Morgunblaðið - 01.12.2018, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018
ur og sá fór hamförum meðan á
leiknum stóð. Var hann einnig kynnt-
ur með tilþrifum við líklega enn
meiri fögnuð en þegar leikmenn
heimaliðsins voru kynntir.
Okkar maður Bjarki Már Elísson
lék mest allan leikinn í vinstra horn-
inu hjá Füchse og skoraði eitt mark.
Liðið átti erfitt uppdráttar í leiknum
vegna þess að níu leikmenn voru á
sjúkralistanum. Ekki er auðvelt að
halda dampi í jafn sterkri deild og
þeirri þýsku við slíkar aðstæður.
Annar leikmaður af íslenskum ætt-
um, Hans Lindberg, var áberandi í
liði Füchse. Gömlu þýsku landsliðs-
mennirnir hjá Stuttgart, Johannes
Bitter og Michael Kraus, riðu bagga-
muninn að þessu sinni.
Minjagripur fyrir Íslendinga
Þegar haldið var út úr höllinni að
leiknum loknum kíktum við á básinn
þar sem varningur tengdur liðinu var
til sölu. Þar tókum við eftir því að
hægt var að festa kaup á veglegum
treflum merktum liðinu en einnig
leikmönnum. Nokkrir leikmenn voru
í boði og er Bjarki einn þeirra enda
hefur hann leikið með liðinu í nokkur
ár og staðið sig afar vel Eftir ágæta
skemmtun er því hægt að arka út úr
höllinni með Íslendinginn um hálsinn
ef því er að skipta. Með í för var
menntaður fatahönnuður og gerði
hún mér grein fyrir því að slíkur
saumaskapur kostaði talsverða ná-
kvæmnisvinnu. Greinarhöfundur tek-
ur það gott og gilt enda þar komið
nokkuð langt út fyrir mína þekkingu.
Mikið mannvirki
Síðdegis á laugardegi fór greinar-
höfundur á deildaleik Alba Berlin og
Göttingen ásamt Íslendingi sem
starfar í Berlín. Martin Hermanns-
son gekk í raðir Alba í sumar en
hafði stimplað sig hratt og vel inn í
liðið. Alba leikur heimaleiki sína í
hinni glæsilegu Mercedes-Benz
Arena sem margir Íslendingar kann-
ast við því þar lék Ísland leiki sína í
lokakeppni EM karla í körfuknattleik
árið 2015. Mjög skammt frá má sjá
sjálfan Berlínarmúrinn eða hluta
hans öllu heldur sem fær þar að
standa til minningar um þau ósköp.
Höllin er einnig notuð undir tón-
leikahald hjá frægum hljómsveitum
og þar missti Bono, söngvari U2,
röddina eftir nokkur lög eins og
heimsfrægt varð. Mannvirkið tekur
allt að 17 þúsund manns á tónleikum
en þegar körfubolti og íshokkí er
spilað í höllinni tekur hún á milli 14
og 15 þúsund manns. Á að giska hafa
verið tæplega tíu þúsund manns á
leiknum sem hér er til umfjöllunnar.
Uppgangur Martins hefur verið
hraður og hann var í byrjunarliði
Alba sem ætlað er að berjast um
Þýskalandsmeistaratitilinn þegar líð-
ur að vori. Höllin er mjög stór og
áhorfendur eru ekki sérstaklega ná-
lægt vellinum. En eins og stórar hall-
ir bjóða gjarnan upp á þá er mynd-
arlegur skjár sem hangir niður úr
loftinu og yfir vellinum miðjum. Er
notast við hann þegar leikmenn eru
kynntir og til að kasta inn ýmsum
upplýsingum meðan á leik stendur. Í
höllinni er einnig hægt að sjá stiga-
skor og villur leikmanna á veggj-
unum sitt hvorum megin, við enda
vallarins sem er nokkuð þægilegt.
Harður stuðningsmannakjarni
Stemningin var býsna góð í höll-
inni en Alba hafði hins vegar tals-
verða yfirburði í leiknum. Spennan
var því ekki til staðar en harðir
stuðningsmenn liðsins voru skilj-
anlega ánægðir með stöðuna. Þeir
hörðustu eru á góðum stað í höllinni
eða fyrir aftan aðra körfuna. Fjöldi
hörðustu stuðningsmannana sem
halda uppi stuðinu var nokkuð mikill
og þeir setja greinilega svip sinn á
leikina. Lukkudýr Alba fór mikinn
eins og búast mátti við en þar er um
fuglinn albatross að ræða. Albatross-
inn gaf refnum lítið eftir.
Martin tókst mjög vel upp í leikn-
um og var einn þriggja leikmanna
Alba sem voru stigahæstir í leiknum
með 17 stig hver í 95:68 stórsigri.
Bandaríkjamaðurinn Luke Sikma og
Litháinn Rokas Giedraitis gerðu
einnig 17 stig fyrir Alba eins og
Martin. Sikma var samherji Jóns
Arnórs Stefánssonar hjá Valencia um
tíma. Íslendingnum var skiljanlega
vel fagnað og hefur hann verið fljót-
ur að skapa sér vinsældir hjá stuðn-
ingsmönnum Alba.
