Morgunblaðið - 18.02.2019, Qupperneq 5
Morgunblaðið/Eggert
Sigurgleði Aníta Rún Árnadóttir og Hallveig Jónsdóttir fallast í faðma þegar niðurstaðan lá fyrir.
Í LAUGARDALSHÖLL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Bikarkeppni karla í körfuknattleik á
glettilega vel við Garðbæinga. Stjarn-
an lagði Njarðvík að velli í úrslitaleik
Geysis-bikarsins fyrir framan 2.100
áhorfendur í Laugardalshöllinni
84:68. Var þetta fjórði bikarmeist-
aratitill Stjörnunnar á aðeins ellefu
árum. Karlalið félagsins hefur aldrei
tapað bikarúrslitaleik í körfunni.
Rétt eins og í undanúrslitaleiknum
fundu Garðbæingar taktinn snemma
leiks. Njarðvík var yfir 9:6 en eftir það
þurftu Njarðvíkingar að elta forskot
Stjörnunnar. Ekki er það alltaf þannig
að tvö efstu liðin í deildinni mætist í
bikarúrslitum en sú var raunin í þetta
skiptið. Njarðvík er í efsta sæti í deild-
inni og Stjarnan í öðru sæti eftir mikla
sigurgöngu síðustu vikurnar. Fara
þarf aftur í nóvember til að finna tap-
leik hjá Stjörnunni en sigurinn á laug-
ardaginn var sá fjórtándi í röð í deild
og bikar.
Elvar í greipum Ægis
Kom það mörgum körfuknattleiks-
áhugamönnum á óvart þegar Stjarnan
lét Paul Jones fara sem reynst hafði
prýðilegur liðsmaður bæði hjá Stjörn-
unni og Haukum í fyrra. Brandon
Rozzell kom í staðinn um áramótin og
sá sýndi í bikarleikjunum hvers hann
er megnugur. Njarðvíkingar réðu
ekkert við hann en Rozzell skoraði 30
stig. Hann komst snemma í stuð og
virtist alltaf líklegur til að geta skorað.
Hefur það vafalaust gefið samherjum
hans aukið sjálfstraust. Þegar Njarð-
víkingum tókst að neyða hann í erfið
skot þá setti hann þau gjarnan niður.
Á hinn bóginn var enginn Njarðvík-
ingur sem komst í gott stuð í langskot-
unum. Mario Matesovic getur borið
höfuðið hátt en hann skilaði 19 stigum
fyrir Njarðvík og 5 fráköstum. Vand-
inn sem andstæðingar Njarðvíkur
hafa glímt við í vetur hefur hins vegar
verið að halda aftur af bakvörðum
Njarðvíkur. Elvar Már Friðriksson og
Jeb Ivey eru erfiðir viðureignar svo
það sé nú pent orðað. Þegar eyða þarf
miklu púðri í þá hafa þeir Logi Gunn-
arsson og Maciej Baginski gert sér
mat úr þriggja stiga skotfærum.
Garðbæingum tókst að halda þessum
mönnum í skefjum. Elvar var í
strangri gæslu Ægis Þórs Stein-
arssonar og skoraði 8 stig en náði þó
að gefa 7 stoðsendingar. Ivey skoraði
12 og Logi 7 stig. Ef til vill hefði Logi
átt að spila meira en 17 mínútur í leik
þar sem svo mikið er undir. Maciej
gerði einungis 1 stig. Vörnin var því
geysilega góð hjá Stjörnunni.
Meiri breidd hjá Stjörnunni
Breiddin í leikmannahópi Stjörn-
unnar reyndist vera meiri. Liðið er vel
mannað á pappírum en þegar inn á
völlinn er komið þurfa menn að skila
sínu og sætta sig við að ábyrgðin
dreifist. Þjálfarinn, Arnar Guð-
jónsson, hefur skipulagt þessa verka-
skiptingu vell, og í viðtali á mbl.is seg-
ir hann sína menn hafa verið tilbúna
til fórna fyrir hag liðsins.
Þegar greinarhöfundur ræddi við
þjálfara og leikmenn Stjörnunnar var
auðheyrt að þeir báru mikla virðingu
fyrir Njarðvíkingum enda Njarðvík í
toppsæti deildarinnar. Garðbæingar
lögðust greinilega vel yfir það hvernig
mögulega væri hægt að halda skyttum
Njarðvíkinga í skefjum. Ægir Þór
Steinarsson orðaði það þannig að
hann hefði verið á nálum í vörninni all-
an leikinn því hætturnar leynast svo
víða þegar leikið er gegn liði Njarðvík-
ur.
Bikarúrslitaleikirnir
eiga vel við Garðbæinga
Fjórði bikarsigur Stjörnunnar á ellefu árum Fjórtán sigurleikir í röð
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019
Spánn
Barcelona – Real Valladolid .................... 1:0
Rayo Vallecano – Atlético Madrid .......... 0:1
Real Madrid – Girona .............................. 1:2
Staða efstu liða:
Barcelona 24 16 6 2 61:23 54
Atlético Madrid 24 13 8 3 34:17 47
Real Madrid 24 14 3 7 41:29 45
Sevilla 24 10 7 7 38:28 37
Getafe 24 9 9 6 30:21 36
Alavés 24 10 6 8 25:28 36
Real Sociedad 24 9 7 8 30:25 34
Real Betis 24 9 6 9 27:30 33
Valencia 24 6 14 4 24:20 32
Eibar 24 7 10 7 33:34 31
Levante 24 8 6 10 36:43 30
Leganés 24 7 8 9 25:30 29
Espanyol 24 8 5 11 27:37 29
Athletic Bilbao 23 5 12 6 23:28 27
Girona 24 6 9 9 25:34 27
B-deild:
Real Oviedo – Alcorcón .......................... 1:0
Diego Jóhannesson spilaði seinni hálf-
leikinn fyrir Real Oviedo.
