Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 1

Morgunblaðið - 01.12.2018, Page 1
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 ÍÞRÓTTIR Handbolti Góð byrjun íslenska kvennalandsliðsins í undanriðli fyrir HM í Skopje. Sigraði Tyrki með þrettán marka mun og mætir Makedóníu í úrslitaleik í dag. Arna Sif og Þórey Rósa með átta mörk hvor. 2-3 Íþróttir mbl.is riðli“ með t.d. Póllandi, Finnlandi, Eistlandi, Gíbraltar og San Marínó. Í vikunni stilltu sex knattspyrnu- menn og einn þjálfari upp sínum drauma- og martraðarriðlum á mbl.is. Þetta voru Birkir Már Sæv- arsson, Baldur Sigurðsson, Davíð Þór Viðarsson, Alfreð Finnbogason, Óli Stefán Flóventsson, Gísli Eyj- ólfsson og Hörður Björgvin Magn- ússon. Allir hafa skoðun á Noregi Þegar þeirra uppstillingar eru settar saman kemur í ljós að þeir óttast mest að fá Króatíu, Noreg, Rúmeníu eða Albaníu, Kósóvó eða Kasakstan og Lettland í riðil með Ís- landi. Hins vegar væru þeir ánægðastir með að fá Ítalíu, Noreg, Kýpur, Færeyjar eða Lúxemborg og San Marínó í Íslandsriðilinn. Það höfðu semsagt nánast allir skoðun á Noregi og Lars Lagerbäck og ýmist vildu þeir fá norska liðið í riðilinn eða forðast það. Kýpur er sú þjóð sem flestir vilja EM 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Um hádegið á morgun kemur í ljós hvaða fjórum eða fimm þjóðum Ís- land mætir í undankeppninni fyrir Evrópumót karla í knattspyrnu 2020. Þá verður dregið í riðlana í Dublin á Írlandi. Öll undankeppnin verður leikin á árinu 2019 en hjá Ís- landi hefst hún með einum eða tveimur leikjum á útivelli í mars og lýkur með einum eða tveimur leikj- um á útivelli í nóvember. Ísland er í 2. styrkleikaflokki í fyrsta skipti og á því betri möguleika en nokkru sinni áður fyrir stórmót að fá hagstæðan riðil. Ljóst er að gríðarlega mikill munur getur verið á styrkleika riðlanna og það sést best með því að skoða þjóðirnar sem skipa styrkleikaflokka þrjú og fjög- ur aftast í fréttinni. Ísland getur lent í algjörum „dauðariðli“, t.d. með Belgíu, Serbíu, Rúmeníu, Makedón- íu og Lettlandi, eða í „þægilegum mæta en sex af þessum sjömenn- ingum vonuðust eftir að fá Kýpur- búa úr 4. styrkleikaflokki. Sá sjöundi vildi hins vegar alls ekki fá þá! Styrkleikaflokkarnir eru þessir, eitt lið dregið úr hverjum flokki í hvern riðil, nema hvað efsta liðið verður annaðhvort úr Þjóðadeildar- flokki eða 1. flokki: Þjóðadeildarflokkur: Sviss, Portúgal, Holland, England. Þessi lið verða í fimm liða riðlum þar sem þau fara í úrslitakeppni um sigur í Þjóðadeild UEFA í júní. 1. flokkur: Belgía, Frakkland, Spánn, Ítalía, Króatía og Pólland. 2. flokkur: Þýskaland, ÍSLAND, Bosnía, Úkraína, Danmörk, Svíþjóð, Rússland, Austurríki, Wales, Tékk- land. 3. flokkur: Slóvakía, Tyrkland, Ír- land, Norður-Írland, Skotland, Nor- egur, Serbía, Finnland, Búlgaría, Ísrael. 4. flokkur: Ungverjaland, Rúm- enía, Grikkland, Albanía, Svart- fjallaland, Kýpur, Eistland, Slóven- ía, Litháen, Georgía. 5. flokkur: Makedónía, Kósóvó, Hvíta-Rússland, Lúxemborg, Armenía, Aserbaídsjan, Kasakstan, Moldóva, Gíbraltar, Færeyjar. 