Íslenskir leikmenn eru víða
Hér hafa verið tekin tóndæmi um
Íslendingalið í sömu borginni, Berlín,
vinsælum áfangastað Íslendinga.
Óhætt er að mæla með slíkum kapp-
leikjum fyrir íþróttaunnendur. En
Berlín er bara dæmi um þá mögu-
leika sem í boði eru fyrir íslenskt
íþróttaáhugafólk sem kann að lenda í
ferðalögum. Mjög víða í Þýskalandi
er framúrskarandi íslenskt íþrótta-
fólk. Sara Björk Gunnarsdóttir og
Alfreð Finnbogason í knattspyrnunni
og margir í handknattleiknum eins
og landsliðsfyrirliðinn sjálfur, Guðjón
Valur Sigurðsson. Íslendingar þekkja
vel ensku knattspyrnuna og þarf ekki
að rekja þá valmöguleika sérstaklega
hér enda gera ferðaskrifstofur nokk-
uð út á það. Einnig eru mjög margir
Íslendingar af báðum kynjum að
spíla á Norðurlöndunum.
Í fleiri heimsborgum er nokkuð
einfalt að sjá Íslendinga spila. Hand-
knattleiksmaðurinn Aron Pálmarsson
er í Barcelona á Spáni, körfuknatt-
leiksmaðurinn Haukur Helgi Pálsson
í útjaðri Parísar í Frakklandi og
knattspyrnumaðurinn Emil Hall-
freðsson í nágrenni Rómar á Ítalíu.
Ljósmynd/http://www.eurocupbask
Atkvæðamikill Martin Hermannsson
er fljótur að aðlagast nýju liði.
Stórleikur helgarinnar í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu verður
háður á Anfield síðdegis í dag þegar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar heim-
sækja nágranna sína í Liverpool. Ever-
ton er í sjötta sæti, ellefu stigum á eft-
ir Liverpool sem er taplaust í öðru
sætinu, en Jürgen Klopp knatt-
spyrnustjóri Liverpool sagði á frétta-
mannafundi í gær að Everton væri í
dag með sterkara lið en hann hefði
nokkru sinni áður mætt í grannaslag
félaganna.
Matthías Vil-
hjálmsson freistar
þess á morgun að
vinna sinn sjöunda
stóra titil á fjórum
árum með norska
knattspyrnuliðinu
Rosenborg. Þránd-
heimsliðið mætir
Strömsgodset frá
Drammen í úrslitaleik norsku bikar-
keppninnar en leikurinn fer fram á
þjóðarleikvanginum Ullevaal í Ósló.
Rosenborg hefur orðið norskur meist-
ari öll fjögur árin sem Matthías hefur
spilað með liðinu og tvisvar bik-
armeistari.
Sigmundur Már Herbertsson og
Leifur Garðarsson, sem báðir eru al-
þjóðlegir körfuboltadómarar, hlutu í
fyrrakvöld gullmerki KKÍ. Sigmundur
og Leifur voru heiðraðir fyrir landsleik
Íslands og Belgíu í Laugardalshöll.
Þeir dæmdu í sumar sína síðustu leiki
á vegum FIBA, Alþjóðakörfuknattleiks-
sambandsins, en samkvæmt reglum
FIBA þurfa dómarar að hætta að
dæma alþjóðlega leiki þegar þeir
verða 50 ára. Leifur hóf sinn FIBA-feril
árið 1993 og Sigmundur árið 2003.
Fimm leikmenn frá toppliðum úr
ensku úrvalsdeildinni eru í hópi þeirra
sem tilnefndir eru í kjörinu á knatt-
spyrnumanni ársins í Afríku. Það eru
Mohamed Salah, Sadio Mané og Naby
Keita frá Liverpool, Riyad Mahrez frá
Manchester City og Pierre-Emerick
Aubameyang frá Arsenal.
Sílemaðurinn Alexis Sánchez verð-
ur ekki með Manchester United næstu
vikurnar eftir að hann meiddist á læri
á æfingu liðsins. José Mourinho,
knattspyrnustjóri Unit-
ed, staðfesti á frétta-
mannafundi í gær að
meiðslin væru nokk-
uð alvarleg. Enskir
miðlar segja að
Sánchez verði frá
keppni í um sex
vikur.
Eitt
ogannað
Í SKOPJE
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslenska landsliðið í handknattleik
kvenna fékk fljúgandi viðbragð í
fyrsta leik sínum í undankeppni HM í
Skopje í gærkvöld. Það vann 13
marka sigur á Tyrkjum, 36:23, eftir
að hafa átt hreint út sagt magnaðan
síðari hálfleik þar sem segja má að
flestallt hafi gengið upp, jafnt í vörn
sem sókn, svo ekki sé talað um mark-
vörsluna sem var afar góð hjá Guð-
nýju Jennyju Ásmundsdóttur eða ríf-
lega 40% hlutfallsmarkvarsla.
