Morgunblaðið - 05.10.2018, Page 3
séu varamenn hjá A-landsliðinu, þá
hefur U21-landsliðið ekki lengur að
miklu að keppa í sinni undankeppni.
Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir
Bjarnason, Jóhann Berg og Emil
verða án efa í hópnum í dag. Ég fæ
hins vegar ekki séð að leikmenn eins
og Arnór Ingvi Traustason, Rúrik
Gíslason, Guðlaugur Victor Pálsson
og fleiri geti gengið að vísu sæti í
landsliðshópnum í dag, og Aron gæti
verið úr leik vegna meiðsla líkt og
Jón Daði Böðvarsson.
Þess vegna sé ég tækifæri fyrir
unga leikmenn og koma þrír helst
upp í hugann. Albert Guðmundsson
hefur auðvitað leikið frábærlega sem
fyrirliði U21-landsliðsins og er búinn
að stimpla sig inn hjá AZ í hollensku
úrvalsdeildinni í haust. Hann var í
HM-hópnum og lék þar sinn fyrsta
mótsleik, sem varamaður gegn Kró-
ötum. Kantmaðurinn Jón Dagur Þor-
steinsson gerði einnig afar vel í síð-
ustu leikjum U21-landsliðsins en
hann er að láni hjá Vendsyssel í
dönsku úrvalsdeildinni, frá enska úr-
valsdeildarfélaginu Fulham, skoraði í
2:1-sigri á Köbenhavn á sunnudaginn
og var valinn í lið umferðarinnar. Og
þó að Arnór Sigurðsson sé aðeins 19
ára þá lék hann í vikunni í 1:0-sigri á
Evrópumeisturum Real Madrid og
hefur því tekið risaskref undanfarið,
en fyrir mánuði hafði hann aldrei spil-
að U21-landsleik. Fleiri mætti svo
nefna sem koma til greina, eins og
Samúel Kára Friðjónsson, HM-fara.
gviðið?
kall til sætis í hópnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ut í sigri meistaranna
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
Röstin, Dominos-deild karla, fimmtu-
dag 4. október 2018.
Gangur leiksins: 2:5, 11:8, 16:12,
19:20, 25:26, 32:34, 41:40, 47:46,
51:51, 60:57, 65:65, 68:72, 70:74,
80:79, 85:79, 95:86.
Grindavík: Jordy Kuiper 24/12 frá-
köst, Sigtryggur Arnar Björnsson
22/8 fráköst/6 stoðsendingar, Ólafur
Ólafsson 15/8 fráköst, Terrell Vinson
14/6 fráköst, Michael Liapis 11/7 frá-
köst, Johann Arni Olafsson 6, Hlynur
Hreinsson 3.
Fráköst: 33 í vörn, 10 í sókn.
Breiðablik: Christian Covile 18/4 frá-
köst, Snorri Hrafnkelsson 16/7 frá-
köst, Erlendur Ágúst Stefánsson 13,
Sveinbjörn Jóhannesson 8/7 fráköst,
Halldór Halldórsson 8/4 fráköst, Arn-
ór Hermannsson 5/8 frák./5 stoðs.,
Snorri Vignisson 5, Ragnar Jósef
Ragnarsson 5, Þorgeir Freyr Gíslason
3, Sigurður Sölvi Sigurðarson 3, Árni
Elmar Hrafnsson 2/4 fráköst.
Fráköst: 32 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Einar
Þór Skarphéðinsson, Georgia Olga
Kristiansen. Áhorfendur: 400.
Grindavík – Breiðablik 95:86
Sauðárkrókur, Dominos-deild karla,
fimmtudag 4. október 2018.
Gangur leiksins: 6:7, 10:11, 18:13,
22:15, 27:15, 38:19, 41:24, 44:33,
49:38, 53:44, 55:45, 64:53, 71:55,
75:61, 83:64, 85:68.
Tindastóll: Urald King 25/13 frá-
köst/5 stolnir, Danero Thomas 18/4
fráköst, Brynjar Þór Björnsson 14,
Dino Butorac 12/9 fráköst/11 stoð-
sendingar, Pétur Rúnar Birgisson 8/4
fráköst, Viðar Ágústsson 3, Hannes
Ingi Másson 3, Helgi Rafn Viggósson
2/5 fráköst.
Fráköst: 30 í vörn, 11 í sókn.
Þór Þ.: Kinu Rochford 21/17 fráköst,
Gintautas Matulis 15/8 fráköst, Hall-
dór Garðar Hermannsson 12/5 frá-
köst, Davíð Arnar Ágústsson 10,
Ragnar Örn Bragason 6, Nikolas Tom-
sick 4/6 stoðsendingar.
Fráköst: 27 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Rögnvaldur Hreiðarsson, Gunn-
laugur Briem.
Áhorfendur: 500.
Tindastóll – Þór Þ. 85:68
DHL-höllin, Dominos-deild karla,
fimmtudag 4. október 2018.
