Morgunblaðið - 18.12.2018, Page 13
eiginleiki og skemmtilegur. Ég gef
þessum bíl toppeinkunn fyrir að
vera mjög þægilegur borgarbíll.
Það er gott að snattast í honum,
hann er af góðri stærð, og ræður
vafalaust vel við slyddu og snjó í
vetur.
Krafturinn er sæmilegur, þegar
maður hleypir honum á sprett. Ka-
roq tók ágætlega við sér á Álfta-
nesveginum, og fór á frekar
skömmum tíma upp í 120. Maður
biður nú ekki um mikið meira,
svona innanbæjar!
Hiti er í sætum, og er það vel,
auk þess sem ökumaður situr frek-
ar hátt í bílnum.
Fyrst þegar ég renndi úr hlaði
hjá Heklu á Laugaveginum fannst
mér heyrast heldur hátt í vélinni,
en þegar frá leið hætti það að
trufla og í raun fannst mér hljóðið
mjög fljótt orðið hluti af persónu-
leika bílsins.
Grænt upplýsingakerfi
Upplýsingakerfið er smekklegt
og aðgengilegt. Mikið er gert úr
grænum eiginleikum við aksturinn
og getur ökumaður t.d. fylgst náið
með slíkum málum í kerfinu. Þetta
er fyrsti bíllinn sem ég prófa þar
sem ekki var búið að forvelja allar
helstu útvarpsstöðvar, en það er
líklega bara stillingaratriði hjá um-
boðinu. Ég prófaði að velja út-
varpsstöðvar með raddstýringu, en
þar átti stafræna aðstoðarkonan í
mestu erfiðleikum með að skilja
mig þegar ég reyndi að segja
„RÚV“ með enskum hreim. Spurn-
ing hvort að ekki sé betra að nota
gamla lagið við val á útvarps-
stöðvum.
Sjálfskiptingin er sjö þrepa,
leysti verk sitt vel af hendi og með
þónokkuri mýkt.
Ég átti um skamma hríð Citroën
Picasso og eitt af því sem mér lík-
aði vel við þann bíl var að ég gat
tekið sætin út, og breytt bílnum í
eins konar sendiferðabíl. Það sama
er uppi á teningnum hér, en hægt
er að losa sætin og kippa þeim út.
Þetta eykur notagildið heilmikið.
Þá er hægt að toga sætin fram og
til baka, og halla þeim eins og
flugvélasætum, sem hjálpar til við
að láta farþegum líða vel og slappa
af meðan á akstri stendur.
Skottið er mjög rúmgott og
þægilegt að er komast í það. Það
er 521 lítri ef sætin eru uppi, og
1.810 lítrar ef sætin eru tekin burt.
Gardínan í afturglugganum teygist
upp þegar skottið er opnað, en
hana er auðvelt að taka út, og
koma fyrir á tilteknum stað í gólf-
inu, sérstaklega fráteknum fyrir
gardínuna.
Fyrir tæknitröllin þá má ná sér í
app fyrir bílinn, og fylgjast þar
með staðsetningu hans og þrýsta á
flautuna úr fjarlægð! Bíp, bíp!
Morgunblaðið/Árni Sæberg Aftursætisfarþegar geta til dæmis notað borðið til að vinna í fartölvunni.
Sérlega rúmt er um
bæði ökumann og far-
þega, og gott er að
setjast inn í bílinn bæði
að framan og aftan.
Mælaborðið er einfalt og smekklega hannað með tveimur skífumælum.
MORGUNBLAÐIÐ | 13
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
8
5
8
Renault
NÝR RENAULT CLIO
MEÐ VETRARPAKKA
*M
iða
ð
við
up
pg
ef
na
rt
ölu
rf
ra
m
lei
ða
nd
au
m
eld
sn
ey
tis
no
tk
un
íb
lön
du
ðu
m
ak
str
i
Renault Clio
Verð frá: 2.650.000 kr.
VEGLEGUR VETRARPAKKI
Verðmæti allt að 300.000 KR.
Með nýjum Renault í desember
Fyrsta ábyrgðarskoðun · Keramik lakkhúðun fyrir veturinn
Gæða vetrardekk · Vönduð gúmmímotta í skott
Sjö þrepa sjálfskipting er í bílnum.