Framsókn : bændablað - samvinnublað


Framsókn : bændablað - samvinnublað - 04.04.1936, Síða 4

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 04.04.1936, Síða 4
FRAMSÓKN ötSrum mönnum. Eg held, að öllum meðlimum búna'Sarfélaga hljóti aS vera þaS kunnugt, aS frá því þaS - var ákveðiS, aS búnaSarsamböndin kysu fulltrúana á BúaSarþing, eru þaS aSeins fulltrúar kosnir af Bún- aSarfék, sem geta kosiS fulltrúann. B. H. er líklega sá eini, sem ekki veit þetta, ef hann er þá í nokkru búnaSarfél. Hann telur framkomu mína á íundinum vítaverSa. Eg kannast ekki viS þaS og skýt þeirri ásök- un hans til fundarmanna. Sjálfur tróð hann sér inn á fundinn, sem fulltrúi, án þess aS vera kosinn af nokkru búnaSarfél. til aS mæta þar. Hann hóf þar mikiS tal, sem allt var munnræpa, rógur og lygar um BúnaSarfélag íslands. Hann segir mig hafa haft mik- inn undirróSur viS kosninguna og upplýsir, aS hann hafi í höndum sönnunargögn fyrir því. Eg skora hér meS á hann, aS birta þau sönnunargögn. Eg trúi þvi ekki, aS fundarmenn láti B. H. hafa sig til þess aS skrifa undir falsvottorS. Hitt er sannanlegt, aS B. H. — og aSrir i „málaliSinu“ •— viShöfSu undirróSur, svo sem þeir framast máttu og íyrir ofurkapp þeirra, aS safna atkvæSum sér i vil, varS kosningin ólögleg og pólitísk. Eg hefi jafnan veriS á móti því, að pólitiskur reipdráttur næSi aS hafa áhrií á búnaSarfélagsskapinn i landinu. Enda hefir lítiS boriS á því allt til þessa. En á umræddum fundi má segja, aS B. H. og hans nótar riðu á vaðiS og leiddu „asn- ann inn i herbúSirnar“. Eg hefi líka jafnan litiS svo á, a'S hver og einn ætti aS neyta kosningarréttar síns eftir eigin sannfæringu og geS- j>ótta. Enda getur aldrei leitt neina blessun af því, aS láta þjóSmála- skrípi eins og B. H. ráSa atkvæS- úm annara. B. H. segir, aS umræddur fund- ur hafi veriS aSeins fyrir SuSur- Þingeyinga. Hvernig stóS þá á komu NorSurþingeyinga? Hann segir, aS eg hafi komiS meS heima- kosin atkvæSi á fundinn. En þau atkvæSi voru innsigluS aS viS- stöddum fulltrúum þeim, sem sátn aSalfund BúnaSarsamb. i suSur- sýslunni. HreyfSi þá enginn rnót- mælum gegn þeirri aSferS. Þótt þeir hinir sömu létu sér sæma, aS andmæla þessum atkvæSum á sam- eíginlega fundinum. Fordæmi um j)essa kosningaraSferS hafSi eg frá BúnaSarþingi. B. H. segir, aS eg hafi lýst því yfir á sameiginl. fund- Inum, aS kosning S. J. væri lög- •eg. ÞaS gerSi eg ekki, heldur lýsti aSeins yfir þvi, á hvern veg kosn- ingin hefSi falliS. Hann segir, aS eg hafi boSaS til kosingarinnar á síSasta fundi, til þess aS ná lcosningu sjálfur, vit- andi fyrirfram, aS kosningin yrSi ■ ilögmæt og hann segir, aS eg hafi nú undirbúning aS því, aS halda væntanlegan fund, þegar þeir, sem kjósi mig, eigi hægt rneS aS sækja íundinn, en hinir óhægt meS þaS. Eg hekl, aS maSur, sem lætur birta eftir sér þvilikar fjarstæSur og j^essar, hljóti aö sýna öllum lesend- um þaS, aS hann skilur ekki, hvern- ig beri aS halda fram málsatri'S- um og rökstySja þau. Væri hon- um því sjálfsagt betra, aS láta prenta sem fæst af þvi, sem hon- um dettur í hug. B. H. talar um hættu fyrir mig, er næst kemur aS kosningu á for- Ekkert kaffl er svo gott, ad Eandvig Dairli bæti það ekki. Ektail | kafíibceíj?! J^gRiJMERKll manni BúnaSarsamb. Þingeyinga. Eg er algerlega rólegur fyrir þeirri hættu. En hitt vildi eg leyfa mér aS benda honum á, aS hann getur sjálfur komizt í hættu, ef hann ekki lærir aS innibyrgja sinn strákslega munnsöfnuS. Því aS ekki getur hann átt þaS vist, aS konungur veiti honum náS á náS ofan. Þótt eg telji BúnaSarþingiS og búnaSarfélagsskapinn mikils virSi fyrir bændurna, hafSi eg þó alls