Morgunblaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 2
SKÍÐI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Bandaríska skíðakonan Mikaela
Shiffrin stal senunni á heims-
meistaramótinu í alpagreinum sem
fram fór í Åre í Svíþjóð en mótinu
lauk formlega í gær. Shiffrin
tryggði sér sigur í bæði svigi og
risasvigi en þetta var hennar
fjórði heimsmeistaratitill í röð í
svigi.
Shiffrin var með þriðja besta
tímann eftir fyrri ferðina í svigi
um helgina en hún skíðaði á tím-
anum 59:82 sekúndur í seinni ferð-
inni og var samanlagt á tímanum
1:57,05 mínútur sem tryggði henni
sigur. Hún var 0,58 sekúndum
fljótari en hin sænska Anna
Swenn Larsson sem hafnaði í öðru
sæti en Petra Vlhova frá Slóvakíu
varð í þriðja sæti á tímanum 1:58,
08 mínútur.
Þá vann Shiffrin einnig til gull-
verðlauna í risasvigi á mótinu en
hún skíðaði á tímanum 1:04,89
mínútur og var 0,02 sekúndum á
undan ítölsku skíðakonunni Sofia
Goggia.
Shiffrin er fædd árið 1995 í Vail
í Colorado í Bandaríkjunum en
hún verður 24 ára gömul í mars.
Skíðaiðkun er henni í blóð borin
en foreldar hennar voru mikið
skíðafólk á sínum tíma og kepptu
bæði fyrir háskólalið sín á yngri
árum. Shiffrin varð fyrst heims-
meistari í svigi kvenna árið 2013,
þá 18 ára gömul, en hún hefur
unnið gullverðlaunin á síðustu
fjórum heimsmeistaramótum, árin
2013, 2015, 2017 og nú 2019.
Hirscher jafnaði Sailer
Austurríkismaðurinn Marcel
Hirscher fór með sigur af hólmi í
svigi karla og var 0,56 sekúndum
á undan Frakkanum Alexis Pintu-
rault sem hafnaði í öðru sæti.
Þetta er annað heimsmeist-
aramótið í röð þar sem Hirscher
fer með sigur af hólmi en hann
vann einnig til gullverðlauna í
svigi árið 2017, sem og árið 2013.
Þetta voru önnur verðlaun
Hirscher á mótinu í ár en hann
hafnaði í öðru sæti í stórsvigi.
Þessi 29 ára gamli Austurrík-
ismaður hefur nú sjö sinnum unn-
ið til gullverðlauna á heimsmeist-
aramóti í alpagreinum og jafnar
hann þar með árangur Austurrík-
ismannsins Toni Sailer yfir flest
gullverðlaun í karlaflokki á heims-
meistaramóti í alpagreinum.
Þrír Íslendingar voru skráðir til
leiks í aðalkeppnina í svigi kvenna
í Åre um helgina en Freydís Halla
Einarsdóttir stóð sig best þeirra
og hafnaði í 35. sæti. Freydís var
með rásnúmer 40 eftir fyrri ferð
sína og náði því að vinna sig upp
um fimm sæti en hún var með rás-
númer 57 fyrir fyrri ferðina og
vann sig því samanlagt upp um 22.
sæti.
María Finnbogadóttir endaði í
38. sæti eftir að hafa verið með
rásnúmer 67 fyrir fyrri ferðina og
Andrea Björk Birgisdóttir hafnaði
í 39. sæti en hún var með rásnúm-
er 65 fyrir fyrri ferð sína.
Úr leik eftir fyrri ferðina
Sturla Snær Snorrason féll úr
leik eftir fyrri ferð sína í að-
alkeppni karla í svigi í gær en
hann datt eftir nokkur hlið í
brautinni. Sturla endaði í 12. sæti
í undankeppninni sem fram fór á
laugardaginn. „Þetta eru mikil
vonbrigði og þetta hefur ekki al-
veg verið mitt mót en svona eru
skíðin stundum,“ sagði Sturla í
samtali við Ski.is í gær.
