Morgunblaðið - 03.11.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Meðferðarheimilið í
Krýsuvík
Meðferðarheimilið í Krýsuvík er að leita sér
að ráðgjafa til að halda utan um karlkyns-
grúppu. Þetta er 100 % starf.
Æskilegt að viðkomandi hafi lokið námi í
Ráðgjafaskóla Íslands. Reynsla af ráðgjöf er
góður kostur, góðir samskipta- og samstarfs-
hæfileikar einnig og edrú lágmark 3 ár.
Umsóknarfrestur til 9. nóvember 2018.
Upplýsingar gefur kristbjorg@krysuvik.is
sími 8476757.
Meðferðarheimilið í Krýsuvík auglýsir eftir
matráði, unnið er á kokkavöktum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
vinnu á stóru heimili, sé með góða sam-
starfshæfileika og jákvæð í mannlegum
samskiptum.
Umsóknarfrestur til 9. nóvember 2018
Upplýsingar gefur :
kristjorg@krysuvik.is sími :8476757
Markmið Fangelsismálastofnunar við rekstur
fangelsa eru þessi helst:
- Að afplánunin fari fram með öruggum hætti þannig
að réttaröryggi almennings sé tryggt.
- Að draga úr líkum á endurkomu fanga í fangelsi.
- Að föngum sé tryggð örugg og vel skipulögð
afplánun, að mannleg og virðingarverð samskipti
séu höfð í fyrirrúmi og að fyrir hendi séu aðstæður
og umhverfi sem hvetja fanga til að takast á við
vandamál sín.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf fangavarðar felst m.a. í umsjón ákveðinna
verkefna og veita leiðbeiningar til skjólstæðinga.
Um skilyrði þess að vera ráðinn fangavörður fer
skv. ákvæðum reglugerðar nr. 347/2007.
Hæfnikröfur
- Iðnmenntun og/eða háskólamenntun kostur.
- Gott vald á íslensku, talaðri sem ritaðri.
- Góð kunnátta í ensku nauðsynleg.
- Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum
samskiptum.
- Geta brugðist skjótt við breytilegum aðstæðum.
- Góð kunnátta og færni á tölvur og helstu forrit
s.s. word, excel og Lotus notes.
- Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem
fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í
almannaþjónustu hafa gert.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.
Sækja skal um starfið merkt “Störf fangavarða á
Hólmsheiði” á heimasíðu Fangelsismálastofnunar
www.fangelsi.is fyrir 15. nóvember nk.
Áætlað er að þeir umsækjendur sem fá starfstilboð
geti hafið störf 1. janúar 2019 eða fljótlega eftir það.
Stofnunin áskilur sér rétt til þess að óska eftir saka-
vottorði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 15.11.2018.
Nánari upplýsingar veitir
Halldór Valur Pálsson, HalldorValur@fangelsi.is,
520 5063.
Jakob Magnússon, Jakob@fangelsi.is, 520 5000.
FMS Fangelsið Hólmsheiði,
Nesjavallaleið 9.
Fangaverðir
Fangelsismálastofnun auglýsir eftir 4 fangavörðum til
framtíðarstarfa í Fangelsinu Hólmsheiði
Atvinna
Set röraverksmiðja
Set ehf. | Eyravegur 41 | 800 Selfoss | Sími: 480 2700 | set@set.is | www.set.is
Við leitum að einstaklingi til starfa við kynningar- og markaðssvið
fyrirtækisins. Um er að ræða framtíðarstarf við fjölbreytt verkefni tengd
kynningu fyrirtækisins á innlendum og erlendum markaði.
Uppsetning og hönnun á prentuðu kynningarefni.
Innsetning og uppfærsla á efni fyrir vefsíðu.
Helstu viðfangsefni starfsins eru:
Áhugasamir sæki um fyrir 1. desember nk. Eingöngu er tekið við
umsóknum á vef Set; set.is/atvinna.
! "
# er á staðnum.
$ %& & '( ) *
Hafa góða þekkingu og reynslu af CMS kerfum á borð við Wordpress.
Gott auga fyrir útliti og uppsetningu á texta og myndum.
Sveigjanleiki og færni í samvinnu við aðra.
Gott vald á bæði ritaðri og talaðri enskri og íslenskri tungu.
Viðkomandi þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
Ferilskrá.
Ferilmappa með samantekt af fyrri verkum.
Mynd af umsækjanda.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
1
ATVINNA
í boði hjá Kópavogsbæ
Sjá nánar á kopavogur.is
www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf
Á Norðurlandaráðsþingi sem
haldið var í vikunni kynnti
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra áherslur
formennskuárs Íslendinga á
sviði menningarmála. Ísland
tekur við for-
mennsku í
Norðurlanda-
ráði í byrjun
næsta árs og
var áætlun Ís-
lands því við-
víkjandi kynnt
í heild sinni á
þinginu. Áætl-
un byggist á
þrennu: Ungt fólk á Norður-
löndum, Sjálfbær ferða-
mennska í norðri og Hafið –
blár vöxtur í norðri.
