Morgunblaðið - 05.01.2019, Page 6

Morgunblaðið - 05.01.2019, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 Fljótsdalshérað auglýsir eftirfarandi. Verkefnislýsing fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008–2028, ferðaþjónusta að Grund, Jökuldal. Fljótsdalshérað auglýsir breyting á aðalskipulagi. Landeigendur hafa áhuga á að fara í uppbyggingu á jörð sinni til að taka á móti vaxandi straumi ferðamanna. Eftir að Stuðlagil, stuðlabergsgil í Jökulsá á Dal, varð vinsælt meðal ferðamanna hefur umgangur um svæðið aukist og fyrirhuguð er uppbygging innviða til að taka á móti ferða- mönnum. Sveitarfélagið hefur því í samvinnu við landeigendur hafið undirbúning tillögu að breyttu aðalskipulagi fyrir svæðið. Samkvæmt Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008- 2028 er jörðin skráð sem landbúnaðarsvæði. Búskap var hætt kringum 1995 en túnin hafa verið nýtt síðan. Við bæjarstæðið er tilgreint frístunda- byggðarsvæði F12 en það er í flokki þeirra svæða þar sem skipulagið heimilar allt að 10 frístunda- hús. Gera má ráð fyrir að með breytingunni muni F12 hverfa en í staðinn koma punktafmörkun svæðis í flokki verslunar- og þjónustusvæða. Útbúin hefur verið verkefnislýsing þar sem gerð er grein fyrir ofangreindri breytingu á aðalskipulaginu, lýsingin er aðgengileg á vef sveitarfélagsins www.fljotsdalsherad.is. Íbúar og aðrir hagsmuna- aðilar eru hvattir til að kynna sér efni hennar og koma á framfæri ábendingum. Óskað er eftir því að ábendingar komi fram fyrir 20. janúar 2019. Ábendingar má senda til skipulagsfulltrúa í tölvu- pósti á netfangið gunnlaugur@egilsstadir.is eða í bréfi til bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs. Kynning lýsingarinnar og tillögu að breyttu skipu- lagi, þ.m.t. þessi auglýsing, er skv. 30. grein skipu- lagslaga nr. 123/2010 f.h. Bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Heildsala í Reykjavík óskar eftir fólki í framtíðarstarf í afgreiðslu og fleira, 50% vinna, þarf að tala og skrifa góða íslensku. Umsóknir sendist á box@mbl.is, merktar: ,,R - 26489”. Forsætisráðuneytið Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu jafnréttis- mála í forsætisráðuneytinu. Skrifstofan verður sett á fót              neytisins, sbr. forsetaúrskurð nr. 119/2018, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem öðlast gildi 1. janúar 2019. Helstu verkefni skrifstofunnar verða: • Framfylgd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, meðal annars framkvæmd og eftirlit með innleiðingu jafnlaunavottunar hjá stofnunum og fyrirtækjum. • Framfylgd þingsályktunar um Jafnréttissjóð Íslands. • Stefnumótun á sviði jafnréttismála, meðal annars með tilliti til áframhaldandi lagaþróunar og útvíkkun jafnréttishugtaksins svo sem með tilliti til trúar, lífsskoðunar, fötlunar, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna og kyntján- ingar, sbr. ákvæði til bráðabirgða í lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og fyrirhugaðrar lagasetningar um kynrænt sjálfræði.            ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.     !       Menntunar- og hæfniskröfur:  #$  !   $ %    " • Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar og þekking á jafnréttismálum er æskileg. • Hæfni og reynsla í að leiða stefnumótun, samráð og undirbúning verkefna. • Forystu-, samskipta- og skipulagshæfni. • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti. Að auki skulu umsækjendur fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar nk. Senda skal umsóknir þar sem fram kemur hvernig umsækjendur uppfylla ofangreindar menntunar- og hæfniskröfur til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu, 101 Reykjavík eða með tölvupósti á póstfang ráðuneytisins: postur@for.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Í samræmi við 19. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, verður sérstök hæfnisnefnd skipuð til að fjalla um hæfni umsækjenda, sbr. reglur nr. 393/2012,    $  $  $ $     $   embætti við Stjórnarráð Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi $    & $ ' " ( & $  kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, í síma 545-8400. Í forsætisráðuneytinu, 17. desember 2018. Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til.  Sjá nánar á kopavogur.is www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf Laus störf hjá Kópavogsbæ Skessuhorn – fréttaveita hef- ur valið eigendur útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Guð- mundur Runólfsson hf. í Grundarfirði Vestlendinga ársins 2019. Eigendur fyrir- tækisins sem starfar undir merkjum G.Run eru sjö systkini Guðmundarbörn og makar, auk frænda þeirra Mósesar Geirmundssonar. „Þessi hópur stendur þétt saman að rekstri fyrirtækis- ins og á liðnu ári var af mikl- um krafti ráðist í uppbygg- ingu fullkomnustu bolfisk- vinnslu í landinu. Fjárfesting upp á vel á annan milljarð króna, áhersla lögð á íslenskt hugvit og mannafla og mark- miðið að treysta til frambúðar stoðir fiskvinnslu í heima- byggð. Nýja vinnslan verður opnuð síðar í þessum mán- uði,“ segir í fréttatilkynningu. Álits leitað víða Val á Vestlendingi ársins stóð yfir í desember en þetta er í tuttugasta skipti sem Skessu- horn gerir þetta. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenn- ingi auk þess sem ritstjórn leitaði álits fjölmargra valin- kunnra íbúa í landshlutanum. Þessum gögnum var síðan safnað saman og niðurstaða fengin. Önnur þau sem hátt skor- uðu voru Bára Tómasdóttir í Hvalfjarðarsveit og fjölskylda hennar, aðstandendur, Einars Darra Óskarssonar sem lést í maí sl. af völdum ofnotkunar lyfseðilsskyldra lyfja. Fjölskyldan opnaði í kjölfar fráfalls hans umræðu í þjóð- félaginu sem leiddi til þjóðar- átaks gegn fíkniefnum þar sem áherslan var á misnotkun lyfja meðal ungmenna á Ís- landi. Eiríkur J. Ingólfsson bygg- ingameistari í Borgarnesi hlaut tilnefningar fyrir kröft- ugan rekstur byggingafyrir- tækis í heimabyggð. Eiríkur hefur á liðnum árum og ára- tugum rekið EJI húsbygging- ar, byggt fjölda húsa auk þess að sérhæfa sig í glugga- og hurðasmíði. Hátæknifyrirtæki úr bílskúr Einnig komust á blað hjónin Guðrún Agnes Sveinsdóttir og Ingólfur Árnason á Akra- nesi sem hlutu tilnefningar. Þau hafa byggt úr bílskúrs- rekstri sínum á Akranesi al- þjóðlegt hátæknifyrirtæki með höfuðstöðvar á Akranesi. Fyrirtækið Skaginn 3X er leiðandi á sínu sviði í hönnun og smíði ýmissa framleiðslu- og tæknilausna í matvæla- framleiðslu, segir í tilkynn- ingu frá Skessuhorni – frétta- veitu Vesturlands. Ljósm/TFK Grundarfjörður Runólfur, Guðmundur Smári, Kristján, Páll, María og Unnsteinn Guðmundsbörn tóku við viðurkenning- unni sem Vestlendingar ársins úr hendi Kristjáns Gauta Karls- sonar frá Skessuhorni. Þau eru eigendur G.Run, ásamt Inga Þór bróður sínum, auk Móses Geirmundssonar frænda þeirra. Vestlendingar ársins  Skessuhorn og lesendur völdu  G. Run í fremstu röð Tónlistarsjóður Rótarý- hreyfingarinnar á Ís- landi stendur nú á morgun, sunnudaginn 6. janúar, kl. 17 fyrir stór- tónleikum í Norður- ljósasal Hörpu, eins og hefð er fyrir í upphafi hvers árs. Þar verða veitt verðlaun úr Tón- listarsjóði Rótarý á Ís- landi og flutt glæsileg tónlistardagskrá. Garðar Cortes flytur ávarp í upphafi tónleikanna, en flytjendur verða Bjarni Thor Kristinsson bassi og Lilja Guðmundsdóttir sópran, sem verða með fjölbreytta dag- skrá einsöngslaga. Undirleik- ari á píanó er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Þá koma fram við sama tilefni verðlaunahaf- ar tónlistarsjóðs Rótarý, sem í ár eru þau Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Óskar Magnússon gítar- leikari. Þau munu flytja ýmis sígild verk; Gunnhildur prelú- díu úr svítu eftir J.S. Bach og þátt úr Sónötu eftir S. Rach- maninoff. Rótarýtónleikar í Hörpu á sunnudag Bjarni Thor Kristinsson Lilja Guðmundsdóttir Kallað er eftir ábyrgð Sam- taka atvinnulífsins vegna yfirstandandi kjaraviðræðna þeirra við Starfsgreina- samband Íslands (SGS). Þetta segir í ályktun sem stjórn og trúnaðarmannaráð Verka- lýðsfélags Grindavíkur sam- þykkti fyrr í vikunni. Þar er formanni félagsins falið að draga samningsumboð þess til baka frá Starfsgreina- sambandi Íslands komist ekki skriður á kjaraviðræður nú í byrjun janúar eða ef SGS vísar deilunni ekki til ríkis- sáttasemjara. Einnig var formanni Grindavíkurfélagsins, segir í tilkynningu, veitt fullt um- boð til að leita eftir samstarfi við félög utan forystu SGS um samstarf í samningum ef ekki semst. Samningsumboðið verði fært frá SGS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.