Framsókn : bændablað - samvinnublað - 27.02.1937, Side 1
V. árg.
10. tbl.
Reykjavík, laugardaginn 27. febrúar 1937.
Mjólkupverdtð
og vidskifti bænéa
vid Mj ólkurstöðina
í Reykjavík.
Bændnr hafa fengið lægra ver8 síðan
mjólknrstöSin var tekia leignnámi
heldnr en ahur.
[Mjólkursamsalan í Reykjavík
hefir nýlega opinberaS reikninga
sína fyrir s. 1. ár. Hafa stjórnar-
blööin fyllst skrumi um rekstur
þessa fyrirtækis, eins og vanalega
þegar um einhverja stjórnarstofn-
un er að ræöa. — Segja þau aö
tekjuafgangur samsölunnar sé 160
þús. kr. og stöðvar- og sölukostn-
aöur ca. % af því sem var hjá
M. R. áöur.
Óþarfi mun aö taka þaö fram,
að mest af þessu skrumi eru bein
ósannindi og blekkingar, því þeim
staöreyndum verður ekki á móti
mælt, aö sölukostnaður samsölunn-
ar er nú mun hærri heldur en til-
boð M. R. og jBakarameistarafé-
lagsins hljóðaöi upp á, og að
stöðvargjaldið er nú hærra heldur
en þaö var hjá Mjólkursamlagi
Kjalarnesþings.
Framsókn mun ekki að svo
stöddu gera þessa reikninga Sam-
sölunnar að frekara umtalsefni, en
bírtir hér grein eftir Þorstein
bónda Sfcefánsson, sem talar skýr-
ara máli um þær „hagsbætur",
sem bændur hafa haft af skipu-
lagningunni og leigunámi mjólk-
urstöðvarinnar í Reykjavík].
Sennilegt má teljast aö mönn-
nm þyki fróðlegt að fá að vita
gleggri skil um framkvæmd
injólkursölulaganna, og verðið
sem framl. fá fyrir mjólk-
ina, en upphrópanir stjórnar-
flokkanna í blöðum og útvarpi
Um ágætið á skipulagningu af-
urðasölunnar, og um þá vel-
megun, sem mjólkursölulögin
eiga að hafa fært bændunum.
Eg hefi litið yfir viðskifti mín
við mjólkurstöðina í Reykjavík,
síðan hún var tekin leigunámi
hinn 12. júli f. á., til þess að
aðgæta hvernig þetta kæmi
heim við reynsluna.
Á reikningunum frá stöðinni
er mjólkurlítrinn 26,8 aurar til
innleggs. En svo kemur hin hlið
reikningsins, „úttekið“; fer þá
heldur að halla á viðskiftaman-
inn. Það er hvorki meira né
minna en 2,24 aurar á lítra, sem
sá frádráttur nemur á allri
mjólk minni til jafnaðar frá 12.
júli til 31. des. f. ár.
Mestur er þessi frádráttur
undir þeim lið , sem kallast
„vinnsluafföll og kostnaður“.
Hvað vinnsluafföllin eru, hefir
maður fengið að vita, en hver
þessi nýi „kostnaður“ er, sem
þarna er dreginn frá, er mér
ókunnugt um.
Væri fróðlegt að fá að vita
hver hann er.
Það er svo að sjá, sem
stjórnendum mjólkurstöðvar-
innar hafi ekki verið það ljóst
í byrjun, að hún ætti þarna
hönk upp i bakið á mjólkur-
framleiðendum, því við upp-
gjörið fyrir júlímánuð er þessi
póstur ekki til, og á reiknings-
eyðublöðunum, sem eru prent-
uð, er ekki gert ráð fjæir þess-
um frádrætti; honum er slett
á reikninginn með vinnsluaf-
föllum — slengt saman við þau,
og þannig falið hver hann er og
hversu mikill.
Á reikningnum fyrir júlímán-
uð eru aðeins tilfærð vinnsluaf-
föll en enginn kostnaður.
