Framsókn : bændablað - samvinnublað - 18.06.1938, Síða 3

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 18.06.1938, Síða 3
FRAMSÓKN Austurlönd. í Austurlöndum er mikil ó- kyrð nú sem stendur. Stríðið í Kína heldur sífellt áfram, án þes að nokkrir úrslitasigrar séu unnir. Optast veitir Japönutn betur á vígvellinum, en þó hafa þeir ekki getað ráðið niðurlög- um Kinverja. En Japanar hafa hér einnig annan leik á horði. Auk þess, sem þeir berja á Kín'verjum, hafa þeir einnig byrjað á stór- kostlegri áróðursstarfsemi gegn þjóðum Norðurálfunnar. Yirð- ist það vera tilgangur þeirra, að sameina allar mongólskar þjóð- ir í baráttu gegn yfirráðum hvitra manna. En það er ekki að eins í Kina, sem öldurnar rísa hátt. Þær eru ekki síður merldlegar iiinar miklu hreyfingar, sem nú eiga sér stað í löndum þeim i Asiu, er Englendingar ráða yfir. Þess- ar hreyfingar eru fyrst og fremst tvennskonar. Er þá fyrst að nefna andstöðu Hindúa til Englandinga. Þessi hreyfing, sem Gandhi hefur einkum vak- ið, hefur sífellt farið vaxandi, en miklu hættulegri er þó hin mikla trúarvakning Múhameðs- manna, sem nú fer eins og logi yfir rein, um öll Austurlönd. Vér Norðurálfumenn eigum erfitt með að skilja trúarlif Mú- hameðsmanna. En þess ber að gæta, að fyrsta skylda þeirra er að berjast fyrir trú sina, og ör- uggasta vissan um að hljóta ei- lifa sælu er að láta lífið fyrir hana. Það er því ekld að furða, þótt Múhameðsmenn séu víg- glaðir og gangi öruggir út í har- daga fyrir trú sina. Nú er verið að hoða heilagt stríð gegn Norðurálfumönnum, og þá vitanlega fyrst og fremst gegn Englendingum, og þó að ekki hafi enn brotist út allsherj- arstríð, þá hafa sífelt orðið smá- uppreisnir og bardagar, sem eru næsta hættulegir Englending- um. Er það margra manna álit, að nú fari að styttast í yfirráð- um Evrópumanna í Austurlönd- um. Asíumenn liafa hka fengið góða lærifeður, þar sem eru Mustafa Kernal í Tyrklandi og Riza Shah í Persíu. Þeir hafa sýnt, að þeir gátu hrifið þjóðir sinar úr kúgun og niðurlægingu og hafið þær til vegs og valda, gegn eindregnum vilja flesfa-a stórþj óða Norðurálfunnar. Virð- ing stórveldanna er óðum að þverra í Austurlöndum. Hafnarstræti 18, selur með sértöku tæki- ; færisverði ) ný og notud hiis- í gögn og lítið not- ) aða karlm.fatnaöi. (( I) ______________________!í i y P Elín Briem. | Elín Briem lézt 4. des. síðastl. Hún var sú kona, er einna niest- an skerf hefir lagt fram til menn- ingar íslenzkra sveitakvenna og er því skylt a8 minnast hennar hér i þessu málgagni sveitanna. Elín Briem er fædd aö Espihóli í Eyjafiröi 19. okt. 1856, tvíburi viö Pál amtmann. Foreldrar voru Eggert sýslumaöur Briem og kona hans Ingibjörg Eiríksdóttir sýslu- m. Sverrissonar. Er ættin svo merk og þjóökunn, að óþarfi er að rekja. E. Br. ólst upp með foreldrum sínum að Espihóli og síðar aö Hjaltastöðum og Reynistað í Skagafiröi. Reynistaðarsystkin voru mörg cg annáluð fyrir atgerfi, enda uröu þau flest þjóökunn. Búskapurinn á Reynistaö, var með miklum myndarbrag. Voru 20—30 manns í heimili og margt gangandi fjár. Heima í föðurgarði naut Elín miklu meiri bóklegrar kennslu hjá eldri bræðrum sínum o. fl. en þá var títt, jafnvel um dætur heldri manna. En svo var hún bráðþroska, að 18 ára gömul tók hún að sér kennslu og forstöðu kvennaskóla Skagfirðinga, að Flugumýri. — Þætti það mikið i ráðist nú á dög- um um svo unga konu og mun hún hafa gert það fyrir áeggjan Krist- ínar systur sinnar, forgöngukonu kvennaskólamáls Skagfirðinga, er cg átti fyrstu hugmyndina að stofnun bændaskóla að Hólum í Hjaltadal, áð því er Þorvaldur