Fjórða gullið í röð í svigi
Skíðamennskan er Shiffrin í blóð borin Hircher orðinn sá sigursælasti
ásamt Sailer Íslensku skíðakonurnar bættu sig allar Sturla féll úr leik
AFP
Best Mikaela Shiffrin var aðeins 18 ára gömul þegar hún varð fyrst heimsmeistari kvenna í svigi.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Aron Pálmarsson og liðsfélagar hans í
Barcelona fóru illa með sænsku meistarana í
Kristianstad á heimavelli sínum í Meist-
aradeild Evrópu í handknattleik í gær en
leiknum lauk með sautján marka sigri
Barcelona, 43:26.
Aron skoraði ekki fyrir Barcelona en Ís-
lendingurinn lagði upp sex mörk fyrir liðs-
félaga sína. Arnar Freyr Arnarsson var
markahæsti Íslendingurinn í liði Kristians-
tad með fjögur mörk en þeir Teitur Örn Ein-
arsson og Ólafur Guðmundsson skoruðu tvö
mörk hvor.
Barcelona er í toppsæti A-riðils með 20 stig en Kristianstad
er í botnsætinu með fimm stig. sport@mbl.is
Stórsigur Barcelona
Aron
Pálmarsson
Þýska handboltaliðið Kiel tapaði sínum
fyrsta leik síðan í september á síðasta ári er
liðið lá gegn Magdeburg, 25:28, á heimavelli
í 1. deild Þýskalands í gær. Staðan í hálfleik
var 14:13, Magdeburg í vil.
Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar,
hafði unnið 22 leiki í röð fyrir leik gærdags-
ins, en liðið er í öðru sæti deildarinnar með
36 stig, sex stigum minna en Flensburg.
Þá var Arnór Þór Gunnarsson marka-
hæstur í liði Bergischer sem vann 26:22-
sigur gegn Wetzlar á heimavelli sínum en
Arnór skoraði sex mörk í leiknum. Fjögur þeirra komu af víta-
línunni en Bergischer er í áttunda sæti deildarinnar með 23
stig eftir 21 umferð. sport@mbl.is
Sigurhrinu Kiel lokið
Alfreð
Gíslason
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk
Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyr-
ir Wolfsburg sem tapaði sínum
fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið
heimsótti Bayern München í 14.
umferð þýsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu í gær en leiknum lauk
með 4:2-sigri Bayern München.
Bayern komst yfir eftir 20. mín-
útna leik með marki frá Carina
Wenninger og Gina Lewandowski
tvöfaldaði forystu Bayern undir lok
fyrri hálfleiks og
staðan því 2:0 í
hálfleik. Babett
Peter, varnar-
maður Wolfs-
burg, varð fyrir
því óláni að
skora sjálfsmark
á 64. mínútu en
Nilla Fischer lag-
aði stöðuna fyrir
Wolfsburg á 71. mínútu áður en
Ewa Pajor minnkaði muninn í eitt
mark á 77. mínútu og hélt vonum
Wolfsburg á lífi í leiknum.
Fridolina Rolfö, framherji Bay-
ern München, gerði svo út um leik-
inn með marki í uppbótartíma og
Wolfsburg og Bayern München eru
nú jöfn á toppi deildarinnar með 35
stig en Wolfsburg er með betri
markatölu.
