Morgunblaðið - 01.02.2019, Qupperneq 10
Ljósmynd/Ágúst Atlason
V
eiga fæddist í karlmannslíkama,
fædd og uppalin á Ísafirði þar sem
hún átti góða æsku og marga vini.
Hún er nýflutt aftur í sinn gamla
heimabæ þar sem hún vinnur sem stálsmiður
og leiðsögukona. Hún stefnir að því í sumar að
verða fyrsta íslenska konan til að róa í kring-
um Ísland á kajak. Ísland þykir eitt af þeim
löndum í heiminum þar sem sú áskorun er
hvað erfiðust. En það er einmitt ástæða þess
að Veiga ætlar í róðurinn. Hún þekkir það að
sigla á móti straumnum. Það er eitthvað í aug-
um hennar sem sýnir að hún hefur sigrast á
sjálfri sér. Að hafa fyrir lífinu virðist henni í
blóð borið. Kona sem þurfti að hafa fyrir því
að fá líkama sinn leiðréttan.
Reyndi tvisvar að svipta sig lífi
Á tímabili sá Veiga ekki leið sem hún gæti
farið til að halda áfram að lifa. Hún lýsir
þessu tímabili í lífi sínu svona:
„Ég hef tvívegis reynt að svipta mig lífi. Ég
hef farið niður í þannig þunglyndi að allt varð
svart í kringum mig. Ég þurfti að takast á við
mikla fordóma, en það voru aðallega sleggju-
dómar sem bjuggu innra með mér. Í raun má
segja að ég hefði gefist upp hefði ég ekki
ákveðið að taka þetta skref, að gangast við
mér eins og ég er: Kona fædd í röngum lík-
ama. Ég er þakklát fyrir það í dag að ég fór í
leiðréttingu á líkama mínum. Ég vildi ekki lifa
lengur í röngum líkama. Ég hafði ekki val.“
Veiga var ung að aldri þegar hún uppgötv-
aði að hún var ekki eins og hinir strákarnir.
Hún man eftir að hafa laumað sér í kven-
mannsföt einungis 11 ára að aldri. Þegar hún
var unglingur var hún eins og alkóhólisti að
fela áfengið sitt að eigin sögn. Hún faldi kven-
fötin í húsgögnum sem hún hafði tekið í sund-
ur. Hún segir að þessum feluleik hafi fylgt
mikil skömm og niðurbrot.
Tímabil afneitunar
„Þegar ég komst af unglingsaldri skil-
greindi ég mig í fyrstu sem klæðskipting, en
það var ekki eins og ég færi út um allt að
segja frá því. Ég hef verið í tveimur löngum
samböndum við konur sem ég elskaði. Með
fyrri barnsmóður minni eignaðist ég yndis-
legan son, en hún gat ekki sætt sig við þessa
þörf mína fyrir að klæða mig í kvenmannsföt
svo það samband endaði.“
Eftir skilnaðinn segist Veiga hafa tekið
tímabil þar sem hún fór út oft sem stelpa. Síð-
an kynntist hún seinni barnsmóður sinni og
læsti þennan hluta af sér inni í skápnum.
„Við Helga, seinni barnsmóðir mín, vorum
brjálæðislega ástfangin. Við kynntumst án
þess að hún vissi hver ég væri en fljótlega
ákvað ég að vera heiðarleg við hana um hvað
ég hafði verið að gera. Samband okkar var
þannig að ég vissi að við elskuðum hvort ann-
að skilyrðislaust. Ég náði að koma fram af
heiðarleika miðað við allt sem ég vissi á þess-
um tíma. Seinna áttaði ég mig á því að það að
tala um hlutina væri ekki meðalið við því sem
var að hjá mér. Það reyndist í raun hættulegt
heilsu minni að þrýsta tilfinningunum niður
og bæla með mér þörfina. En það gekk upp í
ákveðinn tíma.“
Var í sætum karllíkama
Veiga var í sætum karllíkama. Hún var eins
konar karla-karl í augum þeirra sem þekktu
hana náið enda reyndi hún markvisst að beita
„karlalegum“ aðferðum til að lækna sig af því
að vera kona. „Ég fékk mér skotleyfi, fór að
veiða og gerði ýmislegt sem ég taldi myndi
efla mig sem karlmann í þessu lífi. Á leiðinni
heim af einu slíku skotvopnanámskeiði fór ég í
nælonsokka og kjól og ég man hvernig það
var hápunktur ferðarinnar. Þetta var afl sem
varð ekki unnið með karlmennskunni einni
saman. Það var nokkuð sem ég reyndi á eigin
skinni.“
Veiga er í góðum tengslum við börnin sín
tvö og fósturbarn sem hún eignaðist með
seinni barnsmóður sinni. Hún er á því að
börnin hennar séu númer eitt, tvö og þrjú í líf-
inu. Það var einmitt fyrir þau sem hún ákvað
að finna leiðina til að lifa áfram, þótt hún gæti
misst alla fjölskylduna í ferlinu. Hún vissi að
ef þetta tækist myndi fólk sætta sig við leið-
réttinguna þegar það sæi að þetta væri henn-
ar eina lífsbjörg. Að þetta væri leiðin hennar
til að lifa.
Seinni konan stóra ástin í lífinu
„Seinni konan mín er stóra ástin í lífi mínu.
Hana langaði mig ekki að missa en hún er
gagnkynhneigð, ég er samkynheigð. Við finn-
um leið á hverjum degi til að vera nánar vin-
konur. Enda deilum við stórum hluta lífsins
sem foreldrar dóttur okkar. Kannski er ástin
einmitt þannig að hún frelsar en bindur ekki,“
segir Veiga og fellir stórt tár um leið og hún
lýkur setningunni. Hún vonast til að geta tal-
að um þetta einn daginn án þess að gráta.
