Morgunblaðið - 05.10.2018, Side 2
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þjálfari Íslandsmeistara Vals og fyrr-
verandi landsliðsþjálfari, Ólafur Jó-
hannesson, er meðal þeirra sem kall-
að hafa eftir því að yngt verði upp í
íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Í
dag mun Erik Hamrén velja sinn
annan landsliðshóp frá því að hann
tók við landsliðinu fyrir tveimur mán-
uðum, og vert að velta því fyrir sér
hvort og hve mikið pláss sé í hópnum
fyrir unga leikmenn til að koma inn,
fyrir komandi leiki við heimsmeistara
Frakka og Svisslendinga.
„Auðvitað þarf að yngja þetta upp,
ég vil meina það. Ég var mjög ósáttur
við margt sem var valið í þessa tvo
leiki,“ sagði Ólafur við RÚV í vikunni,
og vísaði til leikmannahópsins sem
valinn var í leiki við Sviss og Belgíu í
Þjóðadeildinni í september. Leiki sem
töpuðust með samtals 9:0 markatölu.
Í hópinn þá vantaði nokkra lykil-
menn sem glímdu við meiðsli. Aron
Einar Gunnarsson, Jóhann Berg
Guðmundsson og Alfreð Finnbogason
voru allir meiddir, og Emil Hall-
freðsson og Hörður Björgvin Magn-
ússon að jafna sig af meiðslum en þó
með í seinni leiknum, gegn Belgíu.
Nú ber hins vegar svo við að Jóhann
hefur spilað afar vel undanfarið í
ensku úrvalsdeildinni, Alfreð skoraði
þrennu í fyrsta leik eftir meiðsli með
Augsburg, Emil er fastamaður hjá
Frosinone (sem gengur reyndar
skelfilega í ítölsku A-deildinni), og
Hörður er að jafna sig af meiðslum.
Þá er staðan á Aroni betri með hverri
viku og spurning hvort hann verði
hreinlega með í landsleikjunum.
Með innkomu lykilmanna þrengist
smugan fyrir unga leikmenn að koma
inn í 23ja leikmanna hóp Íslands. Og
það er spurning hvort nýliðum sé
greiði gerður með því að spila vin-
áttulandsleik á móti heimsmeist-
urunum í Frakklandi. Í leiknum við
Sviss á Laugardalsvelli verður svo
ekki hægt að vera með neina til-
raunastarfsemi. Sá leikur hefur mikla
þýðingu fyrir Ísland því þó að nú sé
orðin lítil von um að halda sætinu í A-
deild þá er hvert stig mikilvægt í bar-
áttunni um sæti í efsta styrk-
leikaflokki áður en dregið verður í
riðla fyrir undankeppni EM. Þjóða-
deildin ræður styrkleikaröðun í þeirri
undankeppni sem fer öll fram á
næsta ári. Ekki væri slæmt að sleppa
þar við að mæta albestu liðum álf-
unnar.
Þessir koma helst til greina
En hvaða ungu leikmenn gætu
komið inn núna? Ég sé ekki laust
pláss í markmannahópnum. Þar eru
tveir frekar ungir markmenn og svo
sjálfur Hannes Þór Halldórsson, auk
þess sem yngri markmenn en Rúnar
Alex Rúnarsson og Frederik Schram
hafa ekkert verið að banka á dyrnar.
Í hópi varnarmanna banka nýliðar
heldur ekki fast. Helst væri hægt að
sjá fyrir sér að Alfons Sampsted
fengi að koma inn sem hægri bak-
vörður, eftir fína frammistöðu með
U21-landsliðinu, en hann leikur þessa
dagana í sænsku B-deildinni. Ísland á
nóg af frambærilegum miðvörðum
sem gerir strákum eins og Axel Ósk-
ari Andréssyni erfiðara fyrir.
Það er hins vegar í hópi miðju- og
sóknarmanna sem meiri ástæða virð-
ist til að taka inn unga leikmenn. Að-
allega vegna þess að þar virðast efni-
legri leikmenn bíða færis. Auk þess
má benda á að þó að það hafi verið
stefnan síðustu ár að leikmenn spili
frekar með U21-landsliðinu en að þeir
Hve mikið pláss er fyrir ung
Erik Hamrén velur annan landsliðshóp sinn í dag Albert, Arnór og Jón Dagur gera tilk
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýliði? Arnór Sigurðsson spilaði sinn fyrsta U21-landsleik í síðasta mánuði og
kemur til greina í A-landsliðið sem valið verður eftir hádegi í dag.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
Evrópudeild UEFA
A-RIÐILL:
Zürich – Ludogorets ............................... 1:0
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn fyrir Zürich og skoraði eina markið
Leverkusen – AEK Larnaca................... 4:2
Leverkusen 6 stig, Zürich 6, Ludogorets
0, Larnaca 0.
