Samfylkingin - 04.04.1934, Síða 2
2
SAMFYLKINGIN
staðið, hún hefir jafnvel boðizt til
að ganga sem heild inn í hitt fé-
lagið, en öllu þessu hefir verið
harðlega neitað. Enda má sprengi-
félagið V.K.F.S. nú heita algerlega
lokað verkalýðsfélag, þar sem slík-
um fasisma er beitt við inntöku
nýrra félaga, að inntökubeiðnir eru
því, aðeins gildar að tvær úrstjórn-
arklíkunni séu meðmælendur.
Pað hefir verið reiknað út, hversu
miklu sú kauplækkun næmi, sem
sprengifelagið hefir komið á og
það hefir reiknast svo til að það
sé um 50 þús. kr. á ári. eða 150
þús. kr. þessi þrjú sumur, sem
taxti sprengifélagsins hefir gilt.
Pað er dálaglegur skildingur, sem
þarna hefir verið rænt af verka-
konum og stungið í vasa útgerðar-
manna.
Atvinnurekendur og kratabroddar
gerðu allt, sem þeir gátu til að við-
halda þessum klofningi, enda bygg-
ist veldi þeirra fvrst og fremst af
sundrung og skortandi stéttarþroska
verkalýðsins.
Kratabroddarnir höfðu þá stjórn
Verkamannafélagsins, og komu í
veg fyrir að það gerði nokkuð til
að sameina verkakonurnar.
Pvert.á móti gerðu þeir allt, sem
þeir gátu tii að viðhalda klofningn-
um og einn aðalforsprakki þeirra
lýsti því yfir, að Verkakv.fél. Siglufj.
„skyldi standa með pálmann í hönd-
unum“, I þessari baráttu fyrirsundr-
ungu verkakvenna og lækkun kaup-
taxta beittu broddarnir í sprengifél.
hinum svívirðilegustu aðferðum.
Ágætt dæmi um það er hið svo-
kallaða Bakkamál.
Vorið 1931 hafði Óskar Halld.
í Bakka byrjað að greiða íshús-
vinnu með 1,25 kr. — þ. e. taxta
Óskar, en sprengifélagið hafði ekki
neinn sérstakan lið um þessa vinnu.
Broddarnir úr sprengifélaginu hlupu
þá til og fengu því til leiðar komið,
að kaupið var útfært aðeins með
1 kr. eða dagv.taxta sprengiféíagsins.
Um haustið varð svo h.f. Bakki
gjaldþrota og gerði Steinþór Guðm.
upp fyrir hönd bankans Hann
kvaðst strax mundu borga út samkv.
taxta Óskar, ef form. Verkamanna-
félagsins segði eitt orð í þá átt. En
form. Kristján Sigurðsson krata-
broddur ne'taði að gera nokkuð í
málinu — svo að taxti sprengifél.
var greiddur.
Seinna um haustið unnu svo
nokkrar konur þarna í íshúsvinnu,
þ. á. m. Þorfi nna Dýrfjörð og
heimtaði að fá greitt 1,25 eða sama
kaup og nún.og meðhjálparar henn-
ar höfði haft af stúikum, sem unnu
í Bakka um sumarið. — Slík eru
heilindin í garð verkalýðsins.
IV. Samfylkingarbarátta
„Oskar“ í vetur.
Á ráðstefnu VSN síðastl. haust
á Akureyri var kaupgjaldsbaráttan
hér rædd rækilega. Var lögð á-
herzla á, að það mætti ekki hald-
ast uppi að hér væru tveir verka-
kvennataxtar og Verkamannafél.
Siglufjarðar falið að sameina kaup-
gjaldsmál verkakvenna. Pað skrifaði
síðan báðum verkakvennafélögunum
bréf og skoraði á þau að setja sam-
eiginiegan kauptaxta. Ósk tók þess-
ari málaleiíun vel, en annað var
uppi á teningnum hjá sprengifélag-
inu. Par var það foringjaklíkan
sem öliu réð og tók að sér að svara
bréfinu fyrir hönd verkakvennanna.
í stað þess, að sameiginlegur taxti
er að sjálfsögðu hagsmunamál allra
vinnandi kvenna — sem þær hefðu
auðvitað samþ., ef þær hefðu fengið
að ráða, þá svöruðu broddarnir, sem
eru auðsveip tæki aivinnurekend-
anna, þessu með ruddalegri neitun.
Svör bessara félaga við bréfi Verka-
mannafélagsins er Ijós mynd af starfi
fieirra og stefnu. Annarsvegar Osk,
sem tók samfylkingunni oþntim örm-
um, hinsvegar ruddaleg neitun brodd-
anna i sþrengifélaginu.
Síðan boðaði Ósk til tveggja op-
inna verkakvennafunda um málið.
Á fyrri fundinum var svo kosin
kauptaxtanefnd — félags- og ófélags-
bundinna kvenna og átti hún að
gera uppkast að sameiginlegum
kauptaxta.
Á fundi þessum ráku broddar
sprengifélagsins óspart erindi at-
vinnurekendanna. Pær höfðu áðnr
komízt á snoðir um undirbúning
„Óskar", þær flýttu sér því að
hrófla af sínum taxta, samþykktu
hann á skyndifundi daginn áður og
sendu síðan stjórn Alþýðusam-
bandsins. Form. sprengifélagsins
Sigrún Kristinssd. lók að sér að
leika loddarahlutverkið á fundinum.
Hún var svo sem ekki á mótisam-
fyikingartaxta, en það var bara ekki
hægt núna, af því að þær voru
búnar að senda taxtann sinn suður.
Og hún tók sér það bessaleyfi, að
neita því fyrir munn verkakvenna
að afturkalla taxtann. Örðugleikar
auðvaldsins gera æ hærri kröfur til
leikarahæfileika kratabroddanna. —
Peir verða að þykjasf vera með
kröfum verkakvenna — til að svíkja
þær svo aliar á eftir — og það er
ekki annað hægt að segja en að
Sigrún hafi leikið sitt hlutverk vel.
Kauptaxtanefndin starfaði áfram
og lagði hún fram á síðari fundin-
um uppkast að kauptaxta og fól
það í sér nokkrar auknar hagsbæt-
ur frá fyrri taxta Óskar og sprengi-
félagsins. Áþessum fundi mætti form.
sprengifélagsins — og hélt áfram
fyrra starfi sínu fyrir atvinnurekend-
ur og neitaði hún nú algerlega allri
samvinnu. Fundurinn var svo fá-
mennur, að ekki þótti rétt að sam-
þykkja taxtann. Hinsvegar var sam-
þykkt að láta ganga með undir-
skriftalista um taxtann.
Undirskriftir undir raxtann hafa
þó ekki borið slíkan árangur, sem
hefði mátt ætla eftir fundunum.
Verkakonur virðast ennekki hafa
að fullu skilið hversu mikilvægt
mál er hér um að ræða. Broddarn-
ir í sprengifélaginu hafa líka gert
sitt. Pær hafa safnað undirskriftum
undir taxta sinn og þar með slegið
því föstu, að það sé hámarkstaxti
og verkakonur megi alls ekki fá
hærra kaup. — En þrátt fyrir þetta
mun Ósk halda áfram samfylking-
arbaráttu sinni fyrir bættum kjörum
verkakvenna.
Siglfirskar verkakonur! Minn-
ist þess, að Verkakvennafélag
Siglufjarðar er sprengifélagstofn-
að af kratabroddununum undir
vernd og umsjón atvinnurek-
enda. Pað hefir rænt verka-
konurnar 150 þús. kr. s.l. 3
sumur og stungið því i vasa
atvinnurekenda, þ. e. upp und-
ir 150,00 kr. af hverri vinn-
andi síldarstúlku.
Verkakonur, eigum við að láta
viðgangast að þessum klofningi og
arðráni verði haldið áfram.
Nei og aftur nei. Við skul-
um fylkja ^kkur um samfylk-
ingartaxta Oskar.
Verkakonur! Höldum bar-
áttunni fyrir samfylkingartaxta
hlífðarlaust áfram. — Minn-
umst þess að VSN og Verka
m.fél. Siglufj. standa meðokkur.
Fyrsta skrefið er að mætaáfund-
inum á föstudaginn.
Veíum allar samtaka, þá er
sigurinn vís.
Ábyrgðarm.: Anna Guðmundsd.
Siglufjarðarprentsmiðja.
ATHUGIÐ! Almennur verkakvennafundur verður haldinn á föstud. 6. apríl kl. 4 e.h. i Brúarfoss.
Rætt verður um samfylkingarkauptaxta Oskar og komandi baráttu.
Verkakonur fjölmennið!