Arason á Víðimýri hefir sagt. Árið 1880 varð E. Br. kennslu- kona við Kvennaskóla Húnvetn- inga að Lækjamóti í Víðidal, sem þá var nýstofnaður (1879), mest fyrir forgöngu Björns síðar alþm. á Kornsá. „Var það skólanum hið mesta happ, því E. Br. hafði heit- an áhuga á skólamálum og kennslu og auk þess óvanlega góða mennt- un bæði bóklega og verklega", segir Björn í minningargrein. Árið eftir sigldi Elín og lauk kennaraprófi í Höfn (frk. Zahle skóla). Skólanum heima sendi hún þá kennsluáhöld. Kvennaskóli Skagf. var ’sam- einaður skóla Húnvetninga 1883, er þá festi kaup á timburhúsi með túni á Ytriey, er reist hafði Arn- ór Árnason, og fékk þá fastan samastað eftir 4 ára hrakning. Var Elín nú komin úr utanför- inni og varð að ráði að fela henni forstöðu skólans og að móta hann. \Tar hún sjálfkjörin til starfsins, því að hjá henni fóru saman vits- munir, viðtæk og hagkvæm þekk- ing, mannkostir og frábær alúð og áhugi, enda tókst henni að koma þeim myndarbrag á starf skólans og vinna honum þá hylli, að hann var sóttur úr öllum áttum. Einni af merkustu konum í Húnavatnssýslu farast svo orð í bréfi: .... „Eg man vel eftir öllu fyr- irkomulagi þar, hvað það var af- skaplega gott og reglubundið, og hvaða feikna áherslu Elín lagði á að stúlkurnar hefðu af kennslunni Kaupið Glugga, hurðir og lista — hjá stærstu timburverslun og ---trésmiðju landsins- ---Hvergi betra verð.- Kaupið gott efni og góða vinnu. Þegar húsin fara að eldast mun koma í ijós, að það margborgar sig. — Timbupvepslanin Vdlundup li.f. REYKJAVÍK. þau fyllstu not, sem námshæfileik- ar þeirra leyfðu. Kennslukonurnar voru og undir hennar stranga eft- irliti þó góðar væru, og ef einhver stúlkan heltist úr lestinni, og var að verða aftur úr, þá tók hún við stjórninni, fór þá kannske sjálf að kenna henni; sérstaklega man eg eítir 2 stúlkum, sem voru svo ein- rænar og undarlegar, að það mátti heita, að þær lærðu sér ekkert til gagns, en brá alveg við, er hún fór að kenna þeim og laga á allan hátt. Það var ekki heiglum ihent, að halda skóla með 45 manns í iheim- ili (við vorum, 39 nemarnir) í öðr- um eins húsakynnum og þá voru á Ey. Haustið sem eg var þar var bætt við stofu og svefnherbergi banda kennslukonunum með svefnlofti npp yfir og í þvi her- bergi sváfum við 14 alian vetur- inn, tvær í hverju rúmi; upphitun auðvitað engin, nema í kennslu- stofunum og frammi hjá kennslu- konunum og það veit hamingjan, að heilsufarið mátti heita gott; auðvitað stundum einhver lasleiki, en aldrei þurfti þar á lækni að halda allan þann vetur og allar fórum við þaðan um vorið glaðar og heilbrigðar. Þá var búið í gamla bænum fyrir utan ána og bóndinn átti að sjá um allan mó- inn, en kolin og allt annað átti Elín undir dánumennsku. skóla- nefndarinnar og alla aðflutninga, sem gengu nú oft heldur erfiðlega, sem von var, þegar þurfti nú að sækja til Blönduóss yfir Blöndu óbrúaða, eitthvað var nú víst sótt til Skagastrandar. Bóklegu tímarnir byrjuðu kl. 8, morgunmatur kl. 10 og kl. 11 til 3 saumatími, og eftir miðdagsverð lesið undir morgundaginn. en þær stúlkur, sem minna þurftu að lesa saumuðu þá eitthvað smávegis í höndunum og máttu, er þær vildu, koma rneð það til kennslukvenn- anna til ef'tirlits. Húslestur var á hverju kvöldi og ljósin slökt kl. 11 og þó um leið leit Elín eftir eldinum, hvort öllu væri óhætt með hann, og aldrei kom neitt að sök með það, og hefir þó að lík- indtun ekki verið sem tryggastur umbúnaður, eftir því sem nú ger- ist, og aldrei dó nokkur stúlka í skólanum meðan hann var á Ey. Námsmeyjar unnu öll slátur- störf um haustið, allt