Holland
AZ Alkmaar – Venlo ............................... 3:0
Albert Guðmundsson kom inn á sem
varamaður á 74. mínútu hjá AZ Alkmaar.
Excelsior – Emmen ................................. 2:1
Elías Már Ómarsson var ónotaður vara-
maður hjá Excelsior, Mikael Anderson var
ekki í leikmannahóp Excelsior.
Vitesse – Willem II................................... 3:2
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 88. mínútu hjá Willem II.
Tyrkland
B-deild:
Altinordu – Gazisehir ............................. 1:0
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn fyrir Gazieshir.
Pólland
Jagiellonia – Wisla Plock........................ 1:0
Böðvar Böðvarsson var ónotaður vara-
maður hjá Jagiellonia.
Aserbaídsjan
Qarabag – Gabala.................................... 2:1
Hannes Þór Halldórsson var ónotaður
varamaður hjá Qarabag.
Grikkland
Larissa – Xanthi ...................................... 1:1
Ögmundur Kristinsson stóð á milli
stanganna hjá Larissa.
Danmörk
Esbjerg – Bröndby .................................. 2:1
Hjörtur Hermannsson var ónotaður
varamaður hjá Bröndby.
OB – Vejle................................................. 1:0
Kjartan Henry Finnbogason lék fyrstu
59. mínúturnar fyrir Vejle.
Horsens – Vendsyssel ............................. 3:0
Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunar-
liði Vendsyssel en fékk að líta rauða spjald-
ið á 34. mínútu.
Staðan:
Köbenhavn 22 17 2 3 57:19 53
Midtjylland 21 14 5 2 51:19 47
Esbjerg 22 9 5 8 28:29 32
Bröndby 22 9 4 9 36:33 31
Randers 22 8 7 7 26:28 31
Horsens 22 8 7 7 29:37 31
AGF 22 7 9 6 26:25 30
OB 22 8 6 8 28:29 30
Nordsjælland 22 7 7 8 33:33 28
AaB 21 7 7 7 27:28 28
SönderjyskE 22 5 7 10 23:31 22
Vejle 22 4 7 11 19:34 19
Vendsyssel 22 5 4 13 20:36 19
Hobro 22 4 5 13 17:39 17
Svíþjóð
Bikar karla, 32ja liða, riðlakeppni:
Malmö – Degerfors.................................. 3:2
Arnór Ingvi Traustason sat allan tímann
á varamannabekk Malmö.
Norrköping – Värnamo .......................... 3:1
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn fyrir Norrköping, Alfons Sampsted,
Ísak B. Jóhannesson og Oliver Stefánsson
voru ekki í leikmannahóp Norrköping.
Häcken – Brage ....................................... 6:1
Bjarni Mark Antonsson var ónotaður
varamaður hjá Brage.
Östersund – Halmstad ............................ 0:0
Höskuldur Gunnlaugsson var ekki í leik-
mannahópi Halmstad.
Bikar kvenna, 16-liða, riðlakeppni:
Kalmar – Rosengård ............................... 0:4
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn fyrir Rosengård.
Kristianstad – Limhamn Bunkeflo........ 3:0
Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir
Kristianstad, Svava Rós Guðmundsdóttir
lék allan leikinn fyrir Kristianstad og skor-
aði eitt mark og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
var ónotaður varamaður hjá Kristianstad.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Andrea Thorisson kom inn á sem vara-
maður hjá Limhamn á 76. mínútu.
Djurgården – Örebro.............................. 4:0
Ingibjörg Sigurðardóttir og Guðrún
Arnardóttir léku allan leikinn fyrir Djur-
gården. Guðbjörg Gunnarsdóttir lék ekki
með Djurgården vegna meiðsla.
Linköping – Växjö ................................... 1:1
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn fyrir Linköping.
KNATTSPYRNA
Stigahæst allra og tók
var einfaldlega lang-
s. Um leið og hún komst
uta var Stjarnan í
aður leiksins
Laugardalshöll, Bikarkeppni karla, 16.
febrúar 2019.
Gangur leiksins:: 4:2, 9:9, 16:9,
23:18, 28:21, 34:26, 37:26, 41:32,
44:36, 51:43, 53:48, 60:57, 67:59,
70:65, 78:66, 84:68.
Stjarnan: Brandon Rozzell 30, Hlyn-
ur Elías Bæringsson 13/14 fráköst,
Antti Kanervo 11, Collin Anthony Pry-
or 9/5 fráköst, Ægir Þór Steinarsson
8/8 stoðsendingar, Filip Kramer 7/6
fráköst, Tómas Þórður Hilmarsson
4/4 fráköst, Magnús B. Guðmunds-
son 2.
Fráköst: 31 í vörn, 6 í sókn.
Njarðvík: Mario Matasovic 19/5 frá-
köst, Jeb Ivey 12/4 fráköst/5 stoð-
sendingar, Eric Katenda 11/6 fráköst,
Elvar Már Friðriksson 8/8 fráköst/7
stoðsendingar, Logi Gunnarsson 7,
Ólafur Helgi Jónsson 6/4 fráköst,
Kristinn Pálsson 3, Maciek Baginski
1, Snjólfur Marel Stefánsson 1.
Fráköst: 28 í vörn, 4 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð
Tómas Tómasson, Rögnvaldur Hreið-
arsson.
Áhorfendur: 2.100.
Stjarnan – Njarðvík 84:68
ór hefði einnig stað-
skilaði 30 stigum
pplið mætast. Dýr-
leikmanns sem
nustigið er hátt.
ur leiksins