Framsókn : bændablað - samvinnublað - 18.06.1938, Síða 1

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 18.06.1938, Síða 1
Reykjavík, laugardaginn 18. júní 1938. VI. árg. Rlkisbðskapariim á Víflls- stöfloa og Kleppi. Démur reynslunnar. I. Rikisstjórnin og gæðingar liennar hafa gripið hvert tæki- færi til að reyna að sannfæra sjálfa sig og aðra um það, að bændur fái kappnóg verð fyrir þær söluvörur landbúnaðarins, sem rikisstjórnin hefir, til þjónkunar við sósíalismann, hrifsað söluumráðin yfir úr höndum þeirra. Ætla mætti að þessar fullyrð- ingar styddust við reynsluna á búskap ríkisins sjálfs og þeirri kynningu og reynslu, sem ríkis- stjórnin hefir af honum. Ekki hefir því þó verið haldið fram, heldur bornar fram tómar raka- lausar staðhæfingar. Hvernig reynslan og hið raunverulega ástand búskapar- ins er á tveimur rikisbúunum, Vífilsstöðum og Kleppi, verður hér nokkuð lýst með orðum Stefáns í Fagraskógi, er hann flutti við eldhúsumræður á Al- þingi. II. Á Vífilsstöðum er allstór bú- rekstur. 'í’únið gefur af sér um 2 þúsund hesta, og þar munu vera 40—50 kýr. Búið er nær eingöngu rekið sem kúabú. Bú- ið er undir stjórn manns, er af framsóknarmönnum er talinn gæddur óvenjuiegum liæfileik- um til bústjórnar. Skyldu menn því að óreyndu eigi draga i efa, að húreksturinn undir hand- leiðslu slíks manns sé til fyrir- myndar. Árið 1937 var seld mjólk frá búinu fyrir tæplega 34 þús. kr. En auk þess voru nokkrar aðrar tekjur, og námu tekjurnar alls kr. 41 þús. 519,33. t’Jtgjöld búsins voru kr. 45 þús. 619,46, og var því reksturshall- inn kr. 4,100.13. Þess skal getið, að þegar talað er um reksturs- hagnað eða reksturshalla ríkis- búanna, eru eigi reiknaðir með vextir af því fé, sem bundið er í búrekstrinum, nema þess sé sér- staklega getið. Heyskapur er hér svo fljót- tekinn og ódýr sem frekast má verða, þar sem allt það land er véltækt, sem heyja er aflað á. Því miður munu þær jarðir teljandi i landinu, þar sem heyja er einvörðungu aflað á véltæku landi. Væri slíkt al- mennt, mundi afkoma bænda betri en hún er. Fyrir hvern lítra mjólkur fær búið við f jósdyr 28 aura. Mun það vera, að minsta kosti, % hærra en verð það er til jafnað- ar, sem bændur fá í mjólkurbú- um. Hér er því svo ástatt um heyöflun og mjólkurverð, sem bezt má verða. En þrátt fyrir þessi einsjöku hlunnindi, og þrátt fyrir það þótt engir vextir séu reiknaðir af fé því, sem bundið er í búinu er rekstrar- halli árið 1937 kr. 4100,13. Væri nú leiga reiknuð af matsverði jarðar og bús, en það mun vera um 30 þús. kr. og 6% vextir af röskelga 20. þús. kr. rekstrar- láni við ríkissjóð, þá ykjust hin raunverulegu útgjöld húsins um kr. 6400.00. Og því er hinn raunverulegi rekstrarhalli að þeim lið meðtöldum kr. 10 þús. 500,13. Ef nú búið hefði aðeins fengið 18,66 aura, heim, fyrir hvern litra mjólkur, en láta mun nærri, að það sé meðalverð til mjólkurframleiðenda frá mjólkurbúunum, þá hefðu tekj- ur búsins lækkað um kr. 11 þús. 347,67. Og þá er rekstrartapið orðið kr. 21 þús. 847,80. Þetta er nú sýnishorn af þeim bú- rekstri er Sósar, Komm. og hin rauða sveit Framsóknar vill að verði upptekin hér á landi. Stjórnarflokkarnir hafa gert sér mikið far um að gera lítið úr þeim nefndum og þeim ein- staklingum, er reynt hafa að reikna út framleiðsluverð á af- urðum bænda, og jafnan talið framleiðsulverð of liátt reiknað. Menn skyldu