ekki ætlaS mér aS gera kosning- aratriSi þessi aS blaSamáli. Hér á eftir verSur þess ekki varnaS. Má vera, aS fleira komi þá i dags- ljósiS. Laxamýri, 12. marz 1936. , Jón H. Þorbergsson. Þýzkaland. Á sunnudaginn var fór fram þjóðaratkvæðagreiösla í Þýzka- landi um stjórnarstefnu Hitlers í utanríkismálum. Þátttakan í atkvæðagreiðslunni var svo mikil að undrum sætir. I rikinu eru nú um 46V2 miljón kjós- enda og af þeirn greiddu 45J4 miljón með stjórninni, en Jý miljón á móti, en aðeins miljón sat hjá. Mun þessi gífur- lega þátttalca vera eins dæmi í sögunni. Frönsk blöð lialda þvi fram, að beitt liafi verið kjör- þvingun, og má vera að eitthvað sé til i því, en engu að síður er það víst, að stjórn Hitlers hefir öruggt fylgi yfirgnæfandi meiri hluta þýzku þjóðarinnar, og þessi atkvæöagreiðsla hefir styrkt hana mikið í deilunni við Frakka. Nú hefir Rihbentrop formaður þýzku sendinefndar- innar í London, aflient Eden utanríkisráðherra .. Englands svör Hitlers. Er efni þeirra á þá leið, að hann býður nágranna- ríkj unum lilutleysissamninga og lofar liinum Locarnoríkjun- um hernaðaraðstoð gegn sams- konar hjálp frá þeim, ef ráðist verður á Þýzkaland. Hann lofar að auka ekki herinn í Rínarhér- öðunum, né færa hann nær landamærum Frakklands og Belgíu. Ennfremur leggur Hitler til, að skipaður verði sérstakur dómstóll, til þess að úrskurða um öll atriði samninganna, sem deilum kunna að valda. Sennilega munu Frakkar taka þunglega móti þessum tillögum, en þó er almennt álitið, að revnt verði i lengstu lög að lcomast hjá ófriði. Stríðið. ítalir liafa enn byrjað nýja sókn á öllum vígstöðvunum. Hafa þeir gereyðilagt borgina Harrar með flugárásum. Virðist svo sem máttur Abessiniu- manna sé nú að þrotum kom- inn, enda hefir stríðið nú stað- ið í sex mánuði, og hefir vörn þeirra verið betri en búizt var við. En ekki er þess að vænta, að þeir geti staðizt stórveldið iil lengdar. Japan. Stórorusta varð nýlega á landamærum Mongólíu og Manchukuo, og segja Japanar að Mongólíumenn hafi átt upp- tökhi, en annars eru fréttir ó- ljósar. Margir óttast að þetta muni leiða til fullkomins ófrið- ar milli Japana og Rússa þegar vora tekur. Um vetrarhernað er ekki að tala á þessum slóðum vegna frosta og snjóa. Á víð ofl dreif. Bankaráðskosningin. Á fundi Landsbankanefndarinn- ar 20. f. m. vóru kosnir tveir menn í bankaráð Landsbankans í staö Jóhannesar fyrv. bæjarfógeta og Methúsalems fyrv. búnaðar- málastjóra. Komu fram 4 listar, hver frá sínum þingflokki. Var Methúsalem á lista Bændaflokks- ins, Héðinn fyrir Alþýðufk, Jónas Jónsson hjá Framsóknarfl. og Ól- afur Thors hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Vóru hinir síöustu því kosn- ir. Bændaflokkurinn á aSeins einn mann í nefndinni, Lárus Helgason fyr alþm. í Klaustri. Ekki verður séö aS vegur bank- ans vaxi viS aS fá Jónas Jónsson í ráSiS, eftir alla þá svívirSu, sem hann hefir haft í frammi viS einstaka lánþega Kreppulána- ljóSs. VerSur kosning hans aS teljast fylsta hneyksli þar sem vænta má aS friShelgi bank- ans sé þar meS rofin. Heldur verS- ur og kosning Ólafs Thórs aS telj- ast óviSfeldin, eftir því sem sakir standa til. VirSist annað meir vaka fyrir stóru flokkunum en aS auka traust bankans. Bitlingaveiðar. Jónas Jónsson er byrjaSur aS rita endurminningar sínar, og birt- ir þær í kjallara Tímans. ÁSur hafSi hann leitaS til samflokks- manna sinna, um að leggja sér liS, en fékk engar undirtektir. Þeir vissu sem var, aS ýms þau afrek, sem hann vildi soramarka sér, voru ekki hans eigin. VarS hann því sjálfur aS fara í eftirleitirnar aSstoSarlaus til aS draga saman efniviS í sinn eigin bautastein. í