Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 2

Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðs- fyrirliði í knattspyrnu, þarf að taka því rólega næsta mánuðinn eða svo vegna meiðsla. Sara meiddist á æf- ingu í Madrid í lok síðasta mánaðar, fyrir seinni leik Wolfsburg og Atlé- tico Madrid þar sem Wolfsburg tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með afger- andi hætti. „Þetta er tognun á sin utan á leggnum. Þeir segja að þetta taki 4-6 vikur. Maður þarf að fara varlega svo að það rifni ekki neitt. Ég hef ekkert brjálæðislegar áhyggjur af þessu en þarf að taka því rólega og vonast eft- ir því að vera góð eftir fjórar vikur,“ segir Sara við Morgunblaðið. Líkt og síðustu tvö ár hefur Sara átt fast sæti í byrjunarliði Þýska- landsmeistaranna í öllum keppnum í haust. Eftir að verið studd af velli vegna hásinarmeiðsla í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Kiev í maí hafði hún náð góðum bata. „Ég er mjög góð í hásinunum og hef ekki fundið neitt fyrir þeim. Þetta er því bara eitthvað annað sem kom upp,“ segir Sara. Allt í blóma hjá Wolfsburg Hún lék sína fyrstu leiki eftir há- sinarmeiðslin með íslenska landslið- inu í byrjun september, og lék alls tólf leiki í september og október. Wolfsburg hefur gengið allt í haginn og unnið fyrstu átta leiki sína í þýsku 1. deildinni og er þegar komið með sjö stiga forskot á næsta lið, Bayern München. Þá hefur liðið slegið út tvo andstæðinga í Meistaradeildinni, Þór/ KA samtals 3:0 og Atlético samtals 10:0. Á morgun ræðst hvaða liði Wolfsburg mætir í 8-liða úrslitum en þau verða ekki leikin fyrr en í seinni hluta mars. Tveggja mánaða vetr- arhlé er í þýsku deildinni frá 15. des- ember, og þá spilar íslenska lands- liðið ekki fleiri leiki á þessu ári, svo þessi tímapunktur er ef til vill skárri en margir aðrir til að meiðast: „Það má segja það. Þetta er ekki hápunktur tímabilsins eða slíkt, og við erum búnar að vera að spila góða og mjög erfiða leiki. Við komumst áfram í Meistaradeildinni og þar eru engir leikir fram undan á næstunni. Við erum líka með góðan og sterkan hóp og eigum að geta spjarað okkur ef við spilum áfram eins og við höf- um verið að gera. Auðvitað langar mig að vera með og spila alla leiki, en ég þarf að vera þolinmóð. Ég verð orðin 100 prósent klár í byrjun jan- úar og mun einbeita mér að því að vera alveg frísk á seinni hluta tíma- bilsins. Það er aðalatriðið,“ segir Sara, sem í gegnum tíðina hefur nán- ast aldrei misst af leik vegna meiðsla, þar til á þessu ári: „Maður hefur oft fengið eitthvað smávægilegt en spilað í gegnum það. En stundum segir líkaminn stopp. Við vorum búnar að vera að spila þrjá leiki í viku, þrjár vikur í röð, þegar ég meiddist núna svo álagið var búið að vera ágætlega mikið. En ég er líka búin með dágóðan skammt af meiðslum frá því þegar ég var yngri, frá í tvö ár vegna krossbands- slita, og svo þessi hásinarmeiðsli. Ég reyni að hugsa eins vel um mig og ég get en svona getur alltaf gerst,“ segir Sara. Hún á þjáningarsystur í sviss- nesku landsliðskonunni Löru Dicken- mann sem verður mun lengur frá keppni eftir að hafa slitið krossband í hné. „Við erum hins vegar með stór- an hóp hjá Wolfsburg, yfir 20 fríska leikmenn sem eru allir nógu góðir til þess að spila stóra leiki,“ segir Sara. Spennandi upphaf í landsliðinu Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson var í síðasta mánuði ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins en ekki er orðið ljóst hvenær fyrsti leikur undir hans stjórn verður: „Ég hef ekki hitt hann enn en við höfum rætt aðeins saman og þetta er bara spennandi, nýtt upphaf. Það eru æfingar núna um helgina fyrir leik- menn sem spila á Íslandi en svo reikna ég með að við nýtum okkur janúar til þess að slípa okkur sam- an,“ segir Sara sem verið hefur landsliðsfyrirliði frá því að Margrét Lára Viðarsdóttir dró sig í hlé vegna meiðsla og barneigna. Sara á að baki 120 A-landsleiki og hefur skorað í þeim 19 mörk. Morgunblaðið/Eggert Stíf leikjadagskrá Frá og með því að Sara Björk lék gegn Þýskalandi í byrjun september, í fyrsta leik eftir meiðsli, lék hún alls 12 leiki á 57 dögum. Einbeitt á næsta ár  Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk verður frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla  Álagið verið mikið síðustu vikur  Ekki versti tímapunkturinn til að meiðast Meistaradeild Evrópu G-RIÐILL: CSKA Moskva – Roma ............................ 1:2  Arnór Sigurðsson skoraði mark CSKA og lék fram á 64. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon fékk rautt spjald á 56. mínútu. H-RIÐILL: Valencia – Young Boys ............................ 3:1  Sex leikjum var ólokið þegar Morgun- blaðið fór í prentun í gærkvöld. Danmörk Bikarkeppni, 16-liða úrslit: SönderjyskE – Esbjerg ........................... 1:2  Eggert Gunnþór Jónsson var ekki í leik- mannahópi SönderjyskE. KNATTSPYRNA Meistaradeild karla A-RIÐILL: RN Löwen – Montpellier .................... 