Morgunblaðið - 02.01.2019, Side 2

Morgunblaðið - 02.01.2019, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2019 Undirritaður tók þátt í kjöri á íþróttamanni ársins í fyrsta sinn á dögunum. Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir hreppti verð- launin eftirsóttu og var sigur hennar afar verðskuldaður að mínu mati. Sara átti frábært ár með Wolfsburg í Þýskalandi en eins og kollegi minn komst eftir- minnilega að orði, þegar Sara gekk til liðs við Wolfsburg árið 2016: félagaskipti Söru til Wolfs- burg væru svipað stór í kvenna- knattspyrnunni og þegar Eiður Smári Guðjohnsen gekk til liðs við Barcelona árið 2006. Flestir virðast vera nokkuð sáttir með valið á íþróttamanni ársins í ár. Venju samkvæmt hefur ólíklegasta fólk í gegnum tíðina þurft að tjá sig nokkuð frjálslega um valið. þrátt fyrir að hafa lítið sem ekkert vit á íþróttum yfir- höfuð. Sara hefur verið í einu af efstu tíu sætunum í kjörinu á íþróttamanni ársins undanfarin sjö ár, og árið 2018 var hennar ár. Valið á liði ársins og þjálfara ársins hefur hins vegar verið tals- vert meira gagnrýnt. Kristján Andrésson náði mögnuðum og mjög óvæntum árangri með sænska landsliðið og landslið Ís- lands í golfi gerði slíkt hið sama á Evrópumótinu. Eyjamenn vildu sjá sína menn hreppa verðlaunin, eðli- lega, enda gerði Arnar Pétursson frábæra hluti með lið ÍBV. Í áramótaboði fjölskyldunnar var valið rætt í þaula og að end- ingu voru flestir sáttir við niður- stöðurnar. Það er ekkert grín að velja íþróttamann ársins, þjálfara ársins og lið ársins. Hvort vegur þyngra, árangur á innlendum vett- vangi eða árangur á erlendum vettvangi? Valið er og verður alltaf erfitt en það sem gerir kjörið alltaf jafn skemmtilegt er að það hafa allir skoðun á því sem gerir ekkert nema gott fyrir íslenskt samfélag og íslenskt íþróttafólk. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is England Laugardagur 29. desember: Brighton – Everton ................................. 1:0  Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá Everton á 65. mín. Leicester – Cardiff ...................................0:1  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Cardiff. Fulham – Huddersfield ........................... 1:0 Tottenham – Wolves ................................ 1:3 Watford – Newcastle ............................... 1:1 Liverpool – Arsenal.................................. 5:1 Sunnudagur 30. desember: Burnley – West Ham ............................... 2:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Burnley. Crystal Palace – Chelsea ......................... 0:1 Southampton – Manch. City.................... 1:3 Manch. Utd – Bournemouth.................... 4:1 Þriðjudagur 1. janúar: Everton – Leicester................................. 0:1  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Everton. Cardiff – Tottenham ................................0:3  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Cardiff. Arsenal – Fulham..................................... 4:1 Staðan: Liverpool 20 17 3 0 48:8 54 Tottenham 21 16 0 5 46:21 48 Manch.City 20 15 2 3 54:16 47 Chelsea 20 13 4 3 38:16 43 Arsenal 21 12 5 4 46:31 41 Manch.Utd 20 10 5 5 41:32 35 Leicester 21 9 4 8 25:23 31 Wolves 20 8 5 7 23:23 29 Watford 20 8 4 8 27:28 28 Everton 21 7 6 8 31:31 27 West Ham 20 8 3 9 27:30 27 Bournemouth 20 8 2 10 28:37 26 Brighton 20 7 4 9 22:27 25 Cr. Palace 20 5 4 11 17:26 19 Newcastle 20 4 6 10 15:27 18 Cardiff 21 5 3 13 19:41 18 Southampton 20 3 6 11 21:38 15 Burnley 20 4 3 13 19:41 15 Fulham 21 3 5 13 19:47 14 Huddersfield 20 2 4 14 12:35 10 B-deild: Laugardagur 29. desember: QPR – Reading......................................... 