Morgunblaðið - 18.12.2018, Side 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < DEKKJASALA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum og
varahlutum fyrir ameríska bíla.
Almennar bílaviðgerðir
fyrir ALLAR tegundir bíla
BÍLAVERKSTÆÐI
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það er ekki bara vandræðalegt að gleyma háu
ljósunum á og vera „blikkaður“ af bílunum
sem koma á móti, heldur er hætta á slysum ef
ljósin blinda aðra vegfarendur. En það eru
ekki bara háu ljósin sem flækjast fyrir öku-
mönnum heldur virðast margir gleyma að hafa
yfirhöfuð kveikt á ljósunum eða gæta þess að
þau virki rétt. Nýleg könnun VÍS leiddi þannig
í ljós að 16% ökutækja voru ljóslaus að aftan í
dagsbirtu. Í myrkri reyndust 4% bíla eineygð
að framan og 2% að aftan, en 1% ökuækja
reyndust ljóslaus með öllu.
Athugi dagljósastillinguna
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
segir að ástæðan fyrir því að svo margir bílar
reynast vera ljóslausir að aftan á daginn sé að
dagljósastilling sumra framleiðenda slekkur á
afturljósunum. „Er þetta
gert í samræmi við evr-
ópskar reglur sem miða að
því að draga úr orkunotkun
en íslensk umferðarlög hafa
ekki breyst og enn er skylt
að hafa ljósin kveikt bæði
að framan og aftan allan
daginn.“
Allir bílar eru búnir dag-
ljósum, aðalljósum og háum
ljósum að framan,og margir
einnig með þokuljós. Dag-
ljósin, sem stundum eru kölluð stöðuljós, gefa
frá sér veikari birtu en geta stundum verið
nógu sterk til að ökumaður haldi að aðalljósin
séu kveikt, eða að hann haldi að nóg sé að láta
dagljósin lýsa þegar ekið er innanbæjar í
myrkri. Runólfur segir að það verði að hafa
kveikt á aðalljósunum eftir að tekur að rökkva,
og ef ekki loga nein ljós aftan á bílnum þegar
stillt er á dagljós verði að svissa yfir í aðalljós,
enda hættulegt ef ljósleysið veldur því að bílar
sjást illa ef ekið er upp að þeim aftan frá.
„Það sem fólk ætti að gera ef það er á bíl
sem það þekkir ekki vel er einfaldlega að
ganga hring umhverfis bílinn og sjá hvort ljós-
in loga eins og þau eiga að gera,“ segir Run-
ólfur og minnir á að það megi eiga von á 20.000
kr sekt ef ljósin eru ekki í lagi.
Lækki háu ljósin á réttum tíma
Þegar komið er út fyrir þéttbýli má kveikja
á háu ljósunum en þá verður að muna að
lækka ljósin þegar bílar koma akandi úr gagn-
stæðri átt. „Miða skal við að lækka ljósgeisl-
ann áður en hann snertir ljóskeilu hins öku-
tækisins, og setja háa geislann ekki aftur á
fyrr en bílarnir eru hlið við hlið.“
Sömu reglur gilda í útlöndum, en þar getur
stundum verið það langt á milli bíla sem koma
hvor úr sinni áttinni á hraðbraut að ekki þarf
að lækka ljósin. „FÍB gerði tilraun á Reykja-
nesbrautinni þar sem aðstæður eru svipaðar
og á hraðbrautum víða erlendis og komumst
við að því að bíll sem ók með háum ljósum í
aðra akstursstefnuna truflaði ekki umferð úr
hinni akstursstefnunni því bilið var það langt á
milli,“ segir Runólfur og minir líka á að hafa
ekki háu ljósin kveikt þegar ekið er fyrir aftan
annan bíl því birtan getur farið beint í augu
ökumanns í gegnum hliðar- og baksýnis-
spegla.
„Á ferðalögum á bílaleigubílum erlendis er
líka upplagt að skoða hvar ljósastillirinn er áð-
ur en haldið er af stað, því það síðasta sem fólk
vill gera á 120 km hraða þegar rökkrið er að
skella á er að fálma eftir ljósarofanum eða
reyna að átta sig á hvernig á að hækka og
lækka ljósin.“
EF ekið er um með kerru, eða mjög þungt
hlass í afturhluta bílsins gæti það líka gerst að
geisli dagljósanna færist upp því afturhluti
bílsins færist niður á við. „Flestir bilar eru
með hnappi til að stilla hæð dagljósanna og
þarf í þessum tilvikum að lækka geislann svo
hann blindi ekki aðra ökumenn.“
Þokuljós ekki til skrauts
Ökumenn þurfa líka að vita hvernig kveikja
skal á þokuljósunum ef óvænt skellur á svarta-
þoka eða kafaldsbylur. „Við slíkar aðstæður
geta dagljósin og háu ljósin verið blindandi og
einfaldlega ljósveggur sem mætir ökumanni.
