Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Upplýsinga- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbær óskar eftir að ráða upplýsinga- og markaðsfulltrúa til starfa. Um er að ræða 100% starf. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi ber ábyrgð á innri og ytri upplýsinga- og markaðsmálum Grindavíkurbæjar, þar með talið ferðamálum. Hann hefur umsjón með vef bæjarins www.grindavik.is, gerð og útgáfu kynningar- efnis og sér um textagerð því tengdu. Tekur þátt í stefnumótun upplýsinga- og markaðs- og ferðamála og er tengiliður Grindavíkurbæjar við hagsmunaaðila og stofnanir því tengdu. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi starfar með umhverfis- og ferðamálanefnd. Helstu verkefni: • Umsjón með vef Grindavíkurbæjar, innri vef starfsmanna, innra fréttaritinu Þórkötlu og fréttabréfinu Járngerði. • Umsjón með tjaldsvæði Grindavíkurbæjar • Umsjón með Kvikunni • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri upplýsinga- og markaðsmála • Tekur þátt í uppbyggingu rafrænnar stjórnsýslu, innleiðingu upplýsingakerfa og hugbúnaðar, þróun verklags og verkferla Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Starfsreynsla af upplýsinga-, markaðs- og ferðamálum • Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er kostur • Reynsla og þekking á rekstri og verkefnastjórnun er kostur • Góð þekking á notkun samfélagsmiðla er æskileg. • Sjálfstæði í vinnubrögðum • Geta til að sýna frumkvæði og rík skipulagshæfni • Framúrskarandi tölvukunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum • Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti • Hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt í töluðu og rituðu máli Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um starfið gefur Jón Þórisson í síma 420-1103 eða í tölvupósti jont@grindavik.is. Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið jont@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2018. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Félagsráðgjafi Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS) annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélag- anna á Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarðarbæjar, Helgafells- sveitar og Eyja-og Miklaholtshrepps. Í sveitarfélögunum búa tæplega 3.900 íbúar. Hjá FSS starfa auk forstöðumanns, skólasálfræðingur, tveir félagsráðgjafar, tveir þroska- þjálfar, náms- og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur auk starfsfólks dagþjónustu- og hæfingarstöðva og stuðningsþjónustu sveitarfélaganna. Umsækjandi hafi starfsréttindi félagsráðgjafa. Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags- og skólaþjónustu, barnaverndar og stuðningsþjónustu sveitarfélaga. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafa- félags Íslands. Skrifleg umsókn er tilgreini menntun, starfsferil, 1-2 umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 430 7800, 861 7802 og tölvupósti sveinn@fssf.is Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ Umsóknarfrestur er til 15. desember Um 200 grunnskólanemar víða af landinu taka þátt í hinni árlegu tækni- og hönn- unarkeppni FIRST LEGO League sem fram fer í Há- skólabíói næstkomandi laug- ardag, 10. nóvember. Alls 22 þrauþjálfuð lið frá 18 grunn- skólum eru skráð til þátttöku og spreyta þau sig á forritun, rannsóknarverkefni, teym- isvinnu og vélmennakappleik. Sigurliðinu gefst kostur á að taka þátt í norrænni keppni FIRST LEGO í byrjun des- ember. Aðgangseyrir er eng- inn og opið er kl. 12.30 til 15.30. Á keppnisdeginum verður jafnframt fjölbreytt skemmt- un fyrir alla fjölskylduna í anddyri Háskólabíós og opið verður í Vísindasmiðjunni. Keppendur um allt land eru nú að leggja lokahönd á und- irbúning fyrir keppnina er hún skiptist í fjóra megin- hluta. Í fyrsta lagi forrita kepp- endur vélmenni úr tölvu- stýrðu Legói sem ætlað er að leysa þraut sem tengist þema ársins sem að þessu sinni er himingeimurinn. Þá eiga keppendur að vinna sjálfstætt rannsóknarverk- efni sem einnig tengist geimnum. Enn fremur þurfa keppnisliðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrita vélmennin og síðast en ekki síst horfir dómnefnd til liðs- heildar. Himintungl og geimferðir Háskóli Íslands hefur stað- ið fyrir keppninni í rúman áratug. Hefð er fyrir því að blása til fjölskylduhátíðar í anddyri Háskólabíós á keppnisdaginn og þar verður margt í boði fyrir alla aldurs- hópa, auðvitað með sérstakri áherslu á himingeiminn. Gestir geta meðal annars kynnt sér himintungl, geim- ferðir og tungllendingar. Fé- lagar úr Stjörnuskoð- unarfélagi Seltjarnarness verða einnig á staðnum með kynningu á stjarnvísindum. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Hugvit Ungir vísindamenn í Fist Lego League á sl. ári. Vélmenni verða í Vísindasmiðjunni  200 grunnskólanemar í HÍ Eldfjallamiðstöðin Lava Centre á Hvolsvelli vann til tvennra verðlauna fyrir sýn- ingarhönnun og gagnvirkni og viðmótshönnun þegar Red Dot-verðlaunin voru veitt í Berlín á dögunum. Verðlaun- in eru ein eftirsóttustu hönn- unarverðlaun sem veitt eru, en alls bárust dómnefndinni að þessu sinni 8.610 innsend- ingar frá 45 löndum „Verðlaunin eru afar mik- ilvæg viðurkenning fyrir okk- ur og sýna glöggt hve sam- keppnishæf við erum í hönnun á alþjóðavísu. Árang- ursríkt þverfaglegt samstarf er mjög mikilvægur þáttur þegar tekist er á við flókin hönnunarverkefni eins og í Lava eldfjallamiðstöð,“ segir Marcos Zotes frá Basalt arki- tektum, sem hönnuðu bygg- inguna. Lava Centre var opnuð sumarið 2017. Þar eru út- skýrð og sýnd sum þeirra margbrotnu og stórfenglegu náttúruafla sem hafa mótað jörðina og hófu myndun Ís- lands fyrir tugum milljóna ára. Auk þess er í eldfjalla- miðstöðinni kynnt með gagn- virkri sýningu eldvirkni á Ís- landi og þá sérstaklega á Suðurlandi. Mikilvægt hlutverk „Samkeppnin um gesti í sýningum, söfnum og afþrey- ingartengdum viðburðum er að aukast. Söfn og sýningar gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og geta stuðlað að auknum skilningi á því hvaðan við komum og hvert við stefnum,“ segir Kristín Eva Ólafsdóttir frá Gagarín. Það voru starfsmenn þar sem hönnuðu stafræna og gagn- virka sýninguna. Þeir hafa á fyrri stigum unnið til ýmissa verðlauna og fengið lof fyrir þetta verkefni. Sigursæl Hönnunarhópurinn frá Basalt arkitektum og Gag- arín sem vann til verðlauna ásamt fulltrúa Lava Centre. Lava fær mikið lof  Eldfjallasýning á Hvolsvelli með tvenn Red Dot-verðlaun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lava Vinsæll staður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.