Framsókn : bændablað - samvinnublað - 23.09.1941, Síða 4

Framsókn : bændablað - samvinnublað - 23.09.1941, Síða 4
FRAMSÓKN Tilkynning frá ríkisstj órninni. Brezka flotastjórnin hefir tilkynnt íslenzku ríkisstjórninni að nauðsynlegt sé að öll íslenzk skip, 10 til 750 smál. að stærð, fái endurnýjuð eins fljótt og hægt er ferðaskírteini þau, sem um ræðir i tilkynningu ríkisstjórnarinnar dags. 7. marz 1941. Skírteini þessi fást hjá brezku flotastjórninni i Reykjavík, Akureyri, Seyðisfirði og Vest- mannaeyjum. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 5. september 1941. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Úrvalsrit Jónasar Hallgrímssonar og Mannfélagsfræði eru komin út. Áskrifendur i Reykjavik vitji bókanna i anddyri Landsbóka- safnsins, opið kl. 1—7, og í Hafnarfirði i verzl. Valdimars Long. Kaupum allskonar Selikinn hæsta verði. Kristján G. Oísla§on Heildverzlun. Hverfisgötu 4. Sími: 1555. Auglýsing um kennslu og einkaskóla. Berklavarnalögin mæla þannig fyrir, samkvæmt 9. gr. þeirra: „Enginn, sem hefir smitandi berklaveiki, má fást við kennslu í skólum, heimiliskennslu né einkakennslu. Engan nemanda með smitandi berklaveiki má taka í skóla, til kennslu á heimili eða til einkakennslu. Engan nemanda má taka til kennslu á heimili, þar sem sjúklingur með smitandi berklaveiki dvelur.“ Allir þeir, sem stunda ætla kennslu á komandi hausti og vetri, eru þvi beðnir um að senda tilskilin vottorð fyrir sig og nemendur sína á skrifstofu mína, hið allra fyrsta, og mega þau ekki vera eldri en mánaðar gömul. Þá er ennfremur svo fyrir mælt i ofangreindum lög- um: „Enginn má halda einkaskóla, nerna hann liafi til þess skriflegt leyfi lögreglustjóra, og skal það leyfi eigi veitt nema héraðslæknir telji húsnæði og aðbúnað fullnægja heilbrigðiskröfum, enda liggi fyrir tilskilin læknisvottorð um að hvorki kennari eða aðrir á heimilinu né neinn nem- andanna séu haldnir smitandi berklaveiki.“ Þeir, sem liafa i hyggju að halda einkaskóla, eru þvi áminntir um að senda umsóknir sínar til lögreglustjór- ans í Reykjavík hið allra fyrsta, ásamt tilskildum vott- orðum. Það skal tekið fram, að þetta gildir einnig um þá einka- skóla, smáa sem stóra, er áður hafa starfað í bænum. Umsóknir um slíka einkaskóla utan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur, en innan takmarka læknishérðsins, má senda á skrifstofu mína. Héraðslæknirinn í Reykjavík, 2, september 1941. Magnús Pétursson Þegap lijúin deila Verða tvö aukaþingin á þessu ári? Frá þvi er nú sagt í blöðum sambræðslustjórnarinnar, að stuðningsflokkar hennar hygg- ist að kalla þingmennina til flokksfunda snemma i næsta mánuði og að vera megi, að upp úr því verði þeir kvaddir til sameiginlegs fundar á Alþingi. Þó að litt verði annars vart, en að friðsamlegt hafi verið á milli sjálfra ráðherranna i stjórninni, þá hefir samt mátt ráða af skrifum stuðningsblaða stjórnarinnar, að undir niðri hefir verið „grunnt á því góða“. Verður það ekki rakið hér. Til þessa hefir ríkisstjórninni tekizt að jafna ágreiningsmálin með nefndarskipunum. Eitt eða tvö sæti fvrir góða flokksmenn i nefnd hefir mýkt kaunin svo að sviðinn hefir ekki orðið; ó- bærilegur. Nú virðist það ekki ætla að duga lengur. Nú á fyrst að reyna klíkufundi, svo almennan fund hinna „sjálfkjörnu“ þingmanna, ef hitt nægir ekki. Það sem mestum örðugleik- um mun valda stjórninni nú er viðskiptasamningsslitrið, sem gert hefir verið við Breta. 1 fyrstu létu stjórnarblöðin vel af samningnum. Ritstjórar tveggja þeirra blaða, sem harðast gagn- rýndu hann voru af rikisstjórn- inni bornir landráðakærum (sem kunnugt er orðið), þó litið yrði úr. í aðalblaði Framsóknar- flokksins hefir Jón Árnason (einn af samninganefndar- mönnunum) beitt sér fimlega um þessa samningagerð, fyrst til varnar, svo til sóknar. Nú virðist það vera þetta samningaslitur sem mestum öruðgleikum veldur í stjórnar- samvinnunni. Eflaust eiga stjórnarflokkarnir þó fleiri á- greiningsmál i pokahorninu. Húsbændurnir (þjóðin) verða margs vísari, þegar hjúin deila. Garðyrkjusýning. Garðyrkjufélag Islands gekkst fyrir garðyrkjusýningu í Reykjavík. Stóð hún í 16 daga fyrri hluta septembermánaðar. Skáli mikill var reistur til sýn- ingarinnar, með glerþaki að mestu. Allt er það gott og gagnlegt, sem verða má til eflingar garð- ræktinni og til aukinnar mat- jurtaræktar og aukinnar notk- nnar garðávaxta og kálmetis, bæði þess sem vex sáið og ósáið. Mátti og ýmislegt á sýningunni læra i því tilliti, ef vel var eftir leitað, en fjölbreyttari og meir áberandi og hagnýtari hefði sá þáttur sýningarinnar mátt vera. — Mikið meira har á blóma- skrúði og öðru, sem meir er til augnayndis en nytsemdar.Höfðu blómaverzlanirnar í Reykjavík hver sinn afmarkaða sýningar- reit, en lítt bar það af blóma- búðunum sjálfum og sýningar- gluggum þeirra, sem og eðlilegt var. — Einna eftirtektarverð- asti þáttur sýningarinnar var hörræktar„horn“ frú Rakelar Þorleifsson. Rúmlega 22 þús. manns er talið að sótt hafi sýninguna. Tilkynning til viðskiptamanna. Hafnarstjórinn i Reykjavík lét í gær hirta til- kynningu um það, að framvegis verði ekki leyft að hafa vörur geymdar á hafnarlóðum Reykjavíkurhafnar lengur en þrjá sólarhringa frá því er afferming skips er lokið, en að þeim fresti liðnum verða vörurnar fluttar á stakk- stæði suður hjá Haga og geymdar þar á kostn- að og ábyrgð eigenda. Út af þessu leyfum vér oss að skora á við- skiptamenn vora að leysa út og taka innan ofangreinds frests vörur þær, sem þeir fá með skipum vorum og öðrum skipum, sem eru á vorum vegum og geymdar kunna að verða á lóðum liafnarinnar, þar sem vér að öðrum kosti hljótum að krefjast þess að þeir greiði allan kostnað sem ofangreindar ráðstafanir Reykjavíkurhafnar kunna að hafa i för með- sér, enda beri þeir alla ábyrgð á þeim afleið- ingum, hverju nafni sem nefnist, er téðar ráð- stafanir kynni að orsaka. Reykjavík, 9. sept. 1941. H.f. Eimskipafélag: í§land§ G. Vilhjálmsson. Nkipautgrerð ríki§in§ Pálmi loftsson. P. Nmitli €o. Erling Smith. Kaupið Glugga, hurðir og lista — h já stærstu timburverslun og --trésmiðju landsins- --Hvergi betra verð.- Kaupið gott efni og góða vinnu. Þegar húsin fara að eldast mun koma í ljós, að bað margborgar sig. — Timbupvepslunin Völundui* REYKJAVÍK. Reykjavík. Sími: 1249. Símnefni: Sláturfélag. Niðursuðuverksmiðja. Bjúgnagerð. Reykhús. Frystihús Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niðursoðið kjöt- og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu. Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði Frosið kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi eftir fyllstu nútíma kröfum. Egg frá Eggjasölusamlagi Reykjavíkur. Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um allt land. 1

x

Framsókn : bændablað - samvinnublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsókn : bændablað - samvinnublað
https://timarit.is/publication/1320

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.