Fréttablaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 42
ÉG MUN EFLAUST
TAKA DAGINN
SNEMMA EN ÉG REYNI ALLTAF
AÐ NÝTA SJALDGÆFA SÓLAR-
DAGA EINS VEL OG ÉG GET.
STEFNAN ER TEKIN Á AÐ FARA Í
BÚSTAÐ Á ÞINGVÖLLUM EN
FYRST VERÐUM VIÐ AÐ SJÁ
HVORT VEÐURSPÁIN HALDI.
Anna Fríða Gísladóttir,
markaðsstjóri Domino’s
DAGURINN Á KLÁR-
LEGA EFTIR AÐ BYRJA
Á GÓÐRI MORGUNÆFINGU OG
SUNDFERÐ MEÐ STRÁKNUM
MÍNUM. ÉG Á EFLAUST EFTIR
EYÐA DEGINUM Í SMÁ STÚSS OG
UNDIRBÚNING FYRIR MATAR-
BOÐ KVÖLDSINS OG ÞAÐ ER
ALDREI AÐ VITA NEMA ÉG PRÓFI
AÐ BAKA EINA NÝJA UPPSKRIFT
SEM ÉG ER BÚIN AÐ VERA
SPENNT FYRIR AÐ PRÓFA.
ANNARS VERÐUR SUMAR-
KVÖLDINU FAGNAÐ MEÐ GÓÐUM
VINUM OG DUMPLINGS.
Helga Gabríela Sigurðardóttir,
kokkanemi og samfélagsmiðla-
stjarna
EINS OG BARN TRÚIR Á
JÓLASVEININN MEÐ
VON OG EFA Í SENN ÞÁ TRÚI ÉG
AÐ SÓLIN MUNI SÝNA SIG
SUMARDAGINN FYRSTA. ÉG
ÆTLA AÐ SKELLA MÉR Í SUND
OG SLEIKJA SÓLINA ÞAR SEM
MEIRIHLUTI ÞJÓÐARINNAR
VERÐUR LÍKLEGA STADDUR. ÉG
Á EFLAUST EFTIR AÐ HITTA
GÓÐA VINI Í LAUGINNI OG HVER
VEIT NEMA VIÐ TYLLUM OKKUR
EFTIR SUNDIÐ Á NOTALEGAN
STAÐ SEM BÝÐUR UPP Á AÐ
SITJA ÚTI.
Alexander Sigurður Sigfússon
förðunarfræðingur
PLANIÐ ER AÐ VIÐRA
BUMBUNA SEM MEST
ÞAR SEM ÉG ER ÓLÉTT. ÉG ÆTLA
AÐ GANGA Á HELGAFELL Í
GÓÐRA VINA HÓPI. EFTIR ÞAÐ
ER MÖST AÐ KÍKJA Í KÓPAVOGS-
LAUG OG SVO BEINUSTU LEIÐ Í
BRÖNS Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
MEÐ UNNUSTANUM. ÞAÐAN ER
STEFNAN TEKIN Á BORGARLEIK-
HÚSIÐ ÞAR SEM DÓTTIR OKKAR
ER MEÐ BALLETTSÝNINGU.
HELD ÞAÐ VÆRI SVO TILVALIÐ
AÐ BJÓÐA EINHVERJUM Í GRILL
OG VIÐRA SVALIRNAR Í NÝJU
ÍBÚÐINNI Í FYRSTA SINN ÞETTA
SUMARIÐ.
Ósk Gunnarsdóttir,
þjónustustjóri Regus
og útvarpskona
PLANIÐ ER AÐ HAFA
ÞAÐ OFBOÐSLEGA
HUGGULEGT Í FAÐMI FJÖL-
SKYLDUNNAR, FARA JAFNVEL Í
GÓÐAN GÖNGUTÚR UM GRÓTTU
EÐA ÆGISÍÐU. KVÖLDINU
VERÐUR SÍÐAN VARIÐ Í EGILS-
HÖLL ÞAR SEM ÉG ÆTLA AÐ SJÁ
NÝJU AVENGERS-MYNDINA.
GÓÐUR DAGUR Í VÆNDUM.
Arnmundur Ernst
Backman Björnsson
leikari.
ÉG ÆTLA AÐ NJÓTA
DAGSINS Í KAUP-
MANNAHÖFN MEÐ MÖMMU
MINNI. VIÐ ERUM AÐ FARA Í
STUTTA MÆÐGNAFERÐ OG
VONANDI FÁUM VIÐ SÓL OG
BLÍÐU EINS OG FÓLKIÐ FÆR
HEIMA Á ÍSLANDI. PLANIÐ MITT
ER AÐ REYNA AÐ SLAKA Á,
HUGSA SEM MINNST UM
VINNUNA, BORÐA GÓÐAN MAT,
RÖLTA Í FALLEGAR BÚÐIR,
MÖGULEGA FÁ MÉR EITT
RÓSAVÍNSGLAS OG NJÓTA
LÍFSINS.
Harpa Káradóttir
förðunarfræðingur
Sund og sól á
sumardaginn fyrsta
Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og er spáð sól um allt
land og gæti hitinn á höfuðborgarsvæðinu náð allt að 14 stigum
samkvæmt veðurspám. Oft hefur veðrið leikið landann grátt og
þátttakendur í skrúðgöngum í tilefni dagsins þurft að vaða snjó
og polla. Fréttablaðinu þótti kjörið að hafa samband við nokkra
skemmtilega einstaklinga og spyrja hvernig þau hygðust nýta
þennan sannkallaða fyrsta sumardag.
2 4 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
4
-0
4
-2
0
1
9
0
8
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
9
-6
F
8
8
2
2
D
9
-6
E
4
C
2
2
D
9
-6
D
1
0
2
2
D
9
-6
B
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K