Morgunblaðið - 09.11.2018, Side 8

Morgunblaðið - 09.11.2018, Side 8
S kúli Rósantsson segir ekki að því hlaupið að benda á einhverja eina vöru sem selst betur en aðrar í desember. Margir láti þó eftir sér að kaupa nýtt mat- arstell enda gaman að hafa fallega diska, glös og hnífa- pör á borðum í flottum jóla- og áramótaveislum. „Ef nefna ætti einn vöruflokk sem selst einstaklega vel á þessum árstíma þá eru það ljósin, og ekki að furða enda ræður myrkrið ríkjum yfir vetrarmánuðina og vill fólk hafa heimilin sín björt og fallega upplýst.“ Skúli er eigandi Casa, Iittala og Dúka og nóg að gera í verslununum á aðventu. Aðspurður hvort greina megi einhverja breytingu í kaup- hegðun landans upp á síðkastið seg- ir hann að æ fleiri leggi áherslu á að kaupa vöru sem er vönduð og þann- ig hönnuð að geti verið til prýði og yndisauka um ókomin ár. „Tímalaus hönnun á upp á pallborðið og neyt- endur eru meðvitaðir um að gæða- vörur geta kostað sitt en endast líka lengi,“ segir hann. „Það sama gildir um gjafirnar; að Íslendingar vilja gefa hver öðrum muni sem þiggjandaum á eftir að þykja vænt um og hann vill hafa upp við – helst alla ævi.“ Rosendahl á jólatréð Að velja réttu gjöfina getur samt vafist fyrir fólki og segir Skúli að geti þá hjálpað að leita í vinsælu hönnunarvörurnar frá framleið- endum eins og Kaj Bojesen og Iit- tala sem Íslendingar hafa tekið ást- fóstri við og alla virðist langa í. „Svo slær það kannski á áhyggjurnar að hægt er að skipta vörum fyrir inn- eignarnótu í einni verslun og nota í annarri. Ef að gjöfin er t.d. fengin í Dúka getur þiggjandinn skilað henni þar og notað inneignina til að eignast eitthvað sem hann langar enn meiraí í verslun Casa.“ Má líka prófa að gefa jólavöru, á borð við óróana frá Rosendahl. „Margir hafa gaman af að safna þessum fallegu óróum og nota til að skreyta heimilið ár eftir ár. Rosen- dahl-óróarnir kosta ekki mikið og eru svo nettir að það er t.d. hægt að nota þá sem skraut á jólatréð,“ segir Skúli. „Við seljum einnig díóðu-kerti frá Sompex sem geta verið skemmtileg gjöf fyrir þá sem búa á hjúkrunar- og elliheim- ilum þar sem ekki má vera með log- andi kerti. Sompex-kertin fást í nokkrum stærðum og litum og eru mjög sannfærandi rafmagnskerti með vaxáferð og loga sem flöktir fallega.“ Ferðadrykkjarmál til að draga úr plastnotkun Gjafaþörfum fyrirtækja og stofn- ana er vel sinnt hjá Casa, Iittala og Duka og segir Skúli að hönnunar- vara fyrir heimilið sé jólagjöf sem falli í kramið hjá flestu starfsfólki. Ekki þarf að vera flókið að velja réttu gjöfina enda vöruúrvalið mikið og verðbilið breitt, svo að finna má hentugar gjafir sem spanna allt frá því að kosta fimmtán hundruð krón- ur upp í fimmtán þúsund. Á Casa.is má finna notendavæna netverslun og fá þar góða yfirsýn yfir kostina. Bendir Skúli sérstaklega á skrautmuni eins og apann og söng- fuglana frá Kaj Bojesen eða espressó-könnurnar fallegu frá Bia- letti sem má fá með botni fyrir bæði gas-, span- og venjulegar hellur. „Fer líka vel á því að gefa íslenska hönnun en hjá Duka má t.d. finna vörurnar frá Vorhúsum, merki Sveinbjargar Helgadóttur.“ Skúli leggur líka til að gefa þjóð- félagsumræðunni gaum og athuga hvort ekki má finna jólagjöf sem getur hjálpað þiggjandanum að t.d. leggja sitt af mörkum til að draga úr plastnotkun. „Ferðadrykkjarmálin frá danska framleiðandanum Stel- ton eru með þeim vönduðustu sem finna má, fallega hönnuð og til í alls kyns litum. Þeir sem temja sér að nota ferðamál ættu að geta minnkað notkun á plastflöskum og plastmál- um og hafa um leið sinn uppáhalds- drykk við höndina hvar og hvenær sem er, kaldan eða heitan.“ Íslendingar vilja fallega hluti sem endast og geta verið til prýði á heimilinu í mörg ár og áratugi Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Lampar seljast vel í skamm- deginu. Rosendahl jóla- skrautið er létt og nett og má t.d. nota á jólatréð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vönduð hönnun á alltaf við Skúli bendir á gjafir á borð við ferðadrykkjar- málin frá Stelton sem nota má í staðinn fyrir plastflöskur. Ferðamálin fara vel með umhverf- ið og halda drykknum heitum eða köldum. Kaj Bojesen-vörur eru í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum. 8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018 Askalind 4 201 Kópavogur Sími 552 8400 www.valfoss.is Glæsilegar gjafir til starfsmanna og viðskiptavina Þú velur gjöfina Við pökkum gjöfinni inn Við komum gjöfinni til þín

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.