einum þætti ritsmiðar sinnar lýsir hann fjármálasiSgæSi sinu, og finnur þá leið eina færa aS bera síg saman viS þaS, sem hann þekkti svartast af persónulegu fjár- gróSabralli í sambandi viS lands- mál, og kemst þannig aS þeirri niSurstöSu aS hann sé undirmáls- maSur í þeirri grein. Þessi niður* staða virðist koma mjög flatt upp á J. J. því einmitt sömu dagana, sem hann birtir þessi einkamál sin, finnur hann svo ríka hvöt hjá sér til þess aS rétta hlut sinn viS bitl- ingaveiSarnar, aS hann meS of- stopa þvingar flokksbræSur sína til þess aS koma sér aS launuSu starfi viS þjóSbankann. Bitlingur þessi er uppbót á há skólastjóra- laun með endurgjaldslausri íbúð í sólarhlið Sambandshússins, rit- stjóralaun Samvinnunnar, þing- mannskaup, mentamálanefndar þóknun, endurgjaldslausar lang- dvalir á opinberan kostnað á Þing- völlum og Laugarvatni og fjár- stuðning af almannafé til árlegra utanfara. í þessum eina litla þætti er við- víkur fjármálasiSgæSi J. J. er litlu af aS dramba fyrir hann og þvi miSur þá leynir maSurinn stærð sinni á bitlingaveiöunum, og kemst á þessu sviSi fast aS því meS tærnar þar sem Jörundur úr Skál- holti hefir hælana, þegar vel er aS gáS og allt er taliS fram, sem J. J. sjálfur dregur undan í framtali sínu. Rífleg laun. Héðinn Valdimarsson (forstjóralaun o. fl. frá Olíufél. B. P., fiskimála- nefnd, skattanefnd, stjórn fisksölusamlagsins, þing- mennska o. fl.) a.m.k. kr. 32000.00 Barði Guðmundsson og frú, (þ j ó ð sk j ala varsla, menntaskólakennsla og menntamálaráS, veður- stofstörf) c. kr..........12000.00 Sig. Einarsson (kenn- araskóli, erl. fréttir út- varps og fyrirlestrar, þingmennska og ritstörf c. kr.....................14000.00 Guðbr. Magnússon (á- fengið, málaferlin (6000 kr. biti), endursk. Lands- banka og Sis, útgáfu- stjórn o. fl.) c. kr......18000.00 Sr. Sveinbjörn Högna- son, (prestur, endurskoS- un BúnaSarbanka og Kreppulánasjóðs, mjólk- ursölustjórn o. fl.) c. kr. 11000.00 Jónas Jónsson mun meS nýja bitlingnum korninn í c. kr...........20000.00 Upprunaskírteini. Sociklistabroddar Framsóknar- flokksins hafa tekiS upp á því aS kalla Bændaflokksmenn ýmist nazista eSa kommúnista. En ekki ber þeim ávalt saman um flokkun- ina. Á landsmálafundum í Austur- Húnavatnssýslu, í sumar sem leiS, fóru þeir Hriflu-Jónas og Hann- es Pálsson frá Undirfelli mjög halloka fyrjr Ágústi B. Jónssyni, bónda á Hofi. Tóku þeir þá aS Húsmæflnr! BiSjið ávait um Freyju suðusnkkDlaði. kalla hann nazista og kommún- ista! Ekki bar mikiS á milli! En hvernig er-þaS, væri þaS úr vegi, aS bændur landsins bæSu þá Jónas og Jörund aS hafa meS sér upprunaskírteini sín, þegar þeir íara í næstu trúboSs-hringferS: ura landið. Eins og kunnugt er, voru þessir menn á sínum tíma gerSir út af Jafnaöarmannaflokknum í Rvík, lil aS fleka bændur inn á jafnaSar- mannabrautir. VeiSiförin tók lang- an tíma, og var togaS meS hinní mestu slægS, svo fáa grunaSi, fyrr en innbyrSa átti vörpuna 1933 og* „halda heim“, en þá kom hiS- stóra gat á vörpuna, sem altaf er aS leka. Mun standast á endum, a& þegar veiSimennirnir koma heira með vörpuna, þá hefir hún lekiö öllu, nema hvaS hanga - munu í henni nokkur síhungruS-, reykvísk bitlingadýr, sem af taumlausrí græSgi hafa bitiS sig föst. Er vel fariS, þá veiSimennirnir fá afla viS sitt hæfi, en vert værí aS athuga, hvað okkar fátæka þjóðfélag hef- ir orSiS að blæSa mikiS í þennan útgeröarkostnaS, bæSi peninga- lega og siSferSilega, verSur þaS ef til vill gert hér síSar. x+y Ábyrgðarmaður: Jón Jónsson frá Stóradal, Bókhlöðust. 2, sími 2566. FÉLAGSPRENTSMIÐJAN

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.