þvi halda, að á ríkishúunum væri framleiðslu- verð landbúnaðarafurða mjög lágt, og við það miðuðu stjórn- arflokkarnir þessar aðfinnslur sínar. En reynslan er sú, að framleiðsluverð er hvergi hærra en i ríkisbúunum. T. d. hefði húið á Vífilsstöðum þurft að fá 37 aura fyrir hvern lítra mjólk- ur, ef búrekstuirnn hefði átt að hera sig s. 1. ár. Er þess þvi að vænta, að hin auma afkoma rík- isbúanna kenni þessum herrum framvegis að taka með sarin- girni réttmætum kröfum bænda um framleiðsluverð. Allur heilbrigður búrekstur hlýtur að verða að svara vöxt- um af því fé, sem bundið er í jörð og búi og það án tillits til þess, hvort þessar eignir eru i skuld eða eigi. Virðast þessir vextir eða leiga eigi geta verið minna en 4% af matsverði jarðar og bústofns. Þegar bændur eiga jarðir sín- ar og bú skuldlaust, ,getur allt bjargast, þótt þeir eigi fái leigu eða vexti af þessari eign sinni. En slíkur búrekstur ber sig eigi, og tæplega hægt að búast við því að bændur uni því að fá enga vexti af þvi fé, sem bundið er í framleiðslunni. Hversu myndu sparifjáreigendur una því að fá enga vexti af inneign- um sínum? Bændur og aðrir framleiðendur eiga sömu kröfu og þeir til vaxta af því fé, sem bundið er í framleiðslunni, og æftu í raun og veru að fá hærri vexti vegna þeirrar áhættu, sem alltaf er bundin við framleiðsl- una. Því aðeins að framleiðslan geti svarað þessum vöxtum, er hún heilbrigð; annars ber hún sig ekki og hlýtur að falla í mola fyrr eða seinna. Séu nú aftur á móti jörðin og búið í skuld, að einhverju eða öllu leyti, — en svo mun það þvi miður vera hjá flestum bænd- um —- hljóta þeir að komast í fjárþrot, gefi búið eigi það af sér, að þeir a. m. k. geti svarað vöxtum af skuldum. Hversu hefði nú farið um búskap skuld- ugra bænda hefði hann hlut- fallslega borið sig jafnilla og húreksturinn á Vífilsstöðum hefir borið sig á undanförnum árum, hvort heldur mjólkin er reiknuð því verði, sem búið i raun og veru fær, 28 aura fyrir lítra, eða sem næst meðalverði, er bændur munu fá greitt frá mjólkurbúunum, 18,66 aura fyrir lítra? Því er fljótsvarað. Þeir væru komnir á hausinn með tölu. — — — Svipað er að segja um rekst- ur ng afkomu búsins á Kleppi. Árið 1937 var tap á því kr. 2062,97, og eru þá eigi fremur en á Vífilsstöðum reiknaðir vextir af því fé, sem bundið er í búinu. En það skuldar ríkis- sjóði kr. 142 þús. 229,68. Séu nú reiknaðir 6% vextir af þeirri upphæð, nema þeir kr. 8533,78; og verður því hinn raunverulegi rekstrarhalli búsins kr 10596,75. Ef nú mjólkurverðið á Kleppi væri reikn. 18.66 au. fyrir litr- ann, í stað 28 aura, eykst tap- reksturinn um kr. 7 þús. og þar með rekstrarhallinn upp i kr. 17596,75. Af þessu verður það séð, að hafi hæstv. fjmrh. byggt dóm sinn um stórbættan hag bænda á reksti ríkisbúanna undanfarin ár, hefði dómurinn átt að vera gagnstæður, eða að ósambæri- legt væri, hvað hagur bænda væri verri en áður. Bændur í nærsveitum Reykja- víkur liafa talið sig þurfa að fá 28 aura nettó fyrir hvern lítra mjólkur, ef þeir ættu að geta rekið bú sín á heilbrigðum grundvelli, — ætti húreksturinn að bera sig og þeir að geta svar- að sköttum og skyldum. Fyrir sama mjólkurverð og ríkisbúin í nágrenni við þá telja bændur sig þess megnuga að greiða alla skatta og skyldur, þar með tald- ir vextir og afborganir skulda, og er það meira en sagt verður um ríkisbúin, svo sem eg