Framsókn : bændablað - samvinnublað - 22.04.1933, Blaðsíða 3

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 22.04.1933, Blaðsíða 3
rðnðip hæg og mlkil heyskaprjörð, er til sölu og (eða) ábúðar í næstu fardögum. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Semja ber við BÚNABARBANKA ÍSLANDS, Reykjavík. starfsemi í gróörarstöðinni í Fteykjavík hættir nú að fullu. Hún flyzt sumpart austur að Sámsstöðum, sumpart að Laug- arvatni. Er Ragnar Ásgeirsson, garðyrkjuráðunautur, nú bú- settur þar, og er starfsmaður sumpart hjá Búnaðarfélagi Is- lands, sumpart hjá Laugar- vatnsskólanum. Verður garð- yrkjunámskeið haldið austur á Laugarvatni x vor. Samningar hafa tekizt milli Búnaðarfélags Islands og Bæj- arstjórnar Reykjavíkur um það, að hærinn kaupir gróðr- arstöðina i Reykjavik af félag- inu. Þá er Búnaðarfélagið hyrj- aði garðyrlcjutilraunir, upp úr aldamótunum, keypti það sex dagsláttna erfðafestuland þar sem nú er gróðrarstöðin. Jafn- framt afhenti Reykjavíkurbær félaginu átta dagsláttur til við- bótar við hliðina á hinu keypta erfðafestulandi, til ókeypis nota, meðan tilraunir færu fram i gróðrarstöðinni. En er þær hættu, skyldi landinu skil- að aftur. Nú er samið um þetta alt, og mun bærinn rækta áfram hinn fagra trjágarð, sem félag- ið hafði kornið sér upp þarna, og er vonandi, að hann megi lengi verða almenningi til á- nægju. Einar Helgason garð- yrkjustjóri mun taka að sér vörslu garðsins fyrir hæinn. En neðri hluti gróðrarstöðvar- landsins mun eiga að skiftast í smágarða. Mest nýjung af því, sem Bún- aðarþing setti inn á fjárhags- áætlun félagsins á þessu ári og næsta, var 20 þús. kr. lið- ur, sem félagsstjórninni er heimilað, um hendur búnaðar- sambandanna, að verja til þess að styðj a bændur til hverskon- ar fjölbreytni og nýbreytni í búskaparháttum. Verður frá því nánar sagt í búnaðarsam- böndunum. Þá er það ákveðið, að Bún- aðarfélag Islands tekur nú að sér leiðbeiningar í loðdýra- rækt. Er þess mikil þörf og ó- verjandi að drepa hendi við nokkru þvi, sem má verða til að afla meiri fjölbreytni i hú- skapnum. Eru þeir menn fjöl- margir nú, um land alt, sem hafa hug á loðdýrarækt sam- hliða öðrum búskap. Búnaðarþingið fékk til með- ferðar tillögur „bændanefndar- innar“ í kreppumálunum. Veitti þingið þeim einróma meðmæli. Samstarf var hið allra besta á Búnaðai-þinginu. Ýmissa fleiri fregna af Bún- aðarþinginu verður getið hér í blaðinu óðar en liður. Búnaðai’félagskapurinn er að sumu leyti búinn að ná meiri þroska hjá okkur íslend- ingunx en hjá nokkurri af ná- grannaþjóðum okkar, og senni- lega þó að lengra væri leitað. Hjá engri nágrannaþjóðanna á landbúnaðurinn hliðstæða stofnun Búnaðarþingi okkar, sem allir bændur landsins kjósa fulltrúa til, eftir settum reglum og sem hafa slíka und- irstöðu sem búnaðarsambönd okkar. Framsókn mun eftirleiðis birta frásagnir undir þessari fyrirsögn. Þar verður sagt frá íslenzkum sveitum, náttúru- kostum þeirra og framtiðar- skilyrðum, háttum fólksins, hag þess og vonum. Þar verð- ur sagt frá einstökum bænda- býlum, sem eru sérstök að