0:0  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður hjá Reading á 82. mín. Preston – Aston Villa .............................. 1:1  Birkir Bjarnason. kom inn á sem vara- maður hjá Aston Villa á 75. mín. Birmingham – Brentford......................... 0:0 Bolton – Stoke .......................................... 0:0 Bristol City – Rotherham........................ 1:0 Leeds – Hull.............................................. 0:2 Middlesbrough – Ipswich ........................ 2:0 Millwall – Nottingham Forest ................ 1:0 Norwich – Derby ...................................... 3:4 Sheffield United – Blackburn ................. 3:0 Swansea – Wigan...................................... 2:2 WBA – Sheffield Wednesday.................. 1:1 Þriðjudagur 1. janúar: Aston Villa – QPR.................................... 2:2  Birkir Bjarnason. lék allan leikinn fyrir Aston Villa. Reading – Swansea ................................. 1:4  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður hjá Reading á 61. mín. Blackburn – WBA .................................... 2:1 Brentford – Norwich................................ 1:1 Derby – Middlesbrough........................... 1:1 Hull – Bolton............................................. 6:0 Ipswich – Millwall .................................... 2:3 Nottingham Forest – Leeds.................... 4:2 Rotherham – Preston .............................. 2:1 Sheffield Wed. – Birmingham................. 1:1 Stoke – Bristol City...................................0:2 Wigan – Sheffield United ........................ 0:3 Staðan: Leeds 26 15 6 5 44:28 51 Norwich 26 14 7 5 48:34 49 Sheffield Utd 26 14 5 7 45:28 47 WBA 26 13 7 6 54:34 46 Middlesbro 26 11 10 5 28:18 43 Derby 26 12 7 7 38:32 43 Nottingham F. 26 9 12 5 39:29 39 Birmingham 26 9 12 5 38:28 39 QPR 26 11 6 9 33:34 39 Aston Villa 26 9 11 6 49:40 38 Bristol City 26 10 8 8 32:28 38 Swansea 26 10 6 10 35:31 36 Hull 26 10 6 10 36:33 36 Stoke 26 8 11 7 30:31 35 Blackburn 26 8 10 8 33:41 34 Sheffield Wed. 26 8 8 10 32:42 32 Preston 26 7 8 11 38:43 29 Brentford 26 6 10 10 36:36 28 Millwall 26 7 7 12 33:41 28 Wigan 26 7 5 14 25:40 26 Rotherham 26 5 10 11 25:41 25 Bolton 26 5 7 14 17:38 22 Reading 26 4 8 14 28:41 20 Ipswich 26 2 9 15 21:46 15 Ítalía Chievo – Frosinone.................................. 1:0  Emil Hallfreðsson lék ekki með Fros- inone vegna meiðsla. B-deild: Spezia – Lecce.......................................... 1:1  Sveinn Aron Guðjohnsen var allan leik- inn á varamannabekk Spezia. Ástralía Newcastle Jets – Adelaide United......... 2:3  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn fyrir Adelaide. Fanndís Friðriks- dóttir kom inn á sem varamaður á 46. mín., og skoraði 11 mín. síðar. KNATTSPYRNA ENGLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði Everton þegar liðið tók á móti Leic- ester City í 21. umferð ensku úrvals- deildarinnar í knattspyrnu í gær en leiknum lauk með 1:0-sigri Leicester. Mikil þreytumerki voru á báðum lið- um enda stíf dagskrá í ensku úrvals- deildinni yfir hátíðarnar. Gylfi Þór lék allan leikinn á miðjunni hjá Ever- ton, leikmenn Everton voru meira með boltann í leiknum en gekk afar illa að skapa sér afgerandi marktæki- færi. Það var markahrókurinn Jamie Vardy sem skoraði eina mark leiks- ins á 58. mínútu síðari hálfleiks en Everton er í tíunda sæti deildarinnar með 27 stig. Tottenham keyrði yfir Cardiff Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Car- diff sem tapaði 3:0 fyrir Tottenham á heimavelli sínum í Cardiff en Aron lék allan leikinn á miðjunni fyrir Car- diff. Harry Kane kom Tottenham yf- ir á 3. mínútu eftir mikinn vandræða- gang í vörn Cardiff og Christian Eriksen tvöfaldaði forystu Totten- ham, níu mínútum síðar, með góði skoti úr teignum. Heung-Min Son skoraði þriðja mark Tottenham á 26. mínútu og úrslitin ráðin. Með sigr- inum fer Tottenham aftur upp í ann- að sæti deildarinnar og upp fyrir Manchester City í 48 stig og er Tott- enham nú sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik til góða. Arsenal á sigurbraut Arsenal er komið aftur á sigur- braut í ensku úrvalsdeildinni eftir stórsigur gegn Fulham á Emirates- vellinum í London en leiknum lauk með 4:1-sigri Arsenal. Fulham byrj- aði leikinn betur og fékk Ryan Ses- segnon, sóknarmaður Fulham, tvö dauðafæri í upphafi leiks til þess að koma Fulham yfir. Honum brást bogalistin í bæði skiptin og það var Granit Xhaka sem kom Arsenal yfir á 25. mínútu. Alexandre Lacazette bætti við öðru marki Arsenal í upp- hafi síðari hálfleiks áður en Abou- bakar Kamara lagaði stöðuna fyrir Fulham á 69. mínútu. Aaron Ramsey og Pierre-Emerick Aubameyang inn- sigluðu sigur Arenal með sitthvoru markinu undir lok leiksins og Arsen- al er því áfram í fimmta sæti deild- arinnar með 41 stig, tveimur stigum á eftir Chelsea sem á leik til góða. Stórleikur á fimmtudaginn Manchester City, sem er í þriðja sæti deildarinnar með 47 stig, tekur á móti toppliði Liverpool á morgun í leik sem gæti ráðið úrslitum um enska meistaratitilinn. Liverpool er með sjö stiga forskot á City og getur aukið forskot sitt í tíu stig með sigri á fimmtudaginn. Liverpool er ennþá taplaust í deildinni og vann alla sína leiki í desember sannfærandi á með- an City tapaði fyrir bæði Leicester City og Crystal Palace. Það er því mikið undir hjá ríkjandi Englands- meisturum á morgun þegar Liver- pool mætir í heimsókn en lærisvein- ar Jürgen Klopp eru fullir sjálfs- trausts eftir frábæran desember- mánuð og því ljóst að það verður hart tekist á á Etihad-vellinum í Manchester. Töp hjá Íslendingum  Arsenal hefndi fyrir skellinn gegn Liverpool  Úrslitin gætu ráðist í ensku úrvalsdeildinni á Etihad-vellinum í Manchester AFP Vangaveltur Marco Silva, knattspyrnustjóri Everton, og Gylfi Þór Sigurðsson bera saman bækur sínar. Fátt hefur kætt þá á fótboltavellinum síðustu daga. ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Ívar Benediktsson iben@mbl.is Knattspyrnukonan Sara Björk Gunn- arsdóttir var kjörin íþróttamaður árs- ins 2018 af Samtökum íþróttafrétta- manna í hófi sem haldið var á laugardagskvöldið í Hörpu. Hún fékk 464 stig og var 48 stigum á undan kraftlyftingamanninum Júlían J.K. Jóhannssyni sem hafnaði í öðru sæti. Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnu- maður hafnaði í þriðja sæti með 344 stig en heildarlisti þeirra ríflega 30 íþróttamanna sem hlutu stig í kjörinu að þessu sinni er hér til hliðar. Sara Björk er sjöunda konan sem er kjörin íþróttamaður ársins, á þeim 63 árum sem Samtök íþróttafréttamanna hafa staðið að kjörinu, og jafnframt sú þriðja á síðustu fjórum árum. Sigríður Sigurðardóttir handknatt- leikskona varð fyrst kvenna til að vera kjörin árið 1964, átta árum eftir að kjörið fór fyrst fram. Hún var fyrirliði og lykilmaður kvennalandsliðsins sem varð Norðurlandameistari. Ragnheiður Runólfsdóttir sund- kona varð önnur árið 1991. Hún setti sjö Íslandsmet á árinu, vann fimm gull og tvö silfur á Smáþjóðaleikunum og varð í 7. og 9. sæti í bringusundsgrein- unum á Evrópumótinu í Aþenu. Vala Flosadóttir stangarstökkvari varð sú þriðja árið 2000. Hún hlaut bronsverðlaun í stangarstökki á Ól- ympíuleikunum í Sydney og er eina ís- lenska konan sem hefur unnið til verð- launa á leikunum frá upphafi. Margrét Lára Viðarsdóttir knatt- spyrnukona varð sú fjórða árið 2007. Hún setti nýtt markamet með ís- lenska landsliðinu, skoraði sigurmörk gegn Frakklandi og Kína, og fyrir Val gerði hún 72 mörk á árinu, þar af 38 á Íslandsmótinu sem var nýtt marka- met. Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona varð sú fimmta árið 2015. Hún fékk tvenn bronsverðlaun á EM í 25 metra laug, komst í átta manna úrslit á HM, setti fjölda Íslandsmeta og bætti Norðurlandametið í 200 m baksundi fjórum sinnum á árinu. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kylf- ingur varð sú sjötta árið 2017. Hún lék þá fyrst Íslendinga á LPGA, sterkustu mótaröð heims í kvennaflokki, tryggði sér áframhaldandi keppnisrétt þar og komst á lokamót mótaraðarinnar. Hún náði best 4. sæti á LPGA-móti í In- dianapolis, keppti fyrst Íslendinga á risamóti í golfi, og var valin í úrvalslið Evrópu fyrir Drottningamótið í Japan. Kristján valinn þjálfari ársins Kristján Andrésson, þjálfari karla- landsliðs Svíþjóðar í handbolta, er þjálfari ársins 2018. Hann var hlut- skarpastur í kjöri íþróttafréttamanna en upplýst var um niðurstöðu kjörsins í fyrrgreindu hófi. Undir stjórn Krist- jáns hafnaði sænska landsliðið í öðru sæti á Evrópumeistaramótinu í Króat- íu fyrir ári. Arnar Pétursson, þjálfari þrefaldra meistara ÍBV í handknattleik karla hafnaði í öðru sæti og Þorsteinn Hall- dórsson, þjálfari kvennaliðs Breiða- bliks sem varð Íslands- og bikarmeist- ari á árinu var í þriðja sæti. Alls hlutu 12 þjálfarar stig í kjörinu, þar af ein kona. Kylfingar voru lið ársins Landsliðið var valið lið ársins 2018 en það er skipað þeim Valdísi Þóru Jónsdóttur, Ólafía Þórunni Krist- insdóttur, Axel Bóassyni og Birgi Leifi Hafþórssyni. Liðið varð Evrópumeist- ari blandaðra landsliða á liðnu sumri. Karlalið ÍBV varð deildar-, bikar- og Íslandsmeistari á árinu og hafnaði í öðru sæti í kjörinu. Kvennalandslið Ís- Sara er sú þriðja á fjórum árum  Þrjú efstu í kjörinu fengu afgerandi kosningu 1. Sara Bj. Gunnarsd., knsp ...... 464 2. Júlian J.K. Jóhannss., kraftl . 416 3. Gylfi Þór Sigurðsson, knsp ...344 4. Guðjón V. Sigurðs., hkn .........164 5. Alfreð Finnbogas., knsp .........136 6. Jóhann B.Guðmunds., knsp...124 7-8. Guðbjörg J. Bjarnad., frj. ......95 7-8. Haraldur Fr. Magnús, golf.....95 9. Valgarð Reinhards., fiml. .........58 10. Martin Hermannsson, körf ......56 11. Valdís Þóra Jónsdóttir, golf .....49 12. Aron E. Gunnarsson, knsp .......39 13. Aron Pálmarsson, hkn..............25 14. Bergrún Ó. Aðalsteinsd., ÍF ......18 15. Arnór Sigurðsson, knsp ............17 16. Andrea S. Pétursdóttir, fiml.....16 Eftirtalin fengu a í kjöri á íþróttam

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.