Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 3

Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Keflavík renndi sér upp að hlið KR þegar 7. umferð Dominos-deildar kvenna var leikin í gærkvöldi. Kefla- vík sigraði KR 77:73 í Keflavík en leiknum lauk rétt áður en blaðið fór í prentun. Eru liðin nú bæði með 10 stig, fimm sigra og tvö töp. KR-ingum tókst ekki að hemja Brittanny Dinkins sem skoraði 37 stig fyrir Keflavík og átti stórleik því hún tók einnig 10 fráköst og stal boltanum tvívegis af KR-konum. Kiana Johnson gaf henni lítið eftir og skoraði 36 stig fyrir KR, tók 17 fráköst og stal bolt- anum fjórum sinnum. Skallagrímur vann góðan sigur á Íslandsmeisturum Hauka í Borg- arnesi 67:53. Leikjum Snæfells og Vals og Stjörnunnar og Breiðabliks var ekki lokið þegar blaðið fór í prent- un í gær. sport@mbl.is Keflavík upp að hlið KR Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Heimasigur Brittanny Dinkins leikmaður Keflavíkur sækir að körfu KR í leiknum í Keflavík í gær.  Dinkins og Johnson í stuði TEKJUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, hækkaði tekjur sínar umtalsvert með því að færa sig frá þáverandi svissneska meistaralið- inu Basel til Aston Villa á Englandi í janúar á síðasta ári. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum þar sem fjallað var í gær um tekjur norsks íþróttafólks á árinu 2017. Birkir flutti ellefu ára gamall frá Akureyri til Noregs með fjölskyldu sinni og hóf meistaraflokksferil sinn þar síðar með Viking í Stav- anger. Síðan þá hefur Birkir leikið í Belgíu, Ítalíu, Sviss og nú Eng- landi. Samkvæmt Bergens Tidende er Birkir sá íþróttamaður „frá Rogalandi“, fjórða fjölmennasta fylki Noregs, sem hafði hæstar tekjur á síðasta ári, eða 19,1 millj- ón norskra króna fyrir skatt. Miðað við gengi gærdagsins nemur sú upphæð um 277 milljónum ís- lenskra króna. Þess má þó geta að gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri norsku var allt síðasta ár sterkara en nú. Segir BT að hjól- reiðamaðurinn Alexander Kristoff komist næstur á eftir Birki meðal Rogalendinga, með 16,1 milljón norskra króna. Bendtner vel fyrir ofan Matthías Sé litið til tekjuyfirlits TV 2 frá árinu 2016, þegar Birkir lék með Basel, þá námu tekjur hans þá alls tæplega 12,5 milljónum norskra króna fyrir skatt. Hann var því með rúmlega helmingi hærri tekjur í fyrra. Norskir fjölmiðlar gera talsvert úr því hve háar tekjur Nicklas Bendtner, danski framherjinn og vandræðagemsinn, hafi haft á síð- asta ári en hann er leikmaður Ros- enborg. Bendtner er langtekjuhæsti leik- maður norsku úrvalsdeildarinnar en hafa ber í huga að hvorki tekjur Danans né Birkis eru endilega allar frá knattspyrnufélögum þeirra. Bendtner, sem nýverið var dæmdur í 50 daga fangelsi fyrir að ráðast á leigubílstjóra, var með tæpar 20 norskar milljónir í tekjur á síðasta ári, örlitlu meira en Birkir. Hluti teknanna er frá Nottingham Forest á Englandi þar sem hann var á mála þar til í mars í fyrra. Félagi Birkis í íslenska landslið- inu, Björn Bergmann Sigurðarson, er einnig mjög ofarlega á tekjulist- anum. Björn raðaði inn mörkum sem leikmaður Molde í fyrra en gekk svo í raðir Rostov í Rússlandi í byrjun þessa árs. Hann var með 4.435.932 norskra króna í tekjur á síðasta ári, eða 63,3 milljónir ís- lenskar, en þess má geta að þar af fóru 45,6% í skatt. Matthías Vilhjálmsson, sem varð í fyrra norskur meistari þriðja árið í röð með Rosenborg, var nokkuð á eftir liðsfélaga sínum Bendtner á tekjulistanum en hafði þó 1.859.085 norskar krónur í tekjur fyrir skatt, sem í dag jafngildir um 27 millj- ónum íslenskra króna. Birkir hækkaði um helming  Tekjuhæstur „Rogalendinga“ eftir vistaskiptin til Aston Villa  Björn Bergmann með 63 milljónir í fyrra  Bendtner langtekjuhæstur í norsku úrvalsdeildinni AFP Landsliðið Birkir Bjarnason vinnur boltann í leik gegn Sviss í síðasta mánuði. Landsliðsfyrirliðinn í handknattleik, Guðjón Valur Sigurðsson, átti sannkallaðan stórleik gegn Evrópumeisturunum í Montpellier þeg- ar Rhein-Neckar Löwen tók á móti franska liðinu í