrstu viðureignir sínar í riðl-
inu og er í efsta sæti ásamt Lever-
kusen, sem vann AEK Larnaca, 4:2,
á heimavelli.
Annar Íslendingur fagnaði vel í
gærkvöldi í sömu keppni þótt ekki
hafi hann verið á skotskónum að
þessu sinni. Landsliðsmaðurinn
Arnór Ingvi Traustason og félagar í
sænska meistaraliðinu Malmö unnu
góðan sigur á Besiktas frá Tyrk-
landi, 2:0, á heimavelli. Arnór Ingvi
fór af leikvelli á 84. mínútu en þá
var sigurinn í höfn. Fyrra mark
Malmö skrifast að stórum hluta á
reikning hins seinheppna markvarð-
ar Besiktas, Þjóðverjans Loris Kar-
ius, en fyrirgjöf að marki hans sveif
yfir kappann eftir að boltinn hafði
snert Caner Erkin, varnarmann og
samherja Karius. Liðin fjögur í I-
riðli hafa þrjú stig hvert eftir tvær
umferðir, en auk Malmö og Besik-
tas eiga Genk frá Belgíu og norska
liðið Sarpsborg, sem vann ÍBV í
undankeppninni í sumar, sæti í riðl-
inum. Sarpsborg lagði Genk, 3:1, á
heimavelli.
Jón Guðni Fjóluson var allan
leikinn á meðal varamanna Kras-
nodar þegar liðið vann Sevilla, 2:1, á
heimavelli. Krasnodar hefur unnið
báða leiki sína til þessa í keppninni
og er eitt liða í efsta sæti J-riðils.
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes
Þór Halldórsson átti náðugan dag í
Lundúnum í gær þegar lið hans
Qarabag tapaði fyrir Arsenal, 3:0.
Hannes Þór var á meðal varamanna
Qarabag eins og í flestum síðustu
leikjum liðsins. Qarabag rekur lest-
ina í E-riðli ásamt Vorskla án stiga.
Arsenal og Sporting hafa hins vegar
sex stig hvort.
AFP
Gleði Guðlaugur Victor Pálsson fagnar með stuðningsmönnum Zürich eftir markið og sigurinn sæta á Ludogorets. Victor skoraði sigurmarkið á 84. mín.
Victor sá um sigurinn
Fyrirliðin fór fyrir sínum mönnum í sætum sigri Zürich í annarri umferð Evr-
ópudeildar UEFA Lánið lék ekki við Loris Karius í heimsókn hans til Malmö
Bjarki Már Elís-
son var í stuði og
skoraði 7 mörk
úr sjö skotum fyr-
ir Füchse Berlin í
stórsigri liðsins á
móti Bietigheim á
útivelli 36:28, í
þýsku 1. deildinni
í handknattleik í
gærkvöldi. Bjarki
skoraði ekki
mark úr vítakasti.
Arnór Þór Gunnarsson og félagar
hans í Bergischer unnu góðan úti-
sigur á móti Wetzlar 27:25. Arnór
hefur verið veikur undanfarna daga
og kom ekkert við sögu.
Alexander Petersson skoraði 5
mörk fyrir Löwen en Guðjón Valur
Sigurðsson ekkert þegar Löwen
vann Gummersbach, 30:24.
Magdeburg er í efsta sæti deild-
arinnar með 16 stig eftir 9 leiki,
Flensburg er með 14 stig eftir 7 leiki
og Löwen 13 stig eftir 7 leiki, Berg-
ischer 12 eftir átta leiki, Kiel og
Füchse 10 stig hvort að loknum sjö
leikjum. iben@mbl.is
Bjarki Már
með fullkomna
nýtingu
Bjarki Már
Elísson
Haukur Helgi Pálsson og samherjar hans í
franska liðinu Nanterre tryggðu sér í gær
sæti í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik.
Nanterre burstaði finnska liðið Kauhajoen
Karhu 91:58 í síðari viðureign liðanna í um-
spili sem fram fór á heimavelli Nanterre í
kvöld en franska liðið vann einnig leikinn í
Finnlandi 91:54, og lagði þar sem traustan
grunn að sæti sínu í deild þeirra bestu.
Haukur Helgi lék í 22 mínútur í gær og
skoraði níu stig, tók fjögur fráköst og gaf
fjórar stoðsendingar.
Í Austurríki lék Dagur Kár Jónsson sinn fyrsta leik fyrir
Flyers Wels í úrvalsdeildinni. Hann lék í liðlega 34 mínútur og
skoraði 14 stig í stóru tapi liðsins, 89:64, fyrir Oberwart Gunn-
ers. iben@mbl.is
Auðvelt hjá Hauki Helga
Haukur Helgi
Pálsson
Arnar Birkir Hálfdánsson átti góðan leik
með liði SønderjyskE þegar liðið hafði betur
á móti Nordsjælland 24:21 í dönsku úrvals-
deildinni í handknattleik í kvöld.
Arnar Birkir skoraði sex mörk úr níu
skotum en vinstrihandarskyttan hefur farið
vel af stað með SønderjyskE en hann gekk í
raðir félagsins frá Fram í sumar. Sønder-
jyskE er í sjötta sæti af 14 liðum í deildinni
með tíu stig, aðeins tveimur stigum á eftir
Aalborg Håndbold.
Arnar Birkir hefur skoraði 20 mörk í
deildinni, jafnmörg og Óðinn Þór Ríkharðsson hefur skorað
fyrir GOG. Ómar Ingi Magnússon, hjá Aalborg, er markahæsti
Íslendingurinn í deildinni . Hann hefur skoraði 35 mörk. Næst-
ur er Rúnar Kárason, Ribe Esbjerg, með 33 mörk. iben@mbl.is
Arnar Birkir á skriði
Arnar Birkir
Hálfdánsson
Skagfirðingurinn Svavar Atli Birgisson var
í gærkvöld heiðraður fyrir feril sinn með
Tindastóli í körfuboltanum sem spannaði
meira en tvo áratugi.
Tindastóll tók í gær á móti Þór frá Þor-
lákshöfn þegar Dominos-deildin fór af stað.
Við þetta tilefni var treyja Svavars, númer
10, hengd upp í rjáfur í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki að bandarískri fyrirmynd.
Svavar lék á milli 300 og 400 leiki fyrir
Tindastól í meistaraflokki. Hann var bæði í
liði Tindastóls sem komst í úrslit Íslands-
mótsins á móti Njarðvík árið 2001 og gegn KR 2015. Þá var
Svavar í Tindastólsliðinu sem komst í úrslit bikarkeppninnar
gegn Keflavík árið 2012.
kris@mbl.is
Svavar Atli heiðraður
Svavar Atli
Birgisson
Atvinnukylfing-
urinn Birgir
Leifur Hafþórs-
son náði sér ekki
á strik á fyrsta
hringnum á
Monaghan Irish
Challenge-
mótinu í golfi
sem hófst á Ír-
landi í gær.
Hann lék
hringinn á 76 höggum eða fjórum
höggum yfir pari og er í 85.-92.
sæti. Ljóst er að Skagamaðurinn
þarf að gera miklu betur í dag ef
honum á að takast að komast í
gegnum niðurskurðinn. Birgir Leif-
ur fékk 3 fugla á hringnum í gær, 3
skolla og tvo skramba. sport@mbl.is
Þarf að gera
betur í dag
Birgir Leifur
Hafþórsson