Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 1
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sara Björk landsliðsfyrirliði er staðráðin í að vera upp á sitt besta eftir vetrarhlé á seinni hluta leiktíðarinnar með Þýskalandsmeisturum Wolfsburg. Verður frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla. 2 Íþróttir mbl.is FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Hinn 19 ára gamli Skagamaður, Arnór Sigurðsson, varð í gærkvöld þriðji ís- lenski knattspyrnumaðurinn til þess að skora í Meistaradeild Evrópu. Arn- ór skoraði ágætt mark fyrir CSKA Moskvu þegar hann jafnaði metin gegn Roma, 1:1, snemma í seinni hálf- leik en Roma fór með sigur af hólmi, 2:1. Gestirnir frá Roma léku reyndar manni fleiri síðustu 35 mínútur leiksins eftir að Hörður Björgvin Magnússon fékk að líta sitt annað gula spjald, og þar með rautt, fyrir tæklingu. Fyrra spjaldið fékk hann fyrir að handleika knöttinn í fyrri hálfleik. Skömmu eftir að Herði var vikið af velli skoraði Roma markið sem réð úrslitum. Tapið breytir þó ekki þeirri stað- reynd að Arnór er orðinn langyngsti Íslendingurinn til að skora í riðla- eða útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Raunar hafa aðeins markahrókarnir Eiður Smári Guðjohnsen og Alfreð Finnbogason skorað í þessari sterk- ustu félagsliðakeppni heims, nema að horft sé einnig til forkeppninnar þar sem mun fleiri Íslendingar hafa auðvit- að skorað. Eiður skoraði 25 ára gamall fyrir Chelsea gegn Lazio haustið 2003, fyrsta mark sitt af sjö í keppninni, og Alfreð skoraði eina mark sitt í Meist- aradeildinni gegn Arsenal, 26 ára gam- all með Olympiacos árið 2015. Arnór varð yngstur Íslendinga til að spila í Meistaradeildinni nú í haust, þegar hann sló Kolbeini Sigþórssyni við en Kolbeinn lék sinn fyrsta leik í keppninni 21 árs. Arnór hefur nú leikið fjóra leiki í keppninni, eftir að hann var keyptur frá Norrköping í sumar. Hann hefur komið hratt inn á sjónarsviðið en Arnór lék sinn fyrsta leik fyrir U21- landsliðið í september síðastliðnum. Hann var ekki valinn í A-landsliðið fyr- ir leikina við Frakkland og Sviss í síð- asta mánuði en gæti fengið tækifæri í hópnum sem Erik Hamrén landsliðs- þjálfari tilkynnir á morgun, fyrir leiki við Belgíu og Katar um miðjan mán- uðinn. Arnór komst í fámennan hóp  Mun yngri en Eiður með fyrsta mark AFP Mark Arnór Sigurðsson, lengst til hægri, stendur keikur eftir að hafa komist á blað í Meistaradeildinni. HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Þessi hópur er skipaður yngri leik- mönnum en stundum áður og kemur það meðal annars til af meiðslum nokkurra reyndra kvenna,“ sagði Axel Stefánsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann hafði þá tilkynnt val á 16 leikmönnum sem hann ætlar að tefla fram í þremur leikjum í forkeppni heimsmeistaramóts- ins sem fram fer í lok nóvember og byrj- un desember í Skopje í Makedóníu. Eins og kemur fram annars staðar hér á síðunni er hin leikreynda Karen Knúts- dóttir úr Fram ristarbrotin. Auk hennar gátu Birna Berg Haraldsdóttir og Rut Arnfjörð Jónsdóttir, sem báðar leika með dönskum félagsliðum, ekki gefið kost á sér vegna meiðsla. Skarð er sann- arlega fyrir skildi í landsliðshópnum sem þar að auki hefur tekið miklum manna- breytingum á síðustu árum. „Ég er alveg viss um að hópurinn sem ég hef valið er sá sterkasti sem völ er á um þessar mundir. Ég treysti leik- mönnum fullkomlega til þess að fara í leikina og gera það gott. Verkefnið er verðugt og spennandi,“ sagði Axel í gær. Fyrrgreind forkeppni fer fram í