Morgunblaðið - 18.02.2019, Page 1
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019
ÍÞRÓTTIR
Alpagreinar Mikaela Shiffrin frá Bandaríkjunum sigraði í svigi á HM í alpagreinum í Svíþjóð um
helgina og hefur þá orðið heimsmeistari í greininni fjögur skipti í röð. Er þó einungis 23 ára gömul. 2
Íþróttir
mbl.is
Rakel Hönnu-
dóttir var hetja
Reading þegar
liðið tryggði sér
sæti í átta liða
úrslitum ensku
bikarkeppninnar
í knattspyrnu í
gær. Rakel skor-
aði sigurmark
Reading á 82.
mínútu í 2:1-sigri
á Birmingham, aðeins mínútu eftir
að hún hafði komið inn á sem vara-
maður.
Rakel hefur byrjað afar vel hjá
Reading en hún skrifaði undir
samning við félagið í lok janúar.
Rakel hefur skorað þrjú mörk í
þremur leikjum með liðinu, þótt
hún hafi byrjað á varamannabekkn-
um í þeim öllum. sport@mbl.is
Rakel skoraði
sigurmark
Rakel
Hönnudóttir
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Meistarar KA-menn fengu bikarinn afhentan um helgina fyrir sigur sinn í deildakeppni karla í blaki og við það tilefni var þessi skemmtilega mynd tekin.
KA vann þrefalt í fyrra og liðið er greinilega einnig til alls líklegt á þessu keppnistímabili, en úrslitin á Íslandsmótinu ráðast í apríl.
„Andrúmsloftið var frábært og
skemmtilegt að hafa bikarúrslita-
leiki karla, kvenna og yngri flokka á
sama stað í sömu vikunni. Stuðn-
ingsmennirnir eru gersamlega
magnaðir,“ sagði Finninn Antti Ka-
nervo í samtali við Morgunblaðið
eftir að hafa orðið bikarmeistari í
körfuknattleik með Stjörnunni á
sínu fyrsta keppnistímabili á Íslandi.
Kanervo hafði áður leikið í Laug-
ardalshöllinni og var það fyrir ári.
Þurfti hann þá að sætta sig við tap
með finnska landsliðinu gegn því ís-
lenska í undankeppni HM. „Nú á ég
betri minningar úr þessari höll held-
ur en einungis tapið í fyrra.“
Spurður um hvort hann hafi kom-
ið til Íslands með væntingar um að
berjast um titla segir Kanervo að
hann hafi vitað hvað býr í þeim
Hlyni Bæringssyni og Ægi Þór
Steinarssyni. Hann hafði mætt þeim
í landsleik og mundi eftir þeim sem
leikmönnum. „Þegar ég tók þá
ákvörðun að ganga til liðs við Stjörn-
una vissi ég að Hlynur og Ægir
væru góðir leikmenn og hefðu spjar-
að sig í Svíþjóð. Ég bjóst því ekki við
öðru en að liðið myndi stefna að sigri
í stóru keppnunum. Nú er bikarinn
kominn í Garðabæinn og vonandi
bætist Íslandsbikarinn við eftir
nokkra mánuði,“ útskýrði Kanervo
sem var traustur fyrir Stjörnuna
bæði gegn ÍR og Njarðvík. Reyndur
leikmaður sem getur skorað þriggja
stiga körfur þegar liðið þarf mest á
því að halda.
Fyrirliðinn Hlynur Bæringsson
varð bikarmeistari í þriðja sinn á
ferlinum þrátt fyrir að hafa spilað
mörg ár erlendis. Kanervo segir
Hlyn vera fæddan leiðtoga. „Hann
er frábær leiðtogi. Okkur semur
mjög vel og við getum verið harðir
hvor við annan og hreinskilnir þegar
okkur liggur eitthvað á hjarta varð-
andi íþróttina. Það er eina leiðin til
að útkljá mál í toppliðum. Hlynur er
alger toppmaður,“ sagði Finninn við
Morgunblaðið. »4-5 kris@mbl.is
„Frábært andrúmsloft“
Finninn Antti Kanervo á nú betri minningar úr Laugardalshöllinni en áður
Morgunblaðið/Eggert
Stemning Antti Kanervo fagnar sigrinum ásamt stuðningsmönnum.
Martin Her-
mannsson lagðist
vafalaust súr í
bragði á kodd-
ann í nótt. Martin
og samherjar
hans hjá Alba
Berlín þurftu að
sætta sig við
grátlegt tap í úr-
slitum þýsku bik-
arkeppninnar í
körfuknattleik. Bramberg sigraði
83:82 og kom sigurkarfan úr
þriggja stiga skoti þegar aðeins 2,5
sekúndur voru eftir af leiknum.
Martin hafði skorað næstsíðustu
körfu Berlínarliðsins og var inni á á
lokamínútunum þegar dramatíkin
var allsráðandi. Martin gaf sex
stoðsendingar í leiknum og skoraði
sex stig en Alba var níu stigum und-
ir fyrir síðasta leikhlutann. Þá tókst
liðinu að snúa taflinu sér í hag um
tíma. Leikmenn Bramberg náðu
mörgum sóknarfráköstum í síðasta
leikhlutanum, sem reyndist dýrt.
Sárt tap hjá
Martin í
úrslitaleik
Martin
Hermannsson
Ásdís Hjálms-
dóttir, þrefaldur
ólympíufari í
spjótkasti, vann
til brons-
verðlauna á
sænska meistara-
mótinu innan-
húss í frjálsum í
gær. Ásdís
keppti í auka-
grein sinni, kúlu-
varpi, og kastaði 15,77 metra. Ekki
er keppt í spjótkasti á innanhúss-
mótum og tímabilið hefst með vor-
inu. sport@mbl.is
Fékk brons
í kúluvarpi
Ásdís
Hjálmsdóttir