UNESCO í brennidepli
„Viðfangsefni okkar á
menningarsviðinu tengjast
áherslunni á ungt fólk á
Norðurlöndunum, þannig eru
Menntun fyrir alla og Plat-
form-Gátt umfangsmikil verk-
efni á sviðum menntunar og
lista fyrir ungt fólk. Á þessu
ári förum við einnig með for-
mennsku í norrænu barna- og
ungmennanefndinni NOR-
DBUK en eitt af markmiðum
hennar er að efla samtakamátt
og þátttöku ungs fólks á Norð-
urlöndunum í samfélagslegum
verkefnum og lýðræðis-
ferlum,“ sagði Lilja Dögg að
því er fram kemur í tilkynn-
ingu.
Einnig verða skipulagðar
tvær ráðstefnur þar sem mál-
efni UNESCO verða í brenni-
depli, og gert átak í að efla
fjölmiðlun sem tæki gegn fals-
fréttum og upplýsingaóreiðu.
Það verkefni á sér rót í for-
mennsku Svía á þessu ári. Í
íþróttamálum er ráðgert að
skipuleggja hliðarviðburði á
stórri ráðstefnu íslensku for-
mennskunnar næsta haust um
#metoo-byltinguna.
Ísland leggur áherslu á
tungumálasamstarf í for-
mennsku sinni og hyggst ráð-
herra kanna hvort tímabært
sé að endurskoða málstefnu
Norðurlanda: „Mikilvægt er
einnig að sjónarhorn ungs
fólks komi af fullum þunga inn
í umræður um áherslur í nor-
rænu tungumálasamstarfi. Í
formennskuáætlun Íslands í
norrænu samstarfi fyrir árin
2019-2021 er sérstök áhersla
lögð á þátttöku og samræðu
ungs fólks um mennta- og
menningarmál og heimsmark-
mið Sameinuðu þjóðanna,“
segir í fréttatilkynningu.
Á fundinum var einnig tekin
ákvörðun um sameiginlega
menningarkynningu Norður-
landanna, hliðstæða Nordic
Cool sem fram fór í Washing-
ton 2013 og Nordic Matters í
Lundúnum 2017. Menningar-
samstarf af því tagi hefur ver-
ið kveikja að fjölmörgum há-
tíðum og listverkefnum á
Norðurlöndunum. Norræn
sendinefnd mun kynna til-
lögur sínar að staðsetningu
þriðju menningarkynning-
arinnar um miðjan nóvember.
AFP
Noregur Hjólað til framtíðar á Karls Johansötu í Óslóarborg.
Málstefna og átak
gegn falsfréttum
Ísland leiðir norræna stefnu
Ekki seinna en um næstu
áramót þarf grunnörorkulíf-
eyrir að hækka verulega.
Samhliða því verður svo að
afnema ákvæði um sérstaka
framfærsluuppbót og setja
aldurstengda uppbót ofan á
grunnlífeyri. Þetta segir í
ályktun fulltrúaráðsfundar
landssamtakanna Þroska-
hjálpar sem haldinn var um
síðustu helgi.
Í greinargerð með ályktun-
inni segir að mánaðarlegar
greiðslur frá Trygginga-
stofnun til þeirra öryrkja
sem ekki hafi neinar aðrar
tekjur en bætur almanna-
trygginga séu nú 240 þús. kr.
og ráðstöfunartekjur 205 þús.
kr. Þeir sem búa einir, sem
eru um það bil 30% öryrkja,
fá til viðbótar svokallaða
heimilisuppbót. Greiðslur til
þeirra eru þá 300 þús. kr. og
ráðstöfunartekjur 243 þús.
kr.
„Með tilkomu framfærslu-
uppbótar sem tryggði öllum
lágmarksgreiðslu hvarf í
raun og veru að mestu leyti
sá sérstaki stuðningur sem
aldurstengda uppbótin átti að
veita þeim sem urðu öryrkjar
ungir og áttu þar af leiðandi
lítinn sem engan rétt hjá líf-
eyrissjóðum auk þess sem
eignastaða þeirra var yfirleitt
allt önnur og verri en al-
mennt gerist um fólk á sama
aldri. Skerðingarhlutfall
framfærsluuppbótar er 100%
og frítekjumark er ekkert
þannig að vegna hverrar
krónu sem viðkomandi aflar
skerðist sama fjárhæð, það er
með svokallaðri krónu á móti
krónu skerðingu,“ segir í
ályktun Þroskahjálpar.
Morgunblaðið/Eggert
Mannlíf Ungar stúlkur úti að
labba með hundinn sinn.
Bætur og aldurs-
tengd uppbót hækki
Aldursstuðningur er horfinn
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir