Morgunblaðið - 03.11.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Fundir/Mannfagnaðir
Sjómannafélag Íslands
Framboðsfrestur
Vegna kjörs stjórnar, stjórnar
matsveinadeildar og trúnaðarmannaráðs.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn fyrir kl.
12.00 mánudaginn 19. nóvember 2018 á
skrifstofu félagsins, Skipholti 50d.
Trúnaðarmannaráð
Sjómannafélags Íslands
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Langirimi 21-23, Reykjavík, fnr. 222-8703, þingl. eig. Banh Mi ehf.,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Íslandsbanki hf., miðvikudag-
inn 7. nóvember nk. kl. 10:00.
Maríubaugur 69, Reykjavík, fnr. 225-8332, þingl. eig. Viðar Már
Friðfinnsson, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og
Olíudreifing ehf., miðvikudaginn 7. nóvember nk. kl. 11:00.
Njálsgata 52B, Reykjavík, fnr. 200-8160, þingl. eig. Viðar Haraldsson,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 7. nóvember nk.
kl. 14:00.
Njálsgata 52C, Reykjavík, fnr. 200-8161, þingl. eig. Viðar Haraldsson,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 7. nóvember nk.
kl. 14:15.
Þorláksgeisli 1, Reykjavík, fnr. 227-8035, þingl. eig. Ólafur Snævar
Aðalsteinsson og Anna Rakel Aðalsteinsdóttir, gerðarbeiðandi
Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 7. nóvember nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
2. nóvember 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Tindar 3, Reykjavík, fnr. 208-5369, þingl. eig. HDL ehf., gerðar-
beiðendur Tryggingamiðstöðin hf. og Arion banki hf., fimmtudag-
inn 8. nóvember nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
2. nóvember 2018
Tilboð/útboð
Reykjavíkurborg
Innkaupadeild
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Rammasamningur um skipulagðan akstur fyrir
grunnskóla Reykjavíkurborgar EES útboð nr. 14346.
• Hverfið mitt 2018 austurhluti, heit vaðlaug í
Grafarvoglaug útboð nr. 14362.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
Nauðungarsala
*Nýtt í auglýsingu
*20842 Tölvuvagnar fyrir Landspítala.
Ríkiskaup f.h. Landspítala óska eftir tilboðum í
tölvuvagna/Computer Carts. Nánari upplýsingar í
útboðsgögnum á www.rikiskaup.is. Opnun tilboða
6. desember 2018 kl. 10:00 hjá Ríkiskaupum.
*20850 Skógarplöntur fyrir Skógræktina,
Landgræðslu ríkisins og Hekluskóga.
Ríkiskaup, fyrir hönd Skógræktarinnar, Land-
græðslu ríkisins og Hekluskóga, óska eftir
tilboðum í 6.286.750 skógarplöntur. Heimilt er að
bjóða í einstaka flokka útboðsins og í hluta
tegundar í sömu bakkagerð. Nánari upplýsingar í
útboðsgögnum á www.rikiskaup.is. Opnun tilboða
6. desember 2018 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum.
*20736 RS Prentun. Ríkiskaup, fyrir hönd
áskrifenda að rammasamningum á samningstíma
standa fyrir þessu útboði vegna innkaupa á
prentgripum. Útboðinu er skipti í þrjá flokka: 1)
Skrifstofuvörur; bréfsefni, umslög, nafnspjöld
o.fl., 2) Skýrslur og bæklingar, 3) Bækur, kiljur og
plaköt. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem
verða aðgengileg á www.rikiskaup.is fyrir lok
dags, þriðjudaginn 6. nóvember. Opnun tilboða
11. desember 2018 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum.
Geðheilsuteymi HH austur - Leigu-
húsnæði
20864 – Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka
á leigu húsnæði fyrir Geðheilsuteymi HH
austur. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla
ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á lang-
tímaleigu til 8 ára, fullbúið til notkunar, án lauss
búnaðar. Gerð er krafa um góða staðsetningu, gott
aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og
gangandi og næg bílastæði. Geðheilsuteymi
austur er þjónustustofnun fyrir almenning.
Geðheilsuteymið er 2. stigs geðheilbrigðis-
þjónusta á vegum Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins. Lykilþættir í starfsemi teymisins eru að
það sé þverfaglegt og í nærumhverfi notenda.
Því skiptir staðsetning húsnæðisins þ.e. miðlægt í
þjónustusvæði, í nálægð við helstu stofnbrautir og
almenningssamgöngur, miklu máli við staðarval.
Teymið sinnir íbúum í eftirfarandi póstnúmerum;
109 Breiðholt, 110 Árbær, 111 Breiðholt, 112 Grafar-
vogur, 113 Grafarholt og 116 Kjalarnes (ásamt Re-
ykjavík dreifbýli). Seinna mun Mosfellsbær bætast
við með 270 Mosfellsbær og 271 Mosfellsbær
dreifbýli.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 422
fermetrar. Húsnæðið er þjónustuhúsnæði fyrir
geðheilbrigðisþjónustu. Æskilegast er að það sé á
einni hæð.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið
verður að uppfylla verða aðgengilegar á heima-
síðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is á mánu-
daginn, 5. nóvember 2018.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið til-
lit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út
frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggi, afhendingatíma,
staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni Geðheilsuteymi
HH austur skulu sendar á netfangið
www.utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef
Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. nóvember
2018 en svarfrestur er til og með 19. nóvember
2018.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand
og staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal
skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík,
eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 22.
nóvember 2018.