B-RIÐILL:
Rosenborg – RB Leipzig......................... 1:3
Matthías Vilhjálmsson kom inn á
sem varamaður hjá Rosenborg á 77. mín.
RB Salzburg – Celtic................................ 3:1
Salzburg 6 stig, Leipzig 3, Celtic 3, Ros-
enborg 0.
C-RIÐILL:
Bordeaux – Köbenhavn ........................... 1:2
Zenit – Slavia Prag................................... 1:0
Zenit 4, Köbenhavn 4, Slavia Prag 3, Bor-
deaux 0.
D-RIÐILL:
Anderlecht – Dinamo Zagreb ................. 0:2
Fenerbahce – Spartak Trnava................ 2:0
Zagreb 6, Fenerbahce 3, Trnava 3, And-
erlecht 0.
E-RIÐILL:
Qarabag – Arsenal .................................. 0:3
Hannes Þór Halldórsson var á meðal
varamanna Qarabag allan leikinn.
Vorskla – Sporting Lissabon................... 1:2
Arsenal 6, Sporting 6, Vorskla 0, Qara-
bag 0.
F-RIÐILL:
AC Milan – Olympiakos........................... 3:1
Real Betis – Dudelange ........................... 3:0
AC Milan 6, Real Betis 4, Olympiakos 1,
Dudelange 0.
G-RIÐILL:
Rangers – Rapid Vín................................ 3:1
Spartak Moskva – Villarreal ................... 3:3
Rangers 4, Rapid Vín 3, Villarreal 2,
Spartak Moskva 1.
H-RIÐILL:
Apollon Limassol – Marseille.................. 2:2
Frankfurt – Lazio..................................... 4:1
Frankfurt 6, Lazio 3, Apollon Limassol 1,
Marseille 1.
I-RIÐILL:
Malmö – Besiktas..................................... 2:0
Arnór Ingvi Traustason var í liði Malmö
fram á 85. mínútu.
Sarpsborg – Genk.................................... 3:1
Orri Sigurður Ómarsson var ekki í leik-
mannahópi Sarpsborg.
Sarpsborg 3, Besiktas 3, Genk 3, Malmö
3.
J-RIÐILL:
Krasnodar – Sevilla................................. 2:1
Jón Guðni Fjóluson var á varamanna-
bekk Krasnodar.
Standard Liege – Akhisar Belediye ....... 2:1
Krasnodar 6, Sevilla 3, Standard Liege 3,
Akhisar Belediye 0.
K-RIÐILL:
Astana – Rennes....................................... 2:0
Jablonec – Dynamo Kiev ......................... 2:2
Astana 4, Rennes 3, Dynamo Kiev 2,
Jablonec 1.
L-RIÐILL:
Chelsea – Vidi ........................................... 1:0
BATE Borisov – PAOK ........................... 1:4
Chelsea 6, PAOK 3, BATE 3, Vidi 0.
Vináttulandsleikir kvenna
Svíþjóð – Noregur .................................... 2:1
Tékkland – Slóvakía................................. 2:0
Eistland – Pólland .................................... 0:3
Taíland – Finnland....................................1:0
KNATTSPYRNA
og ávallt og á hann nóg eftir á tank-
inum. Orri Hilmarsson kom með mjög
góðar körfur inn á milli og Dino Stipcic
varð betri eftir því sem leið á leikinn.
Leikmannahópur KR-inga er ekki eins
sterkur og síðustu ár og verður for-
vitnilegt að sjá hvernig gengur gegn
hærra skrifuðum liðum á komandi vik-
um.
Skallagrímsmenn spiluðu í heild
þokkalega og gáfu þeir KR-ingum lítið
eftir í fyrri hálfleiknum. Um leið og
KR náði tíu stiga forskoti í upphafi síð-
ari hálfleiks var hins vegar engin leið
til baka. Matej Bouvac og Aundre
Jackson komust vel frá sínu í fyrsta
leik og Eyjólfur Ásberg Halldórsson
var sterkur. Vopnabúr og gæði heima-
manna reyndust hins vegar of stór og
mikil. Skallagrími var spáð falli af
þjálfurum, forráðamönnum og fyr-
irliðum deildarinnar, en taki liðið
frammistöðuna úr fyrri hálfleiknum
með sér í næstu verkefni fær enginn
auðveld tvö stig gegn nýliðunum.
Öruggt hjá Tindastólsmönnum
Silfurlið síðasta keppnistímabils,
Tindastóll, hóf keppnistímabilið með
stórsigri á heimavelli á Þór úr Þor-
lákshöfn, 85:68, eftir að hafa verið 11
stigum yfir að loknum fyrri hálfleik,
44:33.
Urald King var atkvæðamestur
leikmanna Tindastóls. Hann skoraði
25 stig, tók 13 fráköst og vann boltann
Í VESTURBÆ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
KR hóf sjöttu titilvörn sína í Dominos-
deild karla í körfubolta í gærkvöldi
með öruggum 109:93-sigri á nýliðum
Skallagríms á heimavelli sínum. Leik-
urinn var í járnum í fyrri hálfleik en
sterkur þriðji leikhluti lagði grunninn
að sigrinum sem aldrei var í hættu í
fjórða og síðasta leikhlutanum.