Veiga segir að samkvæmt sinni bestu þekk-
ingu sé talið að um 1% mannkyns sé í röngum
líkama eða transfólk. Hún segir fagfólk hafa
takmarkaða þekkingu á þessu sviði; þeir sál-
fræðingar sem hún hafi farið til hafi litla
þekkingu á málefninu, kynleiðréttingarferlið
sé þungt og flókið. Ekki ósvipað því kannski
að róa í kringum landið.
Erfiðar áskoranir
„Að róa í kringum Ísland, sem þykir svipað
því að ganga upp á K2-fjallið, er að mig grun-
ar auðveldara en að fara í gegnum það sem ég
hef farið í gegnum með kynleiðréttingunni. Að
róa í kringum landið á kajak er bæði andlega
og líkamlega erfitt. Það sama má segja um
kynleiðréttingarferlið.“
Veiga starfar á veturna hjá Skaganum3X
en á sumrin er hún leiðsögukona. Hún veit
fátt yndislegra en að fara um landið með
ferðamenn og kynna þeim allt það áhugaverða
sem landið hefur upp á að bjóða. Hún kann vel
við sig í náttúrunni með fólki.
Veiga er mikill húmoristi og dugleg að sýna
myndir af því sem hún hefur farið í gegnum.
Hún bendir á mynd af sér fyrir kynleiðrétt-
ingaraðgerðina. Hún útskýrir að áhyggjusvip-
urinn sé tilkominn vegna þess að hún hafði
áhyggjur af því að ekkert yrði úr aðgerðinni
en ekki því sem hún fæli í sér.
Til marks um það hversu vel henni líður í
dag bendir hún á kraftinn og viljastyrkinn
sem einkennir hvern dag í lífi hennar. Hún
hefur tekið mataræði sitt í gegn, hún er ekki
„baggi á samfélaginu“ eins og hún segir sjálf,
heldur lífsglöð viljasterk kona sem veit hvað
hún vill og hvað hún vill ekki.
Heimildarmynd um róðurinn
Hvað viltu fá fram með róðrinum í kring-
um landið?
„Gerð verður heimildarmynd um róðurinn.
Í gegnum þá mynd langar mig að ná til fólks
utan landsteinanna líka. Mig langar að sýna
að ég hef það sem þarf af því að ég hef geng-
ið í gegnum ýmislegt sem hefur gert mig
sterka. Mig langar að gefa fólki úti um allan
heim hugrekki til að leysa úr sínum málum
líka. Fá hugrekki í brjóstið til að segja við
sig: „Ég er nóg“, líkt og ég gat og get sagt í
dag. Því auðvitað er ég nóg.
Mig langar að safna peningum fyrir Pieta-
samtökin, til að styðja við starfsemina þar
svo þau geti haldið áfram að aðstoða fólk sem
finnur ekki tilgang með lífinu lengur. Mig
langar að sýna fólki fram á að allt er hægt ef
viljinn er fyrir hendi. Þegar við getum sett
eigin dómhörku til hliðar og gengist við því
sem við erum. Þegar við getum labbað inn í
aðstæður þar sem enginn skilur okkur, gefið
fólki rými til að kynnast okkur betur og
þannig náð með mínum krafti að minnka for-
dóma fyrir því sem er ókunnugt fyrir fólki.“
Dömubindi á sængina
Veiga á fleiri vini í dag en hún hefur
nokkrun tímann átt. Ég hef auðvitað lent í
því að gamall karlvinur ávarpi mig sem karl-
mann, það er ekkert mál, ég ávarpa hann þá
bara sem konu sem er mjög fyndið og við
hlæjum saman.
Ég var líka kölluð pabbi í fyrsta skiptið
sem ég fór með dóttur minni í kvenmanns-
sturtu, það var pínu óþægilegt en ótrúlega
fyndið líka. Ég hef fengið dömubindi á sæng-
ina þar sem það var það eina sem góðum vini
mínum datt í hug að mig vantaði eftir aðgerð-
ina. Allt þetta eru gullmolar sem safnast í
sarpinn. Fallega skrítnir hlutir sem eru þess
virði að komist í dagsljósið.
Ég er ekki ein um að tilheyra þessari
fyndnu veröld, þar sem við erum öll að reyna
að fóta okkur saman í átt að tilgangi í lífinu.
Ég geri mitt besta á hverjum degi og trúi því
í hjartanu að allir aðrir geri það líka. Það gef-
ur mér skilning og auðmýkt í garð þeirra
sem vita ekki betur. Þeim býðst nú að kynn-
ast konu eins og mér. Ég vona að þeir gefi
sér tíma og leggi söfnuninni lið. Eins hvet ég
alla til að koma á fyrirlestrana mína, sem
verða á átta stöðum á ferð minni um landið.“
Rær á móti straumnum
Að róa á móti straumnum er nokkuð sem Veiga Grétarsdóttir
er orðin þjálfuð í. Hún ætlar að fara í kringum Ísland á kajak í
sumar. Veiga vildi frekar deyja en að lifa áfram sem karlmaður.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ég hef tvívegis reynt að
svipta mig lífi. Ég hef farið
niður í þannig þunglyndi að
allt varð svart í kringum
mig. Ég þurfti að takast á við
mikla fordóma, en það voru
aðallega sleggjudómar sem
bjuggu innra með mér.
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019