hefi áður getið. Bú bænda eru þvi rekin á hagkvæmari hátt og ó- dýrari en ríkisbúin, þrátt fyrir verri skilyrði að ýmsu leyti. Sýnir þetta það, að opinber bú- rekstur þolir eigi samanburð og stenst eigi í samkepninni við einkarekstur, séu aðstæður hin- ar sömu eða svipaðar. Nú fá bændur i nærsveitum Reykja- víkur 22—23 aura heim fyrir hvern lítra mjólkur. Samkvæmt framangreindu geta þeiri eigi rekið hú sín með því mjólkur- verði. Og sé þetta verðlag borið saman við rekstur ríkisbúanna, er fá 28 aura fyrir hvern mjólk- urlítra, þarf slíkt ekki að þykja undarlegt. Bændur þessir búa á mjög dýrum jörðum. Verð þeirra ákveðst af legu þeirra og Irinum góðu skilyrðum, er ábú- endur liöfðu til mjólkursölu í höfuðborginni meðan markaður var frjáls. Vegna opinberra ráð- stafana- mjólkurl., sem voru nauðsynleg, verður ríkið þess ó- beinlínis valdandi, að bændur þessir verða vanskilamenn, vegna þess að þeir eru sviptir hinu liáa verði, er þeir vegna legu jarðanna höfðu aðstöðu til að fá, meðan mjólkurmarkað- urinn var frjáls. Það sem er mjög áberandi þá athugaður er rekstur ríkisbú- anna, er hið geysiháa kaup- gjald, sem þar er greitt. Væri ánægjulegt, ef bændur gætu greitt sér og sínum og öðrum, er að búrekstri þeirra vinna, slíkt kaup. Bústjórar búanna 13. tbl. hafa kr. 3000 og 3420 kr. í kaup, auk húsnæðis og fæðis. Vinnumenn komast upp í 1854 kr., og vinnukonur upp i 838 kr. Hvenær mun búskapur á ís- landi geta greitt sliktkaupgjald? j Því miður mun það eiga langt ) í land. Og sízt mun þess kostur \ um opinberan búrekstur, eigi hann að bera sig. Mannahald á Vífilsstöðum svarar til þess, að þar hafi verið árið 1937 10 árs- menn, sé bústjóri og yfirfjósa- maður meðtaldir, og 3 ársstúlk- ur. Greitt kaup var kr. 18959,85. Slíkt kaupgjald og mannahald á húi, sem nær eingöngu er kúa- bú með 40—50 kýr, það er furðulegt. Af því, ,sem eg nú hefi sagt, má ráða það: 1) Að allur búrekstur hér er miklum erfiðleikum bundinn, þar sem ríkisbúskapurinn á Víf- i ilsstöðum og Kleppi, þrátt fyrir i ágæt skilyrði og þriðjungihærra mjólkurverð en framleiðendur fá til jafnaðar í mjólkurbúun- um, eigi hafa getað þrjú undan- j farin ár svarað einum einasta 1 eyri í vexti af þvi fé, sem bundið er í búunum, þá tekin er jöfn- uður allra áranna. 2) Að bændur i nágrenni Reykjavíkur geta rekið heilbrigðan búrekstur, sem meðal annars svari vöxtum og afborgunum af því fé, sem bundið er i jörð og búi, fái þeir sama verð fyrir hvern lítra mjólkur og greitt er i ríkisbúun- um. 3) Að einkarekstur á bú- skap er liagkvæmari og ódýrari en opinber rekstur, séu skilyrði svipuð eða hin sömu. 4) Að ef svo hefði gengið undanfarið um húrekstur bænda sem um ríkisbúin, væru allir skuldugir bændur með öllu fjárþrota. En þeir bændur, er átt hafa jarðir sínar og bú skuldlaust, hefðu engan arð fengið af þessum eignum sín- um. 5) Að allur búskapur er dauðadæmdur i framtíðinni, ef eigi tekst að reka hann með betri árangri og arðvænlegri af- komu en orðið hefir til jafnaðar 3 s. 1. ár á ríkisbúunum Vífils- stöðum og Iíleppi. Enda þótt afkoma ríkisbú- anna árið 1937 liafi orðið svo aum sem ég nú hefi lýst, þá mun afkorna bænda það ár hafa orðið nokkru skárri en undan- farið. Og byggist það fyrst og fremst — ef ekki eingöngu — á auknu afurðaverði á ull og gær- um. En þessi hækkun verðlags-

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.