Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 4
Íslandsmeistarar 2017 og 2018 Knattspyrna KVK KK 2017 Þór/KA Valur 2018 Breiðablik Valur Handknattleikur KVK KK 2017 Fram Valur 2018 Fram ÍBV Körfuknattleikur KVK KK 2017 Keflavík KR 2018 Haukar KR Blak KVK KK 2017 HK HK 2018 Þróttur N KA Íshokkí KVK KK 2017 SA Esja 2018 SA SA Hópfimleikar KVK KK 2017 Gerpla Gerpla 2018 Stjarnan Gerpla MEISTARAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Í „fræðunum“ er gjarnan talað um erfiðara sé að verja bikara í hóp- íþróttunum en að sækja þá. Þegar lið er ríkjandi meistari þá er það í þeirri stöðu að vera liðið sem öll önn- ur lið í sama landi vilja vinna. Þetta er þekkt stef í íþróttunum. Nú þegar Íslandsmótinu í knatt- spyrnu er lokið er hægt að kíkja á hvaða lið urðu Íslandsmeistarar í hópíþróttum árið 2018. Þegar sex hópíþróttagreinar eru skoðaðar hjá báðum kynjum má sjá að fimm liðum tókst að verja Íslandsmeistaratitil sinn. Þau lið eru karlalið Vals í knattspyrnu, kvennalið Fram í handknattleik, karlalið KR í körfu- knattleik, kvennalið SA í íshokkí og karlalið Gerplu í hópfimleikum. Sum þessara liða hafa raunar unn- ið oftar en tvö ár í röð. Íslandsbikar- inn í íshokkí kvenna hefur verið hjá Skautafélagi Akureyrar síðan 2007 en Björninn vann árið 2006. Þá hefur KR unnið Íslandsmót karla í körf- unni síðustu fimm árin. Í hópfim- leikum karla þarf að fara aftur til 2012 til að finna aðra sigurvegara en Gerplu en þá var það Ármann. Fimm tókst að endurtaka leikinn  Titilvörnin gekk upp hjá liðum í fimm hópíþróttagreinum Morgunblaðið/Eggert Meistarar Valsmenn fagna sigri á Íslandsmótinu síðasta laugardag. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 26. október PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 22. október. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Vertu viðbúinn vetrinum –– Meira fyrir lesendur Gamla markametið hans Pét- urs Péturssonar í efstu deild karla í knattspyrnu, 19 mörk, er lífseigt eins og ég hef áður skrif- að um á síðum þessa blaðs. Metið á fertugsafmæli um þess- ar mundir. Andri Bjarna náði að jafna metið í fyrra og hefur fjórum leikmönnum tekist að jafna. En þegar menn nálgast metið er engu líkara en menn lendi í ein- hvers konar álögum. Talsverður tími er liðinn frá því að leikjum var fjölgað í efstu deild úr 18 í 22. Fyrir utan Andra hefur enginn ógnað metinu verulega frá því að leikjum var fjölgað. Nú í sumar hafa vafalaust ein- hverjir talið að Hilmar Árni Hall- dórsson myndi bæta metið þar sem hann var kominn í ágæta stöðu til þess þegar nokkrir leik- ir voru eftir. Hinir sömu gleymdu að gera ráð fyrir álögunum. Ein- hverjir töldu að Patrick Pedersen gæti slegið metið í lokaumferð- inni með því að skora þrennu. En hinir sömu gleymdu álögunum. Menn sem jöfnuðu metið fengu góð tækifæri til þess að bæta það eins og rifjað hefur verið upp í blaðinu í gegnum árin. Þórður Guðjónsson fékk heilan leik til þess í lokaumferð- inni árið 1993. Samkvæmt því sem fram kemur í bókinni Ís- lensk knattspyrna átti hann til að mynda skot í innanverða stöngina. Andri brenndi af víti í lokaumferðinni í fyrra en var á þeim tíma með 18 mörk. Hið nítjánda kom síðar í leiknum. Einhvern tíma hlýtur þetta markamet þó að falla en það er stórmerkilegt hversu hár þrösk- uldurinn er við 19 mörk. Hvað ætli Þórólfur Beck hefði skorað mörg hefði hann fengið 22 leiki? 40 mörk? 45 mörk? BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, getur ekki spilað næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu franska liðsins Denain. Kristófer er nýbúinn að jafna sig á veikindum. Fréttablaðið greindi frá þessu í gær. Líklegt þykir að Kristófer geti ekki spilað næstu þrjár vikurnar og missir hann því af tveimur leikjum í riðlakeppni frönsku deildarinnar sem og fyrsta deildarleiknum í frönsku B-deildinni. Kristófer togn- aði illa á ökkla og er bæði marinn og bólginn að sögn Fréttablaðsins. Kristófer er að hefja sitt fyrsta keppnistímabil í Frakklandi en hann er uppalinn í KR og varð Ís- landsmeistari 2017 og 2018. Krist- ófer hefur þó áður leikið erlendis en hann lék í fjögur ár með nokkuð sterku liði Furman-háskólans í bandaríska NCCA-körfuboltanum. Þá var hann um tíma á skammtíma- samningi hjá liði Star Hotshots á Filippseyjum fyrir ári. Elvar Már Friðriksson er sam- herji Kristófers hjá Denain. Morgunblaðið/Hari Meiddur Kristófer fer varlega í troðslurnar á næstunni. Kristófer Acox meiddist á ökkla SR-ingar fögnuðu sigri gegn Birn- inum í vikunni í fyrsta leik Hertz- deildar karla í íshokkí á þessu keppnistímabili. SR-ingar hafa væntanlega fagnað vel og lengi í Skautahöllinni í Laugardalnum. Ef að er gáð þá var bið Skautafélags Reykjavíkur eftir sigri á Íslandsmóti karla orðin býsna löng. Á síðasta keppnistímabil tefldi lið SR fram ungum leikmönnum og leikmannahópurinn var þunnskip- aður. Fór raunar svo að liðið neydd- ist til að gefa tvo leiki. SR fór í gegn- um síðasta tímabil án sigurs og því þarf að fara aftur í keppnistímabilið 2016-2017 til að finna síðasta sigur- leik hjá liðinu. Síðasti sigur SR, þar til á þriðju- daginn, kom hinn 25. nóvember 2016. Var þá einnig leikið gegn Birn- inum í Laugardalnum og sigraði SR 2:0 og skoraði Robbie Sigurðsson bæði mörkin. SR hafði tapað þrjátíu og sex leikjum í röð á Íslandsmótinu. Tutt- ugu og fjórum síðasta vetur og síð- ustu tólf veturinn 2016-2017. Byrjun liðsins á þessu keppnistímabili bend- ir til þess að nú gæti liðið verið að ná vopnum sínum. kris@mbl.is Biðin eftir sigri var löng hjá SR  22 mánuðir á milli sigurleikja í Íslandsmótinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sigur Viktor Kristjónsson lætur vaða á mark Bjarnarins á þriðjudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.