Morgunblaðið - 02.01.2019, Page 1
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019
ÍÞRÓTTIR
Íþróttamaður ársins Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir er þriðja konan á síðustu fjórum árum
sem verður fyrir valinu. Hún er sjöunda konan sem hreppir hnossið í 63 ára sögu kjörsins. 2
Íþróttir
mbl.is
Tour de Ski hélt áfram í gær eftir einn
hvíldardag þegar keppt var í sprettgöngu í
Val Müstair í Sviss. Snorri Einarsson hafði
rásnúmer 85 af alls 94 sem voru skráðir til
leiks. Snorri átti frábæra göngu og hafnaði
í 61. sæti og vann því sig upp um 24 sæti
miðað við ráslista þar sem raðað er eftir
stöðu á heimslista. Fyrir mótið fékk Snorri
90.70 FIS stig sem er mjög mikil framför á
heimslistanum en þar er hann með 146.60
FIS stig. Er þetta hans langbesta sprett-
ganga frá árinu 2014.
Nú þegar þrem af sjö mótum í Tour de Ski er lokið er
Snorri í 50. sæti í heildarkeppninni. Á næstu mótum verður
keppt í lengri göngum en í þeim á Snorri að vera öflugri en á
styttri gönguleiðum. sport@mbl.is
Snorri bætti stöðu sína
Snorri
Einarsson
Knattspyrnumaðurinn Viktor Karl Einars-
son hefur skrifað undir þriggja ára samning
við uppeldisfélag sitt Breiðablik en þetta
kemur fram á Blikar.is.
Viktor Karl er 21 árs gamall miðjumaður
sem hefur leikið með hollenska liðinu AZ
Alkmaar frá árinu 2013. Hann á að baki 70
leiki með U19 og U21 árs liðum hollenska
liðsins.
Hann gekk til liðs við sænska B-deildar-
félagið Värnamo síðasta sumar þar sem
hann lék alls 16 leiki.
Viktor hefur leikið 30 leiki með U16, U17, U19 og U21 árs
landsliðum Íslands þar sem hann hefur skorað fimm mörk og
vart misst úr leik svo árum skiptir með yngri landsliðum Ís-
lands. sport@mbl.is
Viktor Karl flytur heim
Viktor Karl
Einarsson
Enski framherjinn Gary Martin mun að öll-
um líkindum semja við Íslandsmeistara
Vals í knattspyrnu karla á næstu dögum.
Þetta herma heimildir Fótbolta.net. Vals-
menn eru í leit að framherja eftir að Pat-
rick Pedersen, markahæsti leikmaður
Pepsi-deildarinnar síðasta sumar, yfirgaf
félagið fyrir Sheriff í Moldóvu.
Tobias Thomsen gekk svo í raðir KR, en
Valur samdi við Garðar Gunnlaugsson á
dögunum. Stjarnan mun einnig hafa sýnt
Martin áhuga.
Martin kom fyrst til Íslands árið 2010 og skoraði 10 mörk í
9 leikjum í 1. deildinni með ÍA. Hann hefur alls skorað 70
mörk í 147 leikjum með íslenskum liðum og þar af 43 mörk í
93 leikjum í efstu deild. sport@mbl.is
Er Martin á leið í Val?
Gary
Martin
býr Grétar að góðri reynslu frá því:
„Það þurfti eitthvað virkilega
spennandi til að ég færi frá Fleet-
wood þar sem ég var á fimm ára
samningi, í þeirri stöðu að geta gert
félagið nánast eins og ég vildi hafa
það. Ég var búinn að taka félagið frá
því að vera með þrjá starfsmenn í
akademíunni og fimm í aðalliðinu,
upp í að vera með yfir 60 starfsmenn
í heildina, með akademíu frá 9 ára
aldri og tíu akademíur frá 6 ára aldri.
Það þurfti eitthvað virkilega spenn-
andi til að ég labbaði í burtu frá
þessu, og félag að vera tilbúið að
kaupa upp samninginn minn,“ segir
Grétar.
Hægri hönd Marcel Brands
Í nýja starfinu má segja að Grétar
sé hægri hönd Hollendingsins Mar-
cel Brands sem ráðinn var yfirmaður
knattspyrnumála hjá Everton í sum-
ar, eftir góðan árangur hjá PSV
Eindhoven. Brands starfaði hjá AZ
Alkmaar þegar Grétar var þar leik-
maður á sínum tíma. Everton hefur
úr meira fjármagni að moða en áður
eftir að Íraninn Farhad Moshiri
keypti félagið, eins og félagið hefur
sýnt á síðustu misserum með kaup-
um á hágæðaleikmönnum eins og
Gylfa Þór Sigurðssyni, Richarlison
og Yerry Mina. Metnaður félagsins
stendur líka til þess að hafa gæða-
menn „á bakvið tjöldin“ og viður-
kenningin er því mikil fyrir Grétar,
sem lýsir starfi sínu svo:
„Maður er hluti af öllu ferlinu við
að yfirmaður knattspyrnumála hjá
félaginu gangi frá samningi við leik-
menn. Allar ákvarðanir sem teknar
eru þurfa að vera teknar með fram-
tíðina í huga, hvort sem verið er að
ákveða að endursemja við 19 ára
leikmann eða kaupa nýjan mann.
Það þarf að fylgja ákveðinni stefnu
og það er frábært að fá að vera hluti
af teyminu sem sér um þetta. Ég hef
fengið að vinna við það í fjögur ár að
koma að bókstaflega öllu en fer nú í
hnitmiðaðra starf sem ég mun læra
mikið af,“ segir Grétar.
„Þetta er mjög viðamikið starf. Ég
verð með njósnara úti um allan heim,
sem fara á leiki í sínu landi og skoða
leikmenn, og síðan koma frá þeim
skýrslur og vídeó sem farið er yfir.
Síðan þarf að vera í sambandi við
umboðsmenn, leikmenn og félög.
Þetta er mjög svipað starf og ég var
að vinna áður, en núna er allt á
stærri skala og ég með fleiri menn
sem vinna með mér.“
„Við skoðum sífellt hvar lið Ever-
ton er statt, hvaða leikmenn eru í lið-
inu og hvernig mögulegt er að gera
liðið betra með betri leikmönnum.
Það er aðaltilgangurinn. Við erum
með njósnara í fullri vinnu í öllum
deildum Evrópu, sem skila sínum
skýrslum, og svo vinnum við lista yf-
ir bestu möguleikana út frá því og
öðru. Yfirmaður knattspyrnumála
[Brands], í samráði við Marco [Silva,
knattspyrnustjóra Everton], tekur
svo ákvörðun um hvað best sé fyrir
félagið. Það fylgir því mikil ábyrgð
að vera hluti af þessu ferli, þetta er
mjög stórt skref, en ég er ekki að
byggja neitt upp frá grunni heldur
kominn til að bæta við það sem fyrir
er og reyna að gera enn betur en
gert hefur verið,“ segir Grétar, sem
er ekki bara á skrifstofunni í Liver-
pool heldur fer sjálfur og skoðar
leikmenn:
„Ég fer út um allt, en er líka mikið
inni á skrifstofunni þar sem ég er
með stórt teymi sem vinnur fyrir
mig sem ég þarf að vera til staðar
fyrir. Ég fer og horfi á þá leikmenn
sem njósnarar benda á, og svo bendi
ég á leikmenn sem Marcel Brands
fer og skoðar.“
Á meðal fyrstu verka Grétars var
að gera allt klárt fyrir janúarmánuð.
Opnað var fyrir félagaskipti nú um
áramótin en þá þurftu að liggja fyrir
ýmsar áætlanir jafnvel þó að svo
færi að félagið kysi á endanum að
bæta ekki leikmanni við sinn hóp.
Félagið þarf að geta brugðist hratt
við ólíklegustu skakkaföllum, en á
sama tíma að horfa til þess hvað
hagnist því best til framtíðar.
Þjóðerni skiptir ekki máli
Nú þegar Grétar og Gylfi Þór Sig-
urðsson eru báðir komnir í veiga-
mikil hlutverk hjá Everton má velta
því fyrir sér hvort von sé á fleiri Ís-
lendingum, en ekki er að heyra á
Grétari að koma hans auðveldi ís-
lenskum leikmönnum eitthvað óeðli-
lega að komast að hjá félaginu. Fag-
mennskan hefur skilað honum í starf
hjá svo stóru félagi sem Everton og
ekkert lát verður á henni núna:
„Það gildir það sama hjá mér
hérna og hjá Fleetwood. Við leitum
að ákveðnum „prófílum“, skoðum
ákveðna leikmenn, og þjóðerni skipt-
ir ekki máli. Ég þekki alla íslensku
leikmennina, hef í gegnum árin horft
á flestöll landsliðin og fylgist vel með
íslenskum fótbolta, sérstaklega þeim
ungu strákum sem fá tækifæri. Það
getur alveg gerst að við fáum ís-
lenskan leikmann en það eru alveg
jafnmiklar líkur á því eins og að
hingað komi Norðmaður. Þetta velt-
ur alfarið á hæfileikum hvers og
eins.“
Frábært að vera á hæsta stigi
Grétar Rafn Steinsson er kominn til starfa hjá Everton Þurfti mikið til að yfirgefa Fleetwood og
uppbygginguna þar Stefnan var alltaf að vinna við fótboltann eftir að ferlinum á vellinum lyki
Morgunblaðið/Golli
Landsliðsmaður Grétar Rafn Steinsson lék með íslenska landsliðinu frá
2002 til 2012 og á hér í höggi við Cristiano Ronaldo í leik gegn Portúgal.
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta er auðvitað gífurlega stór
klúbbur, ekki bara á Englandi held-
ur í raun í heiminum, sem ætlar sér
stóra hluti í framtíðinni. Þetta er
stórt tækifæri,“ segir Grétar Rafn
Steinsson, nýr starfsmaður Everton,
í samtali við Morgunblaðið.
Grétar, sem er 36 ára gamall, var
á dögunum ráðinn yfirnjósnari Ever-
ton í Evrópu, en segir að raunar nái
starf hans út fyrir álfuna og hann
leiti hæfileikaríkra knattspyrnu-
manna úti um allan heim, í samvinnu
við þá fjölmörgu njósnara sem enska
úrvalsdeildarfélagið eigi. Með starfi
sínu nú og áður hjá Fleetwood Town
rætist enn annar draumur stráks frá
Siglufirði sem bjó sig undir að eiga
langan atvinnumannsferil í Eng-
landi, Sviss, Hollandi og Tyrklandi,
og leika 46 A-landsleiki.
„Ég sá alltaf að þetta væri starf
sem ég hefði áhuga á. Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á öllu sem tengist
fótbolta, hvort sem það er þjálfun,
næringarfræði, leikmenn eða hvað
annað. Ég er gífurlega vel að mér
um íslenska boltann með því að hafa
lesið Íslensk knattspyrna-bækurnar
sem ég á allar, og það var alltaf
stefnan hjá mér að vinna við fótbolta
með einum eða öðrum hætti. Það er
frábært að fá að vinna núna við þetta
á hæsta stigi, og vita hvernig það
besta lítur út í öllu sem tengist fót-
boltanum,“ segir Grétar.
Mikil þróun hjá Fleetwood
Eftir að Grétar lagði skóna á hill-
una vegna meiðsla, aðeins 31 árs
gamall haustið 2013, var hann sem
sagt strax viss um að vilja starfa
áfram við fótboltann. Síðustu fjögur
ár hefur hann starfað sem yfirmaður
knattspyrnumála hjá Fleetwood
Town, sem leikur í ensku C-
deildinni, og þó að starfið hjá Ever-
ton sé af annarri stærðargráðu þá