með eftir- liti Elínar sjálfrar. í eldhúsiíiu var hver stúlka hálfan mánuð, tvær og tvær saman með aðalelda- konunni,' og aðrar tvær „í stof- unni“, sem kallað var, að halda hreinu húsinu, nema það sem til kennslukvennanna kom,þær höfðu sína þjónustustúlku, sem einnig hugsaði um alla gesti. Það var kenndur söngur og það var kennt að spila á orgel, sérstaklega sálma- lögin, og það vissi eg til, að þær sem eitthvað höfðu orið það við áður og þroskaðastar voru, urðu crganistar í kirkjum, þegar heim kom. Á hverju sunnudagskveldi var dansað. Aldrei var nokkur karlmaður á dansinum, ekki eitt einasta skifti, og þætti það! klaust- urlifnaður nú, en þetta þótti góð skemmtun og alltaf man eg hvað jólafríið var skemmtilegt. Nóg var til skemmtunar. Það voru leiknir smáleikir og dansað; það voru sagðar sögur og hver sagði stað- háttu og venjur úr sínu héraði og frá sínum heimilum og fl. o. fl., og aldrei þann vetur var nokkur óánægja, og aldrei man eg til að Elín skifti skapi með öllum henn- ar miklu umsvifum, og þó var lundin stór og ör, en það er það sannasta sem eg hefi heyrt, það sem haft er eftir sr. Eggert á Höskuldsstöðum, að hún stjórnaði öllu, án þess að maður vissi af, svo var hún yfirlætislaus, og eins og jafningi og vinkona allra náms- meyja, um leið og hún hafði allt ráð þeirra í hendi sér og fyllsta traust; hún var held eg að skap- gerð allri alveg eins og Páll bróð- ir hennar, sömu fljótskörpu gáf- urnar og snarræðið, 0g áhuginn að koma allstaðar að einhverju góðum áhrifum. Þessi ' bréfkafli er ágæt lýs- ing á skólanum á Ytriey og fagur vitnisburður um áhrif hans undir stjórn frú E. Briem. Eg sá hana í sumar og kom oft Eg sá hana í sumar og kom oft heim til hennar; þá var heilsan á þrotum, en þó bar hún ellina svo vel, enn var hún beinvaxin og tíguleg, sami glampinn í augunum eins og í gamla daga og yfirbragð- ið, eg segi eins og sagt var um eina drottninguna, „það var bæði tignarlegt og blítt“. Elín Briem giftist cand. Sæ- mundi Eyjólfssyni 1985, en naut hans aðeins rúmt ár. Er Ytrieyjar- skólinn fluttist til Blönduóss 190! varð hún forstöðukona hans í tvö ár, en giftist þá á ný Stefáni Jóns- syni kaupm. Er hún misti hann, varð hún enn forstöðukona á Blönduósi, frá 1912—15. Alls var hún við skóla Húnvetninga í 18 ár. Það hefði nú mörgum virst ær- ið verk, að stjórna skólanum með slíkum myndarskap, en Elín Briem vildi ná til fleiri kvenna, en skóla- stúlknanna á Ytriey með lærdóm sinn og áhrif. Árið 1888 réðst Elín Briem í að semja einskonar handbók handa búsfreyjum, Kvennafræðarann. Er það mikið rit með fyrirsögn um umgengni á heimilum, allskonar matartilbúningi, hii'ðing fatnaðar og herbergja, ásamt ítarlegum hugvekjum um þrifnað, loftræst- ing og gæslu á eigin efnahag. Nútíminn fær alls ekki gert sér ljóst hvílíkur viðburður slík bók var á þeim tíma. Hafa fáar bæk- ur verið húsfreyjum kærari og þarfari en Kvennafræðarinn. Út- koma hans er því stórmerkur við- burður í lífi sveitafólksins og verð- ur seint ofmetinn, því ennþá er Kvennafræðarinn iðulega notaður á fjöhnörgum sveitaheimilum, og áhrif hans bein og óbein eru meir en margan grunar, enda hefir bókin komið út í 4 iitgáfum. Þá er þess að geta, að E. Br. var aðal-frumkvöðull og stofnandi Húsmæðraskólans, sem starfaði hér í Reykjavík í mörg ár upp úr aldamótunum. Af því sem sagt hefir verið, má! það ljóst vera hvílíkt feykiverk’ frú E. Br. hefir unnið í þágu ís- lenzkra kvenna, einkum þeirra er í sveitum búa. Verðskuldar hún því óskipta þökk þeirra 0g alþjóðár. Jón í Stóradal.

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.