Vinnsluafföllin eru þá 1 eyrir
á lítra, en auðsjáanlega hefir
liin nýja stjórn mjólkurstöðvar-
innar ætlað að sýna yfirburði
yfir þá stjórn, sem fór með
stöðina meðan Mjólkursamlag
Kjalarnessþings rak hana. En
þetta stendur ekki lengi, því
bakreikningur kemur með á-
gúst-uppgjörinu. „Vinnsluafföll
og kostnaður vantalið i júli 2
aurar á lítra“. En í ágúst eru
vinnsluafföll og „kostnaður“ 3
aurar.
September til nóvember eru
lítil vinnsluafföll og kostnaður,
enda mun alla þá mánuði hafa
þurft að flytja mjólk austan yf-
ir fjall, til þess að fullnægja
mjólkurþörfinni. 1 desember
mun mjög lítið af mjólk hafa
farið í vinnslu, en samt eru
vinnsluafföll og „kostnaður“ þó
1,4 aurar.
Frá 12. júlí til ársloka 1936
fæ eg meðalverð fyrir mjólk •
ina 24,56 aura fyrir lítra. Með-
alfita þessarar mjólkur var
3,69%. Á sama tíma fékk eg ár-
ið áður sem næst 25,5 aura fyrir
lítra.
Taki menn nú eftir:
„Mjólkurfélag Reykjavikur
og Mjólkursamlag Kjalarnes-
þings græða óhæfilega mikið —
arðræna mjólkurframleiðendur
— á því að taka 3 aura í stöðv-
argjald á lítra“, sögðu sljómar-
sinnar.
„Til þess að leysa framleið-
endur frá þessu „arðráni“ er
mjólkurstöðin tekin leigunámi,
og stöðvargjaldið fært niður í
2,2 aura.“ j
En það merkilega fyrirbrigði
á sér nú stað samhiiða, að í stað
þess að framleiðendur fái nú 0,8
aurum m e i r a fyrir hvem lítra
mjólkur, fá þeir nú fullkomlega
þessari upphæð, eða 0,94 aur-
um, m i n n a fyrir hvern lítra.
Eg geng út frá að hafa feng-
ið skyr heimsent úr þeim hluta
mjólkur minnar, sem skilinn
hefir verið til vinnslu og rjóma-
sölu; eru það eftir skyrmagn-
inu sem næst 8,21% af mjólk-
inni þann tíma, sem hér um
ræðir. Það eru þá 6,6 aurar
sem mjólkurstöðin borgar fyrir
þá mjólk. Er það alveg furðu-
lega lítið, sérstaklega þegar tek-
ið er tillit til þess, að ætla má
að talsvert hafi verið selt af
rjóma úr þessari mjólk.
Hvar mun slík útkoma vera
í vinnslubúum?
Meðan framkvæmd mjólkur-
sölulaganna er með þessum
hætti, og bændur fá ekki fram-
leiðsluverð fyrir mjólkina er
engin von til að þeir sem við
þetta eiga að búa séu ánægðir.
Lögunum var ætlað að vera
bændum til ávinnings, og sam-
kvæmt 9. gr. reglugerðar um
framleiðslu, meðferð og sölu
mjólkur og rjóma o. fl. er bein-
linis tekið fram, að útsöluverð
mjólkurinnar eigi að miða við
framleiðslukostnað hennar, og
kostnað við. meðferð hennar og
sölu.
Framkvæmdin er á þann hátt
að framleiðendur eru sviftir öll-
um umráðum og íhlutun um
verðið.
Það er einróma álit þeirra
bænda hér í Kjalarnesþingi, sem
opinberlega hafa gert mjólkur-
verðið að umtalsefni, að kostn-
aðarverð mjólkurinnar sé all-
mikið hærra en það, sem bænd-
ur fá, og meðan engin tilraun
SB8SHBB
1933-
I.
Það sem stjórnarliðar hæla
sér og stjórn sinni mest fyrir,
og þreytast aldrei á að endur-
taka er það, að náðst hefir liag-
stæður viðskiftajöfnuður við út-
lönd árið 1936. —
Hér um bil helmingur af f jár-
lagaræðunni á þriðjudaginn var
fjallaði um árangur innflutn-
ingshaftanna á síðastliðnu ári,
— hvernig þau hefðu bjargað
viðskiftum landsmanna og f jár-
málalegu áliti þeirra erlendis.
Það var svo að heyra á fjár-
málaráðherra að hann héldi, að
það hafi aldrei áður þekkst í
viðskiptasögu landsins, að verzl-
unarjöfnuðurinn hafi verið
liagstæður — jafnvel í vondum
árum.
Innflutningshöft eru nauð-
synleg til að koma i veg fyrir
of mikinn innflutning óþarfa,
og eigi síður til hins að beina
verzluninni til þeirra þjóða sem
kaupa afurðir vorar.
En núverandi stjórn hefir
ekki af eins mildu að gorta í
þessu efni eins og hún heldur
fram sjálf.
Til þess að koma flokks-
mönnum ráðherrans til þekk-
ingar á sannleikanum i þessu
efni, skal hér gerður dálítill
samanburður á viðskiftajöfnuð-
inum við útlönd í tíð fyrverandi
stjórnar (samsteypustjórnar-
innar) og þeirrar núverandi.
II.
Þegar fyrverandi stjórn tók
við völdum í júní 1932, var þjóð-
in stödd í öldudal kreppunnar.
er gerð til að sýna að það sé
ekki rétt, verður gengið út frá
að það sé svo.
, All mikil verðhækkun hefir
nú orðið á flestum nauðsynja-
vörum, og má búast við að hún
fari vaxandi. Það er því tvöföld
nauðsyn, að framleiðendur fái
liærra mjólkurverð en þeir fá
nú. Æskilegast er að það fáist
með því að minka dreifingar-
kostnaðinn. Og mjólkurstöðin
verður að gera framleiðendum
fulla grein fyrir hverjum pen-
ing sem hún tekur af mjólk-
inni í vinnslu og dreifingar-
kostnað í stað þess að fela
kostnaðinn með óskýrri reikn-
ingsfærslu.
Setbergi 15. febr. 1937.
Þorsteinn Stefánsson.
1936.
— Verð á öllum útflutnings-
vörum landsmanna hafði stór-
lækkað undanfarið, og við lá að
sumar væru óseljanlegar. Þann-
ig var t. d. lcjötmarkaðurinn
raunverulega lokaður i Noregi
og Rretlandi, og ekki var úllitið
hjartara um sölu sjávarafurða,
þar sem verð á saltfiski var
komið niður undir 50 kr, skip-
pundið.
En fyrir ötult starf og ár-
vekni samsteypustjórnarinnar
og samningalipurð þeirra
manna, sem hún sendi á fund
viðskiptaþjóðanna tókst eigi að
síður að opna kjötmarkaðinn
aftur í Noregi og Bretlandi þó
verðlágur væri, og með aðstoð
Fisksölusamlagsins, sem þá var
stofnað, tókst að hækka að mun
fiskverðið aftur. ,
Þrátt fyrir hið dimma útlit
þegar samsteypustjórnin tók við
völdum tókst henni með hygg-
indum og sterkum átökum í ut-
anrikisverzluninni, að koma
henni í það horf, að strax á ár-
inu 1932 varð verzlunarjöfnuð-
urinn hagstæður um ca. 10,5
miljónir króna.
En hag þjóðarinnar gagnvart
útlöndum má ekki einungis
dæma eftir skýrslum hagstof-
unnar um verzlunarjöfnuðinn.
Þar verður líka að taka tillit til
skulda bankanna við útlönd.
Og þær lækkuðu á árinu 1932
um ca. 1,6 millj. kr. En til sam-
anburðar má nefna það, að á s.
1. ári muni skuldir bankanna
hafa hækkað um hátt á 2. mill-
jón króna.
Þannig stenst þá núverandi
stjórn samanburðinn við fyr-
verandi stjórn að þvi leyti, sem
tekur til ársins 1932, en í júní
það ár tók samsteypustjórnin
fyrri við völdum. Hún hafði
því ekki stjórnina á hendi
nema tæplega hehninginn af
þvi ári, og er því varla réttmætt
að taka það til samanburðar að
öllu leyti.
III.
En nú skal vikið að afkom-
unni á þvi ári, sem dæma skal
fyrverandi stjórn eftir, en það
er 1933.
Árið 1933 er eina heila árið,
sem samsteypustjórnin fyrri
var við völd. Það er því eina
árið, sem hægt er að meta störf
hennar réttilega eftir, og bera
þau saman við verk annara
stjórna. En þetta ár samsteypu-