Morgunblaðið - 09.11.2018, Side 10
A
ð finna jólagjöf fyrir barn er ekkert mál: ef snjósleði, dúkka eða dótabíll kemur í ljós þegar
pakkinn er opnaður ljómar barnið af gleði og jólunum er borgið.
Öllu flóknara er að finna gjöf fyrir fullorðna. Smekkur fólks er svo misjafn og það sem
einn bráðvantar á annar til í mörgum eintökum. Það sem einum þykir til prýði vill næsti
maður helst fela uppi á háalofti. Sagt er að það sé „hugurinn sem gildir“, en allir vilja samt
frekar gefa jólagjöf sem fær þiggjandann til að brosa allan hringinn og eiga einstaklega ánægjuleg jól.
Hér eru nokkrar tillögur fyrir metnaðarfull jólabörn sem fallast hendur þegar kemur að því að velja
réttu gjöfina: Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Rimowa-ferðataska
Íslendingar eru allra þjóða mest á ferð og flugi og
helst ættu landsmenn allir að eiga sterkbyggða og fal-
lega ferðatösku sem þolir hvað sem er. Af öllum þeim
fínu töskum sem eru í boði eru fáar sem geta skákað
Rimowa, og eru t.d. silfurlitu áltöskurnar sannkölluð
hönnunarklassík sem mun standa fyrir sínu í marga ára-
tugi.
Til að gera töskuna enn skemmtilegri má reyna að
hafa það fyrir reglu á ferðalögum að koma við í næstu
Rimowa-búð og biðja um límmiða, en flestar búðirnar
eru með sérhannaða límmiða til reiðu, tileinkaða sinni
borg. Taska sem þakin er límmiðum segir skemmtilega
sögu.
Rimowa Original Cabin kostar 800 evrur í netversl-
un Rimowa.com.
PlayStation 4 Pro með Red Dead Redemption II
Það stefnir í nokkuð gott frí í kringum jól og áramót
og um að gera að nota tímann til að hverfa á vit æv-
intýranna í góðum tölvuleikjum. PlayStation 4 ber höf-
uð og herðar yfir keppinautana og þó svo að þessi öfl-
uga leikjatölva kosti sitt þá er hún alls ekki dýr ef
tekið er með í reikninginn hve mörg hundruð
stunda af góðri afþreyingu hún getur veitt. Er Pla-
yStation ekki bara til þess gerð að spila leiki held-
ur hentar hún líka til að horfa á Netflix eða hlusta
á uppáhaldslögin á Spotify, svo aðeins séu nokk-
ur dæmi nefnd.
Þegar kemur að því að velja rétta leik-
inn þessi jólin þá er fátt sem trompar Red
Dead Redemption II. Leikjaunnendur
eru hreinlega að missa sig yfir þessum
kúrekahetjuleik þar sem hér um bil allt er
leyfilegt.
PlayStation 4 Pro pakki
með Red Dead Redemption
II kostar um 65.000 kr.
hjá Elko.
Hanskar frá
Dents
Áhugamenn um
James Bond verða ekki
fyrir vonbrigðum með
hanska frá Dents. Njósnari
hennar hátignar, sem er
þekktur fyrir góðan smekk, klæddist forláta Dents-
leðurhönskum í sinni nýjustu mynd og óhætt að segja að
þeir hafi farið honum vel. Fleiri hafa dálæti á Dents, eins
og t.d. Karl Bretaprins sem leyfir fyrirtækinu að nota
innsigli sitt.
Úrvalið er mikið og vörurnar frá Dents ekkert sér-
staklega dýrar. Fyrir þá sem vilja sneiða hjá leðri er m.a.
hægt að mæla með prjónuðu Glock-vettlingunum sem
eru nokkurs konar blanda af fingralausum hanska og
lúffu. Tekur hönnunin mið af þörfum skotveiðimanna en
hentar líka vel nútímafólki sem er stöðugt með puttana á
snertiskjá snjallsímans.
Glock-vettlingarnir
kosta rétt rúmlega 18
pund hjá netversluninni
Dentsgloves.com.
Sannar gjafir UNICEF
Öll langar okkur í hitt
og þetta: flottari sólgler-
augu, dýrari strigaskó,
stærra sjónvarp. En
þó svo okkur langi
í margt, þá er fátt
sem okkur bráð-
vantar. Með þak
yfir höfuðið, við
góða heilsu og með
ísskápinn fullan af
mat eigum við í raun allt
til alls.
Væri þá ekki betra að nota jólagjöfina til góðs, og
hjálpa þeim sem skortir jafnvel brýnustu lífsnauðsynjar?
UNICEF hefur um nokkurra ára skeið boðið lands-
mönnum að kaupa Sannar gjafir: vörur sem bæta líf
barna og bágstaddra um allan heim.
Í netversluninni Sannargjafir.is er hægt að velja t.d.
bóluefni á 997 kr., stóran pakka af vatnshreinsitöflum á
5.021 kr. eða skammt af ormalyfjum á 800 kr. Fyrir að-
eins 2.990 kr. má kaupa hlýjan vetrarfatnað handa barni
á flótta undan ófriði og eymd.
Er leitun að betri gjöf, enda hafa Sannar gjafir
slegið rækilega í gegn.
Hlaupahjól frá Xiaomi
Þeir sem fylgjast vel með fréttum hafa eflaust
tekið eftir að rafhlaupahjólaleigur hafa sprottið upp
víða um heim og eru hlaupahjólin jafnvel til trafala á
sumum stöðum enda skilin eftir á gangstéttum hér og
þar og þvælast fyrir gangandi vegfarendum.
Rafmagnshlaupahjólaleigur eru ekki enn búnar að
nema land á Íslandi, og er skýringin ef til vill sú að hálft
árið er of mikið af snjó og hálku á gangstígum til að hjól-
in nýtist vel. En þessi farartæki eru fjarska sniðug og
handhæg yfir vor- og sumarmánuðina: þau eru ódýr,
taka sáralítið pláss, ná allt að 25 km hraða og hafa í
kringum 30 km drægi á einni hleðslu.
Xiaomi-hlaupahjólið má m.a. kaupa hjá Amazon.de á
689 evrur.
Nokkrar góðar hugmyndir
fyrir jólasveininn
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2018
Veldu milli sjö mismunandi karfa og bættu við
annarri matvöru, víni eða g jafavöru. Við sjáum
um pökkunina þér að kostnaðarlausu.
Frábær jólag jöf til viðskiptavina eða starfsmanna.
Kíktu áms.is - einfalt og fljótlegt.
J Ó L A G J Ö F S Æ L K E R A N S
Gómsætarjólagjafir