Kvennapósturinn í Kópavogi - 26.04.1994, Síða 4
%%%
• ATVINNUMÁL •
VIÐ VILJUM:
• að bæjarfélagið leiti nýrra leiða í atvinnu-
sköpun kvenna,
• að sérstakt átak verði gert í atvinnu-
málum kvenna.
• LEIKSKÓLAR •
VIÐ VILJUM:
að biðlisti eítir leikskólaplássum verði
styttur verulega á kjörtímabilinu,
að þörfinni fyrir leikskólapláss verði full
nægt á 4-6 árum.
• GRUNNSKÓLAR •
VIÐ VILJUM:
að allir grunnskólar verði einsetnir,
að skóladagurinn verði samfelldur,
að börn sem þess þurfa geti fengið
aðstöðu í skólanum eða á skóladag-
heimili eftir kennslutíma til hollra og
uppbyggilegra starfa.
• ÆSKULÝÐSMÁL •
VIÐ VILJUM:
• að komið verði upp félagsmiðstöðvum
við skólana í austurhluta bæjarins nú
þegar og unglingar verði hafðir með í
ráðum við uppbyggingu og skipulag
hennar.
• STJÓRNARHÆTTIR •
VIÐ VILJUM:
• að bæjarbúum verði auðveldað að hafa
áhrif á nánasta umhverfi sitt, m.a. með
því að fá tækifæri til að greiða atkvæði
um einstök mál.
• UMHVERFIS- OG
SKIPULAGSMÁL •
VIÐ VILJUM:
• að við framkvæmdir í bænum verði tekið
fyllsta tillit til umhverfisins,
• að við skipulag bæjarins verði öryggi
barna haft í fyrirrúmi,
• að komið verði í veg fyrir fleiri skipulags-
og umhverfisslys í bænum en þegar eru
orðin.
• FJÁRMÁL •
VIÐ VILJUM:
• að unnið verði markvisst að því að lækka
skuldir bæjarins,
• að við rekstur bæjarins verði sparnaður
og ráðdeild ætíð höfð að leiðarljósi.
• ALDRAÐIR •
VIÐ VILJUM:
• að gerð verði áætlun um uppbyggingu
öldrunarþjónustu þar sem áhersla verður
lögð á félagslegar þarfir aldraðra.
KOSNIN GASKRIFSTOFA
HAMRABORG 7 - SÍMAR 646240 OG 646241
Útgefandi: Samtök um
Kvennalista í Kópavogi
Abyrgðarmaður: Birna
Sigurjónsdóttir
Póstfang: Hamraborg 7, 200
Kópavogur
Prentun: Ingólfsprent
Útlit: Margrét Laxness