Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 5
Vilt þú taka þátt í eflingu bráðaþjónustu
í þinni heimabyggð?
Frekari upplýsingar um starfið
Tækifæri fyrir aðila sem hafa áhuga á að afla sér menntunar og/eða starfa við krefjandi verkefni í
heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Landssamband slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna hafa gert.
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is - undir laus störf
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Umsókninni þarf einnig að fylgja hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin
hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr.
464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2019
Nánari upplýsingar veitir:
Cecilie B. H. Björgvinsdóttir, mannauðsstjóri HSU, cecilie.bjorgvinsdottir@hsu.is - 432-2002
Helstu verkefni og ábyrgð
• Í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri
er bakvaktaskylda. Bakvaktir eru
skipulagðar allan sólarhringinn, á
hvorum stað fyrir sig.
• Í Rangárþingi er nú um að ræða
bakvaktir frá kl. 19-07. Þar verða
auglýstar stöður fyrir haustið 2019.
• Bakvaktir eru skipulagðar af varðstjóra í
viðkomandi umdæmi.
Hæfniskröfur
• Starfsleyfi Embættis landlæknis í
sjúkraflutningum, kostur.
• Grunnmenntun EMT-Basic, kostur.
• Neyðarflutningsnám, kostur.
• Meirapróf.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að liðsauka í sjúkraflutninga á starfssvæði
stofnunarinnar í Rangárþingi, í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri.
Grunnþjálfun til starfsleyfis í sjúkraflutningum í boði af hálfu HSU.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í tímabundin hlutastörf við átaksverkefni á sviði aðgengismála á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Samanlagt er gert ráð fyrir 100% starfshlutfalli sem skiptist á milli starfsmanna eftir samkomulagi. Átaksverkefnið mun standa yfir í sex mánuði.
Aðgengi um almannarými og byggingar hefur batnað til muna undanfarin ár. Þó þarf að gera miklu betur. ÖBÍ hyggst taka út aðgengi víða í samfélaginu og
leggja til úrbætur þar sem við á. Markmiðið er að vekja athygli stjórnvalda, stjórnsýslu og almennings á málaflokknum um mikilvægi aðgengis fyrir alla.
Úttektir verða gerðar á völdum byggingum ætluðum almenningi. Unnið er eftir hugmyndafræði algildrar hönnunar með notkun gátlista. Starfsmenn fá fræðslu
og þjálfun áður en úttektir hefjast. Unnið er í nánu samstarfi við skrifstofu ÖBÍ, málefnahóp ÖBÍ um aðgengismál og starfsmann hans. Gert er ráð fyrir að annar
starfsmaðurinn haldi utan um verkefnið, skrifi skýrslur og sjái um skjalavörslu en þeir fari saman í úttektir, miðla upplýsingum o.fl. Önnur verkefni taka mið af
menntun, reynslu og áhuga.
Aðgengisátak ÖBÍ
Verkefni
• Undirbúningur, skipulagning og utanumhald
• Úttektir á aðgengi
• Skráning á niðurstöðum
• Skýrslugerð
• Miðlun niðurstaðna og eftirfylgni
• Ljósmyndun, upptökur og miðlun efnis
Hæfniskröfur
• Framhaldsskólamenntun æskileg og/eða
menntun á háskólastigi
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og ritfærni
• Tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum
æskileg
• Reynsla af aðgengishindrunum
• Góð samskipti og samstarfshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir:
Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Fatlað fólk/fólk með skerðingar er sérstaklega hvatt
til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) er heildarsamtök fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra.
Aðildarfélög bandalagsins eru 43 talsins. Hlutverk ÖBÍ er að vinna að samfélagslegu réttlæti, bættum lífsgæðum og kjörum auk þess
að vera stefnumótandi í réttindamálum hagsmunahópsins. Öflun og miðlun þekkingar er mikilvægur þáttur í starfseminni. Þá tekur
ÖBÍ þátt í erlendu samstarfi. Nánari upplýsingar er að finna á obi.is.