Morgunblaðið - 05.01.2019, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 5
Embætti héraðssaksóknara óskar eftir að ráða skjala-
stjóra til starfa. Um verkefni héraðssaksóknara er
vísað til heimasíðu embættisins; www.hersak.is.
Helstu verkefni og ábyrgð skjalastjóra eru:
• Skjalastjórn embættisins; ábyrgð, skipulag og umsjón
með þróun skjalastefnu og verklags við skjalastjórn.
• Dagleg skráning innkominna erinda, umsjón með
frágangi í skjalasafn og eftirfylgni með skjalaskráningu.
• Ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn.
• Framfylgd laga og reglna er gilda um opinber skjalasöfn.
• Umsjón með vinnslu tölfræði úr málaskrám embættisins.
• Umsjón með ytri og innri vef embættisins.
• Vinna við útgáfu- og upplýsingamál.
• Umsjón með bókasafni embættisins.
Hæfniskröfur til starfsins eru:
• Háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræðum.
• Reynsla af skjalastjórn er nauðsynleg.
• Starfsreynsla á þessu sviði hjá opinberri stofnun
er kostur.
• Reynsla af vefumsjón er kostur.
• Skipulags- og samskiptahæfni.
!
"
# $ og hlutaðeigandi stéttarfélags. Um er að ræða fullt starf og
!
# !% &#
" "$
Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 21. janúar 2019
og skal umsókn berast embætti héraðssaksóknara,
Skúlagötu 17, 101 Reykjavík. Einnig má senda umsókn
með tölvupósti á netfangið starf@hersak.is og skal póstur-
inn merktur „Umsókn um starf skjalastjóra“. Umsóknir
sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar
til greina. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í
' # "
() #
"
*
umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Hauksson,
héraðssaksóknari, í síma 444-0150.
Skjalastjóri hjá embætti héraðssaksóknara
Viltu taka þátt í öflugu tónlistarlífi á
Snæfellsnesi?
Þá er þetta tækfærið!
Staða organista og kórstjóra við
Grundarfjarðarkirkju er laus.
Um er að ræða 50% starf og eru laun greidd
skv. kjarasamningi FÍH. Möguleiki er á frek-
ara tónlistarstarfi í bæjarfélaginu.
Grundarfjörður er fallegur bær á Snæfells-
nesi og hefur á að skipa hæfileikaríku og
áhugasömu tónlistarfólki á öllum aldri.
Við leitum að einstaklingi sem vill vinna
með okkur að því að skipuleggja starf með
þessu fólki og efla þar með tónlistar- og
menningarlíf staðarins.
Í Grundarfjarðarkirkju er mjög gott 13 radda
pípuorgel, smíðað af Reinhart Tzschöckel,
auk þess Atlas-flygill.
Áhugasöm hafi samband við sóknarprest,
sr. Aðalstein Þorvaldsson í síma 862 8415,
eða formann sóknarnefndar, Guðrúnu M.
Hjaltadóttur í síma 899 5451. Umsóknir skulu
sendar á netfangið skallabudir@simnet.is
fyrir 11. janúar 2019.
Sóknarnefnd
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
Skógarhlíð 6, 105 ReykjavíkHEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Ráðuneytisstjóri í nýtt
heilbrigðisráðuneyti
Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Leitað er að reyndum leiðtoga
sem býr yfir framsýni og krafti og er tilbúinn að leiða mótun og uppbyggingu nýs heilbrigðis-
ráðuneytis í samvinnu við frábæran hóp reynslumikils starfsfólks.
Nýtt heilbrigðisráðuneyti tekur til starfa 1. janúar 2019. Verkefni þess eru viðamikil og
fjölbreytt og varða alla þætti heilbrigðiskerfisins og heilbrigðisþjónustu landsmanna,
lyfjamál auk verkefna á sviði lýðheilsu og forvarna. Hjá heilbrigðisráðuneytinu starfar
fjölbreyttur hópur vel menntaðra sérfræðinga á ýmsum sviðum með mikla þekkingu og
reynslu á málefnasviðum þess.
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2019.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar má finna á starfatorgi Stjórnarráðsins,
www.starfatorg.is
Undir heilbrigðisráðuneytið heyrir fjöldi stofnana, þar á meðal Landspítalinn,
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, heilbrigðisstofnanir um land allt, Sjúkratryggingar
Íslands og Embætti landlæknis. Ráðuneytið gegnir veigamiklu hlutverki er varðar
undirbúning lagasetningar og annarra stjórnvaldsfyrirmæla og stefnumótandi áætlana
á málefnasviðum þess. Vegna þeirra verkefna er rík áhersla lögð á nána samvinnu við
Alþingi, önnur ráðuneyti, hagsmunaaðila og notendur þjónustunnar. Ráðuneytið fer
einnig með alþjóðlegt samstarf í samvinnu við utanríkisráðuneytið.
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
kopavogur.is
Grunnskólar
Dönskukennari í Kópavogsskóla
Frístundaleiðbeinandi í Salaskóla
Leikskólar
Deildarstjóri í Austurkór
Deildarstjóri í Kópahvol
Leikskólakennari í Austurkór
Leikskólakennari í Álfaheiði
Leikskólakennari í Baug
Leikskólakennari í Efstahjalla
Sundlaugar
Karlkyns baðvörður í Salalaug
Velferðarsvið
Iðjuþjálfi
Þroskaþjálfi á heimili fyrir fatlað fólk
Umsóknir ásamt upplýsingum um störfin
eru á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is.
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á