Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.02.2019, Blaðsíða 19
heimurinn svo miklu minni sem er alveg stórkostlegt. Ég átti heima fyrst erlendis 17 ára, þá í Austin í Texas, og síðan fluttist ég til Parísar 19 ára og bjó í Los Angel- es, var við störf í Saudi-Arabíu og námi í Dublin og London. Ég held að ég hafi þroskast hratt við að búa ein erlendis. Það er svo nauðsynlegt að kynnast ann- arri menningu og hugsun til að öðlast frekari skilning á lífinu og mannfólkinu. Við erum ólík en við erum samt svo ótrú- lega lík. Það sem ég hef lært af öllum mínum ferðalögum um heiminn er að fólk er upp til hópa ótrúlega fallegt og gott.“ Soffía segir að mantran hennar sé að lifa í núinu. „Segja já við tækifærum og skemmtilegum hlutum. Það er ljóst að dagurinn í dag er það sem skiptir máli og að njóta hans með manninum mínum, börnum og vinum er það besta í lífinu.“ Soffía fær kraft og orku úr náttúrunni. Fjölskyldan á skíðum. Soffía í góðra vina hópi. fara mikið í fjöllin hér heima og í eina ferð erlendis ár- lega. Í vetur er ferðinni heitið til Madonna á Ítalíu. Það skíðasvæði er mjög fjölskylduvænt.“ Hvað elskar þú mest að gera í þessu lífi? „Ég elska að eiga stundir með fjölskyldunni minni og vinum og helst utandyra. Ég er með mikla hreyfiþörf og elska að vera úti í náttúrunni að leika. Ég á stóran vin- konuhóp og það toppar fátt að vera með vinkonunum uppi á fjöllum. Ég elska einnig sjóinn, að vera á kajak, snorkla og kafa er algjör draumur. Ég er að reyna byggja upp þol fyrir kalda sjóinn okkar.“ Hvað hefur þú lært með aldri og meiri þroska? „Trúlega meiri þolinmæði og að sinna sjálfri mér bet- ur og gera meira af því sem mér finnst skemmtilegt með skemmtilegu fólki. Það er ómetanlegt að vera með skemmtilegu fóki sem gefur af sér og kanna að njóta lífsins. Enda á ég skemmtilegustu vinkonur í heimi.“ Hvert langar þig næst að ferðast? „Það eru margir staðir á listanum og Asía og Afríka heilla mikið. Nepal er á óskalistanum. Mig langar að labba upp að grunnbúðum Everest og upplifa töfrana þar.“ Hvað keyptir þú þér í síðustu ferð? „Ég keypti kímonó-silkisloppa, búddastyttu, söngskál frá Tíbet og taí-box buxur fyrir strákana mína.“ Hvernig nærðu að halda svona góðu jafnvægi í lífinu? „Lykillinn að jafnvægi er að sinna sér vel og sínum áhugamálum, á þann hátt færðu orku til að gefa og sinna þínum nánustu. Hugarfarið er svo mikilvægt. Að byrja daginn og ákveða að dagurinn verði góður. Ég hef mikla trú á „self-fulfilling prophecy“, það getur virkað á báða vegu, jákvætt og neikvætt. Þetta er nefnilega svolítið mikið í þínum höndum, hamingjan og jafnvægið í lífinu.“ Nú varstu búsett erlendis þegar þú varst ung, hvernig var það? „Þegar maður hefur átt heima erlendis þá verður „Ég er með mikla hreyfiþörf og elska að vera úti í nátt- úrunni að leika.“ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2019 MORGUNBLAÐIÐ 19 Eykur blóðflæðið Dregur úr sársauka Flýtir fyrir bata Bætir frammistöðu og árangur Fæst í Lyfju, Apótekinu og Útilíf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.