Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 1
ENGLAND
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Það er óhætt að segja að það hafi
hafa skipst á skin og skúrir hjá Gylfa
Þór Sigurðssyni og félögum hans í
Everton í jólaleikjunum í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu. Eftir
harðan skell gegn Tottenham á
heimavelli 6:2 á Þorláksmessu svör-
uðu liðsmenn Everton með 5:1 úti-
sigri gegn Burnley á öðrum degi jóla
og eftir fimm leiki án sigurs gátu
Gylfi og samherjar hans fagnað sigri.
Gylfi skoraði í báðum þessum leikj-
um og hefur þar með skorað átta
mörk í deildinni á tímabilinu og er að-
eins einu marki frá því að jafna met
Eiðs Smára Guðjohnsen en hann er
markahæsti Íslendingurinn í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar með 55
mörk.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
Gylfa, sem stendur í ströngu eins og
knattspyrnumennirnir á Englandi
um þetta leyti árs. Það er þétt leikið
og í dag sækir Everton lið Brighton
heim og fær svo Leicester í heimsókn
á nýársdag.
Gott að svara svona fyrir sig
„Ég get ekki neitað því að maður
er ansi lúinn eftir þessa törn en það
er enginn tími til að hugsa um það.
Það er stutt í næstu leiki og maður
verður bara vera fljótur að jafna sig
og gera sig kláran í næsta leik,“ sagði
Gylfi Þór en hann hefur verið í byrj-
unarliðinu í öllum 19 deildarleikjum
Everton á leiktíðinni.
„Það var gríðarlega gott að svara
svona vel fyrir sig í leiknum á móti
Burnley eftir þessa útreið sem við
fengum á móti Tottenham. Við byrj-
um leikinn gegn Tottenham af krafti
en við gáfum þeim fyrsta markið og
fórum illa að ráði okkar eftir það. Það
gekk allt upp hjá Tottenham, sem er
með frábært lið, en að tapa svona
stórt á heimavelli var ansi mikið högg
fyrir okkur. En það þýðir ekkert að
hengja haus og við náðum að þjappa
okkur vel saman fyrir leikinn á móti
Burnley. Við náðum forystu eftir tvær
mínútur og við gerðum út um leikinn
á fyrsta hálftímanum,“ sagði Gylfi,
sem skoraði þriðja markið úr víta-
spyrnu en honum hafði brugðist
bogalistin af vítapunktinum í tveimur
síðustu vítaspyrnunum sem hann tók
fyrir Everton.
„Stjórinn sagði við mig eftir Wat-
ford-leikinn þar sem ég klikkaði úr
vítaspyrnu að ég tæki næsta víti og
það kom ekki til greina annað en að
skora,“ sagði Gylfi, sem setti boltann
örugglega framhjá Joe Hart, mark-
verði Burnley og fyrrverandi mark-
verði enska landsliðsins.
Veit varla hvaða dagur er
Everton er í áttunda sæti deildar-
innar en með góðum úrslitum í leikj-
unum á móti Brighton og Leicester
gæti liðið fikrað sig ofar á stigatöfl-
una.
„Okkar bíður mjög erfiður útileikur
við Brighton. Þetta er lið sem erfitt er
heim að sækja og við sáum Arsenal
tapa þar tveimur stigum á öðrum degi
jóla. Síðan fáum við í heimsókn Leic-
ester sem hefur unnið Chelsea og
Manchester City í síðustu tveimur
leikjum sínum. Við þurfum að spila
mjög vel í þessum leikjum til að eiga
möguleika á sigri. Þegar við lítum til
baka eru leikir sem við erum mjög
ósáttir með að hafa tapað en markmið
okkar er að komast ofar á töfluna. Ég
tel nær útilokað að við náum að
blanda okkur í topp fjögur sætin eins
og liðin sem eru þar eru að spila. Við
erum vonandi komnir á sigurbraut og
leikurinn á móti Burnley gefur okkur
byr í seglin,“ sagði Gylfi Þór, sem hef-
ur fátt annað gert um jólin heldur en
að æfa og spila. „Maður veit varla
hvaða dagur er. Það eina sem maður
veit er hvenær liðið á leik og maður
vinnur út frá því. Ég hef aðeins náð að
fá mér íslenskan jólamat á milli leikja
enda hefur konan verið dugleg í eld-
húsinu. Ég er orðinn vanur þessari
törn í kringum jól og áramót og mér
finnst mjög gaman að spila á þessum
tíma. Það er frábær stemning á völl-
unum en ég væri samt til í að fá að-
eins meiri tíma á milli leikjanna.“
Ánægður með frammistöðuna
Spurður út í eigin frammistöðu á
tímabilinu segir Gylfi:
„Heilt á litið er ég bara mjög
ánægður með mína frammistöðu.
Það tók smátíma að komast í gírinn í
byrjun tímabilsins og fyrir liðið að ná
saman eftir breytingarnar sem gerð-
ar voru á því,“ segir Gylfi, sem hefur
eins og áður segir skorað átta mörk í
deildinni á tímabilinu og er einu
marki frá því að jafna met Eiðs
Smára. „Vonandi næ ég að skáka
Eiði og ef ég helst heill heilsu þá ætti
það að takast. Það eru engin meiðsli
að angra mig. Maður er auðvitað að-
eins lemstraður en ég náði að jafna
mig alveg í hnénu í fríinu eftir HM,“
sagði Gylfi en hann meiddist illa á
hné í mars og um tíma var óttast að
hann myndi missa af HM.