nátt- úruskilyrðum, búnaðarháttunx eða myndarskap. Þar verður sagt frá kauptúnum og kaup- stöðum, hag þeirra, menningu þeirra, framsókn og framtið. Þar verður sagt frá þjóðþrifa- stofnunum, viðhorfi þeirra og verkefnum. Og þar verður sagt frá einstökum mönnum, sem eru einkennandi fyrir timann, sem er að líða, eða bera af á einhvern hátt. Þessar frásagnir eiga að koma i staðinn fyrir fréttatín- ing ýmislegan. Vikublöð eru nú á dögum sein í förum með fréttir dagsins. Útvarpið og dagblöðin eru þar jafnan konx- in löngu á undan. En margt það, sem gerist í þjóðlífinu, fer hljóðlátlega fram. Af því eru engar fréttir að segja í venju- legum skilningi þess orðs. Þó i’æður margt af því meiru um örlög þjóðarinnar en það, sem mestum tíðindum þykir sæta. Framsókn ætlar ekki aðeins að segja frá því, sem hefir gerzt og er að gerast. Blaðið ætlar líka að skýra frá því, sem má gera á hverjuin stað, og því, sem á að gera. Það vill hjálpá unga fólkinu til að eignast von- ir og drauma um afrek og ham- ingju heima í sveitinni sinni og kauptúninu sínu. Þar er mikið hlutverk að vinna fyrir vikublað. Ritstjóri Fx'amsóknar skorar á vaska menn og bjartsýna menn, að senda blaðinu rit- gerðir um sveitina sína eða kauptúnið sitt, um fyrirtæki eða heimili, sem eru til fyrir- myndai’. Skýrið frá hag fóiks- ins og þó einkum frá úrlausn- arefnunum á hverjum stað á líðandi stund, og skilyrðunum til hverskonar framsóknar. Skrifið ekki langt mál, en skýrt og rétt. Skrifið ætíð undir fullu FRAMSÓKN Á ýmsum öðrum sviðum búnaðarfélagsskaparins stönd- Um við hinsvegar langt að baki nágrannaþjóðum okkar, enda eiga þau í þvi efni miklu lengri sögu en við. En siðustu árin hefir verið mjög farsæll og þroskavænlegur vöxtur á öll- um sviðum búfjárræktarinnar, við forgöngu hlutaðeigandi í’áðunauta Búnaðarfélagsins. Krepputímarnir eru að sumu leyti hinir bestu tímar til þess að efla félagsskapinn, enda sést það á slíkum tímum bet- ur en nokkuru sinni, hve sam- starfið, á öllum sviðum, er þýð- ingarmikið. Fullkominn bún- aðarfélagskapur og samvinnu- félagsskapur er hið þýðingar- mesta atriði, bæði um það, að verjast áföllum á krepputím- unx og eigi síður um hitt, að búa sig undir næstu framsókn, þegar aftur fer að birta. Tr. Þ. nafni og af einurð og djarf- huga. — Ritstjórinn ætlar sjálf- ur að leggja drjúgan skerf til þessara frásagna. Alþýðubókasafn Reykjavíkur og Sigurgeir Friðriksson. Síðasta dag vetrarins (19. apríl) var Alþýðubókasafn Reykjaviku 10 ára gamalt. Engri þjóðþrifastofnun okkar Islendinga á síðari árum hef- ir fylgt meiri gæfa. Þó hefir það jafnan látið lítið yfir sér og fátt verið um það talað. Alþýðubókasafn Reykjavík- ur er stærsti alþýðuskóli lands- ins og vafalaust er það áhrifa- nxesti skólinn. Alþýðubókasafn Rvíkur er helzt sambærilegt við „Public libraries“ í Ameríku og Eng- landi og Kommunebiblioteker á Norðurlöndum. Þau vilja hafa bækur handa, öllum og koma öllum til að lesa. Þau vilja gefa fólkinu kost á al- hliða menntun með lestri góðra bóka og veita því holla slcemmtun í frístundum. Á 10 árum hefir Alþýðu- bókasafnið lánað út 414.978 