37:27  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 11 mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson 2. Staðan: Barcelona 10, RN Löwen 10, Var- dar 10, Vive Kielce 8, Veszprém 6, Meshkov Brest 4, Montpellier 1, Kristianstad 1. Þýskaland A-deild kvenna: Dortmund – Buxtehuder .................... 28:23  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1 mark fyrir Dortmund. Spánn Barcelona – La Rioja........................... 45:31  Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir Barcelona. Frakkland Dunkerque – Cesson-Rennes............. 25:17  Geir Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir Cesson-Rennes. Toulon – Brest Bretagne.................... 26:29  Mariam Eradze var ekki á meðal marka- skorara Toulon. Danmörk Lemvig – Aalborg................................ 23:33  Janus Daði Smárason skoraði 7 mörk fyrir Aalborg og Ómar Ingi Magnússon 6. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Kolding – Bjerringbro/Silkeborg..... 27:27  Ólafur Gústafsson skoraði 1 mark fyrir Kolding. A-deild kvenna: Ajax – Odense ...................................... 20:26  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 1 mark fyrir Ajax. Aarhus United – Köbenhavn ............. 20:28  Birna Berg Haraldsdóttir hjá Aarhus er frá keppni vegna meiðsla. Svíþjóð Kristianstad – Ystad ........................... 26:23  Teitur Einarsson skoraði 9 mörk fyrir Kristianstad, Ólafur A. Guðmundsson 1 en Arnar Freyr Arnarsson ekkert. Alingsås – Sävehof ...............................38:32  Ágúst Elí Björgvinsson varði 9 skot í marki Sävehof. Noregur Elverum – Fyllingen ........................... 31:29  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 4 mörk fyrir Elverum og Þráinn Orri Jóns- son 3. HANDBOLTI Dominos-deild kvenna Skallagrímur – Haukar........................ 67:53 Keflavík – KR ....................................... 77:73  Leikjum Snæfells og Vals, og Stjörnunn- ar og Breiðabliks, var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Stöðutafla inniheldur því ekki úrslit úr þeim leikjum. Staðan: Snæfell 6 5 1 482:443 10 KR 7 5 2 488:464 10 Keflavík 7 5 2 546:520 10 Stjarnan 6 4 2 410:411 8 Skallagrímur 7 3 4 479:491 6 Haukar 7 2 5 469:494 4 Valur 6 2 4 393:402 4 Breiðablik 6 0 6 426:468 0 Evrópubikar karla Tofas – Alba Berlín ....... 101:106 (e. framl.)  Martin Hermannsson skoraði 11 stig fyrir Alba Berlín, gaf 8 stoðsendingar og tók 3 fráköst. Evrópubikar kvenna Lattes Montpellier – Ceglédi ............. 92:50  Helena Sverrisdóttir skoraði 13 stig, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir Ceg- lédi. NBA-deildin Dallas – Washington ........................ 119:100 Portland – Milwaukee...................... 118:103 Phoenix – Brooklyn............................ 82:104 Charlotte – Atlanta .......................... 113:102 KÖRFUBOLTI Gott gengi þýska liðsins Alba Berlín heldur áfram í Evr- ópubikar karla í körfuknattleik. Liðið hefur unnið fimm af sex leikjum sínum í b-riðli keppninnar og er í öðru sæti riðilsins. Í gær náði Berlínarliðið í sigur í Tyrklandi gegn Tofas 101:106. Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson hefur verið fljótur að stimpla sig inn í lið Alba Berlín á sínu fyrsta ári í Þýskalandi. Martin skoraði 11 stig í gær, gaf 8 stoðsend- ingar og tók 3 fráköst. Martin og samherjar hans eru á ferð og flugi á meðan riðlakeppni Evrópukeppninnar er í gangi. Í gær var liðið í Tyrklandi en var fyrir viku síðan í Rússlandi. Í millitíðinni spilaði liðið heima í deildinni eða síðasta laugardag. Ceglédi, lið Helenu Sverrisdóttur, tapaði fyrir Montpellier 92:50 í Frakk- landi í Evrópubikarnum. Helena verður seint sökuð um tapið því hún var stigahæst með 13 stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 4 fráköst. kris@mbl.is Gott gengi hjá Martin Martin Hermannsson Nikolay Ivanov Mateev, formaður Skylmingasambands Ís- lands, var skipaður varaforseti Evrópska skylmingasambands- ins á dögunum. Þetta kemur fram á vef ÍSÍ en þar segir enn- fremur: „Nikolay hefur verið potturinn og pannan í skylminga- íþróttinni hér á landi um langt árabil. Hann var lengi fram- kvæmdastjóri Skylmingasambands Íslands og var kjörinn for- maður sambandsins árið 2016. Hann var fyrst kjörinn í framkvæmdastjórn Evrópska skylmingasambandsins (EFC) árið 2009 og hefur setið í stjórn sambandsins óslitið síðan. Hann hlaut bestu kosningu allra meðstjórnenda í EFC á þingi sambandsins árið 2017 er hann fékk 36 atkvæði af 40 mögu- legum. Í kjölfar þess að skipaður varaforseti sambandsins hætti snögglega störfum var Nikolay skipaður varaforseti sambandsins og mun gegna því emb- ætti til ársins 2020, þegar næsta þing EFC verður haldið.“ Nikolay var áður afreksmaður í íþróttinni á alþjóðamælikvarða. Nikolay fær framgang Nikolay Ivanov Mateev

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.