Merkja skal tilboðin; nr. 20864 –
Geðheilsuteymi HH austur - Leiguhúsnæði.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undan-
skilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr.
a. lið 1. mgr. 6a. gr.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að inni-
halda eftirfarandi upplýsingar:
Afhendingartíma húsnæðis
Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og
tillöguteikningar
Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu,
Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
Húsgjöld
Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og
aðlægra lóða
Tilvísun í gildandi aðalskipulag
Úttektarskýrsla á viðurkenndum myglu-
mælingum frá óháðum aðila
ÓSKAST TIL LEIGU
Til leigu
Raðauglýsingar
Bæjarráð Fjarðabyggðar mót-
mælir í ályktun sem samþykkt
var í vikunni harðlega boðaðri
aukagjaldtöku, í formi 10%
hækkunar á heildartekjum út-
gerðar, sem lögð verði á upp-
sjávarstofna, umfram aðrar
tegundir sjávarfangs, eins og
gert er ráð fyrir í frumvarpi
um veiðigjöld sem nú er í með-
förum Alþingis.
„Með því að hækka heildar-
tekjur um 10% getur reikni-
stofn veiðigjalds hækkað allt
að 50 til 60% sem þýðir í raun
að skattstofn er í raun milli 46
og 66% á uppsjávartegundir
en ekki 33% eins og boðað er á
aðrar fisktegundir,“ segir
bæjarráð í ályktun sinni. Þar
er minnt á að í Fjarðabyggð
séu starfrækt þrjú stór og öfl-
ug sjávarútvegsfyrirtæki sem
hafi fjárfest mikið í uppbygg-
ingu og skipakosti í tengslum
við veiðar á uppsjávaraf-
urðum. Fyrirtæki þessi séu
máttarstólpar og leggi mikið
til íslensk samfélags í formi
skatta og verðmætasköpunar
til útflutnings. Sé það vilji
stjórnvalda að leggja á veiði-
gjöld hljóti að vera skýlaus
krafa að jafnræði sé í slíkri
skattlagningu og ekki sé tekin
út ein grein sjávarútvegs og
lögð á hana aukin gjöld um-
fram aðrar að ógleymdu þeirri
miklu óvissu sem nú ríkir
varðandi stöðu loðnu- og
makrílstofnsins.
Fjárfestingar
dragast saman
„Slíkt mun verða til þess að
fjárfestingar og frekari upp-
bygging í uppsjávariðnaði
muni dragast saman. Þá minn-
ir bæjarráð á fyrri bókanir sín-
ar um veiðigjöld og þá eðlilegu
kröfu að veiðigjöld séu sann-
gjörn og í takt við afkomu
sjávarútvegsins hverju sinni.
Einnig ítrekar bæjarráð þá af-
stöðu sína að viðkomandi
sjávarútvegssveitarfélög fái
hlutdeild í veiðigjöldum í ljósi
þeirra fjárfestinga sem við-
komandi sveitarfélög hafa lagt
út í og hvaðan þessi útflutn-
ingsverðmæti koma,“ segir
bæjarráð. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjarðabyggð Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Gjöldum mótmælt
Hækka á skatta á uppsjávar-
stofna Jafnræðis verði gætt
Birkir Fanndal
birkir@fanndal.is
Nú í vikunni var þekkingar-
setur í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit formlega opnað sem
hlaut nafnið Mikley. Starf-
semin er undir sama þaki og
skrifstofa Skútustaðahrepps
og þar er góð vinnuaðstaða
fyrir 10 manns. Það mun hýsa
fólk úr ólíkum áttum, til dæm-
is námsmenn, sjálfstætt starf-
andi einyrkja og stofnanir.
Starfsemi er komin á skrið nú
þegar.
Forstöðumaður er Arn-
þrúður Dagsdóttir í Garði.
Við athöfnina í dag gerði
Helgi Héðinsson oddviti grein
fyrir aðdraganda þessa
merka áfanga í atvinnumálum
Mývatnssveitar.
Vel var mætt til þessa
merka viðburðar bæði heima-
fólk og lengra að komnir,
enda margir lagt hér hönd á
plóg. Nafnið Mikley hefur
sterka sögulega skírskotun til
menningarlífs Mývatns-
sveitar. Eyjan er sú stærsta í
Mývatni og er miðsvæðis, þar
komu menn gjarnan saman til
skrafs fyrr meir þegar ís var
á vatninu og skautar hrað-
skreiðasta farartækið. Það
var Ásta Kristín Benedikts-
dóttir á Arnarvatni sem kom
með tillögu að þessu nafni á
þekkingarsetrið og þykir það
vera vel við hæfi.
Mikley opnuð
í Mývatnssveit
Þekkingarsetur í Reykjahlíð
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Opnun Helgi Héðinsson
klippir borða með Þorsteini
Gunnarssyni sveitarstjóra.
Alls 206.700 manns á aldr-
inum 16 til 74 ára voru að
jafnaði á vinnumarkaði á
þriðja fjórðungi líðandi árs,
skv. nýjum tölum frá Hag-
stofunni. Af þeim voru
202.200 starfandi og 4.500
án vinnu og í atvinnuleit.
Atvinnuþátttaka var 82,4%,
hlutfall starfandi 80,6% en
atvinnuleysi 2,2%.
Atvinnulausar konur voru
2.200 og var atvinnuleysi í
þeirra hópi 2,3%. Atvinnu-
lausir karlar voru 2.300 eða
2,0%. Atvinnuleysi var 2,5%
á höfuðborgarsvæðinu og
1,5% utan þess.
Samanborið við þriðja
ársfjórðung á síðasta ári
fjölgaði starfandi fólki um
7.900 og hlutfall starfandi
af mannfjölda jókst um
0,4%. Fjöldi atvinnulausra
jókst lítið eitt á milli ára
eða rétt um 200 manns en
hlutfall þeirra af vinnuafli
stóð í stað.
Atvinnuleysi mælist 2,2%