bd. bóka. Síðastliðið ár lánaði það 85.132 bd., eða um 3 bd. á mann í Rvík. Sum alþýðubókasöfn í Ameríku, þótt auðug sé og full- komin, lána minna en tvö bd. á mann á ári. Til eru þar þó bókasöfn, er lána fleiri bækur í hlutfalli við fólksfjölda en Alþýðubókasafn Reykjavíkur, en þau hafa þá líka margfalt meira fé til umráða og marg- falt meiri bókakost í hlutfalli við fólksfjölda bæjanna. En því er Ameríka tekin til sam- anburðar, að þar hefir verið lögð rneiri rækt við alþýðu- bókasöfnin en í nokkru öðru landi. Eg hygg, að i hlutfalli við fjárveitingu og bókakost, sé Alþýðubókasafn Reykjavík- ur notað meira en dæmi eru annarsstaðar um sambærileg bókasöfn. Við Landsbókasafnið er Al- þýðubókasafnið ekki sambæri- legt, því að Landsbókasafnið er fyrst og fremst vísindalegt bókasafn og einkum ætlað vís- indamönnum til afnota. Þó má geta þess, að síðustu árin hefir Alþýðubókasafuið haft nærfelt jafn margt gesti á lestrarstofu og Landsbókasafnið (1931 17.- 403 gesti, 1932 17.260 gesti), og stundum hefir Alþýðubóka- safnið lánað út bér um bil ems mörg bindi á mánuði og Lands- bókasaínið á ári. Alþýðubókasafn Reykjavík- ur krefur engan um þakkar- skuld. Margir þeir, sem eiga þvi mikla þekkingu og ánægju að þakka, veita því naumast athygli, að það er starfandi stofnun meðal þeirra. Það er jafn auðvelt að sækja þangað bók „til skemmtunar og fróð- leiks“ og að sækja sér svala- drykk i vatnsleiðsluna. Ef það liyrfi úr sögunni, allt i einu, rnundi margur mikils sakna. Alþýðubókasafnið var stofn- að með 20 þús. krónum af andvirði togaranna, er seldir voru til Frakklands 1917. Síð- an það tók til starfa 1923, hef- ir Reykjavíkurbær styrkt þao með vaxandi framlagi. I ár er framlag bæjarins til safnsins 30 þús. krónur. Ríkið hefir eng- an styrk veitt safninu. Margir hafa sýnt bókasafn- inu velvild sína með þvi að gefa því bækur. Hjörtur C. Thórðarson raffræðingur í Chi- cago, sendi því 150 bd. úrvals- bóka 1929, og rétt nýlega sendi dr. Björg C. Þorláksson því mikla bókagjöf. Freistandi væri, að nefna fleiri nöfn, en sumir þeirra örlátustu hafa bannað að láta nafns síns getið. Prófessor Páll Eggert ólason beittist allra manna ötullegast fyrir stofnun Alþýðubóka- safnsins, og mun engum manni jafn mikið að þakka, að svo myndarlega var til þess stofn- að. En allur þorski safnsins síðan er að þakka ofurlitlum bónda norðan af heiðunum i Þingeyjarsýslu, Sigurgeiri Frið- rikssyni frá Skógarseli. Hann hefir valið því bækurnar, ann- ast það og stjórnað því. Hann hefir lagt líf sitt og starf við gæfu þess. Við eigum fáa menn, Islendingar, minni að vallar- sýn og yfirlæti en hann, en við eigum fáa menn ríkari af vits- munum og kærleika til alþjóð- ar á Islandi. Áður en Sigurgeir kom hing- að til Reykjavíkur, bjó hann með systur sinni á heiðarbýli, og sá fyrir heilsuþi’otnum for- eldrum og gamalli konu, frænku sinni, er lá í kör. Oft, þegar eg kom í Skógarsel, lá allt gamla fólkið rúmfast, en þau systkinin tvö á fótum. Þó var Skógarsel oft einskonar miðstöð í héraðinu. Þar komu saman ungir menn í sýslunni, meðan verið var að stofna Framsóknarflokkinn í Þing- eyjarsýslu 1915—1918. Og þar voru smíðuð vopnin til sóknar í alþýðuskólamálinu þingeyska. Sigurgeir sótti bókavarða- skóla, er stofnaður var i Kaup- mannahöfn haustið 1920. Þó var hann svo bundinn heima, að hann gat ekki komið fyrr en 1% mánuði eftir að skólinn byrjaði. Eg minnist þess, að hann fékk glósur um það í fagnaðargildi í bókavarða- skólanum: „Naar man bjerger Höet paa Island i September, saa kommer man til Dan- mark i November.“ En Sigurgeir lauk námi við bókavarðaskólann með ágæt- um vitnisburði eftir fjögurra mánaða dvöl þar. Þá var bann fertugur að aldri. Og þegar Aiþýðubókasafn Reykjavíkur var stofnað, vor- ið 1923, tók Sigurgeir við bóka- vörzlu þess og allri forstöðu. Hann hefir ráðið mestu um alla starfsemi safnsins og hann bef- ir séð ráðin til að leysa hvern vanda þess. En ekki þóttist hann vera nógu vel menntur til starfs síns, er hann tók við safninu. Þegar bann hafði afl- að sér tveggja ára bókavarðar- reynslu, tók bann sér því ferð á hendur til Ameriku, til að kynna sér starf alþýðubóka- safna, þar sem þau eru lengst á veg komin. I þeirri ferð var hann hátt á fjórða ár, og kost- aði hana að öllu leyti sjálfur. Síðan hóf hann aftur sitt hljóð- láta starf við Alþýðubóka- safnið. Ekki hefir Sigurgeir á öllu sigrast. Þrátt fyrir frábær af- rek í starfi sínu við Alþýðu- bókasafnið, hefir hann ekki sigrast á skilningsleysi leið- andi manna á þörf og gildi al- þýðubókasafna. Hann hefir á stundum orðið að berjast við furðu mikið tómlæti þeirra, er ráðið hafa um fjárveitingar til safnsins. Enn verður það að láta sér nægja leiguíbúð. Hon- um hefir heldur ekki tekizt að fá þing og stjórn til að leggja nauðsynlegan grundvöll að skipulagi alþýðubókasafnanna i landinu. En þegar sá skipu- lagsgrundvöllur er lagður, geta öll alþýðubókasöfnin í landinu unnið saman, og orðið stór- veldi í menntamálum allrar þjóðarinnar. Norskn samningarnir. MiSvikudaginn 12. þ. m. sam- þykkti efri deild norsku samning- ana, og voru þeir þar með af- greiddir frá alþingi. Margt má aS þessum samningum finna, sem vonlegt er. Aldrei verSur viS aSra þjóS samiS svo, aS ekki verSi aS kaupa hver fríSindi nokkuru verSi. Hér var um aS semja markaS fyr- ir allt aS helming aSalframleiSslu íjölmennustu stéttar landsins, bændastéttarinnar. Framsóknar- fíokkurinn skildi bezt þörf bænda- stéttarinnar og stóS hann allur og óskiftur meS samningunum. Sjálf- stæSismenn skiftust í því nær jafna ílokka meS og móti samn- ingunum. Allir þingmenn AlþýSu- íloksins greiddu atkvæSi móti samningunum og virSist flokkur- inn vilja gera máliS aS æsingamáli. í AlþýSublaSinu 15. þ. m. er fariS svohljóSandi orSum um samning- ana og þingmenn þá, er greiddu þeim atkvæSi: „Þær lyddur (þ. e. alþingis- mennirnir), sem nú hafa svikiS land sitt og stoliS rétti landsmanna til gæSa landsins handa útlendum ásælnismönnum, mun hverju ís- lenzku skólabarni kennt aS hata og fyrirlíta í framtíSinni." — Skilja nú bændur áSur en bet- ui skellur í tönnunum? Frá íslensku þjódlífi.

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.