Fréttablaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Ef þjóðin á
sér samein-
ingartákn þá
er það helst
forseti
Íslands,
Guðni Th.
Jóhannesson.
Við eigum
ekki að sætta
okkur við
vinnuum-
hverfi sem
leiðir til
veikinda
fólks eða
áralangrar
óvinnufærni.
Veikindi tengd kulnun og streitu hafa aukist verulega á undanförnum árum með tilheyr-andi kostnaði fyrir einstaklinga og samfélagið
allt. Við þessu verður að bregðast með forvörnum og
með því að tryggja fólki hvíld.
Fimmti hver starfsmaður í opinbera geiranum í
Svíþjóð er með kulnunar- eða streitueinkenni. Hér á
landi skortir yfirsýn en engin ástæða er til að ætla að
aðstæður séu aðrar hér. Stóraukin ásókn í sjúkrasjóði
stéttarfélaga ber þess merki. Oftast má rekja kulnun
og sjúklega streitu í starfi til aðstæðna á vinnustað
þar sem álagið er of mikið og kröfur sem gerðar eru
til starfsfólks eru óljósar. Algengt er að vaktavinnu-
fólk treysti sér í ekki til að vinna fullt starf. Þar spilar
líka inn í álag sem fylgir vaktavinnu. Þeir vinnustaðir
sem tóku þátt í tilraunaverkefni um styttingu vinnu-
vikunnar hjá Reykjavíkurborg og ríkinu hafa sam-
hliða farið yfir stjórnun verkefna og tímastjórnun.
Niðurstaðan er skýr – með styttingu vinnuvikunnar
dregur úr streitueinkennum, einkennum kulnunar
og almennt dregur úr veikindafjarveru. Þá á fólk auð-
veldara með að samþætta fjölskyldu- og atvinnulíf.
Á samanburðarvinnustöðum sem ekki hafa stytt
vinnuvikuna upplifir fólk þvert á móti hvernig
streita og einkenni kulnunar halda áfram að aukast á
sama tíma og erfiðara er að samþætta fjölskyldulífið
við vinnuna. Í heilbrigðiskerfinu byggir þjónustan á
bestu mögulegu vísindarannsóknum. Hvers vegna
ættum við ekki að gera sömu kröfur þegar kemur
að starfsfólki og vinnuaðstöðu? Það þarf að tryggja
starfsfólki aðstæður svo það geti unnið vinnuna sína
og þannig hámarkað gæði þjónustunnar. Við eigum
ekki að sætta okkur við vinnuumhverfi sem leiðir
til veikinda fólks eða áralangrar óvinnufærni. Það
hefur ekki eingöngu áhrif á einstaklinginn sem fyrir
því verður heldur er það kostnaðarsamt fyrir vinnu-
staðinn og samfélagið allt.
Með því að grípa til viðeigandi forvarna og stytta
vinnuvikuna axla atvinnurekendur ábyrgð á vand-
anum og stuðla að auknum lífsgæðum – öllum til
heilla.
Fjárfestum í fólki
Sonja Ýr
Þorbergsdóttir,
formaður BSRB
Ef þjóðin á sér sam-
einingartákn þá er það
helst forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannes-
son.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Alþjóðlegar ráðstefnur og samkomur einkennast yfirleitt af ákveðnum virðuleika, ekki síst ef þangað mætir valdamikið fólk sem lætur sér annt um ímynd sína og gætir þess vand-lega að gefa ekki of mikið af sér. Fyrir
vikið virkar það nokkuð fjarlægt, eins og það sé ekki í
tengslum við líf venjulegs fólks. Fyrir fólk sem er með
einkabílstjóra, einkaritara og alls kyns aðstoðarmenn
er örugglega mjög auðvelt að glata veruleikatengingu
og loka sig af í þægilegri einkaveröld þar sem aðrir eru
reiðubúnir til þjónustu. Það eru þó ekki allir valda-
miklir einstaklingar sem gætu svo auðveldlega valið
þennan kost sem kæra sig um það. Þeir vilja bara fá
að vera þeir sjálfir og um leið svo lánsamir að líta
ekki stórt á sig. Þetta á einmitt við um forseta Íslands,
Guðna Th. Jóhannesson.
Þegar forseti Íslands mætir valdafólki frá öðrum
löndum er áberandi hversu alþýðlegur hann er.
