Morgunblaðið - 18.12.2018, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
DRIFSKÖFT
LAGFÆRUM – SMÍÐUM
JAFNVÆGISSTILLUM
OG SELJUM NÝ
Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða
ur en hinn fær að bíða fram á nýja ár-
ið.
Raundrægni upp á 40 km
Líkt og flestir aðrir framleiðendur
sem fetað hafa inn á tengiltvinn-
markaðinn hefur Land Rover stigið
hógvært skref í átt að rafvæðingu.
Þannig segir fyrirtækið að bíllinn eigi
að fara ríflega 50 km. á hverri hleðslu.
Raunin er nær 40 km. Flestir þeir
sem prufukeyra bílinn í fyrsta sinn
munu hins vegar upplifa endingu raf-
hlöðunnar eins og að þar sé ekki rétt
farið með. Það kemur til af því að
þegar hart er gefið inn og kraftur
bílsins prufaður til hins ýtrasta spæn-
ist rafhleðslan, eðlis máls samkvæmt,
mjög hratt upp. Þegar ró er komin á
mannskapinn og hann farinn að aka
eins og fólk alla jafna gerir (ef það er
hægt á bíl sem þessum) þá er hægt að
taka ríflega 40 km rúnt á bílnum án
þess að jarðefnaeldsneyti komi þar
við sögu. Verður það að teljast harla-
gott miðað við að bíllinn er ríflega 2,5
tonn á þyngd og frekur til „raf-
magns“-fjörsins þegar kemur að öll-
um þeim mikla þæginda- og tækni-
búnaði sem hann er búinn.
Hljóðlaust fetar hann sig af stað
Þegar bíllinn er ræstur og hann
tekinn úr rafhleðslu, gerir ökumað-
urinn sér fljótlega grein fyrir því að
það er ekki fjarri lagi að tala um
töfrateppi þegar hann er annars veg-
ar. Ekkert vélarhljóð og stiglaust
tekur hann af stað, mjúklega. Líkt og
með aðra rafknúna bíla kemur aflið
beint út í dekkin um leið og stigið er á
inngjöfina og það er augljós munur
þar á miðað við það þegar notast er
við orku frá sprengihreyfli. Og á raf-
magninu skynjar ökumaðurinn bæði
stöðugleika bílsins og það sem nefna
mætti „skriðþunga“ mjög greinilega.
Og þægindin eru sérstakur kapítuli
þegar kemur að Range Rover. Þessi
útfærsla af bílnum er Autobiography
og er hann m.a. búinn svokölluðum
Executive Class Comfort-plus sæt-
um. Framsætin í bílnum eru með 24
stefnustillingum, sem hægt er að
nálgast og vinna með í hurð bílsins.
Sætin eru afar þétt og mikil um sig og
það er ekki að ástæðulausu. Í þeim er
búnaður sem tryggir ekki aðeins rétt-
an hita eða kælingu eftir þörfum
heldur einnig það sem framleiðand-
inn kallar heitsteinanudd.
Með nokkuð einföldum hætti er
hægt að velja ólíkar tegundir nudds,
allt frá heilnuddi og til axlanudds með
miklum eða litlum hita. Þennan bún-
að myndu einhverjir kalla gerviþæg-
indi en fyrir þann sem er þreyttur eða
þjakaður af streitu, getur það hljóm-
að sem fegursta músík í eyrum að
taka rúnt upp á Skipaskaga eða til
Keflavíkur, þó ekki væri nema fyrir
nuddið sem slíkt. Víst er að lang-
keyrsla norður í land eða vestur á
firði verður mun léttari og þægilegri
ef ökumaður og farþegi í framsæti
geta öðru hvoru fengið herðanudd
eða mýkt upp bakið með þessum bún-
aði.
Umhverfisvænn og „ódýr“
Þótt verðmiðinn á Range Rover sé
á fæstra færi þá er tengiltvinnútgáf-
an á verði sem kemur nokkuð á óvart.
Því ræður ekki síst sú staðreynd að
bíllinn fellur í flokk umhverfisvænna
bíla og nýtur af þeim sökum ívilnana
frá hinu opinbera. Þær ívilnanir hafa
m.a. mjög mikil áhrif til lækkunar á
verði þess aukabúnaðar sem valinn er
í hvert og eitt eintak. Í grunninn er
hægt að fá P400e bílinn í Vogue út-
gáfu á 17,4 milljónir króna og er hann
afar vel útbúinn. Bíllinn sem prófaður
var kostar í grunnútfærslu tæpar 20
milljónir. Fjöldi möguleika til að
hlaða bílinn búnaði gerir kaupendum
hins vegar mjög auðvelt um vik að
hækka verðið allverulega eða um
nokkrar milljónir króna.
Ökumaður og farþegar í Range Rover Autobiography eru á fyrsta farrými í flestum eða öllum skilningi þess
orðs. Hugsað er fyrir hverju smáatriði og Executive class sætin með nuddbúnaði toppa svo upplifunina.
Á rafmagninu skynjar ökumaðurinn
bæði stöðugleika bílsins og það
sem nefna mætti „skriðþunga“
mjög greinilega.
Millistokkurinn er í raun tilkomumikill. Það væsir ekki um bílstjóra og
farþega þegar nuddstillingar í framsætum eru nýttar til hins ýtrasta.
Helst má finna að því að fótapláss aftur í bílnum sé fremur takmarkað en
því ráða hin voldugu Executive Class sæti sem taka óvenju mikið pláss.
» 1.997cc með forþjöppu ásamt
rafmótor
» 404 hestöfl
» 8 þrepa sjálfskipting
» Akstursdrægni á rafmagni
51 km.
» 3,1 lítrar í blönduðum akstri
» Úr 0-100 km/klst á 6,7 sek.
» Hámarkshraði 220 km/klst
» Aldrif
» Farangursrými: 600 lítrar
» Koltvísíringslosun 71 g/km
» Eigin þyngd 2.509 kg.
» Grunnverð: 19.790.000 kr.
Range Rover P400
Autobiography
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla