Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 3
tímabilið byrjaði seint hjá honum
hjá Kiel vegna axlarmeiðsla.
Ég sé fyrir mér að Ólafur Gúst-
afsson verði í stóru hlutverki í miðri
vörninni á HM. Afar jákvætt er fyr-
ir landsliðið að hann skuli geta spil-
að í háum gæðaflokki á ný eftir mik-
il skakkaföll þar sem alvarleg
meiðsli herjuðu á hann. Ólafur hefur
marga kosti sem varnarmaður, er
hávaxinn og með fína fótavinnu.
Spurningin er kannski hverjir fleiri
koma til með að spila í miðri vörn-
inni. Í gær fengu Daníel Þór Inga-
son, Ágúst Birgisson og Heimir Óli
Heimisson allir að spreyta sig tölu-
vert. Guðmundur er að skoða leik-
menn en eins og hann sagði sjálfur
fyrir helgi þá vill hann fá svör við
spurningum sem leita á hann og
Gunnar Magnússon, aðstoðarþjálf-
arann trygga.
Morgunblaðið/Hari
Markahæstur Óðinn Þór Ríkharðsson skorar úr hraðaupphlaupi í gær, eitt átta marka sinna í leiknum.
Eitt
ogannað
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
James Milner verður ekki með Liv-
erpool í stórleik helgarinnar í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðið
mætir Arsenal á Anfield síðdegis í dag.
Milner glímir við meiðsli en hann
missti einnig af sigurleik liðsins gegn
Newcastle, 4:0, á öðrum degi jóla af
þeim sökum. Liverpool er með sex
stiga forystu fyrir leiki dagsins en það
gæti verið komið niður í þrjú stig þeg-
ar flautað verður til leiks því Totten-
ham tekur á móti Wolves fyrr um dag-
inn. Liverpool er með 51 stig,
Tottenham 45 og Manchester City 44 í
þremur efstu sætunum. City sækir
Southampton heim á morgun.
Unai Emery,
knattspyrnustjóri
Arsenal, viður-
kenndi í gær að
hann hefði hafnað
því að fá Moha-
med Salah, sem
nú leikur með
Liverpool, í sínar
raðir þegar hann
stýrði franska liðinu París SG. Emery
kvaðst hafa efast um að Salah, sem þá
lék með Roma, myndi spjara sig í stór-
liði. „Nú get ég hinsvegar sagt að ef
við myndum kaupa Salah, þá værum
við að kaupa einn af fimm bestu leik-
mönnum heims,“ sagði Emery en
varnarmenn hans þurfa að kljást við
Salah á Anfield í dag.
Taekwondosamband Íslands hefur
útnefnt Ágúst Kristin Eðvarðsson úr
Keflavík og Maríu Guðrúnu Svein-
björnsdóttur úr Aftureldingu sem ta-
ekwondofólk ársins 2018. Þau hafa
bæði náð góðum árangri á sterkum al-
þjóðlegum mótum á þessu ári og eru
margfaldir Íslandsmeistarar.
María Guðrún Sveinbjörnsdóttir
var líka heiðruð af Aftureldingu en hún
var kjörin íþróttakona félagsins árið
2018. Andri Freyr Jónasson knatt-
spyrnumaður var útnefndur íþrótta-
karl Aftureldingar 2018.
Fjölnir úr Grafarvogi krýndi í fyrra-
dag íþróttafólk ársins í sínum röðum.
Tenniskonan Hera Björk Brynjars-
dóttir er íþróttakona Fjölnis fyrir árið
2018 og sundmaðurinn Kristinn Þór-
arinsson er íþróttakarl Fjölnis.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, knatt-
spyrnukona úr Þór/KA, og Hafþór Már
Vignisson, handknattleiksmaður úr
liði Akureyrar, voru útnefnd íþróttafólk
ársins 2018 hjá Þór á Akureyri í fyrra-
dag.
Ole Gunnar Solskjær, bráðabirgða-
stjóri Manchester United, staðfesti í
gær að Antonio Valencia yrði áfram
fyrirliði liðsins. Valencia hefur aðeins
spilað sjö leiki á tímabilinu og vafi hef-
ur verið um framtíð hans
hjá félaginu. „Antonio er
fyrirliði þegar hann er
heill. Það eru fáir
betri en hann í stöðu
hægri bakvarð-
ar,“ sagði
Solskjær á
frétta-
mannafundi
en United
tekur á móti
Bourne-
mouth í úr-
valsdeild-
inni
síðdegis á
morgun,
sunnudag.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Handknattleiksmaðurinn Arnar Birk-
ir Hálfdánsson kann vel við sig hjá
danska liðinu SönderjyskE en Arnar
gekk til liðs við félagið frá Fram í
sumar. Er hann á sínu fyrsta tímabili í
atvinnumennsku og hefur farið nokk-
uð vel af stað.