KR-liðið er nokkuð breytt frá því á
síðustu leiktíð ásamt því að Ingi Þór
Steinþórsson er búinn að taka við kefl-
inu af Finni Frey Stefánssyni í þjálf-
arastólnum. Það tók meistarana nokk-
urn tíma að finna taktinn gegn gröðum
Borgnesingum sem köstuðu sér í alla
lausa bolta og létu finna fyrir sér. Eftir
því sem leið á leikinn komu gæði
heimamanna betur í ljós og verðskuld-
aður sigur varð raunin. Einn af þeim
sem komu inn í lið KR var Bandaríkja-
maðurinn Julian Boyd. Frumraun
hans í íslenskum körfubolta var afar
góð og skoraði hann 37 stig og tók auk
þess tólf fráköst. Stigin skoraði hann í
öllum litum regnbogans. Á milli þess
sem hann skoraði þriggja stiga körfur,
tróð hann með mögnuðum tilþrifum og
man undirritaður ekki eftir öðrum eins
stökkkrafti hjá íþróttamanni hér á
landi, nema þá kannski í hástökki. Jón
Arnór Stefánsson stóð fyrir sínu eins
fimm sinnum. Brynjar Þór Björnsson
sem gekk til liðs við Tindastól frá KR í
sumar skoraði 14 stig. Kinu Rochford
var stigahæstur há Þór með 21 stig.
Gintautas Matulis skoraði 15 stig.
Nýliðar Breiðabliks stóðu hressi-
lega í Grindavík. Það var ekki fyrr en á
síðustu mínútunum sem Grindavík-
ingar náðu að komast fram úr og
tryggja sér sigur á heimavelli, 95:86.
Breiðablik var til að mynda með fjög-
urra stiga forskot þegar síðasta leik-
hlutinn hófst, 72:68. Jordy Kuiper
skoraði 24 stig fyrir Grindavík og
Christian Covile var með 18 stig fyrir
Breiðablik.
Hinir nýliðar deildarinnar, Vals-
menn, töpuðu fyrir Haukum, 95:88, á
heimavelli.
Boyd fór
hamförum
í fyrsta leik
Lék Skallagrímsmenn oft grátt þegar
Íslandsmeistararnir hófu titilvörnina
Sterkur Julian Boyd fór af kostum í fyrsta leik sínum á Íslandi og átti stærstan hl
Origo-höllin, Dominos-deild karla,
fimmtudag 4. október 2018.
Gangur leiksins: 5:5, 12:11, 18:14,
20:20, 27:23, 37:25, 40:34, 51:43,
54:53, 60:59, 65:63, 70:66, 70:74,
72:80, 77:87, 88:95.
Valur: Oddur Rúnar Kristjánsson 19,
Aleks Simeonov 18/7 fráköst, Miles
Wright 17/7 fráköst, Austin Magnus
Bracey 14/4 fráköst, Ragnar Ágúst
Nathanaelsson 9/9 fráköst, Gunnar
Ingi Harðarson 8, Illugi Steingrímsson
3/5 fráköst.
Valur – Hau
Olís-deild kvenna
KA/Þór – ÍBV ........................................26:34
Staðan:
ÍBV 3 2 0 1 82:73 4
Fram 2 2 0 0 55:47 4
Haukar 2 1 0 1 50:42 2
Valur 2 1 0 1 48:44 2
KA/Þór 3 1 0 2 69:82 2
HK 2 1 0 1 40:48 2
Stjarnan 2 0 1 1 59:61 1
Selfoss 2 0 1 1 58:64 1
Þýskaland
RN Löwen – Gummersbach................ 30:24
Alexander Petersson skoraði 5 mörk fyr-
ir Löwen. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
ekki mark fyrir liðið.
Bietigheim – Füchse Berlín ............... 28:36
Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk í 7
skotum fyrir Füchse, ekkert úr vítakasti.
Wetzlar – Bergischer.......................... 25:27
Arnór Þór Gunnarsson skoraði aldrei
slíku vant ekki mark fyrir Bergischer.
Magdeburg – Hannover-Burgdorf......34:23
Stuttgart – Ludwigshafen....................26:26
Staða efstu liða:
Magdeburg 16, Flensburg 14, RN Löwen
13, Bergischer 12, Kiel 10, Füchse Berlín
10, Hannover-Burgdorf 8, Melsungen 8,
Göppingen 8, Minden 6, Lemgo 6.
Danmörk
SönderjyskE – Nordsjælland............. 24:21
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 6
mörk fyrir SönderjyskE.
Frakkland
Cesson-Rennes – St. Raphaël............. 21:30
Geir Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir
Cesson-Rennes.
HANDBOLTI