Þá lék Sandra María Jessen sinn
fyrsta leik fyrir Bayer Leverkusen í
gær þegar liðið sótti Freiburg heim
en leiknum lauk með stórsigri
Freiburg, 6:0. Sandra var í byrj-
unarliði Bayer Leverkusen en var
skipt af velli á 62. mínútu en Sandra
samdi við félagið þann 11. janúar
síðastliðinn. Leverkusen er í harðri
fallbaráttu í þýsku 1. deildinni en
liðið er í ellefta sæti deildarinnar
með 10 stig, einu stigi frá öruggu
sæti en tólf lið leika í þýsku deild-
inni. bjarnih@mbl.is
Fyrsta tap Wolfsburg á tímabilinu
Skellur hjá Söndru Maríu í fyrsta leik Bayern og Wolfsburg jöfn á toppnum
Sara Björk
Gunnarsdóttir
HANDKNATTLEIKUR
Coca Cola bikar kvenna, 8-liða úrslit:
Hleðsluhöllin: Selfoss – Fram .................. 18
Coca Cola bikar karla, 8-liða úrslit:
Hleðsluhöllin: Selfoss – Valur ............. 20.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Snæfell..................... 19.15
Vallaskóli: Selfoss – Vestri .................. 19.15
Brauð og Co-höllin: Höttur – Hamar . 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Boginn: Þór – Magni ................................. 19
Vináttulandsleikur stúlkna U17 ára:
Fífan: Ísland – Írland................................ 18
Í KVÖLD!
Geysisbikar karla
Úrslitaleikur:
Njarðvík – Stjarnan ............................. 68:84
Geysisbikar kvenna
Úrslitaleikur:
Valur – Stjarnan ................................... 90:74
Spánn
B-deild karla:
Granada – Barcelona B ...................... 75:53
Kári Jónsson hjá Barcelona er frá
keppni vegna meiðsla.
B-deild kvenna:
Celta Zorka – Barca CBS ................... 67:54
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 8
stig og tók sex fráköst fyrir Celta Zorka.
Þýskaland
Bikarkeppnin, úrslitaleikur:
Alba Berlín – Bamberg....................... 83:82
Martin Hermannsson lék í 26. mínútur
með Alba Berlín og skoraði 6 stig, tók eitt
frákast og gaf sex stoðsendingar.
Austurríki
Flyers Wels – Traiskirchen Lions ..... 81:72
Dagur Kár Jónsson skoraði 5 stig og gaf
eina stoðsendingu fyrir Flyers Wels.
Svíþjóð
Borås – Wetterbygden Stars ............. 84:79
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 19 stig,
tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu
fyrir Borås.
KÖRFUBOLTI
Knattspyrnukon-
an Guðmunda
Brynja Óladóttir
skrifaði á föstu-
daginn undir
tveggja ára
samning við KR.
Hún kemur til fé-
lagsins frá
Stjörnunni þar
sem hún hefur
spilað síðustu tvö
ár.
Guðmunda er uppalin á Selfossi
en hún á að baki 109 meistaraflokks-
leiki í efstu deild með Selfossi og í
Stjörnunni þar sem hún hefur skor-
að 55 mörk en hún hefur spilað 173
meistaraflokksleiki á ferlinum þar
sem hún hefur skorað 96 mörk.
Guðmunda, sem er fædd árið
1994, á að baki 15 A-landsleiki þar
sem hún hefur skorað eitt mark en
KR hafnaði í áttunda sæti úrvals-
deildarinnar á síðustu leiktíð.
Guðmunda
Brynja í KR
Guðmunda
Brynja Óladóttir
Samuel Tefera frá Eþíópíu sló á laug-
ardaginn tuttugu og tveggja ára gamalt
heimsmet Marokkómannsins Hicham El
Guerrouj í 1.500 metra hlaupi innanhúss á
heimsbikarmóti í Birmingham.
Hann hljóp á 3:31,04 mínútum og bætti
metið um 14 hundraðshluta. Tefera, sem er
aðeins 19 ára gamall, varð heimsmeistari
innanhúss í greininni í fyrra. Hann við-
urkenndi að heimsmetið nú hefði komið sér
á óvart.
„Ég bjóst alls ekki við þessu, ég trúi
þessu ekki. Þetta er ótrúleg tilfinning,“ sagði Tefera við fjöl-
miðla eftir hlaupið. Utandyra er besti tími hans í greininni
3:33,78 mínútur frá því í Hollandi 2017. sport@mbl.is
Ungur heimsmethafi
Samuel
Tefera