Er þá skipt yfir í þokuljósin, en það þarf að
slökkva á þeim um leið og út úr þokunni eða
bylnum er komið og ekki hafa kveikt á þoku-
ljósum almennt. Getur sumum þótt töffaralegt
að hafa kveikt á þokuljósunum þegar þeirra er
ekki þörf, en bæði er það í raun ósköp púka-
legt og hætta á að fá sekt.“
Verum með
kveikt á perunni
Dagljósastillingar á sumum tegundum bíla eru þannig að
ekkert ljós skín að aftan og veldur það hættu. Alla jafna má
ekki nota há ljós eða þokuljós þegar ekið er í þéttbýli
Morgunblaðið/Kristinn
Reglan er að lækka háu ljósin um leið og þau snerta ljóskeilu bílsins sem kemur akandi á
móti. Áríðandi er að hafa ljósin í lagi í skammdeginu og vissara að varast sektirnar.
Runólfur
Ólafsson
Miklar framfarir hafa orðið í ljósabúnaði
bíla og þökk sé díóðuljósatækninni endast
perurnar mun lengur en áður. Á móti kem-
ur að hjá mörgum bílaframleiðendum er
orðið mun flóknara að skipta um perurnar
ef þær gefa sig og þarf jafnvel að fara með
bílinn á verkstæði. „Oft fór fólk á bens-
ínstöðvarnar til að fá aðstoð við peruskipt-
in en í dag er þeim iðulega vísað á þjón-
ustuverkstæði framleiðandans því hætta er
á að manneskja sem þekki ekki til verka
geti hreinlega skemmt eitthvað,“ segir
Runólfur og bætir við að í sumum tilvikum
þurfi að skrúfa frá alls kyns hlífar til að
komast að perustæðinu. „Umboðin hafa
komið til móts við viðskiptavini sína með
því að taka ekki fullt tímagjald fyrir peru-
skipti, heldur rukka aðeins fyrir brot úr
klukkustund í samræmi við þá vinnu sem
skiptin kalla á.“
Ekki á færi hvers sem er að skipta
um ljósaperu í fullkomnum bíl
Spænski bílsmiðurinn Seat tók sér fyrir hendur að
greina hvað ungt fólk vildi fá og sjá í bílum til að það
girntist þá. Meginniðurstaðan var að ungt fólk vildi að
bílarnir væru flottir.
Fjórir kaupendur af tíu á aldrinum 25 til 37 ára
sögðu að stíll bílsins væri meginástæða þess að kaupa
hann. Þriðjungur undir þrítugu sögðu bílinn vera
kraftbirtingu persónuleika þeirra sjálfra; því vildu þeir
að bíllinn endurspeglaði sjálfstæðan stíl þeirra sjálfra.
Ungt fólk vill aukinheldur fá bíla með tengingu við
veraldarvefinn og með öllum möguleikum sem það býð-
ur upp á, bæði til afþreyingar og annarrar notkunar
bílsins. Þriðji hver aðspurðra sagði nettengingu vera
kröfu. Yrði bíll að vera búinn öllu frá tengi fyrir tónlist-
arspilun og blátannarbúnaði til Apple Carplay, Andro-
id Auto og jafnvel Amazon Alexa fyrir snjallsíma.
Helmingur fólks á framangreindu aldursbili var
harðákveðinn í því að hann vildi minni bíla. Aðeins
fjórðungur gat notað sparnað sinn til bílkaupa. Höfð-
uðu því minni og hagkvæmir bílar betur til þeirra.
Jeppar og jepplingar hafa fundið leið inn í 25-37 ára
aldurshópinn því fimmtungur hans hefur keypt slíka
bíla.
Að sögn stjórnanda rannsóknar Seat eiga bílakaup
sér allt öðru vísi stað hjá ungu fólki. Notar það upplýs-
ingahraðbrautina óspart til þeirra. Algengt sé að það
skoði sig um á netinu í allt að níu vikur áður en það tek-
ur stökkið og kaupir bíl. Unga fólkið er ennfremur opn-
ara fyrir ráðum vina og vandamanna. Bera 23% málið
undir sína nánustu áður en valið er njörvað niður. Hjá
40 ára og eldri er það hlutfall næstum helmingi minna.
agas@mbl.is
Ungt fólk leggur áherslu á fallega bíla
Útlit og nettenging virðast vera ungum neytendum
efst í huga við val á bíl og þeim líkar við smærri bíla.