Gangur leiksins: 5:5, 10:12, 15:18,
28:26, 33:33, 38:39, 44:47, 58:52,
66:52, 70:56, 74:66, 86:75, 88:75,
96:81, 100:86, 109:93.
KR: Julian Boyd 37/12 fráköst, Jón
Arnór Stefánsson 15/6 stoðsendingar,
Orri Hilmarsson 12, Sigurður Á. Þor-
valdsson 11/6 fráköst, Emil Barja 10/8
fráköst/7 stoðsendingar, Dino Stipcic
9/5 fráköst/7 stoðsendingar, Vil-
hjálmur Kári Jensson 9, Benedikt Lár-
usson 3, Björn Kristjánsson 3.
Fráköst: 29 í vörn, 10 í sókn.
Skallagrímur: Matej Buovac 25/5 frá-
köst, Aundre Jackson 23/5 fráköst,
Eyjólfur Ásberg Halldórsson 20/5 frá-
köst/8 stoðsendingar, Bjarni Guð-
mann Jónson 10, Björgvin Hafþór Rík-
harðsson 10/5 fráköst, Kristófer
Gíslason 3, Bergþór Ægir Ríkharðsson
2.
Fráköst: 21 í vörn, 2 í sókn.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson, Davíð
Kristján Hreiðarsson, Aron Rún-
arsson.
Áhorfendur: 100.
KR – Skallagrímur 109:93
Fráköst: 22 í vörn, 14 í sókn.
Haukar: Marques Oliver 28/13 frá-
köst/3 varin skot, Kristján Leifur Sverr-
isson 13/6 fráköst, Kristinn Marinósson
13, Matic Macek 13, Haukur Óskarsson
12/4 fráköst, Arnór Bjarki Ívarsson 7,
Hilmar Smári Henningsson 5, Daði Lár
Jónsson 4/5 stoðsendingar.
Fráköst: 21 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Davíð Tómas Tómasson,
Eggert Þór Aðalsteinsson, Bjarni Hlíð-
kvist Kristmarsson.
Áhorfendur: 231.
ukar 88:95
HANDKNATTLEIKUR
Grill 66 deild karla:
Digranes: HK – ÍR U.................................19
Origo-höllin: Valur U – Þróttur ...........19.30
TM-höllin: Stjarnan U – FH U .................20
Víkin: Víkingur – Haukar U......................20
Grill 66 deild kvenna:
Víkin: Víkingur – HK U.............................18
Austurberg: ÍR – Afturelding...................19
2. deild karla:
Fylkishöll: Fjölnir U – Akureyri U ..........17
KÖRFUKNATTLEIKUR
Dominos-deild karla:
MG-höllin: Stjarnan – ÍR......................18.30
Njarðvík: Njarðvík – Keflavík .............20.15
1. deild karla:
Ísafjörður: Vestri – Snæfell .................19.15
Dalhús: Fjölnir – Þór Akureyri ...........19.15
Brauð og co. höllin: Höttur – Sindri ....19.15
1. deild kvenna:
Hveragerði: Hamar – ÍR ......................19.15
2. deild karla:
Sandgerði: Reynir S. – Ármann................19
Í KVÖLD!
ÍBV gerði góða ferð til Akureyrar en
liðið hafði betur á móti KA/Þór
34:26, í fyrsta leiknum í 3. umferð
Olísdeildar kvenna í handknattleik í
kvöld. Leikið var í KA-heimilinu.
Eyjakonur höfðu frumkvæðið all-
an tímann en þær voru yfir eftir fyrri
hálfleikinn 17:14 og bættu við for-
skot sitt í síðari hálfleiknum.
Landsliðskonan Arna Sif Páls-
dóttir fór mikinn í liði ÍBV í kvöld en
hún gerði sér lítið fyrir og skoraði 13
mörk. Greta Kavaliusskalte var næst
með sex mörk. Martha Hermanns-
dóttir var markahæst hjá KA/Þór
með sex mörk. Katrín Vilhjálms-
dóttir var næst með fimm mörk.
Erfiðlega gekk hjá Eyjaliðinu að
komast norður vegna veðurs og
þungrar færðar. Ekki var hægt að
fljúga svo brugðið var á það ráð að
fara með rútu. Upphaflega átti leik-
urinn að hefjast klukkan 18.30 en var
seinkað í tvígang en hófst loks klukk-
an 20 þegar leikmenn ÍBV höfðu skil-
að sér í ófærð norður.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflug Greta Kavaliuskaite skoraði
sex mörk fyrir ÍBV nyrðra.
Eyjakonur
sóttu tvö
stig norður
Kvennalið HK í blaki hefur fengið af-
ar mikinn liðsstyrk en landsliðskonan
Elísabet Einarsdóttir er komin aftur í
raðir félagsins eftir eitt ár hjá Volley
Lugano í Sviss. Þetta kom fram á blak-
frettir.is í gær. Elísabet varð Íslands-
meistari með HK 2017. Hún gæti spil-
að með HK gegn Þrótti Neskaupstað í
meistarakeppninni á Húsavík á laugar-
dag.