„Það er huggulegt,“ sagði Arnar
þegar Morgunblaðið spurði hann í
gær hvernig lífið væri í Danmörku.
„Ég kann mjög vel við mig. Þetta er
þægilegur lítill bær og ég bý á góðum
stað. Þar af leiðandi er stutt í allt.“
Arnar segir það hafa tekið sig tíma
að komast inn í hlutina hjá liðinu á
undirbúningstímabilinu en eftir að
deildakeppnin hófst hafi honum engu
að síður gengið vel. „Ég var frekar
týndur á undirbúningstímabilinu en
þegar tímabilið byrjaði small þetta
hjá mér. Fyrsti mánuðurinn var erf-
iður. Ég skildi lítið og handboltinn var
aðeins öðruvísi en sá sem ég hafði
vanist. Hjá Fram þekkti ég náttúrlega
allt eins og lófann á mér. Ég þurfti
einn mánuð til að átta mig og þá kom
þetta,“ útskýrði Arnar.
Mikil stemning á leikjum
Liðið er í Sönderborg á Jótlandi og
Arnar segir liðið fá fínan stuðning hjá
bæjarbúum. „Höllin tekur um 2.200
manns og á öllum heimaleikjum er
margt fólk og mikill hávaði. Í raun er
annaðhvort uppselt á leikina eða
nærri því uppselt. Er það mjög
skemmtilegt. Ég er þokkalega sáttur
við hvernig liðinu gengur. Við erum í
8. sæti eða um miðja deild. Markmiðið
er að vera á meðal átta efstu til að
komast í úrslitakeppnina og við erum
þar eins og staðan er en enn eru átta
leikir eftir. Það munar miklu að vera á
meðal átta efstu því hin liðin fara í
umspil um að halda sæti sínu í efstu
deild. Við viljum auðvitað losna við að
vera í þeirri stöðu,“ sagði Arnar sem
spilar eingöngu sem skytta hægra
megin í sókninni. Í vörninni er hann
annaðhvort bakvörður eða skiptir út
af þegar liðið stillir upp í vörnina.
Arnar er 24 ára gamall og segist
vera á fínum aldri til að stíga skrefið
út í atvinnumennskuna. „Já, engin
spurning. Þetta er eitt skref upp á við
og vonandi á ég eftir að taka nokkur
skref til viðbótar. Það eina sem ég
geri þarna er að æfa handbolta, borða
og vaska upp,“ sagði Arnar léttur og
segist hafa gott tækifæri til að bæta
sig sem leikmaður í Danmörku.
Kallið kom frá Guðmundi
Landsliðsþjálfarinn Guðmundur
Guðmundsson hefur veitt framgöngu
Arnars athygli í vetur og valdi hann á
dögunum í hópinn sem býr sig undir
þátttöku á HM sem fram fer í janúar í
Þýskalandi og Danmörku. „Ég geri
mér aldrei neinar væntingar um að
vera valinn í landsliðið en þetta er
mikill heiður og mjög gaman að æfa
með þessum strákum. Þetta eru al-
vörukarlar og þetta er góð reynsla
fyrir mig. Auðvitað vilja allir vera í
lokahópnum,“ sagði Arnar en lands-
liðshópurinn er nýkominn saman til
æfinga og í gærkvöldi var fyrri vin-
áttuleikurinn gegn Barein.
„Þetta er því enginn tími til að að-
lagast, tveir dagar og síðan er leikur.
En fyrst og fremst er þetta bara
handboltaæfing. Ég hef einu sinni áð-
ur fengið að æfa með liðinu en þetta er
í fyrsta skipti sem ég er í þessum tutt-
ugu manna hópi,“ sagði Arnar Birkir
Hálfdánsson þegar Morgunblaðið
spjallaði við hann á landsliðsæfingu í
gær.
Þurfti mánuð til að átta
sig í atvinnumennskunni
Arnar Birkir Hálfdánsson kann vel við sig hjá SönderjyskE á Jótlandi
Morgunblaðið/Hari
Ánægður Arnar Birkir Hálfdánsson kann vel við sig á Jótlandi. Hann skoraði eitt mark í vináttuleik gegn Katar í gær.
rein 36:24
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson
6/1, Björgvin Páll Gústavsson 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Barein: Mohamed Abdul-
redha 5, Hasan Alfardan 4, Mahdi
Saad 3/3, Mohamed Habib 2/1, Ali
Abdulqader 2, Komail Mahfoodh 2,
Ali Merza 2, Hasan Madan 2,
Mohamed A.Husain 1, Hasan Al-
Samahiji 1.
Varin skot: Mohamed A.Husain 5,
Ali Khamis 2.
Utan vallar: 2 mínútur.
Áhorfendur: Um 1.000.