Meistaradeild Evrópu í Þýskalandi í gær. Guðjón skoraði 11 mörk gegn Frökk- unum og var markahæsti maður vallarins og vann Löwen stórsigur 37:27. Guðjón átti auk þess eina stoðsendingu og náði boltanum einu sinni af andstæðingunum. Alexander Pet- ersson var einnig á sínum stað á hægri vængnum í liði Löwen og skoraði tvívegis. Löwen hefur leikið vel í Meistaradeildinni og unnið fimm af fyrstu sjö leikjum sínum í A-riðli. Er liðið með 10 stig eins og Vardar og Barcelona sem er með Aron Pálmarsson innanborðs. Barcelona og Vardar eiga leik til góða. kris@mbl.is Stórleikur Guðjóns Guðjón Valur Sigurðsson Markmaðurinn Ögmundur Kristinsson var valinn í úrvalslið 9. umferðarinnar í efstu deild Grikklands í knattspyrnu í gær af gríska miðlinum Novasports. Ögmundur átti afar góðan leik fyrir Lar- issa í 1:1-jafntefli gegn Levadiakos á útivelli á laugardaginn var. Hann var í síðasta landsliðshópi Íslands en var á bekknum er Ísland gerði jafntefli við Frakka og tapaði naumlega fyrir Sviss. Larissa er í 11. sæti deildarinnar eftir níu leiki með átta stig. Ögmundur er 29 ára gam- all og færði sig til Grikklands í ágúst en hann lék áður með Ex- celsior í Hollandi. Hann hefur einnig leikið með Randers og Hammarby erlendis og hér heima með Fram. sport@mbl.is Í liði umferðarinnar Ögmundur Kristinsson  Sigvaldi Guðjónsson og Þráinn Orri Jónsson í norska handboltaliðinu Elv- erum fóru upp í toppsæti efstu deildar þar í landi í gær er liðið lagði Fyllingen á heimavelli, 31:29. Sigvaldi skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum og Þráinn gerði þrjú mörk úr þremur skotum. Elverum er með 13 stig eftir átta leiki, eins og ØIF, sem er í öðru sæti en á leik til góða. Elverum er einnig búið að gera fína hluti í Meistaradeild Evrópu í vetur og vermir þriðja sæti D-riðils með átta stig.  Knattspyrnu- maðurinn Þorri Geir Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við bikarmeistara Stjörnunnar. Þorri Geir, sem er uppal- inn Stjörnumaður, skrifaði undir samning sem gildir út leiktíðina 2020. Þorri Geir kom við sögu í 10 leikjum Stjörnunnar í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili en þessi 23 ára gamli miðju- maður hefur alls spilað 58 leiki í efstu deild.  Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálf- ari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur þurft að gera breytingar á æf- ingahópnum sem æfir um næstu helgi. Berglind Jónasdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Guðný Árnadóttir, Heiðdís Lillýardóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Ásta Eir Árnadóttir, Anna Rak- el Pétursdóttir og Lára Kristín Ped- ersen verða ekki með. Í stað þeirra hafa verið valdar Málfríður Anna Eiríksdóttir, Sóley Guðmundsdóttir, Jas- mín Erla Ingadóttir og Magdalena Anna Rei- mus. Eitt ogannað HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni karla, Coca Cola-bikar: KA heimilið: KA – Haukar ........................18 KÖRFUBOLTI Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Blue-höllin: Keflavík – Breiðablik .......19.15 Icelandic Glacial-höllin: Þór Þ. – ÍR ....19.15 Origo-höllin: Valur – Stjarnan .............19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Grindavík 19.15 Í KVÖLD! Sveinn Jóhannsson, leikmaður ÍR, og Hannes Grimm, leikmaður Gróttu, voru í gær úr- skurðaðir í eins leiks bann af aga- og úrskurð- arnefnd HSÍ. Elías Bóasson úr ÍR og FH- ingurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson sleppa hins vegar við bann, þrátt fyrir rauð spjöld. Sveinn fékk rautt spjald undir lok leiks ÍR og FH 1. nóvember og í úrskurði HSÍ segir að brotið hafi verið gáleysislegt og um hættulega aðgerð hafi verið að ræða. Sveinn missir af leik ÍR og Fram á sunnudag. Hannes fékk rautt spjald í leik Gróttu og Akureyrar á sunnudaginn var fyrir brot á Brynjari Hólm Grétarssyni. Sérstök athygli var vakin á því að Hannes hafði áður fengið rautt spjald. Hannes missir af leik Gróttu og Stjörnunnar á sunnudag. sport@mbl.is Tveir fengu leikbann Sveinn Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.