Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 2

Morgunblaðið - 08.11.2018, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir stöðu umsjónarkennara á yngsta stigi og stöðu þroskaþjálfa Umsjónarkennari Umsjónakennara vantar til starfa við Grunnskóla Fjallabyggðar. Um er að ræða 100% stöðu. Kennslugreinar eru almenn kennsla og umsjón á yngsta stigi. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði. • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum. • Góðir skipulagshæfileikar. • Ábyrgð og stundvísi. Laun greidd samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Kennarasambands Íslands (KÍ). Þroskaþjálfi Þroskaþjálfa vantar til starfa við Grunnskóla Fjallabyggðar. Um er að ræða 75% stöðu með möguleika á stækkun í 100%. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni og ábyrgð: • Kemur að þjálfun einstaklinga. • Veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila. • Kemur að gerð einstaklingsnámskráa. • Stjórnar og skipuleggur teymisfundi. • Kemur að daglegri umsjón og skipulagi í sérhæfðri þjónustu. Menntunar- og hæfnikröfur: • Starfsréttindi þroskaþjálfa. • Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi. • Reynsla af skipulagi og teymisstjórnun. • Áhersla er lögð á lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Þroskaþjálfafélags Íslands og launanefndar sveitarfélaga. Grunnskóli Fjallabyggðar er heildstæður grunnskóli með rúmlega 200 nemendur. Starfstöðvar eru tvær, í Ólafsfirði og á Siglufirði. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar og Olweusarstefnu gegn einelti. Nánari upplýsingar um skólann má finna á http://grunnskoli.fjallabyggd.is/ Gildi skólasamfélagsins eru: Kraftur - Sköpun – Lífsgleði Í Fjallabyggð búa ríflega 2000 íbúar. Nánari upplýsingar um Fjallabyggð má finna á www.fjallabyggd.is Upplýsingar veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri í síma 464-9150 og 865-2030 eða í gegnum netfangið erlag@fjallaskolar.is Umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfangið erlag@fjallaskolar.is Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2018. Helstu verkefni eru • Móttaka, skráning, varðveisla, pökkun og miðlun skjala • Ábyrgð og umsjón með þróun skjalastefnu og verklags við skjalastjórnun • Umsjón með gerð gæðahandbókar • Aðstoð við starfsfólk og stjórnendur varðandi skjala- mál og skjalakerfi • Eftirfylgni með skjalaskráningu og frágangur skjalasafns • Umsjón með innri vef (skjalakerfið) • Uppsetning dagskrár funda bæjarstjórnar og bæjarráðs Hæfnis- og menntunarkröfur: • háskólamenntun sem nýtist í starfi, m.a. í bókasafns- og upplýsingafræði • Þekking og reynsla af skjalastjórnun nauðsynleg • Reynsla af innleiðingu skjalastýringarkerfis kostur • Ábyrgð, vandvirkni og nákvæmni • Hæfni í mannlegum samskiptum • Góð almenn tölvukunnátta • Gott vald á íslensku Um fullt starf er að ræða og laun greiðast samkvæmt kjarasamningi FOSA eða BHM eftir því sem við á og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Æskilegt er að viðkomandi geti komið til starfa í desember 2018. Allar frekari upplýsingar veitir Stefán Bragason, skrifstofu- og starfsmannastjóri í síma 4 700 700 eða á net- fanginu stefan@egilsstadir.is Umsóknir berist á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir merkt SKJALASTJÓRI 2018 eða á netfangið stefan@egilsstadir.is Umsóknarfrestur er til og með . nóvember 2018. Laust er til umsóknar starf skjalastjóra hjá Fljótsdalshéraði Skjalastjóri hjá Fljótsdalshéraði Markmið Fangelsismálastofnunar við rekstur fangelsa eru þessi helst: - Að afplánunin fari fram með öruggum hætti þannig að réttaröryggi almennings sé tryggt. - Að draga úr líkum á endurkomu fanga í fangelsi. - Að föngum sé tryggð örugg og vel skipulögð afplánun, að mannleg og virðingarverð samskipti séu höfð í fyrirrúmi og að fyrir hendi séu aðstæður og umhverfi sem hvetja fanga til að takast á við vandamál sín. Helstu verkefni og ábyrgð Starf fangavarðar felst m.a. í umsjón ákveðinna verkefna og veita leiðbeiningar til skjólstæðinga. Um skilyrði þess að vera ráðinn fangavörður fer skv. ákvæðum reglugerðar nr. 347/2007. Hæfnikröfur - Iðnmenntun og/eða háskólamenntun kostur. - Gott vald á íslensku, talaðri sem ritaðri. - Góð kunnátta í ensku nauðsynleg. - Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. - Geta brugðist skjótt við breytilegum aðstæðum. - Góð kunnátta og færni á tölvur og helstu forrit s.s. word, excel og Lotus notes. - Samviskusemi, stundvísi og vandvirkni. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um. Sækja skal um starfið merkt “Störf fangavarða á Hólmsheiði” á heimasíðu Fangelsismálastofnunar www.fangelsi.is fyrir 15. nóvember nk. Áætlað er að þeir umsækjendur sem fá starfstilboð geti hafið störf 1. janúar 2019 eða fljótlega eftir það. Stofnunin áskilur sér rétt til þess að óska eftir saka- vottorði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 15.11.2018. Nánari upplýsingar veitir Halldór Valur Pálsson, HalldorValur@fangelsi.is, 520 5063. Jakob Magnússon, Jakob@fangelsi.is, 520 5000. FMS Fangelsið Hólmsheiði, Nesjavallaleið 9. Fangaverðir Fangelsismálastofnun auglýsir eftir 4 fangavörðum til framtíðarstarfa í Fangelsinu Hólmsheiði Meðferðarheimilið í Krýsuvík Meðferðarheimilið í Krýsuvík er að leita sér að ráðgjafa til að halda utan um karlkyns- grúppu. Þetta er 100 % starf. Æskilegt að viðkomandi hafi lokið námi í Ráðgjafaskóla Íslands. Reynsla af ráðgjöf er góður kostur, góðir samskipta- og samstarfs- hæfileikar einnig og edrú lágmark 3 ár. Umsóknarfrestur til 9. nóvember 2018. Upplýsingar gefur kristbjorg@krysuvik.is sími 8476757. Meðferðarheimilið í Krýsuvík auglýsir eftir matráði, unnið er á kokkavöktum. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af vinnu á stóru heimili, sé með góða sam- starfshæfileika og jákvæð í mannlegum samskiptum. Umsóknarfrestur til 9. nóvember 2018 Upplýsingar gefur : kristjorg@krysuvik.is sími :8476757 Við finnum rétta einstaklinginn í starfið www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.