Spánverjinn Stefano Hidalgo er svo
orðinn leikmaður KA í blaki karla.
Hidalgo er 31 árs miðjumaður og kem-
ur frá VC Melilla á Spáni þar sem hann
var stigahæsti maður liðsins, sem
endaði í 7. sæti A-deildar á síðustu
leiktíð.
Allar helstu stjörnur franska heims-
meistaraliðsins í fótbolta eru í 23ja
manna leikmannahópi Didier Des-
champs sem hann valdi fyrir vináttu-
landsleik við Ísland næsta fimmtudag,
og leik við Þýskaland í Þjóðadeildinni
fimm dögum síðar. Nægir þar að nefna
menn á borð við Antoine Griezmann,
Kylian Mbappé, Paul Pogba, N’Golo
Kanté, Raphaël Varane og Hugo
Lloris.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta
mætir Katar í vináttulandsleik 19. nóv-
ember. Ísland mætir Belgíu í lokaleik
sínum í Þjóðadeildinni 15. nóvember,
og fer leikurinn við Katar einnig fram í
Belgíu. Ísland mætti Katar einnig í vin-
áttulandsleik í nóvember á síðasta ári
og gerðu liðin þá 1:1-jafntefli.
Eitt
ogannað
HM Í BLAKI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Landslið Búlgaríu, Dóminíska lýð-
veldisins, Púertóríkó og Mexíkó
tryggðu sér í gær síðustu fjögur
sæti í 16-liða úrslitum
heimsmeistaramótsins í blaki
kvenna sem fram fer í Japan þessa
dagana.
Leikmenn átta landsliða halda nú
heim á leið en þau sextán sem eftir
eru skiptast í tvo átta liða riðla en
keppni í þeim hefst á sunnudag og
stendur fram á fimmtudag í næstu
viku.
Meðal stórleikja í lokaumferð
fyrsta hluta mótsins í gær var við-
ureign Ítalíu og ólympíumeistara
Kínverja. Kínverjar unnu fyrstu
hrinu leiksins, 25:20, sem jafnframt
var fyrsta hrinan á mótinu sem
ítalska landsliðið tapaði. Ítalir létu
það ekki trufla sig og unnu þrjár
næstu, 26:24, 25:16, 25:20, og leikinn
þar með 3:1.
Bandaríska liðið er ennþá ósigrað
á mótinu en það lenti í kröppum
dansi gegn Rússum í hörkuleik í
Kobe sem fór í fimm hrinur, 19:25,
25:20, 26:24, 12:25, 15:11.
Sem fyrr segir náði Búlgaría inn í
sextán liða úrslit. Hún vann Kanada
í hreinum úrslitaleik um sætið, 3:1,
en kanadíska liðið vann fyrstu hrinu
leiksins.
Áfram þrátt fyrir tap
Mexíkó skreið áfram í 16-liða úr-
slit þrátt fyrir tap fyrir Hollandi í
lokaumferðinni í A-riðli. Lið Mexíkó
getur þakkað argentínska landslið-
inu fyrir því Argentína lagði Kamer-
ún í lokaumferðinni. Um var að
ræða eina sigur argentínska liðsins í
mótinu en hann gerði að verkum að
leikmenn Kamerún sátu eftir með
sárt ennið og hafa nú sennilega
pakkað ofan í töskur og haldið til
síns heima.
Skriður á Serbum
Fjögur lið hafa ekki tapað leik á
mótinu til þessa. Það eru lið Serbíu
Hollands, Bandaríkjanna og Ítalíu.
Serbar eru þeir einu sem hafa ekki
tapað hrinu í mótinu, enn sem komið
er, eftir fimm leiki.
Ítalir töpuðu loks hrinu
Sextán liða
úrslit fram undan
Ljósmynd/FIVB
Hávörn Varnarmenn ítalska landsliðsins reyna að verjast kínversku smassi.
Dominos-deild karla
Tindastóll – Þór Þ................................. 85:68
KR – Skallagrímur ............................. 109:93
Grindavík – Breiðablik......................... 95:86
Valur – Haukar..................................... 88:95
Meistaradeild Evrópu
Umspil, seinni leikur:
Nanterre – Kauhajoen Karhu ............91:58
Haukur Helgi Pálsson skoraði 9 stig, tók
4 fráköst áti 4 stoðsendingar fyrir Nan-
terre sem þar með er gulltryggt um sæti í
Meistaradeildinni.
Spánn
Gran Canaria – Obradoiro ................ 92:93
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig
fyrir Obradoiro og tók 5 fráköst.
Austurríki
Oberwart Gunners – Flyers Wels ..... 89:64
Dagur Kár Jónsson skoraði 14 stig, átti 4
stoðsendingar tók 3 fráköst fyrir Fleyers
Wels.
KÖRFUBOLTI