Hann sendir samstundis frá sér skilaboð eitthvað á
þessa leið: Hér er ég, ofur venjulegur maður í óvenju-
legri stöðu, lítið gefinn fyrir seremóníur og prjál en
stundum krefst starfið þess að maður taki þátt í slíku
og þá læt ég mig bara hafa það en er ósköp feginn
þegar því er lokið.
Hann er ekki umvafinn þeirri blöndu af sjálfsöryggi
og hroka sem oft er of áberandi í fari ráðamanna.
Stundum má greina á andliti hans svip sem ber vott
um að hann sé enn ögn undrandi á því að vera í þeirri
stöðu sem hann er. Í hópi fyrirmanna sker hann sig
þannig úr, enda er eftir honum tekið. Hann er nefni-
lega ekta.
Þetta sýndi sig með miklum ágætum á norður-
slóðaráðstefnunni In ternati onal Arctic For um í
Pét urs borg í Rússlandi þar sem forsetinn var í pall-
borði ásamt Vla dímír Pútín, forseta Rússlands, Sauli
Ni inistö, for seta Finn lands, Ernu Sol berg, for sæt is-
ráðherra Nor egs, og Stef an Löf ven, for sæt is ráðherra
Svíþjóðar. Þar gerði forseti vor sér lítið fyrir og talaði
stutta stund á rússnesku. Af svip gesta mátti ráða
að þeir voru ögn ráðvilltir í byrjun, ekki alveg vissir
hvernig bæri að taka þessu tiltæki forsetans. Smám
saman breyttist svipurinn, þeir urðu afslappaðri og
hlýlegt bros sást á vörum marga. Niðurstaða þeirra
virtist vera að forseti Íslands væri drengur góður.
Við lifum á tímum sem einkennast af þreytu í garð
stjórnmála og stjórnmálamanna og stundum virðist
sem fátt fái sameinað þjóðina nema þá helst einhverjir
boltaleikir sem íslensk íþróttalið taka reglulega þátt
í erlendis. Og svo lifir hún ætíð vonin um árangur, og
helst sigur, í hinni árlegu og innihaldslitlu glimmer-
sýningu Eurovision. Í báðum tilvikum er mikið um
brostnar vonir.
Ef þjóðin á sér sameiningartákn þá er það helst
forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Hann nýtur
almennra vinsælda, ekki síst vegna þess að hann
hefur engan áhuga á að vera á stalli. Hann veit að hann
er ósköp venjulegur maður sem þjóðin valdi til að
gegna háu embætti. Því sinnir hann af hógværð, hlýju
og manngæsku. Sannarlega drengur góður.
Drengur góður
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
Tilvistarkreppupakki
Þorsteinn Sæmundsson og
Brynjar Níelsson tókust á um hið
nú þegar maðkaða þrætuepli,
þriðja orkupakkann, á Bylgjunni
í gærmorgun. Þorsteini þótti
Brynjar ekki mjög sannfærandi í
áhyggjuleysi sínu af pakkanum.
Ekki frekar en í þingræðu sinni.
Þá sá Þorsteinn og heyrði „að
honum leið ekkert vel með það
sem hann var að segja þarna“.
Sem Brynjar staðfesti að vissu
leyti: „Mér líður nú oft ekki vel
þarna.“ Þorsteinn beitti einnig
golftalsmáta fyrir sig og sagði
Brynjar, sem hann vissi að væri
ekki mjög góður í golfi, og félaga
„stefna beint í bönkerinn“. Allt
rangt að mati Brynjars nema
þetta með golfið.
Óvæntir bandamenn
Þorsteinn gerði mikið úr stað-
festu Miðflokksins sem hann
sagði einan standa gegn pakk-
anum, eins og í Icesave-deilunni.
Brynjar afgreiddi það snarlega:
„Þið voruð langt frá því einir, þið
voruð ekki einu sinni til þá sko.“
Þá fékk Þorsteinn skammir frá
Ingu Sæland sem sendi þáttar-
stjórnendum skilaboð í beinni
um að Flokkur fólksins stæði
gegn pakkanum ásamt Mið-
flokknum. Þorsteinn bað Ingu
snarlega forláts á því að „tala
eins og hún sé ekki til og hún eigi
það ekki skilið. Alls ekki.“ Ingu
virðist einkar lagið að reka Mið-
flokksmenn í rogastans.
toti@frettabladid.is
1 2 . A P R Í L 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
2
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
D
-A
A
6
C
2
2
C
D
-A
9
3
0
2
2
C
D
-A
7
F
4
2
2
C
D
-A
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K