Íslenska liðið var vel undir leikinn
búið. Það byrjaði af krafti og skoraði
þrjú fyrstu mörkin og sendi ákveðin
skilaboð til andstæðinga sinna. Tyrk-
ir reyndu að klóra í bakkann og halda
sjó en lentu fljótlega í vandræðum
gegn framliggjandi vörn íslenska liðs-
ins. Þótt ákveðnar lausnir fyndust af
hálfu Tyrkja þegar á leið var það
skammgóður vermir. Staðan í hálfleik
var 18:14, Íslandi í vil.
Síðari hálfleikur var hins vegar ein-
stefna af hálfu íslensku kvennanna
sem léku eins þær sem valdið hafa.
Sóknarleikurinn var frábær og var vel
stjórnað af Evu Björk Davíðsdóttur.
Arna Sif Pálsdóttir, Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir og Thea Imani Sturludóttir,
svo einhverjar séu nefndar, gengu
vasklega fram. Hvert leikkerfið á fæt-
ur öðru gekk upp og um miðjan síðari
hálfleik var munurinn orðinn tíu
mörk. Þá má segja að Tyrkir hafi
hent inn hvíta handklæðinu. Eftirleik-
urinn var enn auðveldari hjá íslenska
liðinu, sem lét kné fylgja kviði og jók
enn á muninn á marktöflunni.
Martha Hermannsdóttir lék síð-
ustu 15 mínútur leiksins í sínum
fyrsta leik og stimplaði sig hressilega
inn með tveimur mörkum. „Þetta var
geggjað og sennilega skemmtilegustu
mínútur sem ég hef leikið í handbolta
um ævina,“ sagði hinn 35 ára tann-
læknir frá Akureyri og var eitt bros
þegar Morgunblaðið hitti hana eftir
leikinn.
Í hinum leik riðilsins vann Make-
dónía auðveldan sigur á Aserbaíd-
sjan, 41:22, eftir að hafa verið tíu
mörkum yfir, 18:8, að loknum fyrri
hálfleik.
Flestar konurnar í landsliði Make-
dóníu eru hávaxnar og sterkbyggð-
ar, reyndar eins og oftast áður. Það
mun því reyna verulega á leikmenn
íslenska liðsins í leiknum gegn þeim.
Hæðarmunur er nokkur á liðunum,
íslenska liðinu í óhag, og sömu sögu
er að segja um líkamsburði. Íslenska
liðið verður þar af leiðandi að láta
boltann ganga hratt í vörninni til að
hreyfa vel vörn makedónska liðsins.
Ísland mætir liði Makedóníu í dag.
Flautað verður til leiks klukkan 17.
Fylgst verður með leiknum í beinni
textalýsingu á mbl.is.
Fengu fljúgandi viðbragð
Þrettán marka sigur á Tyrkjum í fyrsta leik undankeppninnar eftir frábæran síðari
hálfleik Úrslitaleikur um efsta sætið og keppnisrétt í umspili HM við Makedóníu
Ljósmynd/Robert Spasovski
Átta Arna Sif Pálsdóttir lét mikið að sér kveða í sínum 140. landsleik og skorar hér eitt af átta mörkum sínum.
Skopje, undankeppni HM kvenna,
föstudag 30. nóvember 2018.
Gangur leiksins: 4:2, 7:5, 9:7, 13:8,
15:13, 18:14, 22:17, 24:18, 28:18,
29:20, 32:22, 36:23.
Mörk Íslands: Þórey Rósa Stefáns-
dóttir 8, Arna Sif Pálsdóttir 8/1, Thea
Imani Sturludóttir 5, Eva Björk Davíðs-
dóttir 4, Helena Rut Örvarsdóttir 3,
Martha Hermannsdóttir 2/1, Perla
Ruth Albertsdóttir 2, Steinunn Hans-
dóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 1, Ester
Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Guðný Jenny Ásmunds-
Ísland – Tyrkland 36:23
dóttir 16/2.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Tyrklands: Yasemin Sahin 5,
Beyza Irem Türkoglu 4, Sibel Kiciroglu
3, Beysa Irem Türkoglu 3, Fatma Atal-
ar 2, Burcu Dindar 2, Yagmur Toprak
2/1, Kübra Sarikaya 1, Nurceren Ak-
gün Göktepe 1.
Varin skot: Merve Durdu 9/1, Sara
Kececi 3, Serpil Abdioglu 2.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Tatjana Prastalo og Vesna
Balvan frá Bosníu.
Áhorfendur: 100.
1. deild karla
Þór Ak. – Fjölnir................................... 87:81
Hamar – Selfoss ................................... 94:88
Staðan:
Þór Ak. 8 7 1 759:638 14
Fjölnir 8 5 3 770:688 10
Vestri 7 5 2 617:552 10
Hamar 8 5 3 775:736 10
Höttur 6 4 2 535:502 8
Selfoss 8 3 5 666:653 6
Sindri 8 1 7 633:750 2
Snæfell 7 0 7 408:644 0
NBA-deildin
Toronto – Golden State ........... (frl.) 131:128
LA Lakers – Indiana.......................... 104:96
Sacramento – LA Clippers .............. 121:133
KÖRFUBOLTI