Liverpool, erkifjendur Everton úr
bítlaborginni, eru með sex stiga for-
skot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar
þegar deildin er hálfnuð og stuðn-
ingsmenn liðsins eru farnir að sjá
Englandsbikarinn í hyllingum sem
þeir hafa ekki séð lið sitt vinna frá því
árið 1990. Gylfi er spurður að því
hvort hann sjái fyrir sér að Liverpool
fagni langþráðum titli í vor.
Tippar á Manchester City
„Hlutirnir geta verið fljótir að
breytast í þessari deild. Menn sáu
ekki fyrir sér að Manchester City
myndi tapa leik en á skömmum tíma
hefur liðið tapað þremur leikjum.
Liverpool og City mætast í byrjun
janúar og sá leikur getur ráðið
miklu upp á framhaldið. Svo má alls
ekki gleyma Tottenham í þessar
baráttu. Það hafa ekki margir talað
um það í þessum sambandi en allt í
einu er liðið komið upp í annað
sætið.
En ef á að tippa á um verðandi
meistara þá segi ég að Manchester
City hafi þetta. Reynslan og gæðin í
þeirra liði eiga eftir að vega þungt
og ég sé ekki að liðið tapi mörgum
leikjum til viðbótar á tímabilinu,“
segir Gylfi Þór Sigurðsson, sem á
þrjú og hálft ár eftir af samningi sín-
um við þá bláklæddu.
Vonandi næ ég að skáka Eiði
Gylfa Þór vantar eitt mark til að jafna met Eiðs Smára Tveir leikir eftir í fjögurra leikja jólatörn
Frábær stemning á leikjunum um jól og áramót en hefði viljað fá aðeins meira hlé á milli leikja
AFP
Mörk Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki með Everton ásamt nokkrum liðsfélaga sinna. Þeir mæta Brighton í dag.
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
ÍÞRÓTTIR
Íþróttamaður ársins 2018 Kjöri Samtaka íþróttafréttamanna lýst í 63. skipti í kvöld. Ólafía Þórunn
vann 2017 en er ekki meðal tíu efstu í ár. Vilhjálmur Einarsson er enn sá sigursælasti í kjörinu. 2
Íþróttir
mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Björn Daníel
Sverrisson er kominn aftur í raðir FH eftir
fjögurra ára fjarveru. Hann var leystur
undan samningi hjá AGF í Danmörku rétt
fyrir jól og skrifaði í gær undir fjögurra
ára samning við uppeldisfélagið. Björn,
sem er 28 ára gamall miðjumaður og á átta
A-landsleiki að baki, varð þrisvar Íslands-
meistari og einu sinni bikarmeistari með
FH á árunum 2008 til 2013 en lék síðan
með Viking í norsku úrvalsdeildinni og
með AGF í dönsku úrvalsdeildinni, auk
þess sem hann var í nokkra mánuði í láni hjá Vejle í dönsku B-
deildinni á síðasta ári. Í viðtali við mbl.is sem birtist eftir
undirskriftina í gær staðfesti Björn að hann hefði líka fengið
tilboð frá Val en FH hefði verið sinn fyrsti kostur.
Björn Daníel
Sverrisson
Tók FH fram yfir Val
Snorri Einarsson, landsliðsmaður í skíða-
göngu, verður á meðal keppenda á Tour de
Ski, sem er hluti af heimsbikarmótaröðinni í
skíðagöngu og hefst í Toblach á Ítalíu í dag.
Keppt verður sjö sinnum á aðeins níu dög-
um í þremur löndum, Ítalíu, Sviss og Þýska-
landi. Tour de Ski er nú haldið í þrettánda
skipti og þetta er í þriðja sinn sem Snorri
tekur þátt. Hann varð í 30. sæti tímabilið
2010-11 en náði ekki að ljúka keppni 2012-
13 vegna veikinda. Snorri keppti undir
merkjum Noregs á þeim tíma en nú fyrir
hönd Íslands. Keppt er í öllum greinum og byrjað á sprett-
göngu í dag en á morgun verður 15 km ganga með frjálsri að-
ferð á sama stað. Síðan liggur leiðin til Sviss og þar keppir
Snorri í sprettgöngu um hádegið á nýársdag.
Snorri
Einarsson
Mikil törn hjá Snorra
Akureyri handboltafélag tilkynnti í gær-
kvöld að þjálfarinn Sverre Jakobsson væri
hættur störfum með úrvalsdeildarlið fé-
lagsins í karlaflokki. Komist hefði verið að
samkomulagi við Sverre um að hann myndi
láta af störfum. „Stjórn Akureyrar hand-
boltafélags vinnur nú að leit að eftirmanni
Sverre. Vonir standa til að búið verði að
ráða nýjan þjálfara þegar leikmenn mæta
aftur til æfinga eftir jólafrí þann 2. janúar
næstkomandi,“ segir á heimasíðu félagsins.
Geir Sveinsson, sem síðast var landsliðs-
þjálfari Íslands og var ekki endurráðinn eftir EM í janúar
2018, verður næsti þjálfari Akureyrar en Skapti Hall-
grímsson blaðamaður skýrði frá því á Facebook-síðu sinni í
gærkvöld. vs@mbl.is
Geir
Sveinsson
Geir fer til Akureyrar