Skopje 30. nóvember, 1. og 2. desember. Auk landsliða Íslands og Makedóníu bí- tast landslið Aserbadsjan og Tyrklands um eitt sæti sem gefur þátttökurétt í um- spilsleikjum um keppnisrétt á HM. Um- spilsleikirnir verða háðir í júní. Íslenski landsliðshópurinn heldur til Noregs til æfinga 19. nóvember og verð- ur ytra í nærri viku við æfingar auk þess sem hann leikur við landslið Kína 20. nóvember og norska landsliðið tveimur dögum síðar. Í Noregi dvelur landsliðið í boði norska handknattleikssambandsins og Alþjóðahandknattleikssambandsins sem vinnur um þessar mundir að þróun- arverkefni í samstarfi við kínverska handknattleikssambandið. „Við komum heim til Íslands og verð- um í nokkra daga hér við undirbúning áður en farið verður til Makedóníu. Til viðbótar þá leikur B-landsliðið okkar við færeyska landsliðið hér heima helgina 24. og 25. nóvember svo það er nóg fram undan,“ sagði Axel Stefánsson, landsliðs- þjálfari í handknattleik kvenna. A-landsliðið skipa eftirtaldir leikmenn: Markverðir: Hafdís Renötudóttir, Boden Guðný Jenný Ásmundsdóttir, ÍBV Aðrir leikmenn: Sigríður Hauksdóttir, HK Andrea Jacobsen, Kristianstad Helena Rut Örvarsdóttir, Byåsen Lovísa Thompson, Val Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram Ester Óskarsdóttir, ÍBV Eva Björk Davíðsdóttir, Ajax Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfossi Díana Dögg Magnúsdóttir, Val Thea Imani Sturludóttir, Volda Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Stjörnunni Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram Arna Sif Pálsdóttir, ÍBV Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi Morgunblaðið/Eggert Heit Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er langmarkahæst í Olís-deildinni. Verðugt og spennandi  Axel hefur valið hópinn sem fer til Skopje í forkeppni HM Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í hand- knattleik, leikmaður Íslands- meistara Fram, er með brot í annarri ristinni og leikur ekki með Fram á ný fyrr en í byrjun næsta árs. Karen staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær. Karen meiddist í viðureign HK og Fram 15. október og í fyrstu var ekki ljóst hvers eðlis meiðslin væru. Hún gerði til- raun til að leika með Fram gegn ÍBV í vikunni eftir HK- leikinn en fann fljótt að það gekk ekki. „Ég var bara á annarri og útilokað að harka eitthvað af sér,“ sagði sagði Karen við Morgunblaðið í gær. „Batinn var hægur og eftir að ég hitti lækni á mánudag var staðfest að um brot væri að ræða,“ sagði Karen sem verður með aðra ristina í spelku næsta mánuðinn. „Tímasetningin á fyrsta broti mínu á ferlinum er mjög slæm. Þetta er ömur- legt. Missi af mörgum leikj- um með Fram og síðan und- ankeppni HM með lands- liðinu í lok þessa mánaðar. Það er hrikalega leiðinlegt að missa af leikjunum í und- ankeppni HM. Við höfum lagt mikla vinnu í undirbúninginn um langt skeið en ég veit að stelpurnar klára verkefnið án mín,“ sagði Karen von- svikin og skyldi engan undra. Karen sleit hásin í byrjun tímabilsins í fyrra og var lengi frá keppni af þeim sök- um. Hún mætti þá öflug til leiks þegar á leið tímabilið og fór á kostum í úrslitakeppn- inni en að henni lokinni hampaði Fram-liðið Íslands- bikarnum. Hlé verður gert á keppni á Íslandsmótinu 18. nóvember. Þráðurinn verður tekinn upp 8. janúar og þá stefnir Karen á að verða tilbúin í slaginn með stöllum sínum í Fram. iben@mbl.is Karen ristarbrotin Morgunblaðið/Eggert Meidd Karen Knútsdóttir í leik gegn Svíþjóð í lok september.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.