6. flokkur: Lettland, Liechten- stein, Andorra, Malta, San Marínó. Athöfnin hefst í Dublin klukkan 11 í fyrramálið og hægt verður að fylgjast með víða, m.a. í beinni texta- lýsingu á mbl.is. Besti möguleiki fyrir stórmót  Ísland í öðrum styrkleikaflokki í fyrsta sinn þegar dregið er í riðla fyrir undankeppni EM 2020 í Dublin á morgun  Vonast eftir Ítalíu en óttast Króatíu  Flestir vilja fá Kýpur í riðil með Íslandi Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson EM 2020 Íslenska landsliðið fyrir leikinn gegn Króatíu á HM í Rússlandi í sumar. Flestir virðast vilja sleppa við að mæta króatíska liðinu aftur. Knattspyrnulið KA fékk mikinn liðsauka í gær þegar fjórir nýir leikmenn skrifuðu undir samninga við félagið. Fyrrverandi KA- mennirnir Haukur Heiðar Hauks- son, sem kom frá AIK í Svíþjóð, Al- marr Ormarsson, sem kom frá Fjölni, og Andri Fannar Stefánsson, sem kom frá Val, eru komnir aftur norður eins og Morgunblaðið skýrði frá í gær. Þá er norskur vinstri bakvörður, Alexander Groven, búinn að skrifa undir tveggja ára samning. Hann er 26 ára og kemur frá Sarpsborg en hef- ur leikið lengst af með Hönefoss og á að baki leiki með norska 21-árs landsliðinu. Þá gerði enski mið- vörðurinn Callum Williams nýjan samning við KA. vs@mbl.is Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Heimkoma Haukur Heiðar Hauksson, Almarr Ormarsson og Andri Fannar Stefánsson voru brosmildir í gær þegar þeir höfðu skrifað undir samninga við uppeldisfélag sitt, KA, í höfuðstöðvum þess á Akureyri. Þrír komnir heim og fjórði frá Noregi Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði í knattspyrnu skoraði stór- glæsilegt mark fyrir Cardiff í gærkvöld þegar liðið lagði Wolv- es að velli, 2:1, í ensku úrvals- deildinni. Aron jafnaði metin á 65. mínútu þegar hann tók boltann á brjóst- kassann í miðjum vítateig Úlfanna, stökk síðan upp og „klippti“ hann uppundir þverslána á marki þeirra. Tólf mínútum síðar skoraði Juni- or Hoilett sigurmark Cardiff með mögnuðu skoti í þverslá og inn. Cardiff komst þar með úr fallsæti og hefur unnið þrjá leiki af sex síð- an Aron byrjaði að spila eftir meiðslin, en hafði ekki unnið leik fram að því. Aron skoraði þarna sitt annað mark í úrvalsdeildinni en fimm ár og 97 dagar eru síðan það fyrsta kom. Þá skoraði hann í 3:2-sigri Cardiff á Manchester City 25. ágúst 2013 en frá haustinu 2014 lék hann með liðinu í B-deildinni, þar til nú. Þar með skoruðu allir þrír Ís- lendingarnir sem leika í úrvals- deildinni mark í nóvembermánuði. vs@mbl.is Glæsilegt mark Arons í sigri Cardiff Aron Einar Gunnarsson Danir lögðu Svía 30:29 í úrslitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í handknattleik í Frakklandi í gærkvöld. Leikurinn var jafn og spennandi og í hálfleik höfðu Svíar eins marks forystu, 16:15. Síðari hálfleikurinn var í járnum allan tímann en Trine Østergaard skoraði sigurmark Dana þegar um fjórar mínútur voru til leiksloka. Svíar fengu gullið tækifæri til að jafna á síðustu sekúndum leiksins en markvörður Dana varði vítakast þeirra. Mette Tranborg skoraði sjö mörk fyrir Dani og Anne Mette Hansen fimm en hjá Svíum var Nathalie Hagman markahæst með sjö mörk, Isebelle Gullden skoraði fimm. Spennusigur Dana á Svíum Anne Mette Hansen Elías Már Ómarsson skoraði sitt þriðja mark á leiktíðinni með liði Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gærkvöld þegar liðið gerði 3:3-jafntefli í ótrúleg- um leik gegn Utrecht. Elías Már skoraði fyrsta mark leiksins strax á 6. mínútu og Excelsior var svo sannarlega í góðum málum þegar flautað var til leikhlés. Liðið var 3:0 yfir og það stefndi í öruggan sigur. En Utrecht var ekki af baki dottið og náði að jafna metin með því að skora þrjú mörk á tíu mínútna kafla í byrjun síðari hálfleiks. Utrecht missti mann af velli á 85. mínútu en Excelsior náði ekki að færa sér liðsmuninn í nyt. gummih@mbl.is Elías Már Ómarsson Elías skoraði í ótrúlegum leik

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.